Morgunblaðið - 12.09.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990
21
Morgunblaðið/Einar Falur
Leikhópur Alþýðuleikhússins fyrir framan Iðnó, en þar eru nú hafnar æfíngar á forn gríska harmleikn-
um Medeu, sem Alþýðuleikhúsið sýnir í Iðnó í vetur.
Æfíngar á Medeu að hefj-
ast hjá Alþýðuleikhúsinu
Þýðingar Helga Hálfdanarsonar á 32 forn grískum leikrit-
um væntanlegar á einni bók í haust
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ er um þessar mundir að hefja æfíngar á forn
gríska harmleiknum Medeu, eftir Evrípídes, í þýðingu Helga Hálfdan-
arsonar. Sýnt verður í Iðnó og er frumsýning áætluð 26. október
næstkomandi. Skðmmu síðar, eða um 20. nóvember, er væntanleg
útgáfa Máls og menningar á þýðingum Helga Hálfdanarsonar á 32
forn grískum leikritum eftir Evrípídes, Sófókles og Æskilos. Þar
verða þýðingar allra verka þessara forn grísku skálda á einni bók
og verður hún um 1.200 blaðsíður.
Leikritin 32 eru öll í bundnu samtímann. „Þetta hefur nú verið
máli og sagði Helgi í samtali við
Morgunblaðið, að hann leitaðist við
að halda sama bragarhætti í þýð-
ingunni og er á frummálinu. Hann
segir efni leikritanna vera að miklu
leyti sótt til sömu goðsagna, til
dæmis um Trójuhernaðinn, og skrif-
ar hann í bókarlok endursögn þess-
ara sagna, til þess að lesandinn eigi
auðveldara að átta sig á umhverfi
leikritanna.
Helgi var spurður hvort svo göm-
ul verk, sem skrifuð eru fyrir meira
en tvö þúsund árum, eigi erindi við
kallað svo að það sé sígilt efni, fjall-
ar um sammannleg vandamál allra
tíma,“ sagði hann. Meðal þess sem
á er tekið er spurningin um hvor
séu æðri, lög guða eða manna.
Helgi vann þýðingar þessar flest-
ar að beiðni útgefandans af þessu
tilefni. Áður hafði hann þýtt einn
þríleik og þijú önnur leikrit forn
grísk. Hann kvaðet ekki hafa þýtt
beint úr frummálinu, heldur notað
ýmsar aðrar þýðingar erlendar, en
borið formið saman við textann á
frummálinu. Að sögn Halldórs Guð-
mundssonar útgáfustjóra Máls og
menningar er bókin væntanleg um
20. nóvember næstkomandi og
sagði hann að reynt yrði að stilla
kostnaði í hóf, jafnframt því sem
vandað yrði til verka. Stefnt er að
því að bókin kosti innan við fimm
þúsund krónur.
Alþýðuleikhúsið æfir nú eitt þess-
ara verka, Medeu. Það er harmleik-
ur eftir Evrípídes og fjallar um
Medeu Svartahafsprinsessu, morð-
kvendi, fegurðardrottningu og
galdranorn. Leikstjóri er Inga
Bjarnason, tónlist við sýninguna er
eftir Leif Þórarinsson. Hlíf Svavars-
dóttir hefur umsjón með dönsum
og sviðshreyfingum. Leikmynd og
búninga hanna Sigríður Guðjóns-
dóttir og Ásdís Guðjónsdóttir. Titil-
hlutverkið leikur Jórunn Sigurðar-
dóttir og Jason, eiginmann Medeu,
leikur Harald G. Haralds.
Afmælisrit til heiðurs Pétri Mikkel Jónassyni prófessor:
Brunnur lifandi vatns
Fræðigreinar eft-
ir 23 höfunda
Háskólaútgáfan hefur gefið út
nýja bók, sem nefnist Brunnur
lifandi vatns og er safn greina
um fræðileg efni eftir 23 höf-
unda, náttúrufræðinga, sagn-
fræðinga, guðfræðinga, málfræð-
inga og skipulagsfræðing. Ritið
er gefið út til heiðurs Pétri M.
Jónassyni, prófessor í vatna-
líffræði við Kaupmannahafnarhá-
skóla, sem nýlega varð sjötugur.
Nokkrir vinir hans hér á landi
áttu frumkvæðið að þessari út-
gáfu og Háskólaútgáfan annaðist
útgáfuna með ritnefnd. Háskóli
íslands styrkti hana einnig með
fjárframlagi.
Pétur á langan og glæsilegan
feril að baki sem vísindamaður og
brautryðjandi í vatnalíffræði hér á
landi. Hann iauk magistersprófi frá
háskólanum í Kaupmannahöfn
1952 og var styrkþegi Danska
vísindaráðsins 1953-1957. Árið
1956 hóf hann að kenna vatna-
líffræði við Hafnarháskóla og varð
doktor þar 1972 fyrir rannsóknir
sínar á Esrom-vatni á Sjálandi.
Prófessor varð hánn 1977. Pétur
er félagi í ýmsum vísindaféiögum,
m.a. Vísindafélagi íslendinga og
vísindaakademíum Norðmanna og
Dana. Hann er nú forseti Alþjóða-
samtaka vatnalíffræðinga og var í
mörg ár varaforseti Norræna vist-
fræðiráðsins. Árið 1987 voru hon-
um veitt Naumann-Thienemann
verðlaunin, sem er æðsta viður-
kenning vatnalíffræðinga.
Hér á landi er Pétúr þekktastur
fyrir rannsóknir sínar og samstarfs-
manna sinna á Mývatni, sem birt-
ust á prenti 1979 á vegum Hins
íslenska fræðafélags f Kaupmanna-
höfn, en hann er nú forseti þess.
Senn lýkur viðamiklum rannsókn-
um á lífríki Þingvallavatns, sem 36
vísindamenn hafa unnið að undir
forystu Péturs. Eftir hann liggja
alls um 80 vísindagreinar á prenti,
flestar í erlendum ritum.
Bókin Brunnur lifandi vatns er
168 bls. að stærð, prýdd nokkrum
skýringarmyndum. Kápumynd
gerði Guðjón Ingi Hauksson. Stein-
holt hf. prentaði, en Félagsbók-
bandið — Bókfell annaðist band.
Bókin er til sölu hjá Sögufélaginu,
í Bóksölu stúdenta, hjá Máli og
menningu og bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar.
(F'réttatilkynning)
Míele
„ROLLS
ROYCE"
ÞVOTTAVÉLANNA
JÓHANN ÓLAFSSON & C0. HF.
“=•-{ Sundaborg 13 - 104 Reykjavik - Si'mi 688 588
OPIÐ Á LAUGARDAG FRÁ KL 10-12