Morgunblaðið - 22.04.1990, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.04.1990, Qupperneq 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 1990 ; r r * AÐ HUGSA . A HEIMSVISU OG FRAMKVÆMA HEIMA ið á Móður jörð og ætli að reyna að bregðast við. Móðir jörð í mesta klandri „Þegar maður veit að á að hengja hann eftir hálfan mánuð,“ skrifaði Samuel Johnson endur fyrir löngu, „þá er það alveg dásamleg hvatning til einbeitingar." Yfirvofandi ógnun við lífið á jörðinni virðist nú vera' farin að hafa sömu áhrif á almenn- ingsálitið. Einstakir atburðir eins og olíumengunin mikla frá Exxon Valdes við Alaska í marsmánuði sl., sem fólk um allan heiminn gat horft á í fréttum, hefur kannski vakið almenning af doðanum betur en nokkur annar einstakur atburð- ur. Myndir af dauðum fugli, otrum og olíudrullu í íjörum blasti við hveijum manni á sjónvarpssker- munum og sýndi þeim svart á hvítu hvernig maðurinn getur lagt um- hverfi sitt í eyði. Á árinu 1988 komu svo í kjölfarið eyðandi þurrkar, gífurlegir skógarbrunar og hækk- andi hitastig á jörðinni, sem sann- færðu alla aðra en þá allra tor- tryggnustu um að mannkynið stefndi í líffræðilegan voða. Þó var Valdes-olíuslysið ekki nema eins og sandkorn í samanburði við þá víðtæku og kannski óafturkallan- legu framrás sem við sjáum hvar sem litið er í heiminum. Staðreyndin er sú að mannkyn- inu, sem nú er 5,2 milljarðar manna, fjölgaði um 87,5 milljónir að talið er á árinu 1989 og með sama vaxt- arhraða gæti tala íbúa jarðar hafa tvöfaldast á árinu 2025. Spúð var að minnsta kosti 19 milljörðum tonna af koltvísýringi út í andrúms- loftið með brennsluefnum og eyð- ingu skóga, og flýtir fyrir gróður- húsaáhrifunum, sem gætu aukið meðalhitann á jörðinni um allt að 4,5 gráður á næstu 60 árum. Óson- gatið yfir Suðurskautinu hélt áfram að vera ógnvænlega stórt og vísindamenn tilkynntu að annað gat væri að myndast yfir Norðurskaut- inu. Allt þetta undirstrikar að Móð- ir jörð er í mesta klandri. Ef þjóðirn- ar bregðist ekki við gæti hún orðið óbyggileg. Síðan í upphafi grænu hreyfing- arinnar hafa andstæðingar haldið því fram að umhverfíssinnað fólk ýki hætturnar, sem mannkynið skapi jörðinni. Á undanförnum árum hafa þeir víða haft lykiláhrif og veikt lagagreinar og stofnanir, sem komið var á til að taka á mál- um. Til dæmis voru þeir nærri bún- ir að eyðileggja Umhverfisverndar- stofnun Bandaríkjanna á árum Reagans. En versnandi ástand í umhverfísmálum hefur nú komið slíku andstöðufólki í varnarstöðu, þegar það reynir að finna skýringu á æ mengaðra lofti, deyjandi skóg- um og vötnum, olíulekum, upp- blæstri lands og óson-götum yfir heimskautalöndunum. Gagnrýn- endur á umhverfisstjómun eiga það til að segja að hrópin „úlfur, úlfur“ hafi leitt til slæmrar ákvarðanatöku og sumir, hagfræðingar, iðnrekend- ur og skrifstofumenn, líta á um- hverfisverndarfólk sem ómerkilega truflun við raunverulegan rekstrar- vanda jarðarinnar og jafnvel sumir vísindamenn telja að ríki eigi ekki að hætta efnahagslegu öryggi sínu til þess eins að búa sig undir eyði- 25% af lyfjum sem eru á skrá í Bandaríkjunum eiga uppruna sinn í plöntum, sem eingöngu finnast í regnskógunum. Bandaríkjamenn fleygja árlega í sorpið áldósum, sem nægja mundu til þess að endurnýja allan flug- flota flugfélaganna, og nota á hverjum klukkutíma 2,5 milljón plastflöskur, auk 1 8 milljarða af pappírsbleyjum á ári, með þeim afleiðingum að 45% af skipafrakt frá New York höfn er pappírsrusl allan heim. Frægar stórhljómsveitir hafa skorið upp herör til að afla fjár til þess að jörðin okkar verði betri staður fyrir afkomendurna, eins og það er orðað.. Minnisstætt er átak eins og „Live Aid“, „Farm Aid“ o.s.frv. Nú er á ferðinni nýtt alþjóðlegt söfnunarátak, „Hard Rock, Save the Planet Special“, sem beinist að áróðri fyrir því að hver maður leggi sitt til . Ef til dæmis Madonna kemur fram í sjónvarpi og segir ungu fólki að hægt sé að skera niður sorpið um 10-20% með því að nota pappírpoka í staðinn fyrir plastpoka í búðinni, þá mundu margir hlusta og muna það þegar þeir fara að versla. Það er hugsun- in í þessu. Að það nái til fleira fólks en nú. En fjöldamargt frægt og áhrifamikið fólk ætlar þannig að leggja sitt af mörkum til Dags jarð- ar 1990. Víða sjást þess merki að almenn- ingur sé farinn að taka við sér. í nýlegri Gallupkönnun kom í ljós að 3 af hveijum 4 Bandaríkjamönnum telja sig vera umhverfissinna, sem kemur fram í því að umhverfisfrum- vörp fá nú mikinn stuðning. í kosn- ingu til Evrópuþingsins unnu græn- ingjaflokkar verulega á. í Sovétríkj- unum tókst græningjahreyfingu að fá lokað efnavopnaverksmiðju í Chapayevsk-bæ í Siberíu með því að sýna andúð á henni. Þetta við- horf og þrýstingur hefur merkjan- leg áhrif á ýmiskonar ákvarðana- töku um víða veröld. Á síðastliðnu ári samþykktu 105 þjóðir á fundi í Basel að setja strangar reglur um alþjóðaflutninga með hættuleg efni. í Helsinki lýstu fulltrúar 86 þjóða yfir í maí sl. ætlun sinni að útrýma notkun efna, sem eyða ósonlaginu fyrir árið 2000 og í april næstkom- andi hittast í London fulltrúar til þess að draga upp samning um þetta, í von um að ná með honum til allra þjóða. í árslok efndu Um- hverfisverndarstofnun Sameinuðu þjóðanna og Veðurfarsstofnunin til alþjóðaráðstefnu í Egyptaiandi til að leggja grunninn að heimsráð- stefnu, sem miðaði að því að tak- marka notkun efna sem valdi gróð- urhúsaáhrifum. Umhverfismála- stofnun SÞ er líka að leggja drögin að alþjóðlegum samningi, til þess að tryggja fjölbreytni náttúrunnar, m.a. með íjárhagslegum stuðningi til þess að veija frumskógana, en með þeim mundu hverfa þúsund- undir tegunda úr lífríkinu. Neytendur þrýsta á fyrirtækin Það sem kannski munar mest um, er að almenningur er farinn að þrýsta á stórfyrirtækin, sem telja sér ekki lengur fært annað en að hafa á sér „umhverfisímynd". Þetta er orðið mjög áberandi í Vestur- Evrópu. Þar eru það neytendur, sem hafa tekið málin í sínar hendur. Evrópumenn eru í síauknum mæli fúsir til þess að greiða skatta til þess að tryggja hreint loft og hreint vatn. Og neytendur eru farnir að leita í stórmörkuðum að umhverfis- vinsamlegum varningi, eins og fos- fórlausu þvottaefni og endurunnum klósettpappír. Varaforseti stórfyrir- tækisins Henkel í Vestur-Þýska- landi, Klaus Morwind, segir að græningjarnir sem byijuðu að gera skurk í viðskiptalífi Vestur-Þýska- lands í upphafi áratugarins hafi velt af stað snjóbolta, sem nú fer yfir alla Evrópu. Þetta muni hafa gífurleg áhrif á iðnaðinn í Evrópu. Mörg fyrirtæki sjái fram á stór- auknar fjárfestingar og fram- leiðslukostnað af þeim sökum. Bíla- framleiðendur muni þurfa að leggja fram 7 milljarða dollara fram 1993 til þess að innleiða hreinsitæki í bila. En þar hafa bílaframleiðendur dregist langt aftur úr Bandaríkja- mönnum. Vegna hárra skatta á bensíni aka flestir Evrópumenn á litlum og sparneytnum bílum, sem þeir telja að beri ekki kostnað af leggingu á lífríkinu, sem ef til vill verði aldrei. Stephen Schneider frá Rannsóknamiðstöð fyrir rannsóknir á andrúmsloftinu á svar við því, segir að verði beðið eftir því að fullkomin vissa fáist fyrir hitnun á jörðinni, þá muni það lama allar aðgerðir í fjölda ára. Thomas Lovejoy frá Smithsonian-stofnun- inni segir að enginn sparnaður þjóð- anna af því að gera ekkert geti vegið upp á móti skynsamlegum varúðarráðstöfunum. Meðan um- heimurinn var að hylla alþjóðlegu stefnuyfirlýsinguna frá Montreal 1987, um að draga úr útblæstri skaðlegra klórefnasambanda, hélt óson-lagið áfram að þynnast vegna þeirra efna sem þegar voru komin út i geiminn. Og vísindamenn hafa áhyggjur af því að samskonar hægagangur í viðbrögðum við kol- tvísýringsútblæstri með hækkun á hitastigi muni enda á alþjóðasátt- mála, sem verði ekkert annað en „krufning". Stjörnur og poppfólk leggur lið skautinu hélt áfram að vera ógnvænlega stórt og vísindamenn tilkynntu að annað gat væri að myndast yfir Norðurskaut- inu. En almenningur hefur nú tekið málið í sínar hendur. Þess sjást hvarvetna merki. Sumum þykir nóg um. Umhverfísmál eru komin í tísku. Tískufrömuðirnir kenna fatn- að sinn við umhverfi. Nú vilja allir vera með. Enginn vill fá það orð á sig að hann sé ekki umhverfissinn- aður. Hollywood er gott dæmi um það og á eftir að verða dijúgur bandamaður með öllum sínum al- þjóðlegu stjömum. Þar hófst þetta með kapphlaupinu um kvikmyndun á sögu Chicos Mendes, brasilíska mótmælandans, sem barðist fyrir verndun regnskóganna. Nú keppast stórstjörnur um að fá að leika þenn- an píslarvott. Allt í einu hafði bar- áttan færst frá víðtækum mótmæl- agöngum yfir til popp-menningar- innar, sem teygir anga sína um

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.