Morgunblaðið - 10.03.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.03.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/Lesbók 58. tbl. 78. árg.___________________________________LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Sameining þýsku ríkjanna: Reuter Harka færist í mótmælin íLundúnum Reiður Breti kreppir hnefana fyrir utan Hackney-ráðhúsið í austurhluta Lundúnaborgar í gær er fólk safnaðist þar saman til að mótmæla nýjum nefskatti sem koma skal í stað eignaskatts. Að minnsta kosti 38 mótmælendur voru handteknir í borginni eftir að komið hafði til harðra átaka. Tugir manna urðu fyrir meiðslum. Pinochet lætur afembætti Augusto Pinochet, forseti Chile, lætur af embætti við hátíðlega athöfn á sunnudag eftir að hafa farið með völdin í landinu í sautján ár. Eftirmaður hans, Patricio Aylwin, frambjóðandi sautján flokka, fékk 55% at- kvæða í kosningunum í desem- ber. Talið er líklegt að margir þingmenn sniðgangi athöfnina á sunnudag til að mótmæla pyntingum og mannréttinda- brotum á valdatíma Pinochets. Myndin var tekin af forsetanum við opinbera athöfn í höfuðborg landsins, Santiago, í gær. Reuter Mitterrand styður kröfii Pólverja um landamærasamning Bonn. Reuter, dpa. ÞÝSKU ríkin tvö hófli í gær formlegar samningaviðræður um samein- ingu Þýskalands og stjórnvöld beggja ríkjanna ítrekuðu loforð sín um að engar ákvarðanir yrðu teknar um sameiningu án samráðs við banda- menn þeirra og nágrannaríki. Francois Mitterrand Frakklandsforseti sagðist styðja kröiu Pólverja um að þýsku ríkin gerðu bindandi samn- ing við þá um landamæri Póllands. Háttsettir embættismenn þýsku ríkjanna hófu sínar fyrstu formlegu viðræður um sameiningarmálið í Austur-Berlín í gær. Fundur þeirra var haldinn til að undirbúa viðræður þýsku ríkjanna og íjórveldanna, Sov- étríkjanna, Bandaríkjanna, Bret- lands og Frakklands, sem heijast í næstu viku. Ernst Krabatsch, aðstoð- arutanríkisráðherra Austur-Þýska- lands, sagði eftir fundinn að viðræð- urnar yrðu erfíðar og vissulega væri ágreiningur fyrir hendi. Talsmaður vestur-þýsku stjómar- innar, Dieter Vogel, sagði að mikil- vægustu málin, svo sem deilan um hvort sameinað Þýskaland skyldi vera í Atlantshafsbandalaginu (NATO), yrðu útkljáð áður en þýsku ríkin sameinuðust. Francois Mitterrand hvatti Vest- ur-Þjóðveija til að lýsa því yfir skýrt og skorinort að þeir myndu aldrei gera kröfur til landsvæða í Póllandi. Hann kvaðst einnig vilja að Pólveijar fengju að taka þátt í viðræðum ríkjanna sex um sameiningarmálið. Litháen lýst sjálfstætt ríki á ný: Vonumst eftir stuðningi og viðurkenningu Norðurlanda stjórnarinnar í landinu. „Við tökum Gorbatsjov ekki alvarlega, ummæli hans eru einn stór brandari. Við getum þá allt eins lagt fram skaða- bótakröfur vegna allra þeirra ára sem landsmönnum hefur verið þröngvað til að vera undir sovéskri stjórn.“ Mongólía: Flokksforyst- an vill fara frá Austur-Berlín. Reuter. LEIÐTOGAR kommúnistaflokks- ins í Mongóliu buðust í gær til þess að segja af sér vegna fjölda- mótmælanna i landinu að undan- förnu. Austur-þýska fréttastofan ADN skýrði frá því að Zhambyn Bat- munkh, leiðtogi flokksins, hefði til- kynnt í útvarps- og sjónvarpsávarpi að afsagnirnar yrðu afgreiddar á fundi miðstjórnar flokksins á mánu- dag. Batmunkh kvaðst einnig ætla að gangast fyrir viðræðum við helstu hreyfíngar stjórnarandstæðinga og sagði að krafa þeirra um að efnt yrði til sérstaks flokksþings yrði rædd á miðstjórnarfundinum á mánudag. Flokksþinginu yrði falið að hreinsa til í foiystunni. Hann hafnaði kröfum stjórnarandstæð- inga um þingrof og nýtt bráða- birgðaþing en sagði að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. - segir talsmaður þjóðernissinna í samtali við Morgunblaðið vekja sjálfstæðisyfirlýsinguna frá 16. febrúar árið 1918. Polybinskas sagði að vitaskuld væri það sérlega mikilvægt að Lit- háen fengi viðurkenningu erlendra ríkja sem frjálst og fullvalda ríki. „Við leggjum ríka áherslu á sam- vinnu við Norðurlandaþjóðirnar og viljum starfa með þeim á jafnréttis- grundvelli," sagði hann. Hann bætti við að ríkisstjórnir Norður- landa, líkt og annarra ríkja, yrðu sjálfar að ákvarða viðbrögð sín við sjálfstæðisyfirlýsingunni en æski- legt væri að landið fengi viðurkenn- ingu sem flestra sem fyrst. „Við treystum því að við njótum sið- ferðislegs stuðnings og þá ekki síst á Norðurlöndum." Aðspurður sagði talsmaðurinn að fullsnemmt væri að ræða ut- anríkisstefnu landsins eftir að það yrði sjálfstætt. „Þó blasir við að leitað verður eftir vinsamlegum samskiptum við Moskvu, en þau verða á jafnréttisgrundvelli og munu mótast af því að við teljum Sovétríkin hér eftir erlent ríki.“ Hann sagði réttmætt að líkja utan- ríkistefnunni við stefnu Finna und- anfarin ár. „Við ætlum okkur ekki að verða strengjabrúður í höndum ráðamanna í Moskvu." Polybinskas sagði kröfur þær um skaðabætur sem Míkhaíl S. Gorb- atsjov hefur kynnt fáranlegar, en hann hefur lýst yfir því að Litháum beri að greiða a.m.k. 27 milljarða rúblna vegna fjárfestinga Sovét- LITHAAR vænta þess að erlend ríki og þá ekki síst Norðurlöndin veiti þeim siðferðislegan stuðning eftir að sjálfstæðisyfírlýsingin frá árinu 1918 hefúr verið endurvakin, að sögn Aidas Polybinskas, tals- manns Sajudis, hreyfingar þjóðernissinna í Litháen. Á morgun, sunnudag, verða þau tímamót í sögu Litháens að landið verður á ný Iýst ftjálst og sjálfstætt ríki, en það var innlimað í Sovétríkin árið 1940 ásamt hinum Eystrasaltsríkjunum tveimur, Lettlandi og Eistlandi. Yfírlýsing þessi er talin skilyrði fyrir því að unnt verði að hefja viðræður við ráðamenn í Moskvu um formlega úrsögn Lit- háa úr sovéska ríkjasambandinu. Aidas Polybinskas sagði í síma- viðtali við Morgunblaðið í gær að í raun væri ekki um úrsögn úr ríkja- sambandinu að ræða. Litháar hefðu aldrei óskað eftir því að verða hluti af Sovétríkjunum og því væri að- eins unnt að tala um aðskilnað í lagalegum skilningi. Mestu skipti að þingmerín myndu samþykkja með atkvæðagreiðslu að erídur- Bandaríkjamemi saka norska laxeldismenn um undirboð Ósló. Frá Hune Timberlid, fréttaritara Morgunblaösins. Bandaríkjamenn eru nú einnig komnir í stríð við norska laxeldis- menn. Hafa starfsbræður þeirra vestra sakað Norðmenn um undir- boð á Bandaríkjamarkaði og farið fram á, að viðskiptaráðuneytið kæri þá fyrir GATT-dómstólnum. Eins og kunnugt er hafa skosk- ir laxeldismenn kært Norðmenn fyrir það sama hjá Evrópubanda- laginu en bandaríska viðskipta- ráðuneytið hefur krafist skýringa fyrir 18. mars nk. Sigrid Romund- set, talsmaður norska utanríkis- ráðuneytisins, segir, að allt verði gert til að sannfæra Bandaríkja- menn um, að ásakanir um undir- boð séu úr lausu lofti gripnar. Trond Wold, einn af forsvars- mönnum í Félagi norskra fískeld- ismanna, segir, að litið sé mjög alvarlegum augum á ásakanir Bandaríkjamanna en telur líkleg- ast, að bandarískir fiskeldismenn, sem geti ekki framleitt jafn ódýran lax og Norðmenn, vilji með þessum hætti útiloka samkeppnina. Þá kemur líka til, að til að minnka framboðið og halda uppi verðinu hafa Norðmenn sett í frysti 40.000 tonn af laxi en Bandaríkjamenn óttast, að þessi lax fari allur á Japansmarkaðinn, sem er einnig mikilvægur fyrir bandaríska lax- eldismenn. Að síðustu má nefna, að banda- rískir fiskeldismenn hafa áhyggjur af, að Norðmenn tapi málinu fyrir EB-dómstólnum og verði fundnir sekir um undirboð. Þá er nefnilega hætt við, að þeir snúi sér enn frek- ar að bandaríska markaðnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.