Morgunblaðið - 21.06.1990, Side 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNIILÍF FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
• •
VEROLD
hefur umboö fyrir
eftirtaldar vörusýningar:
KOLN
SPOGA
KOLN
2*4-4tfcS.pt«ak«rim
Spoga 2.-4. sept.
Alþjóðleg sportvörusýning
Köln 1990
Photokina 3.-9. okt.
Alþjóðleg tækja- og
ljósmyndavörusýning
ORGATEC
Orgatec 25.-30. okt.
Skrifstofa framtíðarinnar.
Innréttingar, tölvur, hugbúnaður.
Isp# 4.-7. sept.
Sportvörur og tískufatnaður
FRANKFURT
♦1
Messe
Ffankfurt
International
Frankfurter messe
25.-29. ágúst
Alþjóðleg gjafavörusýning
■I Messe
■B Frankfurt
Automechanika
11.-16. sept.
Ein stærsta bflasýning veraldar
HB Messe
Wm Frankfurt
Book-Fair
3.-8. okt.
Bókasýning, bókaútgáfa
Ennþá er nokkrum
herbergjum og aögangskort-
um óráðstafað.
Vinsamlegast gerið pöntun
með góðum fyrirvara.
Austurstræti 17, 101 Reykjovík
sími: (91)622011 og 622200.
EB-punktar
Kristófer Már Kristinsson
Hertar reglur um greiðslukort
Kristófer Már Kristinsson
KAREL VAN *MIERT, sem m.a. fer með neytendamál innan fram-
kvæmdastjórnar Evrópubandalagsins (EB), hyggst leggja fram tillögu
að tilskipun um skyldur greiðslukortafyrirtælý’a gagnvart viðskiptavin-
um sínum. í nóvember 1988 setti framkvæmdastjórnin fram tilmæli til
greiðslukortafyrirtækjanna sem þau hafa fram að þessu daufheyrst
við. Van Miert hefiir því ákveðið að leggja fram tillögu fyrir ráðherra-
fiind sem bindur hendur kortafyrirtækjanna verði hún samþykkt. Tillag-
an gerir ráð fyrir að skilmálar fyrirtækjanna gagnvart korthöfúm séu
settir fram á einföldu skiljanlegu máli. Lagt er til að sönnunarbyrðin
verði á kortafyrirtækinu, ef upp kemur ágreiningur við korthafa. Öll
mistök sem stadfa af tæknilegum bilunum verði á ábyrgð kortafyrirtækis-
ins. Lagt er til að korthöfúm verði gert kleift að tilkynna tap á korti
allan sólarhringinn og þess krafíst að kortavélar séu þannig útbúnar
að hægt sé að leiðrétta mistök og afturkalla aðgerðir á einfaldan hátt.
í tillögunni er gert ráð fyrir að ábyrgð korthafa, týni hann korti sínu,
nái einungis til aðgerða sem fara fram áður en tap er tilkynnt en þó
aldrei fyrir hærri upphæð en sem nemur ellefú þúsund íslenskum krón-
um.
Framkvæmdastjórn EB að-
varar flugfélög í Evrópu
Framkvæmdastjórn EB hefur séð
ástæðu til að vara flugfélög í Evrópu
við samruna og samstarfssamning-
um sem stuðla að einokun á til-
teknum flugleiðum. í aðvörun fram-
kvæmdastjórnarinnar segir að að-
gerðir innan EB til að stuðla að auk-
inni samkeppni og frelsi í sam-
göngum í lofti með minnkandi ríkis-
afskiptum hafí ekki miðað að því að
einkafyrirtæki kæmu sér í einokun-
araðstöðu upp á eigin spýtur. Fram-
kvæmdastjómin lýsir sig hins vegar
reiðubúna til að leggja blessun sína
yfir samstarfssamninga á milli flug-
félaga sem stuðla að aukinni hag-
kvæmni óg bættri þjónustu við far-
þega. Lögð er áhersla á að í fram-
tíðinni verði farið af meiri nákvæmni
ofan í saumana á slíkum samningum
til þess að koma í veg fyrir að flugfé-
lög tryggi sér óbreytta markaðshlut-
deild með þeim. Aðalframkvæmda-
stjóri þýska flugfélagsins Lufthansa
segir að framkvæmdastjóm EB hafi
takmarkaða þekkingu á flugrekstri
og taki ekki nægilegt tillit til rekstr-
arvandræða sem stafa m.a. af frum-
stæðri skipan flugumferðarstjórnar
í Evrópu. Jafnframt skipti fram-
kvæmdastjómin sér enn af þáttum
í rekstri flugfélaga s.s. vinnutíma
flugmanna. Flugfélög í Evrópu séu
smá í samanburði við önnur fyrir-
tæki. Samanlagt nái þau t.d. ekki
10% af veltu Shell-fyrirtækisins.
Samningaviðræður
EFTAvið EB
Fyrirhugaðar samningaviðræður
EFTA-ríkjanna við EB um hið svo-
kallaða Evrópska efnahagssvæðið
(EBS) hafa vakið talsverða athygli
í Bmssel síðustu vikur. Þeir sem em
í forystu fyrir EFTA hafa kvartað
undan því að samningarnir hafi að
ósekju orðið að bitbeini í valdabar-
áttu á milli helstu stofnana Evrópu-
bandalagsins og þá helst þingsins
og framkvæmdastjómarinnar. Þeir
hafa að sama skapi sakað stofnanir
EB um að misskilja bæði eðli og inni-
hald væntanlegra samninga. Þing-
menn á Evrópuþinginu hafa verið
sakaðir um þekkingarskort 'og lítt
upplýstar umræður um samskipti
EFTA við EB. Af hálfu EFTA-ríkj-
anna hefur ítrekað undanfamar vik-
ur verið bent á að EFTA-ríkin hafi
ekki sett fram neina fyrirvara vegna
fyrirhugaðra samninga. Innan EFTA
hafi einungis verið undirstrikuð þau'
viðræðuefni sem þyrftu nánari skoð-
unar við. Það sé þess vegna misskiln-
ingur, ekki einungis hjá embættis-
mönnum og þingmönnum EB heldur
og blaðamönnum, að EFTA-ríkin
hafi sett fram einhvetja ófrávíkjan-
.lega fyrirvara.
Þrátt fyrir það hefur verið að
velkjast innan höfuðstöðva EFTA í
Genf sextíu blaðsíðna hefti, línubil
ókunnugt, sem inniheldur fyrirvara
sem lagðir voru fram af embættis-
mönnum aðildarríkjanna í vinnuhóp-
um sem störfuðu í vetur. Ef EFTA-
ríkin telja sig órétti beitt, hvort held-
ur er af embættismönnum EB eða
blaðamönnum, verður ekki séð að
þeir sem þar ráða geti öðrum um
kennt en sjálfum sér. Nánast frá
upphafi undirbúnings könnunarvið-
ræðnanna í fyrravor hefur EFTA
verið að birta blaðamönnum og þá
almenningi sömu fréttatilkynning-
una með mismunandi fyrirsögnum.
Það er einkenni á stofnunum sem
að mestu eru í höndum embættis-
manna að þær verða leiðinlegar.
EFTA er engin undantekning þar
á. Einn stimpill slitnar meira en aðr-
ir í þeirri stofnun, trúnaðarmál!
Blaðamönnum og almenningi er
ætlað að fylgjast með starfsemi sam-
takanna án þess að nokkur aðili á
vegum þeirra hafí umboð til að gefa
upplýsingar um hana. Öll mál sem
ijallað er um eru alltaf á viðkvæmu
stigi, öll almenn umræða er að mati
embættismannanna líkleg til að spilla
árangri og valda alls kyns ómældum
óþægindum. Auðvitað er það hlut-
verk embættismanna að standa
þannig að skyldum sínum að sem
bestur árangur náist fyrir viðkom-
andi stjórnvöld og þjóðríki en því er
gleymt að það er út af fyrir sig alls
ekki markmið opinna lýðræðisþjóðfé-
laga að hámarks árangur náist í
hveiju máli. Markmið þeirra er öllu
heldur að þegnarnir geti tjáð sig um
og fylgst með störfum embættis-
manna og stjórnmálamanna til þess
að veita þeim nauðsynlegt aðhald og
upplýsa sjálfa sig og þá um að
ákvarðanir séu í samræmi við þær
skoðanir sem uppi eru. Samningavið-
ræður EFTA við EB geta í þjóðfé-
lagi sem vill kenna sig við lýðræði
ekki verið einkamál fárra embættis-
manna og að sama skapi hljóta
stjórnmálamenn að gera betur en að
kaffæra fjölmiðla og fólk í slagorða-
flaumi þegar þessa samninga ber á
góma.
Það er t.d. undarlegt að lögfræð-
ingum og viðskiptafræðingum úr
fagráðuneytum á Islandi skuli ætlað
að sitja í framtíðinni ianga samn-
ingafundi um framtíðarhagsmuni
íslenskra fyrirtækja innan Evrópu
án þess að þeim sem eiga mestra
hagsmuna að gæta sé gefínn kostur
á að fylgjast með. Það er út í hött
og stríðir gegn góðri lýðræðisvitund
að aðrir séu að semja um hagsmuna-
mál en þeir sem hagmunirnir varða •
beint. Ekki verður séð að umboð
skriffmna í utanríkisráðuneytinu
vegi þyngra á vogarskálum lýðræðis-
ins en framlag fulltrúa atvinnurek-
enda eða launþega. Óhætt er að full-
yrða að ef EFTA-ríkin breyta ekki
afstöðu sinni til samninganna í heild
og gefa fólki kost á að fylgjast með
því sem fram fer verður hugsanleg-
um samningum tekið af mikilli tor-
tryggni og vafamál að þeir hljóti
stuðning almennings.
TÖLVIIPISTILL
Holberg Másson
Nám í tölvufræðum við Tölvu-
háskóla Verslunarskólans
Tölvuháskóli Verslunarskóla ís-
lands útskrifaði í vor tólf kerfísfræð-
inga. Skólinn tók til starfa í janúar
1988 og hefur því starfað í tvö og
hálft ár. Þar er í boði eins og hálfs
árs nám á háskólastigi sem er sprott-
ið af þörf fyrir iðn- og tæknimenntað
starfsfólk í tölvufræðum. Erlendis
eru til svokallaðir EDB-skólar svo
sem EDB-skólinn danski, sem nokkr-
ir íslendingar hafa sótt. Sá skóli
byggir á svipaðri hugmynd og Tölvu-
háskóli Verslunarskólans og býður
upp á jafnlangt nám. Hér á landi var
til skamms tíma einungis völ á
þriggja ára háskólanámi í tölvunar-
fræði eða námskeiðum hjá ýmsum
aðilum. Þess utan er að sjálfsögðu
að fínna námsefni í tölvufræðum við
flesta skóla sem hluta af venjulegu
námsefni.
í samtali við Nikulás Hall,
kennslustjóra Tölvuháskólans, kom
fram að við skólann eru nú um 80
nemendur. Skólagjald er 36 þúsund
krónur fyrir næstu önn og er allur
kostnaður innifalinn. Nikulás sagði
að nemendum hefði reynst auðvelt
að fá vinnu að loknu námi. I upplýs-
ingariti frá skólanum koma meðal
annars fram eftirfarandi upplýsingar
um skólann: „Nám við Tölvuháskóla
Verslunarskóla íslands skiptist í
þijár annir og stendur kennsla á
hverri önn í 15 vikur, auk prófa.
Nemendur eru teknir inn í skólann
tvisvar á ári, á haustönn og vorönn.
Inntökuskilyrði í skólann er stúdents-
próf af hagfræðibraut eða sambæri-
leg menntun.
Markmið námsins er að útskrifa
kerfisfræðinga sem geta unnið við
öll stig hugbúnaðargerðar, skipulagt
og séð um tölvuvæðingu hjá fyrir-
tækjum og annast kennslu og þjálfun
starfsfólks. Nám við skólann er láns-
hæft, að undanskyldu fornámi, hjá
Lánasjóði íslenskra námsmanna."
Opið hús Tölvuháskólans
Tölvuháskólinn hefur lagt mikla
áherslu á að hafa góð samskipti við
fyrirtæki og kynna skólann fyrir
almenningi. Þannig er skólinn vel
búinn tækjakosti og hafa nemendur
haft greiðan aðgang að tölvu- og
hugbúnaðarfyrirtækjum með sam-
starf um hin ýmsu verkefni. Oft
hefur þetta orðið til þess að nem-
endur hafa síðan fengið vinnu við
sömu verkefni hjá viðkomandi fyrir-
tækjum að námi loknu.
í lok hverrar annar er efnt til
opins húss þar sem verkefni nem-
enda eru kynnt. Þar er einnig leit-
ast við að hafa gestafyrirlesara með
áhugaverða fyrirlestra. Gestafyrir-
lesarinn að þessu sinni var John
C. Dvorak, dálkahöfundur við hið
þekkta bandaríska tölvublað PC
Magazine. Dvorak var á síðasta ári
valinn besti dálkahöfundur í banda-
rískum tölvublöðum. Hann flutti
mjög góðan fyrirlestur um markað
fyrir einmenningstölvur og hvað
væri framundan. Þar kom meðal
annars fram að þróun í örgjörvum
er enn slík að reiknigeta tölva tvö-
faldast á hveijum átján mánuðum.
Ný hraðvirkari afbrigði af Intel3-
86„PC“-örgjörvanum eru komin á
markað, sem er 486-örgjörvinn.
Þannig er 486 einungis mun hrað-
og fjölvirkari útgáfa en ekki nein
bylting. Intel 586-örgjörvinn verður
með mun hraðvirkara skyndiminni
og fleiri stoðrásum en 386 og 486.
Intel 686 verður enn samþjappaðri
með fjórum Intel 386 örgjörvum á
sömu kísilflögu. Dvorak telur að
mjög ör þróun verði áfram á öllum
tölvubúnaði næstu árin, sérstaklega
á fartölvum. Fartölvur sem vegi
eitt til tvö kíló með litaskjá verði
orðnar mjög góðar og á viðráðan-
legu verði eftir 2-3 ár. Hann kveðst
hafa tröllatrú á OS/2 stýrikerfinu
og telur að það muni taka við af
DOS á næstu 1-3 árum. Flest allar
einmenningstölvur verði samtengd-
ar með staðar- og fjarnetum á
næstu árum. Á næstu árum muni
sama þróun eiga sér stað á ein-
menningstölvumarkaðinum og með
framleislu á bílum. Fáir stórir fram-
leiðendur muni drottna yfir markað-
inum.
Tölvuháskóli VI hefur sýnt gott
framtak með því að leitast við að
vera í nánu sambandi við atvinnulíf-
ið og almenning. Skólinn á áreiðan-
lega auðveldara með því móti að
aðlaga kennsluna og verkefni nem-
enda að þörfum atvinnulífsins.
Höfundur starfar við tölvuráðgjöf
Traustur og öflugur sjóður fyiir
íslenskt atvinnulíf <fi> ARMÚLA 13A 155 REYKJAVlK SlMI 680400
TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950
Gjörðu svo vel að haía samband við okkur ef þú vilt fá frekari upplýsingar um starfsemi Iðnlánasjóðs