Morgunblaðið - 10.03.1990, Síða 5

Morgunblaðið - 10.03.1990, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990 5 Fiskiðjan Arctic á Akranesi gjaldþrota: Skuldir taldar 250 milljón- ir en eignir 192 milljónir Fyrirtækið fékk 17 milljónir hjá At- vinnutryggingasjóði í fyrrahaust Full búðaf nýjum vorvörum frá Claudia Stráter FISKIÐJAN Arctic h/f á Akranesi hefur verið tekin til gjaldþrota- skipta, að ósk eigenda félagsins. Þeir áætla að skuldir þess séu um 250 milljónir en bókfært verð eigna er 192 milljónir króna. Helstu lánardrottnar fyrirtækisins eru viðskiptabanki þess, Landsbankinn; Iðnlánasjóður og Atvinnutryggingasjóður, sem veitti fyrirtækinu um 17 milljón króna lán síðastliðið haust. Um 20 manns störfuðu hjá Arctic sem hætti starfsemi um miðjan síðasta mánuð. Eignir fyrirtækisins eru fasteign við Vesturgötu á Akranesi, vélar og tæki til lagmetisgerðar auk tals- verðs óunnins hráefnis - rækju og grásleppuhrogna - og nokkurs magns af fullunnum afurðum. Arctic framleiddi kavíar fyrir markaði í Bandaríkjunum og Evr- ópu, rækjur og fiskilifrarpaté. Helstu eigendur Arctic voru ein- staklingar á Akranesi. Hlutafé var aukið á síðasta ári og kom þá bandarískur viðskiptaaðili meðal annars inn sem hluthafi. Kröfulýsingarfresti lýkur 6. maí. Bústjóri hefur verið skipaður Tryggvi Bjarnason hdl. Að sögn hans hafa aðilar sýnt fyrirtækinu áhuga en formieg tilboð hafa hvorki borist í eignir þess né rekstur. Samanburður á íslenskum og norskum eldislaxi: Norskur lax vex hraðar og verður síður kynþroska SAMANBURÐUR á íslenskum og norskum eldisláxastofiium hefur leitt í ljós að vaxtarhraði og þyngdaraukning norska stofnsins er mun meiri en þess íslenska, og kynþroskahlutfall íslenska stofnsins er margfalt á við þann norska. Eru þetta bráðabirgðaniðurstöður tilraunar sem verið er að gera hjá Rannsóknastoftiun landbúnaðarins. Þórey Hilmarsdóttir líffræðingur hjá RALA sagði í samtali við Morg- unblaðið að í tilrauninni hefði verið borið saman úrtak úr einum íslensk- um stofni og einum norskum. Um var að ræða fisk úr klaki frá 1987 sem settur var í sjó sumarið 1988. í byrjun desember síðastliðins reyndist norski fiskurinn vera orð- inn að meðaltali um 2,7 kíló að þyngd en sá íslenski 1,8 kíló. Kyn- þroskahlutfallið í íslenska fiskinum var þá um 50%, en aðeins um 2,5% í norska stofninum. „Þetta þýðir að í byijun desem- ber voru ekki nema um 50% af íslenska fiskinum söluvara, og hinu var í rauninni búið að tapa. Þetta eru alveg hrikalegar niðurstöður og mjög í óhag íslenska stofninum, en það er þó ekki hægt að draga nein- ar algildar ályktanir af þeim. Eg vona þó að þessar niðurstöður verði til þess að beina frekar augum manna að því hvað hægt er að gera við íslensku stofnana til þess að gera þá hagkvæmari í eldi,“ sagði Þórey. Friðrik Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands fisk- eldis- og hafbeitarstöðva, sagði að niðurstöður tilraunarinnar stað- festu grun fiskeldismanna og ítrek- uðu að það væri orðið meira en tímabært að fara að huga að kyn- bótum í fiskeldi. „Ég tel að kynbætur ráði úrslit- um fyrir fiskeldi á Islandi. Við höf- um reynt að bæta þann fisk sem við höfum, en það er sorgleg stað- reynd að 60% af þeim fiski sem fluttur var út á síðasta ári var und- ir 3 kg, en Bandaríkjamenn og Jap- anir sækjast eingöngu eftir fiski 18,5% greidd úr fjögurra ára þrotabúi SKIPTUM er lokið í þrotabúi Togaraafgreiðslunnar í Reykjavík sem tekin var til skipta í júlí 1986 en hafði þá ekki haft neina starfsemi með liöndum í nokkurn tíma. Til úthlutunar komu 878 þúsund krónur eða 18,59% upp í 4,7 milljón króna kröfur, sem allar voru taldar til almennra krafna. í eigu félagsins voru ýmsir lausa- munir sem seldir voru gegn greiðslufresti. sem er yfir 3 kg. Ég gef mér það að af þeim 1.500 tonnum sem fram- leidd voru af laxi hér á landi á síðasta ári hafi meðalþyngdin ekki verið meiri en um 2,2 kg, en meðal- þyngd í Noregi er um 3,5 kg. Ef meðalþyngdin á íslandi væri sú sama og í Noregi hefði íslenska framleiðslan á síðasta ári verið 2.100 tonn, og ef miðað er við 300 kr. meðalverð þá munar þarna um 180 milljónum króna, en það er um það bil helmingurinn af útflutnings- verðmæti á ferskum laxi frá íslandi á síðasta ári. Þarna getur íslenskt fiskeldi því bætt afkomu sína gífur- lega ef tekst að draga úr ótímabær- um kynþroska, auka vaxtarhraðann og þyngja fiskinn,“ sagði Friðrik. HVERFISGÖTU 39. S: 13069 Víltþú losna við virðisaukaskatt ? Samkvœmt reglugerð um virðisaukaskatt er heimilt aö draga skattinn írá við kaup á nýrri sendibifreið, sé hún eingöngu notuð vegna skattskyldrar starfsemi. Hér er tœkiíœrí fíZ aukinnar hagkvœmni í rekstrí.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.