Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990
Um virðisaukaskatt og listamenn
eftir Eggert E.
Laxdal
Fyrir nokkru keypti ég bók, sem
ber nafnið „Lögbókin þín“, eftir
Bjom Þ. Guðmundsson og var gefín
út af Erni og Örlygi. Ég hefi verið
að kynna mér efni hennar, og sér
ástæðu til þess að fjalla að nokkru
um efni hennar. Fyrst vil ég taka
virðisaukaskattinn til umfjöllunar.
Á blaðsíðu 253, neðst til hægri,
segir. „Virðisaukaskattur leggst
aðeins einu sinni á sama verðmæt-
Áð, hversu oft sem það gengur á
milli viðskiptastiga."
Þetta stafar af því, að svonefnd-
an innskatt, má draga frá útskatti,
þannig að útskattur á að þurrkast
út, og virðisaukaskattur á því að-
eins að leggjast á söluverð, til end-
anlegs neytanda.
Þetta þýðir, að milliliðir ættu
ekki að greiða virðisaukaskatt, sem
þó er innheimtur hjá þeim, af mik-
illi hörku. Þetta er þó svo flókið
dæmi, að jafnvel löglærðir menn,
ráða ekki við það, hvað þá almenn-
ingur í landinu.
Þeir sem reka atvinnustarfsemi,
sem tálin er falla undir virðisauka-
katt, neyðast til þess að leita til
sérfræðinga á þessu sviði, til þess
að verða ekki hlunnfarnir af skatta-
yfirvöldunum, og þurfa að greiða
umtalsverða upphæð fyrir þá þjón-
ustu ofan á allan annan kostnað,
sem er ærinn, og verður ekki rakinn
hér.
Þessu til staðfestingar, vil ég
benda á grein í bókinni, blaðsíðu
524, en þar segir:
„Frádráttarheimild endurselj-
anda á innskatti veldur því, að virð-
jsaukaskattur rennur ekki í ríkis-
sjóð, fyrr en við sölu, til hins endan-
lega neytanda."
Ef þessu er þannig varið, hvers
vegna er þá verið að basla með
innskatt og útskatt? Hvers vegna
ekki að hafa lögin klár og einföld
og fella niður innskatt og útskatt,
og leggja virðisaukaskattinn aðeins
á síðasta stig vörunnar, eins og
áður er sagt, það geta allir skilið.
Mikill aukakostnaður myndi þá
falla niður hj[á hinum ýmsu fyrir-
tækjum, vegna útgjalda við ráðgjöf
og bókhald.
Hitt er svo annað mál, hvort rétt
sé að leggja allan þennan skatt á
framtak í landinu. Er það sann-
kgjarnt að láta hin ýmsu fyrirtæki
innheimta allan þennan skatt, og
þungri refsingu, ef útaf er brugðið.
Ég fyrir mitt leyti álít að það sé
óréttlátt. Allur skattur á vörur og
þjónustu, er aðeins til bölvunar og
á ekki að eiga sér stað. Það er
betra að leggja á beina skatta og
í þessu tilfelli að fella virðisauka-
skattinn niður og lækka verð á
vörum og þjónustu, sem honum
nemur, eða um 24%. Við þetta
mundu beinir skattar hækka um
nokkur prósent, en lækkun vöru-
verðs, mundi vega upp á móti því,
og vel það. Það er engin ástæða til
þess að gera veginn krókóttan, þeg-
ar hægt er að gera hann beinan
og greiðfæran, en hið fyrra, er þó
mörgum tamast.
En víkjum að öðru. í áðurnefndri
bók, blaðsíðu 455, neðst til hægri,
stendur skrifað um skattlagningu
listamanna:
„Ekki telst til tekna endurgjald
til höfunda og rétthafa, fyrir hvers
konar hugverk, bókmenntir og
listaverk, hvort sem um er að ræða
afnot eða sölu.“
Ég er hræddur um að rithöfund-
um og listamönnum almennt, sé
ekki kunnugt um þessa lagagrein,
og greiði skatt af tekjum fyrir verk
sín, ef þær eru þá einhveijar, en
það ber þeim ekki að gera, sam-
kvæmt þessarri lagagrein. Þessar
stéttir beijast líka í bökkum við að
„ Allur skattur á vörur
og þjónustu, er aðeins
til bölvunar og á ekki
að eiga sér stað. Það
er betra að leggja á
beina skatta og í þessu
tilfelli að fella virðis-
aukaskattinn niður og
lækka verð á vörum og
þjónustu, sem honum
nemur, eða um 24%.“
komast af fjárhagslega og liggja
undir áföllum í lífsbaráttunni,
vegna lítilla og stopulla tekna.
Heimili margra þeirra eru í upp-
lausn, vegna þess að eiginkonur
þeirra og börn, treysta sér ekki til
þess að búa við svo rýrar og óviss-
ar tekjur. Margir geta ekki gefið
sig óskipta að listinni. af þessum
sökum og neyðast til þess að leita
á önnur mið, sér og fjölskyldu sinni
til framfæris, á kostnað listarinnar,
hver sem hún kann að vera. Þetta
er bagalegt. Milljörðum króna er
varið til ýmissa atvinnugreina, en
Eggert E. Laxdal
hungurlúsin, sem nokkrir listamenn
fá árlega, er til einskis nýt. Er ekki
kominn tími til þess að snúa blaðinu
við og bæta kjör þessa fólks og
fjölga til muna þeim, sem komast
á náðarlista ráðamanna og hækka
greiðslurnar til muna. Margir
myndlistamenn geta ekki haldið
sýningar vegna kostnaðar. Skáldin
eiga í erfiðleikum með að koma út
bókum sínum og margir verða að
gefa bækur sínar út sjálfir, ef þeir
þá hafa bolmagn til þess. Það getur
tekið meira en ár að fá úr því skor-
ið hjá bókaútgefendum, hvort hand-
rit verði tekið til útgáfu, eða ekki.
í verðlaunasamkeppnum um bók-
menntaverk berast tugir handrita,
en aðeins eitt þeirra fær að sjá
dagsins ljós. Allt hitt fer aftur niður
í skrifborðsskúffur höfunda sinna
og liggur þar um ókomin ár. Þetta
geta verið frambærileg verk, þó að
' þau séu ekki metin til fyrstu verð-
launa, en um það má að sjálfsögðu
deila. Það er ritfrelsi og tjáningar-
frelsi í landinu að nafninu til, en
margir geta ekki nýtt sér þetta
frelsi, vegna þess að það kostar of
mikla peninga. Fjölmiðlar birta oft
ekki annað en það, sem þeir álíta
að geti samræmst þeirra eigin skoð-
unum og lífsstíll, og þá kemur mér
í hug orð hins mikla spekings
Frakka, Voltaires, þegar hann
ræddi við ungan mann, um atriði
sem þeir voru ósammála um, en
Voltaire sagði:
„Ég er ósammála skoðunum þín-
um ungi maður, en ég vil beijast
fyrir því með oddi og egg, að þú
fáir að segja meiningu þína.“
Með þessum orðum vil ég ljúka
greininni.
Höfundur er listmnlari og
rithöfundur.
Tómstundir, þjálfun í samskiptum
eftirÓlöfu
Jónsdóttur
Sumarið er senn á enda. Það
haustar og skólarnir hefja starf sitt
að nýju.
En það eru fleiri sem taka til
starfa þegar hausta tekur. Félaga-
samtök taka til starfa eftir sumar-
fríið og þannig er það einnig hjá
ITC-samtökunum.
Hvað er það sem við erum að
gera í ITC? spyr ef til vill einhver.
Svarið er: Við erum að þjálfa okkur
í hverskonar tjáningu til að öðlast
þannig meira sjálfstraust.
Við hittumst tvö kvöld í mánuði
og skiptumst á að taka að okkur
hin ýmsu verkefni. Hver og einn
fær í hendur námsvísi; handbók,
ræðuleiðbeiningar og vinnubók.
Mikil áhersla er lögð á fundar-
sköp, en við þjálfum okkur líka í
að flytja ræður, erum með bóka-
„Það fær enginn ræðu-
snilld í vöggugjöf.“
kynningar, umsagnir um kvik-
myndir eða leikhúsverk, lesum ljóð
eða stutta kafla úr sögum. Stærri
verkefni eru m.a. hringborðsum-
ræður, pallborðsumræður, kapp-
ræður, ræðukeppni og margt fleira.
Þá fáum við stundum utanaðkom-
andi aðila til að heimsækja okkur
og fræða á einhvern hátt, t.d. leik-
ara, rithöfunda eða fjölmiðlafólk.
Verkefnalistinn er mjög fjölbreyttur
og þar fær hugmyndaflugið að ráða
ferðinni.
Þá leggjum við áherslu á að
leggja mat á það sem gert er
hveiju sinni (hæfnismat) og skipt-
umst á um að taka það að okkur.
Það er mjög lærdórrisríkt að gagn-
rýna aðra á jákvæðan og uppbyggj-
andi hátt og læra sjálf að taka
gagnrýni.
Við í ITC uppskerum líka annað
og meira en þjálfunina. Við kynn-
umst nýju fólki og ný vináttubönd
myndast. Við styðjum hvert annað
og lærum hvert af öðru.
Bæði karlar og konur geta gerst
félagar í ITC. Víðs vegar um landið
starfa 22 deildir og er hámarkstala
félaga í deild bundin við þrjátíu.
Hér á íslandi er félagatala nú hátt
á fimmta hundrað.
Samtökin eru alþjóðleg og bera
heitið „International Training in
Communication“. Þau starfa víða
um heim og eru stærstu alþjóða-
samtök sem starfa eingöngu á
fræðilegum grundvelli.
Það fær enginn ræðusnilld í
vöggugjöf en æfingin skapar meist-
arann.
Þetta er hollt og auðgandi tóm-
stundarstarf sem skilar betri ein-
staklingum út í þjóðfélagið.
Höfundur er skrifstofumnður.
Ólöf Jónsdóttir
RAD4 UGL YSiNGAR
Haustferð eldri borgara
SJALFSTÆDISFLOKKURINN
I: É L A G S S T A R F
liriMDAI I iJK
Aðalfundur
Heimdallar
Aðalfundur Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík,
verður haldinn í Valhöll miðvikudaginn 12. september kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
3. Umræður um skýrslu og reikninga.
4. Lagabreytingar.
5. Umræður og afgreiðsla stjórnmálaályktunar.
6. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda.
7. Önnur mál.
Gestur fundarins verður Þorsteinnn Pálsson,
focmaður Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnin.
Haustferð Óðins
Málfundafélagið Óðinn fer í sína árlegu haustferð sunnudaginn 16.
september nk.
Lagt verður af stað frá Valhöll kl. 8.30 árdegis og ekið til Stykkis-
hólms og um nærliggjandi sveitir. Ef veður leyfir, verður boðið upp
á 2ja tíma bátsferð með Eyjaferðum um Breiðafjörð.
Þeir, sem áhuga hafa á þátttöku, verða að tilkynna hana á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins, í síma 82900, fyrir kl. 17.00 miðvikudag-
inn 12. september.
Verð: 2.000 kr. fyrir fullorðna, en 1.000 kr. fyrir 7 til 15 ára og frítt
fyrir yngri. Bátsferð verður að greiða sérstaklega þar sem hún er
ekki innifalin í verðinu.
Þátttakendur eru vinsamlega beðnir að taka með sér nesti og góð-
an skjólfatnað.
Óðinn.
Aðalfundur sjálfstæðisfélags ísafjarðar
fyrir árið 1989 og 1990 verður haldinn á Hótel ísafirði fimmtudags-
kvöldið 13. september kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Kosning formanns til 1 árs.
3. Kosning tveggja meðstjórnenda til 2 ára.
4. Kosníng tveggja meðstjórnenda til 1 árs.
5. Kosning þriggja varamanna.
6. Kosning fimm i kjördæmisráð og fimm til vara.
7. Kosning í fulltrúaráð, 10 manna til 1 árs, 11 manna til 2 ára.
8. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
Sjálfstæðismenn á Isafirði eru hvattir til að mæta á fundinn og
greiða ársgjald kr. 500,- eða sýna styrktarmannakort.
Nýir félagar velkomnir.
Fundarstjóri verður Úlfar Ágústsson.
Stjórnin.
Félag Sjálfstæðis-
manna í Nes- og
Melahverfi býður
eldri borgunum
hverfisins í haust-
ferð laugardaginn
15. september nk.
Fariö verður til
Nesjavalla eftir hin-
um nýja vegi Hita-
veitu Reykjavíkur,
framkvæmdir þar skoðaðar og veitingar þegnar. Á heimleiðinni verð-
ur komið við í landi Ölfusvatns. Fararstjórar verða Birgir ísleifur
Gunnarsson, alþingismaður og Anna K. Jónsdóttir borgarfulltrúi.
Lagt verður af stað frá Neskirkju kl. 13.15.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins á Háaleitisbraut
1, sími 82900, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 14. september.
Stjórnin.
Aðalfundur fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna á
ísafirði
verður haldinn fimmtudaginn 20. septemb-
er nk. í Sjálfstæðishúsinu, 2. hæð, kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Matthías Bjarnason, alþingismaður
ræðir þjóðmálin.
3. Önnur mál,