Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
B 9*
sér hve miklar tekjur hann ætlar
sér að hafa á eftirlaunaárunum.
Síðan er hægt að áætla hve mikið
sparifé og réttindi í lífeyrissjóðum
í lok starfsævinnar eru nauðsynleg
til að ná þeim markmiðum. Öðrum
spurningum um Ijármál á hinum
tveimur fyrri skeiðum ævinnar er
oft unnt að svara í ljósi þessara
markmiða. Auðvitað þarf alltaf að
taka tillit til sérstakra aðstæðna
hvers og eins eða hverrar ijöl-
skyldu. Aðstæður eru mismunandi
eftir því hvar fólk býr (í hvaða landi
eða hvaða sveit), við hvað fólk star-
far og hvernig hver og einn kýs að
ráðstafa tekjum sínum.
Tilgangurinn með því að skipu-
leggja einkafjármálin er að tryggja
að hveijum og einum verði sem
mest úr peningum sínum - bæði
tekjum og eignum. Þótt skattkerfi
íslendinga hafi verið einfaldað
nokkuð á síðustu árum er það eng-
an veginn einfalt (sjá um útreikning
eignarskatts hér á síðunni!) og það
er dýrt að greiða hærri skatta en
nauðsynlegt er. Það er líka dýrt að
greiða hærri vexti eða kostnað af
lánum en nauðsynlegt er. Dæmið
um eldri hjónin hér að framan sýn-
ir að það getur skipt fólk milljónum
- eða tugþúsundum í tekjum á
mánuði - hvernig það hagræðir
eignum sínum. Loks þarf hver og
einn að búa sig jafnvel undir það
versta - með því að kaupa líftrygg-
„ingu - og það besta með því að
tryggja sér nægjanlegar tekjur á
eftirlaunaárunum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
VIB- Verðbréfamarkaðs íslands-
banka hf.
Ráðgjöf
Hagvangur hefíir samstarf
við Price Waterhouse
HAGVANGUR hf. hóf fyrr á
þessu ári samstarf við Price
Waterhouse. Price Waterhouse
er alþjóða ráðgjafarfyrirtæki
með um 40.000 starfsmenn um
allan heim, þar af um 8.000 ráð-
gjafa á sviði rekstrar—, mark-
aðs— og stjórnunarráðgjafar en
aðrir starfsmenn eru sérfræðing-
ar á sviði endurskoðunar og
skattamála.
Með samstarfi Hagvangs og
Price Waterhouse gefst ráðgjöfum
Hagvangs möguleiki á að ráðfæra
sig við sérfræðinga um allan heim
og hægt er að kalla þá til sam-
starfs í einstökum verkefnum. Auk
þess hafa ráðgjafar Hagvangs að-
gang að margvíslegri þróunarvinnu
og fræðslu frá hinu erlenda fyrir-
tæki. Þetta kemur fram í frétta-
bréfi Hagvangs.
Þar kemur einnig fram að Hag-
vangur og Price Waterhouse vinna
nú sameiginlega að verkefni á sviði
stefnumótunar með Hampiðjunni,
Héðni, Marel og Iðnlánasjóði en
Iðnlánasjóður styrkir þetta verk-
efni. Ætlunin er að flytja með þessu
verkefni þekkingu, reynslu og að-
ferðafræði Price Waterhouse tál
landsins og aðlaga hana að íslensk-
um aðstæðum.
GM
VECTRA
STANSLAUS SIGURFÖR
rnm mm SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFELAGA
TODMBD
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 OG 674300
SNARPUR OG SPARNEYTINN
Opel Vectra er framhjóladrifinn með 1,6 I og 2,01 vél. Hann er 5
gíra eða sjálfskiptur, með aflhemtum, aftstýri og sjálfstœðri fjöðrun
fyrir hvert hjól, Pað tekur hann aðeins 8,5 sekúndur að ná 100 km
hraða úr kyrrstöðu og í fjórða gír er hann aðeins 14,5 sekúndur úr
40 km hraða á klukkustund í 100 kílómetra. Prátt fyrir kraftinn er
hann ótrúlega sparneytinn.
Samt er verðið frábœrt. Þú getur eignast Opel Vectra
fyriraðeins 1.273.000 krónur.
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ
Verð: Fjögurra dyra, beinskipfur, 1,61 vél kr. 1.273.000,-
Fimm dyra, beinskiptur, 1,61 vél kr. 1.353.000,-
Fjögurra dyra, sjálfskiptur, 2,01 vél kr. 1.573.000,-
Öll verð eru staðgrelðsluverð, bílarnir ryðvarðir og komnir á götuna.
Opel Vectra hefur verið á stanslausri sigurför um Evrópu síðasta
árið. Blaðamenn hafa hlaðið bílinn lofi og kaupendur hafa rifið
bílana út jafnóðum og þeir voru framleiddir.
EKKIBARA FARARTÆKI
Skýringin er einföld. Opel Vectra er ekki bara farartœki, sem flytur
fólk milli staða. Opel Vectra er nautn hins kröfuharða ökumanns,
sem vill að allt tari saman, viðbragðssnerpa, frábœr stjórnsvörun,
öryggi í akstri og þœgindi innan dyra.
Öll tœkni, þekking og reynsla General Motors, langstœrsta
bílaframleiðanda heims, er á bak við hönnun og framleiðslu Opel
Vectra, auk vestur-þýskrar nákvœmni og kröfuhörku.
Komdu með fjölskylduna, reynsluaktu bílnum og leyfðu
henni að finna nautnina að aka í Vectra.