Morgunblaðið - 10.03.1990, Side 35
MOKOÖHRIÍADfD i lAlKfARDÁ'OUlí !10. MARZ í 1ð!)0
35
I UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
*■
SKOTVEIÐI
„Morgunblaðsorðan
Hið árlega villibráðarkvöld Skot-
veiðifélags Reykjavíkur og
nágrennis (Skotreyn), sem er árs-
hátíð félagsins, var haldið fyrir
nokkru og var að vanda líflegt og
hressilegt. Sóttu skemmtunina um
130 manns að því að talið var.
Þarna var ýmislegt brallað sem
vænta mátti og meðal annars voru
veittar orður og verðlaun af ýmsu
tagi. Morgunblaðinu þótti merkilegt
að frétta að þarna hafi verið veitt
Morgunblaðsorðan.
Það var Sverrir Scheving Thor-
steinsson jarðfræðingur sem
hreppti hina eftirsóttu Morgun-
blaðsorðu. Rétt er að geta þess, að
Morgunblaðið kom hér hvergi
nærri, heldur höfðu félagar Sverris
í Skotreyn ákveðið að heiðra hann
fyrir tíð viðtöl um skotveiðar og
fleira í Morgunblaðinu. Taldist
mönnum að Sverrir hefði hátt í tíu
skipti verið spurður um hluti eins
og hvernig íjúpnaveiðin gengi,
hvernig gæsaveiðin gengi og hvem-
“ til Sverris
ig komast mætti hjá því að týnast
og fara sér að voða á fjöllum.
Morgunblaðsorðan var afhent við
dynjandi lófatak, en hún reyndist
vera samanvöðlaður Moggi í húfu-
líki sem Sverrir gat hnýtt undir
kjammana með bleikum borðum.
Mottó kvöldsins var „ekki er allt
fugl sem flýgur“ og á þessu kvöldi
að minnsta kosti var það hárrétt,
það voru veiðisögur sem flugu og
flugu hátt, en ekki fuglar . . .
Morgunblaöiö/Kobert Schmidt
Hreiðar Örn Stefánsson veislustjóri afliendir Sverri liina eftirsóttu
Morgunblaðsorðu.
LEIKHUS
Þrjátíu
þúsundasta
gestinum tek-
ið með kost-
um og kynjum
Fyrir skömmu koma þrjátíu þús-
undasti gesturinn í Borgarleik
húsið síðan að það var opnað í
október síðast liðnum. Það var
Anna Dóra Gunnþórsdóttir, sjö ára
stelpa úr Goðheimunum, sem kom
með stóra bróður sínum til að sjá
barnaleikritið Töfrasprotann eftir
Benóný Ægisson.
Anna Dóra fékk ýmiss konar
glaðning í tilefni þessa, svo sem
miða sinn ókeypis og gjafakort
með leikhúsmiðum. Einnig bauð
Veitingahöllin henni ásamt föru-
neyti til málsverðar til minningar
um leikhúsferð sem fór á annan
veg en reiknað var með ...
Anna Dóra með stóra bróður, en Álfur úr Töfrasprotanum hefúr
tekið á móti henni frammi í anddyri og fært henni góða gjöf.
verður haldin í veitingahúsinu Glym (Broadway)
sunnudaginn 11. mars kl. 15.00
Húsið opnað kl. 14.00.
Verð: Börn kr. 250.- Fullorðnir kr. 400,-
Yfirdómari: Per Henckell frá Danmörku
ISLANDSKEÞÞNl
í ROCK’N’ROLL
Nýjustu viðhorf í Sovét
Nk. þriðjudagskvöld, 13. mars, kl. 20.30, verða þau Elena
Lúkjanova, lögfræðingur, og Alexander Lopúkhin, blaðamað-
ur, gestir MÍR, Menningartengsla íslands og Ráðstjórnarríkj-
anna, í félagsheimilinu, Vatnsstíg 10. Ræða þau ýmis efni,
er tengjast þróun mála í Sovétríkjunum og Evrópu allri og
svara fyrirspurnum.
Aðgangur er heimill meðan húsrúm leyfir.
Stjórn MÍR.
ALDURSFLOKK AR:
10-12 ára 16 ára og eldri
13-15 ára Atvinnudansarar
Allir velkomnir Dansráð íslands