Morgunblaðið - 22.04.1990, Page 5
C 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 1990
Bruni á einni ekru regnskóga sendir frá sér 400 þús-
und pund af koítvísýringi.
HVAÐ
HÆGT ER AÐ
GERA?
- kaupa margnota vörur og
endurunnar
- nota bréfpoka í stað plast-
poka
- kaupa sparneytinn bíl
- nota aðeins blýláust bensín
- lesa merkingar á vörum og
hafna eitur- og aðskotaefnum
- kaupa fosfórrýrt þvottaefni
og sápur
- gera við og endumýta en
ekki fleygja
- velja tæki sem nýta vel orku
- nota áfylltar flöskur en ekki
einnota flát
- nota endurunninn pappír og
óbleiktan
- nota rotnandi jurtaleifar í
áburð í garðinn
- planta tijám og hlú að þeim
hreinsitækjum. Og nú kemur lög-
gjöf um þetta frá Efnahagsbanda-
laginu mörgum Vestur-Evrópufyr-
irtækjum í opna skjöldu. Nýjar
áherslur munu neyða framleiðendur
til þess að útbúa alla bíla með
hreinsitækjum.
Umhverfisvemdarfólk er líka
farið að gera tveimur blómstrandi
iðngreinum í Evrópu lífið leitt, þ.e.
gosdrykkjaframleiðendum og fram-
leiðendum umbúðanna undir þau,
en þeir reka orðið harðan áróður
gegn notkun slíkra umbúða vegna
skorts á landi fyrir sorp. Gæti það
sett strik í reikninginn fyrir risana
Coca Cola og Pepsi Cola, sem líta
á Evrópumarkaðinn sem vaxandi
markað. En litlu gosdrykkjafram-
leiðendurnir heima með sínar marg-
nota, áfylltu flöskur eru orðnir
þóknanlegri umhverfissinnuðum
neytendum. í Bretlandi kemur yfir
90% af gosdrykkjum í dósum eða
plastflöskum. Á Italíu, Frakklandi
og Spáni eru slíkar umbúðir enn
yfirgnæfandi. En í Vestur-Þýska-
Líklegt er að bíllinn þinn
spúi um fimm tonnum af
koltvísýringi út í loftið ár-
lega. Utblástur frá bílum
sem ekið er í Bandaríkjun-
um á sök á um 50% af
gráóurhúsaáhrifunum,
enda bílarnir stórir.
HVAÐ Á AÐ
FORÐAST?
- að fleygja rusli á víðavangi
- að nota pappírsþurrkur í stað
klúta
- að nota pappírsbleiur
- að henda rafhlöðum í ruslið
- að skilja alls staðar eftir ljós
- að nota óþarfa meindýráeitur
- að kaupa vörur í miklum
umbúðum
- að drekka gos úr dósum og
plastflöskum
- að nota einnota plastbolla og
ílát
- að nota úðabrúsa með óso-
neyðandi efnum
- að taka ljósrit af öllu á fund-
um
- að aka utan vega og eyða
gróðri
landi, Danmörku, Sviss og Hollandi
eru flestir gosdrykkir í margnota
flöskum. Þetta gæti valdið miklum
erfiðleikum við að koma á reglum
á samhæfðum markaði Evrópu-
bandalagsins fyrir 1992 og um-
hverfisfólk efast ekki um hvað verði
ofan á. Það er að verða áberandi
að stórfyrirtækin eru hvert um ann-
að að breyta framleiðslu sinni, til
þess að verða „umhverfisvinsam-
leg“ og þóknast neytendum.
Þannig mætti lengi telja og sýna
fram á að þrátt fyrir allt stefnir í
rétta átt, þótt hægt fari og kannski
of seint. En Dagur jarðar 1990 lítur
út fyrir að ætla að verða Dagur
almennings á jörðinni. Og þá munar
um það. Eða eins og bankastjórinn
og umhverfissinninn sir Kenneth
Kleinworth orðar það: „Umhverfis-
vandamálin eru geigvænleg. En
ekkert þeirra verður leyst fyrr en
við hættum að nöldra um útlit heild-
armyndarinnar og förum að leggja
okkar litla skerf fram hvert heima
hjá sér.“
VVnMVTXUF\SY(lÁl*/Jardvegsvernd og landbœtur hjá
öbrumþjóöum. Getum viö afþeim lcertf
Um fmmkvæði
gróðurvemdaraðgerða.
í þeim eru ólaunuð en seta í þeim
telst virðingartákn. Ekki er veitt
fé úr opinberum sjóðum til land-
græðsluframkvæmda nema jarð-
vegsverndarráð mæli með því.
Ymis samtök bænda og stofn-
anir landbúnaðarins voru andvígir
þessum jarðvegsvemdarráðum -
þótti að verið væri að gera innrás
á þeirra yfirráðasvæði. En nú eru
flestir sammála um að hin nána
samvinna við landnotendur hafi
verið lykillinn að þeim árangri sem
hefur náðst. Vandamálin eru við-
urkennd svo ekki þarf að eyða
tíma í að deila um þau. Styrkir
til framkvæmda geta numið allt
að 80% af kosntaði eftir því hversu
mikilvæg verkefnin eru talin.
Síðan segir Andrés:Ég hef tek-
ið þátt í mörgum ágætum fundum
með bændum hér heima um gróð-
urverndarmál. Ég verð samt
áþreifanlega var við það að við-
horf amerískra bænda eru á ýms-
an hátt ólík því sem hér gerist.
FYRIR SKÖMMU flutti Andrés
Arnalds gróðurverndarfúlltrúi
Landgræðslu ríkisins erindi í
útvarpi í þættinum „Um daginn
og veginn". Andrés dvaldist
fyrri hluta síðasta árs í Banda-
ríkjunum til að kynna sér skipu-
lag jarðvegsverndar og land-
bóta. Þetta erindi var í hæsta
máta athyglisvert fyrir alla þá
sem láta sig þessi mál varða.
Vegna þess að hætt er við að
erindið hafi farið fram hjá
mörgum var fengið leyfi höf-
undar til að stikla hér á nokkr-
um atriðum sem þar komu
fram.
Andrés benti á_ það í upphafi
máls síns að íslendingar séu
ekki einir um það að telja gróður-
hnignun og jarðvegseyðingu þann
vanda sem brýnast er að leysa.
Áhyggjur af
þeim vanda fari
vaxandi um allan
heim, enda varði
það framtíð
mannsins á jörð-
inni.
í erindinu kom
einnig fram að
Andrés telur
árangur af gróðurvernd fari eftir
skipulagi þessarra mála og mjög
sé tímabært að endurskoða ýmsa
þætti gróðurverndarstarfsins hér
hjá okkur.
Við getum sótt fyrirmyndir til
annarra þjóða sem hafa átt við
svipuð vandamáþað glíma - t.d.til
Bandaríkjanna, Ástralíu og Nýja-
Sjálands þar sem skipulagningin
er með öðrum hætti, segir hann.
Og síðar segir: Landnýtingarsaga
á Nýja-Sjálandi er aðeins 100 ára
og ekki liðu nema 18 ár frá því
að fyrstu landnemar komu til
Ástralíu 1788 með 29 kindur, 7
nautgripi og 19 geitur, að bóndi
skrifar ríkisstjórninni og lýsir
jarðvegseyðingu -að gróðuriendi
séu að breytast í auðn.
I Bandaríkjunum breyttust
gífurleg landflæmi í hálfgerðar
eyðimerkur á árunum frá 1870 og
fram yfir aldamótin næstu, en
upphaf skipulegs gróðurverndar-
starfs þar hófst með stofnun
Skógþjónustunnar árið 1905 (For-
est Service). Þá voru settar
strangar reglur um beitarheimild-
ir.fjölda beitargripa og lengd beit-
artíma - og tekinn upp beitartollur
til að standa straum af kostnaði
við gróðurvernd og hagabætur í
sameiginlegum löndum.
Árið 1934 var komið á laggirnar
stofnun sem nefnd var Jarðvegs-
eyðingarþjónustan og hún vistuð
í innanríkisráðuneytinu. Hún átti
að veita bændum aðstoð við að
stöðva uppblástur. Þessarri stofn-
un var síðan breytt ári síðar í
Jarðvegsverndarþjónustuna og
hún sett í landbúnaðarráðuneytið.
Þessi stofnun hefur umsjón með
verndun alls lands í einkaeign í
Bandaríkjunum.
Skipuleg gróðurvernd hófst í
Ástralíu 1938 eftir tímabil mikilla
þurrka og ofbeitar og á Nýja-Sjá
landi þremur árum síðar. En Ástr-
alíubúar tóku ekki í raun á þessu
vandamáli fyrr en uppblástursm-
ökkur umlukti Melbourne í febrú-
ar 1983. Þá var loks gerð heild-
stæð jarðvegsverndaráætlun.
Megináhersla er þar lögð á að
virkja landnotandann og stórir
hópar bænda og annarra landeig-
enda hafa síðan verið að endur-
skipuleggja nýtingu landsins til
að tryggja betur verndun jarð-
vegs. Þó eru vandamálin í þessum
löndum varðandi gróðureyðingu
•hrikaleg og enn mikil þörf á
bættri beitarstjórnun og verkleg-
um framkvæmdum. Bötun lands
tekur langan tíma en kröfur auk-
ast um verndun og gróðurbætur
- ekki síst í kjölfar vistfræðilegrar
þekkingar.
Hver er þá munurinn hér á landi
og þar? spyr Andrés og svarar:
Þar er stjórn á beit og landnýt-
ingu notuð sem meginleið til að
hafa áhrif á gróðurfar. Sömuleiðis
er beitt fyrirbyggjandi aðgerðum
og viðkvæmustu svæðin eru friðuð
fyrir búfjárbeit.
Hér hófst varnarstarf fyrir 8o
árum. Landgræðsiustarfið hefur
aðallega beinst að afmörkuðum
landeyðingarsvæðum og hér er
stjórn á landnýtingu sáralítil mið-
að við önnur lönd.
Þar beinist starfsemi og skipu-
lag að stórum hluta að því að
gera eigendur og notendur að hin-
um eiginlegu landverndarmönn-
um undir stjórn og eftirliti ríkis-
ins. Samtakamáttur þeirra sem
nýta landið er grundvallaratriði
ásamt markvissri þekkingaröflun,
fræðslustarfsemi og ráðgjöf um
nýtingu landsins. Gróðurverndar-
starfið er fært niður á grasrótar-
planið.
Andrés vitnar í Hugh Bennet,
sem kallaður hefur verið faðir
skipulegs jarðverndarstarfs í
Bandaríkjunum þar sem hann
segir: „Árangri verður aidrei náð
í vemdarstarfinu ef það er aðeins
stundað af fáum. Allir- öll þjóðin
verður að vera þátttakandi".
Utfærslan á þessarri nýju
stefnu birtist ef til vill fyrst og
fremst í stofnun syokallaðra jarð-
vegsverndarráða. I Bandaríkjun-
um eru nú starfandi um 3000 slík
ráð og í þeim eiga sæti 100-300
bændur, óháð því hvers konar
búskap þeir stunda. Þessi ráð
hafa all-víðtækt valdsvið - störfin
Það sem skilur á milli gæti verið
það frumkvæði sem bændurnar
þar hafa sjálfir um gróðurvernd-
armál. Afstaða þeirra mótast af
því að það sé farsælla fyrir þá
sjálfa að hafa frumkvæðið að
verndunaraðgerðum heldur en
þurfa að lúta einhveijum tilskip-
unum opinberra aðila. Þeir gera
sér líka grein fyrir því að þeir
verða að skapa sér sannfærandi
ímynd landverndarmanna ef þeir
eiga að geta notið áfram opinberr-
ar fyrirgreiðslu til landbúnaðar-
ins.
Andrés segist ekki vilja gera
lítið úr því sem áunnist hefur hér
á landi í þessum málum, en bend-
ir um leið á það mikla starf sem
framundan er. Hann mælir með
því að íslenskir bændur kynnist
því, hvernig bandarískir starfsfé-
iagar þeirra haga gróðurverndar-
starfinu - segir að þeir eigi að
skipa sér í framvarðarsveit - vera
hinir raunverulegu gæslumenn
landsins.
Á því sviði getum við ótvírætt
ýmsilegt lært og tekið okkur til
fyrirmyndar.
eftir Huldu
Valtýsdóttur