Morgunblaðið - 10.03.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.03.1990, Blaðsíða 34
M MQRGUNBLADlÐ,[IAU.QARDAÖURqm/MAB3rí3W/. fclk f fréttum URRÆÐI Jamie leysir vandann Jamie litli er fimm ára gamall og býr skammt frá Windsor Safa- ri-dýragarðinum í Bretiandi. Hann hefur þá vinnu í garðinum að gefa litlum ljónsungum og á myndinni er hann að stjana við ljónshvolpinn Mumfy. En það heillar fleira fimm ára gutta en ljónshvolpur, það gera teiknimyndasögur einnig, en sam- kvæmt myndinni ber ekki á öðru en að Jamie hafi fundið ráð til þess að gera bæði í einu, lesa „skribóið" og gefa Mumfy litla mjólkina sína! Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson AKRANES: „Glímt við fjárlagagatið“ Akranes. > Olafur Ragnar Grímsson, íjár- málaráðherra, kom til Akra ness í heimsókn á dögunum. Frétta- ritari Morgunblaðsins á Akranesi smellti þessari mynd af Gísla Gísla- syni, bæjarstjóra á Akranesi og Olafi Ragnari þar sem þeir standa við listaverk er heitir „Glímt við fjárlagagatið" og ætti það vel við þessa tvo sem alltaf standa í slíku hvor á sínum stað. Höfundur listaverksins er Gutt- ormur Jónsson á Akranesi. - J.G. COSPER - Ef þú deyrð af hlátri - ertu búinn að endurnýja líftrygg- inguna þína? SUÐUREYRI: Koma Súgfirðingar vel undan snjóum? Suðureyri. Þrátt fyrir skapillsku veðurguð- anna í okkar garð í vetur, eru menn farnir að gera sér vonir um að Súgfirðingar komi vel undan snjó- um í vor, og ef litið er út úr snjó- sköflunum núna, er farið að votta fyrir vorboðunum. Sunnudaginn 25. febrúar síðast- liðinn héldu kvenfélagskonur staðar- ins bæjarbúum veglegt sólarkaffi þar sem á borðum voru margar dýr- indis hnallþórur, lítt hitaeininga- snauðar, og gat þar hver og einn etið og drukkið eins og magarúm leyfði. Tilefnið var að sólin læddi til okkar nokkrum hlýjum geislum, fimmtudaginn 22. febrúar, og var það hennar fyrsta viðleitni til þess að bræða ofan af okkur snjóinn. Öskudagur rann upp bjartur og kaldur 28. febrúar. En þrátt fyrir kuldann var vart þverfótað í bænum fyrir ýmsum kynjaverum sem gengu í öll fyrirtæki bæjarins og hófu þar raust sína starfsfólki til ánægju og hlutu að launum smá sælgæti í lóf- ann. Síðdegis var svo komið saman í Félagsheimili Súgfirðinga þar sem kötturinn var sleginn úr tunnunni. Eftir miklar barsmíðar frá sjóræn- ingjum, draugum og álfum, tókst „sjómanninnum" Guðbirni Helga Sveinssyni, 12 ára, að mölvatunnuna og hlaut þar með titilinn „Tunnu- kóngur ársins". Að því loknu var farið í ýmsa létta leiki og síðan dansað fram eftir kvöldi. Það var íþróttafélagið Stefnir sem stóð fyrir skemmtanahaldinu innan dyra. - Sturla Hluti þeirra er spreyttu sig á að að slá köttinn úr tunnunni. „tunnukóngur ársins“ á Suðureyri, Guðbjörn Helgi Sveinsson. Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson En lengst til vinstri í sjógalla ei POPP Dúkkudrengirnir! Unglingahljómsveitin „New kids on the block“ býr við hreint ótrúlegar vinsældir þessa dagana. Hinir eldri poppáheyrendur botna ekki í því, en krakkarnir vita hvað þeir vilja. Frægð fylgja alls konar uppákomur og nú er hafin fram- leiðsla á dúkkum sem heita Joe, Jonathan, Donnie, Jordan og Danny í höfuðin á poppurunum ungu. Þetta er bandarískt uppátæki sem nærri má geta og fylgir það sög- unni að dúkkurnar seljist eins og heitar lummur. Á myndinni hampa strákanir „tvíförum" sínum. FRJALSAR IÞOTTIR Dóttirin fer með til Glasgow Selfossi. Þórdís Gísladóttir hástökkvari í Ungmennafélagi Selfoss verð ur meðal keppenda á Evrópu- meistaramótinu innanhúss sem haldið er í Glasgow 3.-4. mars. Þórdís eignaðist dóttur í fyrra- sumar og fer sú litla með móður sinni í þessa keppnisferð. Faðir- inn, Þráinn Hafsteinsson, fer með sem þjálfari og barnapía. Þórdís keppti í hástökki á Meistaramóti Islands 10. og 11. febrúar og stökk léttilega yfir 1,77 og átti góðar tilraunir við 1,80. Annar Skarphéðins-maður, Pétur Guðmundsson kúluvarpari úr Samhygð, fer einnig á Evrópu- meistaramótið. -Sig. Jóns Þráinn og Þórdís með dótturina Helgu þegar þau lögðu af stað frá Selfossi á Evrópumótið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.