Morgunblaðið - 21.06.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990
B 11
Bandaríkin
Kóksvelgistá örlætinu
COCA—Cola í Bandaríkjunum
hefur nú horfið frá nýstárlegri
söluherferð sem fyrirtækið hafði
bundið talsverðar vonir við. Sölu-
herferðin var í því fólgin að inn-
anum dósir með kóki voru settar
dósir með peningum í þannig að
hver dós varð í raun happdrætti-
smiði, annað hvort fengu kaup-
endur kók eða peninga. Nokkrir
vankantar reyndust á fram-
kvæmd herferðarinnar sem urðu
til þess að hætt var við hana ein-
ungis þremur vikum eftir að hún
hófst.
Dósirnar með peningunum voru
fylltar af vatni til þess að ekki
væri hægt að þekkja þær frá venju-
legum dósum án þess að opna þær.
Til þess að kaupendur drykkju ekki
vatnið í misgáningi var það haft í
lokuðu hólfi en í nokkrum tilfellum
hefur komið gat á hólfið og kaup-
endum svelgst á fúlu en skaðlausu
vatninu. Það þykir þeim Coca—Cola
mönnum ekki nógu gott, einkum
og sér í lagi í ljósi þess að mikið
hefur verið gert úr þessum óvæntu
vatnssopum þar vestra. Tii að
mynda náði 11 ára drengur á Aust-
urströnd Bandaríkjanna því að
verða frægur um allt land fyrir að
bergja fyrstur manna óviljandi á
vatni úr kókdós.
Ekki bætti úr skák þegar grun-
semdir vöknuðu hjá flugfreyju
nokkurri þegar hún opnaði kókdós
í miðju flugi og það kom ekki dropi
úr henni. Um leið og vélin var lent
voru farþegarnir fluttir í burtu í
skyndi og hópur sprengjusérfræð-
inga kallaður á staðinn. í dósinni
fannst þó engin sprengja, einungis
vatn og tíu dollara seðill. Kók—
menn voru ekki hrifnir af þeirri
athygli sem þessi atburður beindi
að söluherferð þeirra.
Coca—Cola fyrirtækið er þó ekki
alveg af baki dottið og sérfræðing-
ar spá því að lagt verði aftur út í
svipaða herferð að nokkrum mán-
uðum liðnum þegar í ljós hefur
komið hvað fór úrskeiðis. Sala á
kóki jóks töluvert að sögn tals-
manna fyrirtækisins þær þijár vik-
ur sem herferðin stóð yfir.
FRAKTBÓKUNARKERFIÐ
• Fljótvirkara
• Öruggara
• Nákvæmara
ÞÚ GETUR FENGIÐ UPPLÝSINGAR UM:
♦ Staðfestingu bókunar á ákveðið flug
♦ Fraktflug hvert/hvaðan sem er í veröldinni
♦ Hvar sendingin er stödd hverju sinni
^ Hverjir sjá um framhaldsflutninga
♦ Hver fljótasta og/eða ódýrasta leiðin er
INNFLUTNINGUR ÚTFLUTNINGUR
Sími: Simi:
690101 672824
Fax: Fax:
690464 672355
ÞÚ HEFUR HEIMINN í HENDIÞÉR MEÐ
Fmt
Nokkrar staðreyndir
á 10 ára afmæli okkar:
1985
waco
Fyrstir íslenskra fyrirtækja til að bjóða
innflytjendum og útflytjendum alla
flutningaþjónustu á landi og á sjó frá upp-
hafsstað til endastöðvar („door to door“)
með gifturíku samstarfi við FRANS MAAS
Hollandi.
■ Flutningskostnaður til hafna hríðlækkar.
■ Þjónusta tekur stakkaskiptum.-
Bjóðum sams konar þjónustu og föst verð
frá AUSTURLÖNDUM FJÆR gegnum
FRANS MAAS og ATLANTIC FORWARDING.
Fyrstir til að tengjast alþjóðakerfi flutnings-
miðlara í flugi, WACO, (World Air Cargo
Organization). Sérfræðiþjónusta í tengslum
við 400 flugvelli í 50 þjóðlöndum í 5 heimsálfum.
„Door to door“ þjónusta í reglubundnu
flugi og fraktflugi.
Fyrstir til að bjóða FLUG og SKIP (SEA/AIR)
frá AUSTURLÖNDUM FJÆR, þ.e. flutning
að hluta í flugi og að hluta í skipi.
1989
Hafið samstarf við FEDERAL EXPRESS
vegna hraðflutninga, stærsta fyrirtæki sinnar
tegundar í heiminum með um 1,5 milljón
sendingar á dag.
SAFN
FLUTNINGAR
IFLUGI!
1990
Fyrstir til að hefja reglubundnar SAFN-
SENDINGAR í flugi eftirdrjúgan þátt í undir-
búningi veana realugerðar þar um. LÆGRI
VERÐ, GOÐ ÞJONUSTA.
NÝJUNG! Fyrstir til að bjóða reglubundna
þjónustu frá flestum löndum AUSTUR
EVRÓPU til meginlandshafna og heim,
vegna nýlegra samninga samstarfsaðila
okkar á meginlandi Evrópu.
MfSVBÍ
FYRST OG FREMST
Á FARMABRAUT...
FUJTNINGSMIÐUJNIN »F
• REYNSLA • ÞEKKING • ÞJÓNUSTA
TRYGGVAGÖTU 26 - REYKJAVÍK - S: 29111
Metsölublad á hverjum degi!