Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 1
FYRIRTÆKI: Mazdaumboðið endurreist hjá Ræsi hf./6-7
FIÁRMÁL: Litið á fjármál fjölskyldunnar/8-9
11
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDA G UR 21. JÚNÍ 1990 BLAÐ XJ
Verðbréfamarkaður
Hlutafjárútboð
Olís hf. að hefjast
Olís verður fyrsta fyrirtækið til að sækja um skráningu hluta-
bréfa sinna á Verðbréfaþingi íslands
OLÍS hf. býður frá og með deginum í dag hlutabréf ti kaups með
almennu hlutafjárútboði og verða gefin út hlutabréf fyrir 50 milljónir
að naftivirði í fyrstu lotu. Þetta er 8,9% af hlutafé félagsins sem var
510,3 milijónir um síðustu áramót. Ákveðið hefur verið að auka hlutaf-
éð í 670 milijónir króna eða um 159,7 milljónir og útgáfan í dag er
fyrsta skrefið í þeirri aukningu. Sölugengi bréfanna verður 1,6 í upp-
hafi sem er um 71% af innra virði þeirra. Til samanburðar má nefna
að gengi hlutabréfa í Skeljungi er 77% af innra virði og í Olíufélaginu
hf. 92%. Olís hf. hefúr sótt um skráningu hlutabréfa sinna á Verðbréfa-
þingi íslands og er fyrsta fyrirtækið sem sendir inn umsókn en reglur
þar að lútandi tóku gildi fyrir rúmum tveimur árum.
„Við teljum að menn séu að gera
ágæt kaup í þessum bréfum og von-
um að markaðurinn sé sammála
okkur í því,“ sagði Davíð Björnsson,
forstöðumaður hjá Landsbréfum hf.
sem annast hlutafjárútboðið fyrir
Olís. „Hér er að koma útboð á mark-
aðinn þar sem öllum almenningi
verður gefinn kostur á að kaupa
bréfin. Það hefur vantað bréf á
markaðinn þannig að þetta bætir
úr brýnni þörf þar.“
í hlutafjárútboði Olís hf. verður
mest selt fyrir 3 milljónir í einu og
segir Davíð að stefnt sé að því að
hluthafar í fyrirtækinu verði 50 eða
fleiri. Er það gert til að uppfylla
reglur Verðbréfaþingsins um skrán-
ingu hlutabréfa sem kveða á um það
að fjöldi hluthafa skuli vera að lág-
marki 50. Hluthafar í Olís eru nú
32 talsins.
Vegna umsóknarinnar um skrán-
ingu hlutabréfanna á Verðbréfa-
þinginu hefur verið samin ítarleg
útboðslýsing samkvæmt kröfum
þingsins. Landsbréf verða viðskipta-
vaki bréfanna og ef af skráningu
verður á þinginu munu verða gerð
tilboð í bréfin þar af hálfu Lands-
bréfa. Útboðslýsingin stendur öllum
kaupendum opin og segist Davíð
vonast til þess að sem flestir kynni
sér hana. „Þar er tíundað mjög ræki-
lega hvað menn eru að kaupa. Síðan
geta væntanlegir kaupendur kynnt
sér rekstrar- og efnahagsreikninga
undanfarin þrjú ár. Umsóknin gefur
ekki til kynna að þetta útboð sem
er að fara af stað núna verði selt í
gegnum þingið. Þetta gefur hins
vegar væntanlegum kaupendum ein-
ungis vísbendingu um það að við
höfum fullan hug á að skrá bréfin
ef þingið er okkur sammála. Það
veitir kaupendum aukið öryggi
vegna þess að þá vita þeir af trygg-
um endursölumarkaði."
Stærstu hluthafar í Olís hf. eru
Sund hf. ásamt Óla Kr. Sigurðssyni
með 63,8% og Texaco með 30%. Óli
hefur lýst því yfir að hann telji eðli-
legt að eignaraðild Olís dreifist víðar
en nú er. Óeðlilegt sé að einn maður
hafi jafn afgerandi áhrif og hann í
almenningshlutafélagi og því muni
hann stefna að því að verða í minni-
hluta í Olís. Um þessar mundir
stendur yfir endurmat á stefnu fyrir-
tækisins og stjórnskipulagi.
Rekstur Olís hefur skilað hagnaði
undanfarin 3 ár og nam hagnaðurinn
30,6 milljónum á síðasta ári. Eigið
fé félagsins í árslok var 1.138,5
milljónir króna og jókst úr 807 millj-
ónum frá árinu áður eða um 41%.
Bíla-
innflutningur
18.081
-18.000
15.000
■ 14.000
Nýir fólksbílar
12.000
10.000
8.000
---------------- 6.000
Jan.-mai '89
Jan.-maí '90
4.000.
'82 '83 '84 '85 '86 '87 ‘88
2.437
11
§1 P japí
■ bila
2.000
Aörir nýlr bílar,
sendibflar, vöru- og fólksflutnfngabílar
Þaral 1.607
japansklr
bflar,
eða 65,9%.
2.000
□UUDOD □ □ □ □ ja
1980 '81 '82 '83 '84 '85 '86 '87 '88 '09
564
4.854
Notaðir bítar, allar gerðir
□ □ □ □ dio □ ^ 215
4.000
2.000
ÞJÓNUSTA V I Ð
FYRIRTÆKl OG STOFNANIR
<
1/1
o
cxö
Hlutabréf i neðangreindum félögum eru keypt og seld gegn staðgreiðslu
hjá Landsbréfum h.f. og umboðsmönnum Landsbréfa um allt land.
* Sölugengi/
Félag Kaupgengi Sölugengi Innra viröi
Eh». Alþýöubankans 1.15 1.20 95%
Eimskipafólag islands 4.39 4.58 136%
Flugleiðir 1.71 1.80 87%
Grandi 1.57 1.66 120%
Hampiöjan 1.53 1.61 101%
Ehf. lönaöarbankans 1.54 1.60 89%
Oliuverzlun islands 1.54 1.60 71%
Oíiufélagiö 4.53 4.75 92%
Sjóvá-Almennar 5.00 5.20 271%
Skagstrendingur 3.56 3.75 70%
Skeljungur 4.52 4.70 78%
Tollvörugeymslan 0.95 1.00 87%
Útgeröarfólag Akureyringa 1.54 1.62 69%
Ehf. Verslunarbankans 1.26 1.31 93%
* Áskilinn er réttur til aö takmarka þá upphæö, sem keypt er fyrir.
Kaup- og sölugengi er sýnt miöaö viö nafnverö aö lokinni útgáfu jöfnunarhlutabrófa.
Miöaö er viö innra viröi 31.12.1989.
Rekstrarþjónusta Landsbréfa við
fyrirtæki og stofnanir felur m.a. í sér:
Útboð hlutabréfa
Útboð skuldabréfa
Mat á hlutabréfum
Fjármögnu nar ráðg jöf
Fjárfestingarráðgjöf
Euro/Visa fjármögnun
ít .
LANDSBRÉF H F.
Landsbankinn stendur meö okkur
Suðurlandsbraut 24,108 Reykjavík, sími 91-606080
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi islands.