Morgunblaðið - 12.09.1990, Side 16

Morgunblaðið - 12.09.1990, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 Síðasta haldreipið - hengingarólin Ársæll Friðriksson „Síendurteknar fullyrð- ingar um einhug að baki þjóðarsátt eru því blekking ein.“ hluti, sem Ögmundur vísar hér til, var ekki talinn upp úr kjörkössunum eftir atkvæðagreiðslum um samn- ingana hjá hinum einstöku verka- lýðsfélögum. Þátttaka í þeirri at- kvæðagreiðslu var svo dræm að í félögum sem telja þúsundir félaga greiddu aðeins fáeinir tugir atkvæði um samningana. Yfirgnæfandi meirihluti launamanna sýndi þannig hug sinn til samninganna og þeirra vinnubragða sem verkalýðsforingj - arnir hafa tamið sér með því að hundsa nær algerlega atkvæða- greiðslu um þá. Síendurteknar full- yrðingar um einhug að baki þjóðar- sátt eru því blekking ein. Látum liggja milli hluta hvort þessi forsenda Ögmundar er rétt eða röng en hugum ögn að þeirri ályktun sem hann dregur af henni. „Þegar grundvallaratriði koma til álita í samskiptum félagasamtaka sem ættu að eiga samleið, þá kann meirihluta vilji að vera gildi (svo!), ekki síður en samningsréttur, sem við viljum í heiðri hafa.“ Þegar orð- skrúðið er strokið burt stendur að- eins þessi fullyrðing eftir: Meirihlut- mn ræður hvað sem öllum samning- um líður. Þessi staðhæfing fer aug- ljóslega í bága við þær leikreglur réttarríkisins, sem Ögmundur þyk- ist vilja standa vörð um — að sömu leikreglur gildi fyrir alla hvort held- ur þeir heyra til minnihluta eða meirihluta. í samráði við aðila vinnumarkaðarins ákvað ríkisstjórn lýðveldisins að afnema ákvæði samnings sem hún hafði sjálf gert og æðsta dómsvald í þessum efnum úrskurðað að skyldi farið eftir. Með þeim hætti voru grunvailarreglur réttaríksins svívirtar og brotið gegn anda stjórnarskárinnar í mörgum greinum. Hér er því ekki um neitt umferðarslys að ræða eins og mál- glaðir ráðherrar fullyrtu heldur valdlega undirbúið og þrauthugsað ofbeldisverk gegn fámennu stéttar- félagi. Það er dapurlegt að hlusta á formann BSRB réttlæta slíkt ill- virki með skírskotun til ofureflis meirihlutans. Það var einmitt í nafni meirihlutans og þjóðarheillar sem gyðingum var smalað í gasklefa þúsundára ríkisins og austan að glumdu þessi sömu rök í síbylju þegar varðhundar „alþýðuveld- anna“ sendu andófsmenn í „gúlög“ sín eða á geðveikrahæli. Bandalag eymdarinnar Sú samstaða sem nú hefur náðst með ríkisvaldi og aðilum vinnu- markaðarins er fremur öllu öðru samstaða um að skerða kjör launa- fólks til frambúðar og ónýta allar tilraunir þess til að ná fram leiðrétt- ingu. Mig uggir sem fleiri að það einingarband „þjóðarsáttar" sem launafólk hefur nú verið ijötrað í eigi ekki eftir að reynast það trausta haldreipi sem launamenn geta fetað sig eftir til aukinnar velsældar heldur verði það þeim hefting um fót á komandi árum jafnvel hengingaról, sem gerir út af við samningsrétt þeirra, ef allt fer á versta veg. Því sá sem einu sinni beitir „rökum ofbeldisins" get- ur átt erfitt með að skírskota til sanngirni og réttlætis síðar meir þegar í nauðir rekur. Höfundur er kennari. eftirÁrsæl Friðriksson Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, ritar langa grein í Morgun- blaðið þann 21. ágúst sl. undir fýrir- sögninni „Bráðabirgðalög og þjóð- arsátt". í þessum langhundi hans ægir saman slitrum úr sögu kjara- baráttunnar á liðnum misserum, almennum hugleiðingum um eðli valds, heimspekilegum vangavelt- um um réttlæti og jöfnuð auk margs annars hnýsilegs. Rýninn lesari átt- ar sig þó fljótlega á því að öll fyrir- höfn Ögmundar miðar að því að setja saman einhvers konar synda- kvittun eða aflausnarbréf handa þeim sem hvöttu til þess að aðför yrði gerð að grundvallarmannrétt- indum háskólamanna í ríkisþjón- ustu og sáu um að framkvæma verkið. Höggormur í Paradís í upphafi máls síns fer formaður- inn mörgum orðum um þá skelfi- legu öfugþróun, sem hér er orðin eins konar plagsiður, að kjarasamn- ingum sé rift æ ofan í æ með laga- setningum og öðrum stjórnvaldsað- gerðum. Haldi svo enn fram óttast hann að leikreglum réttarríkisins sé stefnt í voða. Til að sporna gegn því að svo illa fari brýnir formaður- inn allt launafólk til að standa sam- an um að allir kjarasamningar séu virtir „ — ekki stundum heldur allt- af og ævinlega". Af þessum orðum Ögmundar hlýtur hvert mannsbarn að sjá að hann er bæði víðsýnn og heillyndur en hitt er vitaskuld jafn ljóst að svo viðarhlutamikil alhæf- ing fær ekki staðist án einhverra frávika. Að svo búnu reiðir Ög- mundur fram þau gildu rök sem eiga að staðfesta hvflík fjarstæða eftir Hope Knútsson í maímánuði árið 1988 skrifaði ég grein um borgaralega fermingu á íslandi. Tilgangur minn var að ná athygli fólks sem einnig vildi skoða nýja möguleika í fermingar- efnum. Víða erlendis þekkist þorg- araleg ferming og höfðu börnin mín óskað eftir henni. Fyrir mig var það ákjósanlegt því að ég er ekki krist- in. Að velja hina kristnu leið hefði því verið hræsni frá trúarlegu sjón- armiði. Skiptir þá engu máli þótt fermingin sé ekki sakramenti sam- kvæmt Lútherstrú og var tíðkuð sem nokkurs konar lestrarpróf á siðustu öld. En þar að auki hafði ég í mörg ár heyrt og lesið gagnrýni á framkvæmd fermingarinnar hér- lendis, meðal annars að hún væri orðin óhófleg gjafahátíð. Nú eru rúmlega tvö ár liðin. Stofnaður hefur verið félagsskapur sem nefnist Siðmennt og sér hann um framkvæmd borgaralegra at- hafna. Tveir hópar unglinga hafa nú þegar verið fermdir að undan- gengnu þriggja mánaða námskeiði. I boðskapnum til þessa unga fólks hefur verið lögð megináhersla á majmeskjuna, gildi hennar, þroska og ábyrgð í nútímaþjóðfélagi. Þess- um efnum er, að okkar mati, gerð alltof lítil skil í hinu almenna skóla- kerfi. Vikulegir fyrirlestrar og um- ræður hafa verið um eftirtalda málafiokka: Siðfræði, lífsskoðanir, samskipti foreldra og unglinga, rétt ungmenna í samfélaginu. Þessari fræðslu hefur síðan lokið með virðu- það sé að krefjast þess að ríkisvald- ið standi við þá griðarofssamninga sem það gerði fyrir einhvers konar slysni við BHMR og öllu kom í uppnám líkt og höggormurinn í Paradís forðum. Hver á að semja fyrir hvem? Fyrsta röksemd formannsins gegn BHMR-samningnum er sú að í 15. grein þeirra sé gert ráð fyrir því að kaupmáttur launaliða samn- ingsins sé tryggður með þeim hætti að BHMR-félagar skuli fá sömu hækkanir og aðrir launamenn auk sérstakra leiðréttinga eftir því sem tilefni þykir til. Með hæfilegri blöndu af ósvífni og orðhengils- hætti kemst formaður BSRB að þeirri kyndugu niðurstöðu að þann- ig sé það „nú einu sinni byggt inn í þeirra eigin (BHMR) samninga" að ASÍ og BSRB eigi að semja fyr- ir þeirra eigin hönd. Vissulega eru kaupmáttarákvæði 15. gr. BHMR- samninganna meingölluð enda reyndi samninganefnd BHMR að fá annars konar kaupmáttartrygg- ingu en íjármálaráðherra gerði það að úrslitaskilyrði að kaupmáttar- ákvæði samninganna yrði einmitt með þessum hætti og engum öðr- um. Samninganefnd BHMR var síðar, eftir að úrskurður Félags- dóms var ljós, enn reiðubúin að breyta þessari ólánslegu kaupmátt- arviðmiðun þannig að það er hreint ekki sá bölvaldur sem Ögmundur vill vera láta. Hitt er einnig íhugunarvert að samninganefnd ASÍ setti sams kon- ar kaupmáttarviðmiðunm í febrúar- samningana tæpu ári seinna. Þar telur formaðurinn raunar gegna allt öðru máli enda „mun þetta hafa verið metið svo að samning- arnir yrðu ekki samþykktir að öðr- um kosti“. Þannig telur sá vísi legri og fallegri athöfn þar sem ungmennin hafa verið boðin vel- komin í samfélag fullorðinna. Dag- skrá lokaathafnarinnar hefur verið skipulögð af unglingunum sjálfum og foreldrum þeirra með ljóðalestri, tónlist og flutningi stuttra erinda. Hver athöfn hafði sinn eigin svip og báðar voru mjög áhrifamiklar. Góðar undirtektir í þessi tvö ár hafa tugir fólks haft samband við mig og aðra í Siðmennt og þakkað okkur fyrir að opna nýjan möguleika við ferming- ar. Einnig höfum við verið hvött til að halda áfram á sömu braut, sér- staklega varðandi borgaralega jarð- arför. Reyndar eru fleiri áhugasam- ir um framkvæmd greftrunar en fermingar. Ýmsum sem hvorki eru í þjóðkirkjunni, né eru kristnir, þyk- ir sér misboðið með því að kirkjan skuli hafa einkarétt í þeim efnum. Við skulum ekki gleyma því að þúsundir manna eru utan þjóðkirkj- unnar. Það er ánægjulegt þegar ókunn- ugt fólk kemur til manns úti á götu og þakkar manni fyrir þetta fram- tak. Og það hefur ósjaldan gerst. Margt af þessu fólki er kristið, sumt er kirkjurækið. En ailir eru á sama máli um nauðsyn trúarlegs'umburð- arlyndis. Viðhorf manna séu einu sinni mismunandi á því sviði eins og öðrum. Jafnvel prestar hafa tjáð ánægju sína með starf okkar, gott sé að börn eigi kost á vali þegar til fermingarinnar kemur. Og menntamálaráðherra sagði við fyrstu fermingarathöfnina árið maður að samhljóða samnings- ákvæði þessara tveggja samtaka jafngildi afsali samningsréttar þeg- ar BHMR á í hlut en sé nauðsynleg og eðlileg forsenda samninga þegar um ASÍ er að ræða. Það er óger- legt að hrekja rökfærslu sem bygg- ist á slíkum forsendum enda verður þess ekki freistað. Hjálpræði forsjárhyggjunnar Önnur meginröksemd formanns- ins er raunar skilgetið afkvæmi hinnar fyrstu og hljóðar svo: „Þegar til lengri tíma væri litið þá væri það því að okkar (forystu BSRB) mati ekki ásættanlegt að ein samtök opinberra starfsmanna, þ.e. BHMR, högnuðust af ávinningi annarra samtaka, þ.e. BSRB, án þess að það væri gagnkvæmt." Þessi máls- grein, þótt óskýr sé og einkennilega orðuð, verður ekki skilin öðru vísi en svo að forystumenn BSRB standi á því eins og hundur á roði að launa- hlutföll hjá ríkinu skuli vera föst og óhagganleg um aldur og ævi. Þessi krafa er svo sem skiljanleg í ljósi þeirra mörgu og glæstu sigra sem forysta BSRB hefur unnið í baráttunni fyrir bættum kjörum félaga sinna á liðnum árum. Af þessu tilefni er þó rétt að benda formanni BSRB og öðrum sem hug hafa á að semja fyrir hönd BHMR, og raunar gerí, það með traustu atfylgi ríkisstjórnarinnar, að slík hjálpfýsi er fullkomlega óþörf og raunar illa þokkuð af öllum þeim er fyrir henni hafa orðið. Þjóðlygin mikla Þriðja röksemd BSRB-formanns- ins fyrir bráðabirgðalögum á kjara- samning BHMR byggist á þeirri forsendu að „kjarasamningarnir nutu stuðnings yfirgnæfandi hluta launafólks“. Sá yfirgnæfandi meiri- 1989: „Borgaraleg ferming undir- strikar trúfrelsi hér á landi.“ Misskilningur Einnig hafa heyrst raddir fólks sem misskilið hefur tilgang bæði borgaralegrar fermingar og Sið- menntar. Til að mynda hefur sú fullyrðing heyrst að um sé að ræða andkristilega starfsemi. En við leggjum sannarlega ekki áherslu á að ófrægja kristindóm. Sum ferm- ingarbarna okkar hafa verið kristin og hafa sannarlega ekki verið látin líða fyrir það. Borgaraleg ferming snýst einfaldlega ekki um trúar- brögð. Þess vegna kennum við ekk- ert sem er andstætt kirkjunni. Sum- ir gagnrýnendur hengja sig í orðið ferming, vilja banna okkur að nota það. Þetta er að vissu leyti skiljan- legt, því hér á landi hefur orið ferm- ing lengst af táknað trúarlega at- höfn. En enginn getur slegið eigna- rétti sínum á orð, jafnvel þótt það sé erlend sletta. „Ferming" kemur úr latínu (confirmare) og merkir m.a. að styrkjast í einhverju. Al- gengasta merking enska orðsins (confirm) er í sama dúr, þ.e. að staðfesta eða styrkja. Megintilgangur borgaralegrar fermingar er að efla með ungling- unum heilbrigð og farsæl viðhorf til lífsins. Kenna þeim að bera virð- ingu fyrir manninum, menningu hans og umhverfi. Við teljum mann- inn sjálfan ábyrgan fyrir velfarnaði sínum en ekki „æðri máttarvöld". Siðferði þarf ekki að vera háð trúar- setningum. Hope Knútsson „Megintilgangnr borg- aralegrar fermingar er að efla með unglingun- um heilbrigð og farsæl viðhorf til lífsins.“ Eins og fram hefur komið er borgaraleg ferming alls ekki stað- festing á því að viðkomandi ungl- ingar séu trúlausir. Fyrir þátttöku þeirra liggja margvíslegar ástæður. Sum hinna trúuðu telja undirbúning borgaralegrar fermingar áhuga- verðari en þeirrar kirkjulegu. Hugs- anlega fella þau sig ekki við prest- inn í sinni sókn. Önnur ungmenn- anna eru ekki tilbúin að taka aí- stöðu til trúmála. Fyrir þeim veijast kennisetningar eins og þær sem fjalla um þríeinan guð, erfðasynd- ina og meyfæðinguna. Að lokum er sá hópur sem efast um tilvist guðs og vilja ekki gefa nein heit þar að lútandi. Sum þeirra eru sann- færðir trúleysingjar. Þeir unglingar eru aðdáunarverð- ir sem treysta sér til að hugsa sjálf- stætt og fara sínar eigin leiðir. Að rífa sig út úr hópnum krefst næst- um ofurstyrks á táningsaldri. Við hjá Siðmennt teljum að fermingar- aldurinn á íslandi sé alltof lágur. Flest fólk veltir ekki trúarlegum eða heimspekilegum hugmyndum fyrir sér fyrr en nokkrum árum síðar. Siðmennt getur ekki hækkað ferm- ingaraldurinn hjá sér upp á sitt eins- dæmi, en sumir unglingarnir þar hafa verið fimmtán, sextán og sautján ára. Framhaldið Undirbúningur er þegar hafinn að þriðju borgaralegu fermingunni. Námskeið okkar er í sífelldri endur- skoðun og úrvinnslu. Næst verður lögð enn meiri áhersla á mannleg samskipti og siðferði en áður. Með haustinu verður farið út í kynning- arstarf meðal unglinga á ferming- araldri og foreldra þeirra um starf okkar. Störf á öðrum sviðum eru einnig í bígerð, ekki síst varðandi borgaralega greftrun. Meðal annars þyrfti að útbúa kynningarbækling um það efni og dreifa honum sem víðast. Aukin fræðsla yrði vafalaust til þess að áhugafólk um slíkt fylgdi betur eftir sannfæringu sinni í framtíðinni en það hefur gert. Eg vil hvetja unglinga sem eru núna á fermingaraldri og fjölskyldur þeirra til að hugsa vel um valið. Höfundur er sljórnarmcðlimur í Siðmennt. • • Oðruvísi ferming

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.