Alþýðublaðið - 09.01.1959, Blaðsíða 3
:zt er við, að demókratar muni
gagnrýna fjárlagafrumvarp
-jornarmnar mjög harðlega,
g ef til vill einnig frá frjáls-
yndum repúblikönum. Leiöiogi
■mgsiiokks demókrata í öid-
mgadeildinni, Lydon Johnson,
-em í dag var einróma kjörinn
. þá viromgarstöðu á ný, mun
ennilega hafa orð fyrir . þeim.
AMVmtMWMMHHVmMtmMMMWMHWmmMMWIMMtmW
Wðbyggin
siiúiið á Þingeyri
Fréttabréf til Alþýðubl.
ÞINGEYRI, 30. des.
VEÐRIÐ í desembermánuði
var hér oftast N-N-A þræsing-
ar, en frostlítið eða frostlaust.
Snjólaust hefur oftast verið í
hyggð og nú yfir jólin þýðviðri,
5—6 stiga hiti og alautt.
Einn bátur hefur róið héðan,
„Flosi“. og byrjaði hann róðra
23. nóvember. Gæftir hafa ver-
ið stonular og afli frekar treg-
ur, mest 4—AVi smálest í róðri.
,.Þorbjörn“ er ekki byrjaður
róðra ennþá, vegna aðgerðar,
sem fram fer á honum nú eftir
áramótin. Stendur til að setja
á hann nýtt stýrishús.
Nokkrir vélbátar stunduðu
héðan handfæraveiðar í sum-
ar oe öfluðu vel. Einn bátur,
,,Þorbiörn“. stundaði reknetja-
veiðar og fékk góðan afla.
MJÓLKÁRVIRK JUN.
28. Júlí í sumar var hleypt
á rafmagni frá Miólká hingað
ti'l Þingeyrar. Eafmagnslínan
milli Mjólkár og Þingeyrar var
reynd í fyrravetur og bilaði þá
aldrei. en þá var notað rafmagn
frá Þingeyri við Mjólká.
VIÐBYGGING VIÐ
FRYKTIHÚSIÐ |
Nýlega var lokið viðbygg-'
ingu við frystihúsið hér, sem er
tvær hæðir, 425 fermetrar að
grunnmáli. Á neðri hæðinni er
viðbót við vinnusal, frysti-
geymslu og fyrir frystitæki. Á
efri hæðinni er ísgeymsla, mat-
vælageymsla, búningsherbergi
og kaffistofa. Á efstu hæð kem
ur sérklefi fyrir ísvélar. Verð-
ur þetta mikill og góður við-
auki og mikil bót fiskvinnslu
hér við það, sem verið hefur að
undanförnu.
ONDVEGISTÍÐ í SUMAR.
í sumar var hér öndvegistíð,
mátti heita að aldrei kæmi
dropi úr lofti fyrr en í septem-
ber. Það má því segja, að það
eina, sem hægt hafi verið að
finna að veðrinu sé það, hvað
var úrkomulítið. —
Heyskapur mun hafa verið í
minna lagi vegna langvarandi
þurrka. Heilsufar hér hefur yf-
irleitt verið gott. — S.B.
SJONUH.
Hér er verið að
hleyiia nýjasta stór-
skipi ítala af stokkun-
um. Það hlaut nafnið
Leonardo da Vinci og
er 32 000 tonn. Það er
smíðað í Sestri Pon-
ente Ansaldo skipa-
smíðastöðinni í Gen-
úa. Því er ætlað að
taka við af Andrea
Doria, sem eins og
menn muna sökk við
bandarísku ströndina
eftir að hafa lent í
árekstri við sænslta
farþegaskipið Stokk-
hólm.
MMMWMWWMMMWWWW
42 Afríkumenn létust í óeirðunum
í Leopoldville um síðustu helgi
208 Afríkumenn og 49 Evrópu-
menn særðust. 300 handteknir.
REUTERSFREGNIR:
•WLSSBAD'EN: Vestur-Þj óð-
verjar se.du iðnvarning úr s
L'-idi fyrir 30,8 milljarða marka
á sl. ári_ 400 000 milljónum
meira en árið áður.
JOHANNESARBORG: 89 af-
rískar konur stóðu fyrir rétti i
dag sakaðar um að hafa rofið
frið mað mótmælafundi 2000
kvenna gegn því að þurfa að
bera vegabréf. 7 þeirra voru
s.ktaðar, en hinum sleppt. Enn
verður 22 konum stefnt fyrir
sömu sakir.
ALGEIRSBORG: Franskar
hersveitir hafa fellt 236 upp-
raisnarmenn Og hadtekið 12 í
Kabyíiufjöllunum í Austur-
Algier.
HONG KONG: Samband kín
verskra hljómlistarmanna hef-
ur til athgunar aðferðir til að
semja meiri og betri hljómlist
og söngvai handa fjöldanum til
lofs uppbyggingu sósíalismans,
sagði kommúnistíska fréttastof-
an Nýja Kína í dag.
KÖLN: Verksmiðja Fordfé-
iagsins hér framleiddi sl. ár
128 532 ökutæki, fleiri en á
nokkru ári eftir stríð.
VARSJÁ: 100 manns hand-
leggs- og fótbrotnuðu á hálku
á götum iðnaðarborgarinnar
Lodz í þesari viku.
Hærra fiskverð
þýðir
nyja
ð
LEOPOLDVILLE, 8. janúar.
(REUTER). 42 Afríkumenn lét-
ust og 208 særðust í óeirðum
hér í þessari viku, segja opin-
berar heimildir liér í dag.
Sömu heimildir segja, að 49
Evrópubúar hafi særzt og séu
15 þeirra enn á sjúkrahúsi. 108
Afríkumenn munu enn vera í
sjúkrahúsi.
M. Romans, fylkisstjóri í
Leopoldville-héraði, sagði á
blaðamannafundi, að 300 Af-
ríkumenn hefðu verið hand-
teknir af lögreglunni á meðan
á óeirðunum stóð og eftir þær,
og hefði 96 þeirra verið haldið
í varðhaldi en hinum sleppt.
Óstaðfestar fregnir herma,
að 11 hinna handteknu hafi
verið leiðtogar Abako-flokks-
ins, en það var í sambandi við
fund þess flokks, sem óeirðirn-
ar blossuðu upp. Hafði fundur
þessi ekki verið leyfður og kom
til átaka milli fundarmanna og
lögreglunnar, og fylgdu rán í
kjölfarið.
Fylkisstjórinn sagði, að
nokkrir þeirra AFríkumanna,
er léust, hefði troðizt undir í
mannþrönginni. Aðeins fimm
lögreglumenn urðu fyrir lítils-
háttar meiðslum á sunnudags-
kvöldið. Belgísku yfirvö’din
hafa til athugunar að bæta
tjón þeirra manna, evrópskra
og afrískra, er urðu fyrir rán-
um og gripdeildum á sunnudag
og mánudag.
Elsenhower
Framhald af 12. síðu
fjárlögin nú gera ráð fyrir 80
milljarða eyðslu, sem þýðir, að
halli verður 10 milljarðar, Bú-
V.-Þjóðverjar gera
fyrirspurn fil
Nassers.
BONN, 8. janúar (REUTER).
Vestur-þýzka stjórnin liefur
; falið sendiherra sínum í Kairó
* að biðja um viðtal við Nasser,
forseta Arabíska samhandslýð-
; veldisins, til þess að komast að
| hinu sanna um samkomulag
lýðveldisins og Austur-Þýzka-
lánds um að skiptast á aðal-
ræðismönnum, svo sem komið
hefur fram í fréttum.
Vestur-þýzku blöðin sögðu í
dag, að það væri ekki viður-
kenning á Austur-Þýzkalandi
að skiptast á aðal-ræðismönn-
um við það, en það væri hins
vegar skref í áttina til þeirrar
viðurkenningar, sem Austur-
Þýzkaland sæktist eftir.
STEFNA ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálunum er skýr og
einföld: að stöðva dýrtíðar-
skrúfuna og fæi’a vísitöluna
niður fyrir 200. Til að ná
þessu marki cr ætlunin að
greiða niður verð ýmissa
nauðsynja, eins og þegar er
byrjað á, og að leggja nokkr-
ar hyrðar beint á alla lands-
menn. Peninga fyrir niður-
greiðslunum er ætlunin að fá
með margvíslegum sparnaði á
útgjöldum ríkisins — án þess
að ieggja nýjar áiögur á þjóð-
ina.
ÞESSI AÐALATRIÐI hafa
mótað viðhorf ríkisstjórnar-
innar til þeirra samninga, sem
•gerðir hafa verið við útvegs-
menn og milli þeirra og sjó-
manna. Ríkisstjórnin hefur
beitt sér fyrir og samþ. eins
góð kjör fyrir sjómenn og hún
telur framast fært, enda er
niðurstaðan 13—14% kjara-
bót — meiri en nokkur önnur
stétt hefur fengið, síðan á síð-
astliðnu vori.
LENGRA hefur ríkisstjórniu
ekki talið fært að komast inn-
an þess ramma, sem stefna
hennar til Iausnar efnahags-
málunum markar. Ef fiskverð
ið ætti að hækka frá því, sem
um var samið, getur það því
aðeins gerzt, að lagðir verði á
nýir skattar eða eldri álögur
hækkaðar. Hætt er við, að nýj
ar verðhældcanir múndu
fy.lgja í kjölfarið — og er þá
verr af stað farið en heima
setið fyrir bátasjómenn og
alla landsmenn. Þetta eru
staðreyndir málsins, sem ekki
verður framhjá gengið.
FORSÆTISRÁÐHERRA hefur
þegar gert þjóðinni grein fyr-
ir þeim vanda, sem að þjóð-
inni steðjar, og þeirri stefnu,
sem stjórn hans hygí^t
fylgja. Öll þessi mál voru
rækilega skýrð fyrir samn-
ingsaðilum, bæði sjómönmini) •
og útgerðarmönnum, svo að
þeir vita nákvæmlega, að
hverju þeir ganga.
KJARNI stefnunnar er að forð-
ast í lengstu lög nýjar álögur
á þjóðina. Með þeirri 13—
14% kjarabót, seni bátasjó-
menn eiga kost á, er teflt eins
tæpt og unnt er. Vonandi
auðnast þjóðinni nú að forð-
ast hina troðnu slóð, þar sem
ekkert bíður nema nýjar á-
lögur, nýjar hækkanir og >
hraðvaxandi dýrtíð.
Síðuslu forvðS að kaupa og endumýja. - Umboðin í Reykjavík og Hafnarfirði opin j
til kl. 10 í kvöld. - Dregið á morgun. 1
Alþýðublaðið — 9. janúar 1959 3