Morgunblaðið - 21.06.1990, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
Sjávarútvegur
Um 160 milljóna tap afrekstri
Síldarverksmiðja ríkisins
TÆPLEGA 160 milljóna tap varð af rekstri Síldarverksmiðja ríkis-
ins á síðastliðnu ári sem er um 13,1% af rekstrartekjum fyrirtækis-
ins. Þessi slæma afkoma stafar fyrst af þeim aflabresti sem varð á
loðnuvertíðinni seinni hluta ársins. Tapið varð mest á verksmiðjunni
á Siglufirði eða 139,8 milljónir en verksmiðjurnar á Reyðarfirði og
Seyðisfirði skiluðu hagnaði á árinu. Verksmiðjur íyrirtækisins eru
auk þess staðsettar á Raufarhöfn og Skagaströnd en þær voru rekn-
ar með tapi. Síldarverksmiðjur ríkisins hafa unnið úr 25-30% af
þeirri loðnu sem berst á Iand árlega hér á landi.
„Það er mjög einföld skýring á
þessu,“ sagði Jón Reynir Magnús-
son, framkvæmdastjóri Síldarverk-
smiðja ríkisins þegar hann var
spurður um ástæður tapreksturs
fyrirtækisins. „Við vorum aðeins
með framleiðslu á fyrri hluta ársins
þ.e.a.s. á vetrarvertíðinni 1988-
1989 en síðan kemur engin loðna
fyrr en núna eftir áramótin á þessu
ári. Við vorum nánast tekjulausir
frá því í mars fram að áramótum
sem er meginástæðan fyrir þessu.“
Jón Reynir bendir hins vegar á
að loðnuveiðin eftir áramótin á
þessu ári sé sú mesta sem verið
hafi hér á landi á þessum tíma.
„Við fengum óvenjugóðan hluta af
loðnunni sem veiddist og meira en
við höfum fengið oft áður. Menn
voru að reyna ná sínum kvóta og
kepptust við að veiða og koma loðn-
unni frá sér þannig að verksmiðj-
urnar komu býsna vel út hvað magn
snertir á þessarri vetrarvertíð. Það
skiptir meginmáli hvernig til tekst
með komandi vertíð. Ef hún verður
þokkaleg þá á ég von á því að við
réttum úr kútnum,“ sagði Jón
Reynir Magnússon.
Eins og að framan er getið var
verksmiðjan á Siglufirði rekin með
tæplega 140 milljóna tapi. Á Rauf-
arhöfn varð tapið 84,5 milljónir og
5,8 milljónir á Skagaströnd. Um
40,3 milljóna hagnaður varð af
Markaður
Flugvélamiðlun
tekur til starfa
FASTEIGNASALAN Þingholt setti nýlega á stofii flugvélamiðlun til
að hafa milligöngu um viðskipti með flugvélar. Áhersla verður lögð
á að veita bæði kaupendum og seljendum faglega ráðgjöf við kaup
og sölu á flugvélum.
Þegar hefur skapast vísir að
vandaðri söluskrá með góðum upp-
lýsingum og mynd af hverri vél,
segir í frétt frá Þingholti. Karl R.
Sigurbjömsson mun annast dagleg-
an rekstur flugvélamiðlunarinnar
en hann hefur bæði viðskiptamennt-
un og atvinnuflugmannspróf. Þing-
holt er til húsa að Suðurlandsbraut
4a í Reykjavík.
Eigendur hlutabréfa:
Viö kaupum hlutabréf eftirtalinna hlutafélaga gegn
staðgreiðslu:
Hlutafélag
Kaupverð
pr. 100 kr.
nafnverðs1’ Hlutafélag
Kaupverð
pr. 100 kr.
nafnverðs1’
Alþýðubankinn hf............. 118
Eimskipafélag (sl. hf........ 435
Flugleiðirhf................ 172
Grandi hf.................... 157
Hampiðjanhf.................. 155
Hlutabréfasjóðurinn hf....... 146
Iðnaðarbankinn hf............ 153
Islandsbanki hf.............. 152
Olíufélagið hf.............. 450
Samvinnusj. Isl. hf......... 120
Sjóvá-Almennar hf........... 490
Skagstrendingurhf............ 360
Skeljungurhf................. 450
Tollvörugeymslan hf......... 101
Útgf. Akureyringa hf......... 150
Verslunarbankinn hf.......... 130
1) Áskiltnn er réttur til aö takmarka þá tjárhæö sem keypt er tyrir.
Eigendur og
útgefendur
skuldabréfa:
Vegna mikillar eftirspurnar óskum við eftir góðum
skuldabréfum í umboðssölu.
_ ffármál eru okkarfagl
VERÐBRÉFAUIÐSKIPTI
SUÐURLANDSBRAUT 18 • SlMI 688568
rekstri verksmiðjunnar á Seyðisfirði
og á Reyðarfirði skilaði verksmiðjan
30 milljóna króna hagnaði. Til sam-
anburðar má nefna að verksmiðj-
urnar skiluðu samtals tæplega 40
milljóna hagnaði árið 1988.
Rekstartekjur verksmiðjanna
námu samtals 1.219 milljónum á
síðastliðnu ári. Þær skiptast þannig
að söluverðmæti loðnumjöls nam
980,7 milljónum, loðnulýsis 183,8
milljónum og fiskimjöls 17,4 millj-
ónum. Aðrar tekjur námu 40,6
milljónum. Heildareignir Síldar-
verksmiðja ríkisins námu í árslok
1.135,3 milljónum króna og eigið
fé var 488,1 milljón.
Umsvif eðgnaleiga 1987-89
3.000
Glitnir
2.B73
2.500
2.000
1 500
1.000
500
2.181
I milljónum króna á verðlagi hvers árs
Féfang
1.741
1.245
649
'87 '88 '89 '87 '88
Fjármál
Eignaleiga stendur
ístað að raungildi
UMSVIF eignaleiga eða fjár-
mögnunarleiga stóðu nokkurn
veginn í stað á síðasta ári að
raungildi. I árslok höfðu verið
gerðir samningar um eignale-
igu fyrir um sjö og hálfan millj-
arð króna en 6,2 milljarða árið
áður en þá jukust umsvif eigna-
leiga töluvert. Talsverðar
breytingar hafa orðið á mark-
aðshlutdeild einstakra eignale-
iga undanfarin misseri.
Glitnir er eftir sem áður stærsta
eignaleigan með um 38% markaðs-
hlutdeild en hlutdeild fyrirtækisins
hefur farið minnkandi undanfarin
misseri og var ríflega 50% í árslok
1987. Á sama tíma hefur hlutdeild
Lindar og Féfangs aukist, Lindar
úr 12,5% í tæp 19% og Féfangs
úr rúmum 15% í rúm 23%. Þessi
fjögur fyrirtæki eru þau einu sem
fengið hafa leyfi til að stunda
eignaleigu hérlendis. Markaðs-
hlutdeild er hér miðuð við gerða
samninga í árslok að frádregnum
áætluðum afföllum. Inni í tölum
um Féfang er ekki starfsemi Icele-
ase, dótturfyrirtækis Féfangs.
í lok síðasta árs hafði Féfang
gert samninga fyrir 1741 milljón,
Glitnir fyrir 2873, Lind 1419 og
Lýsing 1472.
Athygli vekur að þrátt fyrir al-
PJENNINN SETUR
LAGT VÖRUVERÐ
AODDINN
LEITZ BRÉFABINDI
8 LITA KERFI í
SKJALAVÖRSLUNA
VERÐkr.255,-
cnm
Hallarmúla 2, slmi 83211
Austurstræli 10, slmi 27211
Kringlunni, simi 689211
mennan samdrátt í efnahagslifinu
hafa umsvif eignaleiga ekki dreg-
ist saman. „Við getum í raun ver-
ið ánægðir með að halda okkar
hlut þrátt fýrir allt á síðasta ári,“
segir Kjartan G. Gunnarsson
framkvæmdastjóri Féfangs um
starfsemi eignaleiga.
Sjávarútvegur
Fiskiðjusamlagið
rekið með hagnaði
Húsavík.
Á aðalfundi Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. sem haldinn var nýlega
kom fram að rekstur fyrirtækisins gekk vel á árinu 1989. Hagnað-
ur fyrir afskriftir og vexti var 120,4 milljónir. Að teknu tilliti til
afskrifta, flármagnsliða og tapaðra krafiia vegna gjaldþrota fyrir-
tækja, sem í viðskiptum voru vð Fiskiðjusamlagið, var hagnaður
17,5 milljónir.
Innlagður afli á árinu var 6.765
tonn af bolfiski og 1.442 tonn af
rækju. Árið 1988 var innlagður
bolfiskur 6.400 tonn og 1.000 tonn
af rækju. Heildarveltan var 779
milljónir en var 593 milljónir 1988.
Hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur
vinna um 150 manns og er það
einn. stærsti atvinnurekandinn á
staðnum.
Verðbréfamarkaður
Það veldur stjórnendum FH
áhyggjum og erfiði hvað innvegið
fiskmagn vegna kvóta hefur farið
minnkandi. Innveginn bolfiskur
var 1983 samtals 8.900 tonn en á
sl. ári 6.300 tonn. Innlögð rækja
var 1987 um 1.900 tonn en á sl.
ári um 1.450 sem var þó meira
en árið áður.
- Fréttaritari
Sala bankabréfa lang-
mesthjá Landsbanka íár
LANDSBRÉF hafa selt bankabréf Landsbankans fyrir um 1.821
miiyón króna frá áramótum og Landsbankavíxla fyrir um 846
milljónir. Nokkur hluti bankabréfasölunnar er vegna endurflárfest-
inga aðila sem átt hafa bankabréf á innlausn og nemur sú fjárhæð
á bilinu 600-700 milljónum króna að sögn Sigurbjöms Gunnarsson-
ar, deildarstjóra hjá Landsbréfum.
Fjármagni sem Landsbankinn
hefur aflað á þessu ári með banka-
bréfasölu umfram innlausn hefur
verið ráðstafað til kaupa á skulda-
bréfum á móti en nokkrum hluta
þess er þó enn óráðstafað.
Að sögn Vilborgar Lofts hjá
Verðbréfamarkaði íslahdsbanka
hefur Islandsbanki selt bankabréf
fyrir um 550 milljónir frá áramót-
um en sala á bankavíxlum hefur
verið mun meiri eða rétt tæpir
tveir milljarðar.
Búnaðarbankinn hefur ekki lagt
mikla áherslu á þennan markað
og selur ekki bankavíxla. Frá ára-
mótum hefur Búnaðarbankinn selt
bankabréf fyrir 112 milljónir.
Sala ríkisvíxla hefur eins og
komið hefur fram hér í blaðinu
slegið öll met og eru útistandandi
ríkisvíxlar nú nálægt 13 milljörð-
um. Sömu sögu er ekki að segja
um spariskírteinin sem hafa selst
fyrir 2,2 milljarða en alls er ráð-
gert að selja fyrir 6,7 mílljarða á
árinu.