Morgunblaðið - 10.03.1990, Side 18

Morgunblaðið - 10.03.1990, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARZ 1990 Árnar Guðmundsson, Siguijón Þorvald- Röskvu. ur Arnason, Vöku. Kosningar í Háskólanum: Enn deilt um hlutverk landsmála í Studentaráði KOSIÐ verður í Háskóla íslands á þriðjudag; um þrettán menn í Stúdentaráð og tvo í Háskólaráð en þeir eiga jafnframt sæti í Stúd- entaráði. A síðasta ári náði Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, meirihluta i Stúdentaráði í fyrsta sinn síðan 1965 í listakosningum. Kosningabaráttan hefur áð miklu leyti snúist um árangur þessa stjórnarárs Vöku. Vökumenn telja sig hafa náð árangri á ýmsum sviðum en Röskva, samtök félagshyggjufólks i Háskóla íslands, tel- ur áherslur hafa verið rangar. Meiri áherslu hefði átt að leggja á lánamál og dagvistunarmál. Eins og á síðustu árum hefur einnig verið ágreiningur um það hvaða hlutverki almenn stjórnmálaum- ræða eigi að gegna innan Stúdentaráðs. Kosningabaráttan hefiir verið nokkuð hörð og eru báðir aðilar sammála um að hún hafí verið óvægnari en oftast áður. AF INNLENDUM VETTVANGl STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON í viðtali við Morgunblaðið á fimmtudag segir Jónas Fr. Jóns- son, formaður Stúdentaráðs, að fyrst og fremst megi nefna þijú mál sem árangur hafi náðst í síðan Vaka tók við stjóm SHÍ á síðasta ári. Í fyrsta lagi að komið hafi verið á gæðamati á kennslu í Há- skólanum, í öðru lagi að baráttan fyrir bættum einkunnaskilum kennara hafi skilað árangri og í þriðja lagi hafi orðið ákveðin tíma- mót þegar ákveðið var að haust- misserispróf verði framvegis haldin í desember. • Jónas sagði nokkum árangur hafa náðst í lánamálum. Fram- færslukönnun sem sýna ætti raun- verulega þörf námsmanna fyrir námsaðstoð yrði gerð á þessu ári og jafnframt hefði tekist að hrinda hugmyndum frá stjóm Lánasjóðs- ins um að skerða lánin frá því sem nú er. Hins vegar væri enn verið að þrýsta á Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, um 6,4% leiðréttingu lánanna sem hefði átt að koma til framkvæmda 1. janúar sl. Röskva kynnti stefnumál sín á blaðamannafundi 28. febrúar. Þar voru viðraðar hugmyndir um breyt- ingar á starfsháttum Stúdentaráðs í þeim tilgangi að gera starf þar „opnara og lýðræðislegra". Einnig kom fram gagnrýni á starfshætti Stúdentaráðs í vetur. Var því hald- ið fram að ráðið hefði einangrast í störfum sínum. Að þeirra mati yrði að opna Stúdentaráð fyrir al- mennum stúdentum, tryggja að- gang þeirra að kjömum fulltrúum sínum, halda reglulega fundi út um skólann um helstu hagsmunamálin og virkja fleiri til starfa á vegum ráðsins. Skýrari munur á Röskvu og Vöku „Ég er þeirrar skoðunar að í þessum kosningum komi fram skýrari munur á Vöku og Röskvu en áður,“ sagði Siguijón Þorvaldur Árnason, oddviti Vökumanna í Stúdentaráði. „í mörgum málefn- um hafa félögin svipaða stefnuskrá og sjónarmið, en í öðrum hefur myndast djúp gjá milli fylkinganna. Aðalmunurinn felst í mismunandi afstöðu til eðlis Stúdentaráðs og þeirra verkefna sem það á að sinna. Það er homsteinn stefnu Vöku að Stúdentaráð sé sameiningartákn allra stúdenta, þar sem menn ein- beita sér að hagsmuna- og félags- málum stúdenta, en haldi öllu pólitísku karpi utan veggja. Við teljum þetta vera réttlætinguna fyrir skylduaðild stúdenta að Stúd- entaráði og forsendu fyrir því að ráðið nái árangri í starfi sínu. í Stúdentaráði situr fólk hvaðanæva af landinu, með ýmsar lífsskoðanir. Ef landsmálum eða utanríkismál- um er blandað inní er skrattinn laus.“ Sigurjón sagði stefnu Röskvu ganga þvert á þessa stefnu. „Röskva vill hverfa aftur til fortíð- arinnar, þegar menn litu á Stúd- entaráð sem nafla alheimsins, sem ekkert væri óviðkomandi. Er skýrt dæmi um betta ályktunartillaga frá þeim í vetur þar sem þau lögðu til að fagnað yrði lýðræðisþróun í Tékkóslóvakíu." Siguijón sagði að Vaka hefði það alls ekki á stefnu- skrá sinni að stúdentar hefðu al- mennt engar pólitískar skoðanir. „Við teljum hins vegar ekki að Stúdentaráð sé rétti vettvangurinn fyrir svona umræður. Ef menn hafa áhuga á því er betra að menn geri það í frjálsum pólitískum fé- lögum þar sem ekki er skylduað- ild.“ Hann sagði Röskvu hafa reynt að ásaka Vöku um það í kosninga- baráttunni að vera að gæta ein- hverra „flokkspólitískra hags- muna“ í Stúdentaráði og væri þar væntanlega átt við hagsmuni Sjálf- stæðisflokksins. Þegar gengið hefði verið á Röskvumenn hefðu þeir hins vegar ekki getað nefnt nein dæmi um slíka hagsmuna- gæslu. Þetta væri aumur málflutn- ingur. Siguijón sagði kosningabarátt- una hafa verið harðari en oft áður. „Röskva hefur sýnt eðli sitt í kosn- ingabaráttunni. Góður árangur Vökumanna í hagsmunagæslumál- um skiptir engu máli. Pólitískar skoðanir stúdentaráðsliða ; skipta öllu máli. Yfírgengilegar persónu- legar árásir þeirra á Vökumenn hafa gengið út í öfgar.“ Hann sagði mismunandi skoðanir vera uppi í lánamálum þar sem Röskva væri hlynnt auknum frádrætti vegna sumartekna. Þá mætti nefna að Röskva væri líka andsnúin þeirri stefnu Vöku að reka Félagsstofnun stúdenta án halla og loks vildi fé- lagið einnig hverfa frá því að hafa stúdentspróf sem inntökuskilyrði í Háskólann. „Vaka hefur skilað mjög góðu starfi í vetur og árangri í hagsmunamálum stúdenta. Það sama er ekki hægt að segja um Röskvu. Hún hefur verið lömuð í allan vetur og nú fyrst eru menn þar á bæ að vakna upp og reyna að eigna sér mál á grátbroslegan hátt. Gæðakönnunin á kennslu í Háskólanum er gott dæmi um það. Röskvumenn mættu á fyrstu undir- búningsfundina en létu svo ekki sjá sig aftur, sem sýnir áhugaleysi þeirra á málinu." í samtali við Morgunblaðið segir Jónas Fr. Jónsson, að það sé til vitnis um störf Röskvumanna í Stúdentaráði að þeir treysti sér ekki til að byggja kosningabaráttu sína á málefnalegri gagnrýni held- ur einungis þokukenndum hug- myndum um breitta starfshætti. Hann vísaði líka alfarið á bug hug- myndum um að Stúdentaráð væri að einangrast, fundir væru allir opnir, starfsemin hefði verið vel auglýst og kynnt og undirtektir allar bentu ekki til einangrunar. Breyta þarf áherslum Stúdentaráðs Þeir Amar Guðmundsson, odd- viti Röskvu í Stúdentaráði, og Helgi Kristinsson, sem skipar-7. sæti á lista félagsins til Stúdentaráðs, sögðu við Morgunblaðið að meiri- hluti Stúdentaráðs hefði ekki sinnt brýnustu hagsmunamálunum sem skyldi í vetur. Ætti þetta við dag- vistunarmál, húsnæðismál og lána- mál. Mætti segja að enginn árang- ur hefði náðst í þessum efnum. Til dæmis hefði ekki tekist að tryggja fast framlag í Byggingarsjóð en það hefði meirihluti Félags vinstri manna og Umbótasinna knúið í gegn á sínum tíma. „Það er líka ámælisvert," sagði Arnar, „að rekstur Félagsstofnunar stúdenta er aftur orðinn eins og hann var á árum áður. Stjórnin er á kafí í rekstrinum til að finna góð kosn- ingamál í staðinn fyrir að einbeita sér að uppbyggingu til lengri tíma.“ Amar og Helgi sögðu góðan áfang- ur hafa náðst í menntamálunum innan Stúdentaráðs í vetur og ættu þeir þá við hluti á borð við gæða- mat, tilfærslur prófa og einkunna- skil. Þessi árangur í menntamálun- um væri afleiðing þess að allir stúd- entar hefðu staðið saman sem ein heild. Að sögn Helga snýst ágreining- urinn við Vöku fyrst og fremst um það hvað leggja eigi megináherslu á. „Vaka hefur lagt áherslu á at- vinnumiðlunina og Byggingarsjóð. Stóru málin á borð við lánamál og dagvistarmál hafa hins vegar setið á hakanum. Það eru þessi stóm mál sem við ætlum að leggja kraft í “ Þeir Arnar og Helgi gagnrýndu einnig að starfshættir Stúdenta- ráðs hefðu verið mjög einangraðir frá hinu þjóðfélagslega samhengi. Væri það að þeirra mati gert til að tryggja að ekki kæmu upp þver- sagnir hægri mannanna í Vöku milli þess sem þeir væru að segja í Stúdentaráði og því sem þeir segðu utan þess. „Afleiðingin af því að boða pólitíkina út og segjast bara vera í félagsmálum er einfald- lega sú að baráttan í lána- og dag- vistarmálum, þar sem þarf að fást við hið opinbera, verður máttlaus," sagði Helgi. Umræðuna um lána- mál sagði hann vera einkennandi fyrir þetta. „Þegar við ræðum um lánamál er það ekki bara spuming um kjör þeirra sem stunda nám í Háskóla íslands heldur er þetta hluti af miklu stærra máli, nefni- lega jafnrétti til náms. Námslánin eiga aðallega að tryggja það að börn láglaunafólks hafí jafnrétti til náms.“ Stefnu Röskvu í lánamálum sögðu þeir fyrst og fremst felast í því að framkvæmd yrði raunhæf framfærslukönnun og að tekjutillit yrði stighækkandi. Tekjutillitið ætti að hækka verulega hjá stúd- entum með miklar tekjur og lækka verulega hjá þeim me’ð lágar tekjur. Þeir sögðu það rétt að kosninga- baráttan hefði verið óvægnari en oft áður. Það væri líka ástæðulaust að „þegja yfír því sem betur hefði mátt fara“. Norræna húsið; Sýning á teikningum William Heinesen í DAG kl. 15 verður opnuð sýning í anddyri Norræna hússins á teikningnm eftir færeyska rithöf- undinn og myndlistarmanninn William Heinesen. A sýningunni eru einnig ljósmyndir úr lííl hans. Sýningin stendur til 1. apríl og verður opin daglega frá kl. 9-19, nema sunnudaga kl. 12-19. Sýningin kemur frá Þórshöfn í Færeyjum og hafa Finnur Johansen hjá Bæjarbókasafninu og Bárður Jákupsson í Listaskálanum í Þórs- höfn séð um undirbúninginn. Will- iam Heinesen varð níræður 15. jan- úar síðastliðinn og var sýning á verkum hans opnuð af því tilefni í Listaskálanum. William Heinesen hefur hefur teiknað og málað frá unga aldri, og hefur hann meðal annars fengist við skrautritun og bókalýsingar, gert andlitsmyndir og skopteikning- ar, málað leiktjöld og veggskreyt- ingar. Heinesen hefur haft mikil áhrif á þróun færeyskrar myndlist- ar og hann hefur stutt unga fær- eyska myndlistarmenn með ráð og dáð. Sunnudaginn 25. mars mun Wiliiam Heinesen Bárður Jákupsson halda fyrirlestur með litskyggnum í fundarsal Norr- æna hússins um myndlist Williams Heinesens. Ráðsteftia heimilis- lækna á Hótel Sögu FÉLAG íslenskra heimilislækna og lyfjafyrirtækið Astra Island efiia til ráðstefnu á Hótel Sögu i dag, laugardaginn 10. mars nk. Ráðstefnan er opin öllum heimil- islæknum á íslandi og verður á henni fjallað um ýmsa þætti heimilislækninga. Alls verða á ráðstefnunni fluttir 27 fyrirlestrar, af innlendum og útlendum sérfræðingum, um nýj- ungar í meðferð t.d. á astma, of- næmi, háum blóðþrýstingi, hjarta- sjúkdómum, magasári og fleiru. Ráðstefnan hefst kl. 9.30 með erindi Guðmundar Bjarnasonar, heilbrigðisráðherra, um hlutverk heilsugæslunnar til aldamóta, og erindum heilsugæslulæknanna Pét- urs Péturssónar á Akureyri og Lud- vigs Guðmundssonar í Reykjavík um hlutverk heilsugæslunnar í dreifbýli og þéttbýli. Leiðrétting í gagnrýni Jóns Ásgeirssonar um tónleika íslensku hljómsveitarinnar á óperunni Dídó og Eneas varð smá ruglingur á setningum. Réttur texti átti að vera eftirfarandi: „Einsöngv- arar, kór og hljómsveit, undir stjórn Guðmundar Emilssonar, fluttu verkið af glæsileik. Dansarar undir stjórn Hlífar Svavarsdóttur lögðu sitt af mörkum til að auka á þokka sýning- arinnar." Morgunblaðið biður hlutaðeigandi velvirðingar á mistökunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.