Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
FIMMTUDAGUR 21. JUNI 1990
Fjármál
Lánasýslan á að vera
lítil og skilvirk stothun
segir Sigurgeir Jónsson, nýskipaður forstjóri, sem hafa mun yfirumsjón með lánamálum ríkissjóðs
FREMUR hljótt hefur verið um Lánasýslu ríkisins sem alþingi heimil-
aði að sett yrði á stofii skömmu fyrir þinglok. Lánasýslan skal fyrir
hönd fjármálaráðherra fara með lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana
innan lands og utan, útgáfu og sölu skuldabréfa á innlendum markaði
og aðra skuldaumsýslu fyrir ríkissjóð, svo og endurlán lánsfjár og
ríkisábyrgðir. Markmiðið með stofnuninni er fyrst og fremst að halda
fjármagnskostnaði ríkisins í lágmarki og dreifa áhættu vegna ábyrgða
og endurlána. Hér er eftir nokkru að slægjast fyrir hið opinbera því
samkvæmt fjárlögum yfirstandandi árs nema fjármagnsgjöld ríkissjóðs
röskum 9 milljörðum króna sem felur sér að tíunda hver króna af
útgjöldum ríkisins fellur undir þennan lið. Um síðustu mánaðamót var
Sigurgeir Jónsson ráðinn forstjóri Lánasýslu ríkisins en hann gegndi
áðúr starfi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu.
Samkvæmt lögunum skal Lána-
sýsla ríksins stefna að eftirfarandi
fimm megin markmiðum:
1. Halda erlendum og innlendum
vaxta- og fjármagnskostnaði ríkisins
í lágmarki.
2. Dreifa gengis-, vaxta- og verð-
lagsáhaettu vegna skulda ríksins á
sem hagkvæmastan hátt.
3. Draga úr áhættu ríkissjóðs vegna
ábyrgða og endurlána.
4. Efla markað fyrir ríkisverðbréf á
innlendum fjármagnsmarkaði með
kynningu og þjónustu.
AWINNUSÝNING
Á sELrossi
23.6.-1.7.
Komið og kynnist sunnlenskri
þjónnstu ogfmmleiðslu ú glœsilegri
sxningtt í Fjölbniutaskóla
Suðitrlands.
BERGSVEINN
19 9 0
Sigurgeir Jónsson
5. Efla lánstraust íslenska ríkisins á
erlendum lánsfjármörkuðum og
bæta þannig lánskjör þjóðarinnar
erlendis.
Umsvifin nálgast 30
milljarða á ári
Starfsemi stofnunarinnar skiptist
í fyrsta lagi í ábyrgða- og endurlána-
mál, en ríkisábyrgðasjóður er starf-
ræktur sem deild við Lánasýsluna.
í öðru lagi er í hennar verkahring
að annast sölu og innlausn innlendra
markaðsverðbréfa ríkissjóðs og
ríkisvíxla. Sett hefur verið að fót
Þjónustumiðstöð til að annast þessi
mál. Sem dæmi um umfang Þjón-
ustumiðstöðvarinnar má nefna að á
síðasta ári voru seld spariskírteini
fyrir 5,2 milljarða en innlausn nam
3,4 milljörðum. í ár er fyrirhugað
að selja spariskírteini fyrir 6,7 millj-
arða. Ríkisvíxlar voru seldir umfram
innlausn fyrir 5,2 milljarða og nam
ríkisvíxlastofninn í árslok 5,9 mill-
Tilkynning um útboð markaðsverðbréfa.
Hlutabréf í
Olíuverzlun Islands hf.
Heildarnafnverð 50 milljónir króna.
Sölugengi 21.06/90; 1,60
Stærðir hluta að lágmarki kr. 30.000,- að nafnverði.
ítarleg útboðslýsing liggur frammi hjá Landsbréfum hf.,
útibúum Landsbanka íslands og Samvinnubanka íslands.
Nánari upplýsingar veita Landsbréf hf.
OLÍUVERZLUN
ÍSLANDS HF
Héöinsgata 10,105 Reykjavík
sími 91-68 98 00
BB
l£ '
LANDSBRÉF
Suðurlandsbraut 24, Rvk. sími (91) 60 60 80
Löggilt verðbréfafyrirtæki,- Aðili að Verðbréfaþingi Islands
jörðum króna. Hann nemur nú hátt
í 13 milljörðum. í þríðja lagi er lána-
sýslunni ætlað að annast lánamál.
Erlendar lántökur A-hluta ríkissjóðs
námu 6,6 milljörðum króna á síðast-
liðnu ári en þar af stafaði 5 millj-
arða lántaka af greiðslu yfirdráttar-
skuldar við Seðlabankann. Auk þess
var stofnað til vaxtaskipta og veittar
sjálfskuldarábyrgðir fyrir rúma 3
milljarða. Samtals námu því umsvif-
in 24 milljörðum á síðasta ári sem
nú falla undir hina nýju stofnun og
talan verður án efa hærri á þessu ári.
Lánasýslan tekur fyrst og fremst
við verkefnum sem íjármálaráðu-
neytið hefur til þessa sinnt og unnið
verður að í nánu samstarfi við Seðla-
bankann. Hún mun semja fyrir hönd
ríkissjóðs um lán, endurlána fé og
veita ábyrgðir samkvæmt ákvörðun
fjármálaráðherra innan heimilda
sem Alþingi veitir hveiju sinni.
Fjórir starfsmenn eru hjá Þjón-
ustumiðstöð ríkisverðbréfa en reikn-
að er með að endanlegur endanlegur
starfsmannaíjöldi Lánasýslunnar
verði innan við 10 manns. Ríkis-
ábyrgðarsjóður verður hluti lána-
sýslunni og annast Seðlabankinn
rekstur hans með sama starfsliði og
verið hefur.
Kostnaðarauki ekki teljandi
í greinargerð með frumvarpi um
Lánasýslu segir að sú starfsemi sem
muni fara fram á vegum hennar
feli ekki í sér marktæka viðbót við
þá starfsemi á þessu sviði sem hafi
farið fram á vegum fjármálaráðu-
neytisins og Seðlabankans eða í
samstarfi þessarra aðila. Kostnaðar-
auki verði ekki teljandi. Hins vegar
sé kostnaður við þessa starfsemi
umtalsverður í dag, enda séu umsvif-
in mikil.
„I eðli sínu á svona stofnun ekki
að vera stór heldur lítil og skilvirk,"
sagði Sigurgeir Jónsson, forstjóri
Lánasýslu ríkisins í samtali við
Morgunblaðið. „Þörfin á því að setja
upp sérstaka stofnun um þessi mál
hefur verið að þróast. Samkeppnin
hefur verið að vaxa á innlenda mark-
aðnurn og við mættum því með Þjón-
ustumiðstöðinni. Þar höfum við að-
stöðu til að mæta samkeppninni á
markaðnum. Spariskírteinin voru
einu bréfin á markaðnum sem eitt-
hvað kvað að en nú hafa komið önn-
ur bréf fram og hefur þurft að selja
miklu ákveðnar heldur en áður var.
Að mörgu leyti var erfitt fyrir Seðla-
bankann sem sá um söluna, að
ganga jafn hart fram og er orðið
nauðsynlegt núna. Með Þjónustu-
miðstöðinni sem starfar í nánu sam-
ráði við Seðlabankann höfum við
meiri möguleika að keppa á markaði
og verið sveigjanlegri ásamt því að
veita betri þjónustu.“
Sigurgeir segir að á erlendum
lánamörkuðum hafi einnig orðið
breytingar og skapast meiri mögu-
leikar. „Nú eru meiri möguleikar á
að dreifa áhættu og breyta skuldum.
Lánin standa ekki óbreytt til gjald-
daga heldur þarf að semja um þau
upp á nýtt. Það er hægt að skipta
á lánum, vöxtum og gjaldmiðlum.
Ábyrgðamálunum er gefinn meiri
gaumur og áhætta ríkisins í sam-
bandi við einstakar ábyrgðir og
flokkaábyrgðir. Tímabært þótti því
að fela sérhæfðri stofnun utan ráðu-
neytisins að halda utan um þessi
mál,“ sagði Sigurgeir Jónsson.
UMBOÐSSAMNINGUR — í tilefni af umboðssamningi
ferðaskrifstofunnar Sögu við Avis bílaleiguna kom hingað til lands
forstjóri Avis í Danmörku. Á myndinni eru f.v. Inga Haraldsdóttir frá
bílaleigunni RVS, Arnór L. Pálsson, frá ALP bílaleigunni, Ivan Nadel-
man, forstjóri Avis í Danmörku, Örn Steinsen, framkvæmdastjóri ferða-
skrifstofunnar Sögu, Inga Engilberts, sölustjóri hjá Sögu og Hafsteinn
Reykjalín frá RVS.
Ferðamál
Saga fær umboð
fyrir A VlS-bíla-
leiguna erlendis
FERÐASKRIFSTOFAN Saga hefur fengið umboð til að leigja íslend-
ingurn sem ferðast erlendis bíla frá AVIS—bílaleigunni. AVIS er ein
stærsta bílaleiga í heimi og leigir út meira en 300.000 bíla í 135
löndum. Saga mun starfa í tengslum við AVIS í Danmörku en AVIS
er stærsta bílaleigan þarlendis.
Meðal þess sem ætlunin er að
bjóða íslendingum upp á er að leigja
bíl í einni borg, til dæmis Kaup-
mannahöfn og skila henni í annarri
borg Evrópu en AVIS hefur útibú
í öllum stærstu borgum Evrópu og
á öllum alþjóðaflugvöllum. Að sögn
Ivans Nadelmans umboðsmanns
AVIS í Danmörku hefur það mjög
færst í aukana undanfarið að fólk
noti sér kosti bílaleiga og aki á
bílum frá þeim um Evrópu í sumar-
fríum. Segir hann að það sé sá
geiri innan atvinnugreinarinnar
sem er í örustum vexti.