Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990
299% Raunkostnaður viöskiptavíxla
- % 25,6%
25 20,3% 21, >% 21 4% 18,7%
20 16,5% P
15 10,2% 10,0%
10
01. 21. 21. 01. 01. 01. 01. 01. 01. 11. 02. 04. 09. 12. 02. 03. 06. 09. 88 89 89 89 89 90 90 90 90 YFIRLITIÐ yfir raunkostnaö viöskiptavíxla er miöað viö tveggja mánaöa víxla, sem 100.000 krónur fást fyrir. Um er aö ræöa einfalt meöaltal raunkostnaöar viöskiptabankanna á hverjum tíma (ekki vegið meðaltal). Verðbólga er mæld meö lánskiaravísitölu og hún áætluö fyrir ókomna mánuði í samræmi viö spa um 0,5% hækkun aö meðaltali á mánuði.
Lánshæfi
Ahættan fólg’in ísveiflu-
tilhneigingu útflutnings
- segir Moody’s í umsögn um lánshæfi ríkissjóðs
UMRÆÐUR hafa orðið hér á
landi út af fréttum norsks blaðs
um ágæti íslenskra ríkisskulda-
bréfa í ljósi áhættumats banda-
riska fyrirtækisins Moody’s á
lánshæfí ríkissjóðs. Moody’s er
ásamt Standard og Poor’s þekkt-
Fjármál
Raunkostnaður 100 þús. kr.
viðskiptavíxils áætlaður 18,7%
— miðað við kostnað af tveggja mánaða víxli á ársgrundvelli
VÆNTANLEGUR raunkostnaður vegna 100 þúsund króna víxils
sem gefinn var út 1. september sl. til tveggja mánaða er 18,7%
miðað við heilt ár samkvæmt útreikningum Verslunarráðs Íslands.
Þá er annarsvegar miðað við einfalt meðaltal raunkostnaðar við-
skiptabankanna og gert ráð fyrir 0,5% hækkun lánskjaravísitölu á
mánuði að meðaltali.
í tölum yfir raunkostnað við-
skiptavíxla sem Verslunarráð
reiknar eru öll gjöld felldi inn í
kaupgengi, þar með talið stimpil-
gjald til ríkissjóðs. Tölumar gefa
til kynna hver upphæð víxils þarf
að vera til að fyrirtæki komi slétt
út m.ö.o., miðað er við að fyrir-
tæki tapi ekki á móttöku víxil-
greiðslu í stað staðgreiðslu. Til að
tryggja það þarf fyrirtækið að taka
mið af kostnaði og álagningu hlut-
aðeigandi viðskiptabanka. Aðeins
íslandsbanki kaupir viðskiptavíxla
á sérstöku kaupgengi. Aðrir bank-
ar auglýsa sérsþakt vaxtaálag á
viðskiptavíxla. Álagið er 2% hjá
Búnaðarbanka, Landsbanka og
SPRON en 2,5% hjá Samvinnu-
banka.
í yfirliti Verslunarráðs kemur
fram að fjármagnskostnaður
vegna viðskiptavíxla hefur ekki
breyst frá því í júní. Þann 1. júní
og 1. september sl. var meðal-
kostnaður vegna 50 þúsund króna
víxils til 60 daga 30,4% á árs-
grundvelli. Samsvarandi kostnaður
vegna 100 þúsund króna víxils til
90 daga var í bæði skiptin 23,2%.
Raunkostnaður vegna 100 þúsund
króna viðskiptavíxils sem gefínn
var út í byrjun júní til þriggja
mánaða var nálægt 15,8% miðað
við heilt ár. Þá var annars vegar
stuðst við 23,2% meðalvíxilkostnað
í byrjun júní og hækkun lánskjara-
vísitölu frá 1. júní til 1. septem-
ber. Ef litið er á væntanlegan raun-
kostnað vegna 100 þúsund króna
viðskiptavíxils sem gefinn var út
1. september til þriggja mánaða
má gera ráð fyrir að hann verði á
ársgrundvelli sá sami og fyrir
þremur mánuðum eða nálægt 16%.
Þá er annars vegar miðað við
meðalvíxilkostnaðinn 23,2% og
0,5% meðalhækkun lánskjaravísi-
tölu á mánuði.
Verslun
Andrés önd og félagar
famir til Vöku-Helgafells
BÓKAFORLAGIÐ Vaka-Helga-
fell hefur gert samning við
danska útgáfufyrirtækið Guten-
berg Hus um dreifingu á þeim
dönsku blöðum sem fyrirtækið
gefur út og hafa verið seld á
Fólk
■ BJORN Jóns-
son tók nýlega við
starfí markaðs-
stjóra hjá útgáfu-
fyrirtækinu
Fróða hf. Bjöm
er 29 ára að aldri.
Hann útskrifaðist
sem viðskipta-
fræðingur frá Há- Björn
skóla Islands árið 1986 og stund-
aði síðan nám í þýsku og viðskipta-
fræði í Universitat in Bremen í
Vestur-Þýskalandi. Bjöm starfaði
áður hjá Pósti og síma og vann
við að stofnsetja markaðsdeild
stofnunarinnar og skipuleggja
starf hennar. Þá starfaði hann
einnig um skeið- hjá Basel Kan-
tonalbank í Basel í Sviss. Björn
er kunnur íþróttamaður. Hann hef-
ur verið fyrirliði handknattleiksliðs
Breiðabliks og leikið nokkra
landsleiki í handknattleik, auk þess
að hafa leikið handknattleik bæði
í Vestur-Þýskalandi og Sviss.
Bjöm er kvæntur Helgu Sigurð-
ardóttur og eiga þau eitt barn.
íslandi. Um er að ræða mörg
þekkt blöð svo sem Hjemmet og
Andrés önd. Innkaupasamband
bóksala hefur undanfarin ár séð
um dreifíngu á þessum blöðum,
en frá 1. október nk. verður hún
í höndum Vöku-Helgafells. Að
sögn Ólafs Ragnarssonar fram-
kvæmdastjóra hjá Vöku-Helga-
felli mun fyrirtækið taka yfir
þýðingu á Andrés önd og áskrif-
endaþjónustu fyrir blaðið á
næsta ári, en Gutenberg Hus
hefur hingað til séð alfarið um
þá hluti.
Olafur Ragnarsson sagði að
Vaka-Helgafell og Gutenberg Hus
hefðu verið í samstarfi vegna efnis
frá Walt Disney fyrirtækinu og það
væri eflaust ástæða þess að danska
fyrirtækið leitaði til þeirra þegar
þeir ákváðu að skipta um dreif-
ingaraðila. „Okkur þykir þetta
áhugaverð starfsemi sem fellur
ágætlega að ýmsu öðru sem við
erum að gera. Við erum fyrir í
viðskiptum við flestar bókabúðir
landsins þannig að þetta er ósköp
eðlilegt framhald af þeim viðskipt-
um.“ sagði Ólafur.
Olafur sagði ennfremur að í
beinu framhaldi af þessum dreif-
ingarsamningi væri ætlunin að
Vaka-Helgafell tæki yfir alla þjón-
ustu við áskrifendur Andrésar and-
ar blaðanna og einnig þýðingar-
vinnslu á blaðinu, en það hefur
hingað til verið þýtt yfir á íslensku
í Danmörku. Einnig verði stefnt
að því að Vaka-Helgafell verði
búið að taka yfír áskrifendakerfi
þeirra um mitt næsta ár, þannig
að íslenskir áskrifendur geti borg-
að sína áskrift hér.
„í tengslum við þessar breyting-
ar er áætluð söluherferð og mark-
aðsátak til þess að efla blaðið á
íslenskum markaði. Það má því
segja að samningur okkar við Gut-
enberg Hus tengist Andrés önd að
verulegu leyti. Salan á blaðinu
hefur verið verulega mikið minni
hér miðað við fólksfjölda heldur
en á öðrum Norðurlöndum og það
er nokkur pressa frá Disney fyrir-
tækinu að auka hana. Gutenberg
fyrirtækið treystir sér varla til
þess að gera það frá Kaupmanna-
höfn og þessi samningur okkar við
Danina er í okkar augum nokkuð
eðlilegt framhald á fyrra samstarfí
okkar. Gutenberg fyrirtækið er
mjög öflugt, eitt af stærstu útgáfu-
fyrirtækjunum í Danmörku og á
auk þess útgáfufyrirtæki í sjö öðr-
um löndum Evrópu. Við höfum því
talið það mjög skynsamlegt að eiga
gott samstarf við þá og eins þykir
okkur áhugavert að fara inn á ný
svið og renna fleiri stoðum undir
reksturinn. Það hefur gengið
ágætlega það sem við erum að
gera, en það er alltaf gott að hafa
eggin í fleiri körfum og áhugavert
að vera með fjölbreytilegri rekst-
ur,“ sagði Ólafur Ragnarsson.
ast þeirra fyrirtækja sem gefa
út umsagnir og einkunnir um
lánshæfi ríkja og fyrirtækja og
mikið tillit tekið til álits þessara
fyrirtcekja við lánveitingar á al-
þjóðlegum fjármagnsmarkaði.
Frétt Moody’s virðist aðallega byggð
á nýjustu umsögn Moody’s um Is-
land, því einkunnin sem ríkissjóður
íslands fær er óbreytt frá síðustu
úttekt, og íslandi skipað þar í A-
flokk. í umsögn Moody’s segir m.a.
að mælt sem hlutfall af útflutningi
hafi erlendar skuldir íslendinga vax-
ið úr um 90% undir lok áttunda ára-
tugarins í um 148% 1985 en minnk-
að á ný eftir því sem útflutningur
jókst og viðskiptajöfnuður náði
meira jafnvægi, en þó verið komnar
á ný í 158% í árloks 1989.
Erlendu skuldirnar liggi fýrsta og
fremst hjá ríki og ríkistengdum aðil-
um, og að í árslok 1989 hafi um
10% af heildarskuldum verið hjá
einkageirunum, ef fjármagnsmark-
aðurinn er ekki meðtalinn. í dollur-
um nemi heildarskuldir 3,1 milljarði
dollara en þar af séu um 83% með
- greiðsludaga að ári eða meira.
íslendingar hafi hagað skulda-
sýslu sinni á þann veg að árlegar
afborganir séu hóflegar. Dreifing
afborgana sé slík að greiðslubyrði
skulda hafi alla jafnaði verið um 10%
heildarskulda. Árið 1988 hafi
langtímaskuldir með breytilegum
vöxtum verið um 65% af heild og
hækkað úr 45% frá 1984.
Moody’s segir hins vegar að svei-
flutilhneiging í útflutningstekjum
veki upp spumingar um hvaðá áhrif
mikill og óvæntur samdráttur tekna
geti haft á greiðslugetu íslands.
Ljóst sé að verði samdrátturinn var-
anlegur muni innanlandsneyslan
dragast varanlega saman um leið
og því eigi A2 einkunnin að endur-
spegla þá áhættu. Sértækara vanda-
mál sé hvort slíkur samdráttur muni
valda greiðsluvanda til skemmri
tíma og þannig e.t.v. gera aðlögun
yfir lengra tímabil erfíðari. Moody’s
telur slíka framvindu þó hæpna, og
bendir á hvemig íslendingum hafi
tekist að halda greiðslubyrgðinni
hóflegri, gjaldeyrisvarasjóði full-
nægjandi og hafí innhlaup á ýmsum
stöðum til greiðslujöfnunar. Þess
vegna sé þessi möguleiki á greiðslu-
erfiðleikum fjarlægara vandamál
heldur en innbyggður halli á við-
skiptajöfnuði og lengri tíma aðlögun
að útflutningssamdrætti .
Fólk
Þorsteinn Þorsteinsson
í nýtt starf innan NIB
ÞORSTEINN Þorsteinsson, aðstoðarbankastjóri við Norræna fjárfest-
ingabnakann, NIB, sem undanfarin ár hefur haft umsjón með lánveit-
ingum bankans til íslands, er nú að hverfa til nýrra starfa innan bank-
ans, að því er fram kemur í frétt frá NIB.
Þorsteinn mun nú taka við nýju
starfi í fjármáladeild bankans og
veita þar forstöðu því sviði sem fer
með innlán bankans, svo sem skulda-
bréfaútgáfur og skuldaskipti. Norr-
æni fíárfestingabankinn fjármagnar
lánastarfsemi sína með skuldabré-
faútgáfum á norrænum og alþjóð-
legum fjármagnsmörkuðum og nýt-
ur þar bestu kjara. Nemur skulda-
bréfaútgáfan ein sér um 60 milljörð-
um króna ár hvert.
Norræni fjárfestingabankinn hef-
ur aðalskrifstofur í Helsinki í Finn-
landi og fjármagnar samnorræn
verkefni, orkuframkvæmdir og verk-
efni í umhverfismálum. Nema lán-
veitingar til íslands nú um 18 mill-
jörðum króna.
í ráði er að ráða nýjan svæðis-
stjóra fyrir ísland, og hefur staðan
þegar verið auglýst laus til umsókn-
ar.
Tryggingarsjóðir og eigið fé líftryggingarfélaga 31. desember 1989. Milljónir króna Trygginga- Eigið fé Samtals sjóður
Almennar líftryggingar hf. 9,5 14,0 23,5
Alþjóða líftryggingafélagið hf. 135,6 39,4 175,0
BI Líftrygging GT 5,9 16,7 22,6
Líftryggingafélag Sjóvá hf. 28,8 17,8 46,6
Líftryggingafélagið Andvaka GT 78,4 53,3 131,7
Líftryggingaféiagið Vörður hf. 0,0 13,8 13,8
Sameinaða Líftryggingafél. hf. 99,7 28,7 128,4
Samtals: 357,9 183,7 541,6
Upplýsingar um íslensk trygginga- og líftryggingafélög birtust nýlega í
Lögbirtingablaðinu. Úr meðfylgjandi töflu má lesa upplýsingar um trygg-
ingasjóði og stöðu eigin fjár félaganna.
Lífsbiörg = Andvaka
og BÍ-líf
ATHYGLI hafa vakið opnuauglýsingar sem birst hafa tvo síðustu
daga og titlaðar Lífsbjörg án þess að frekari skýringar séu gefnar.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er með þeim verið að boða
nýtt líftryggingafélag, sem til verður með sameiningu Andvöku,
líftryggingarfélags Samvinnutrygginga og líftryggingafélags Buna-
bótar.
Móðurfyrirtækin eru sameinuð
fyrir alllöngu í Vátryggingarfélag
íslands. Hefur því sameining
líftryggingafélaga þeirra legið í
loftinu alllengi og kemur ekki á
óvart. Auglýsingunni er því vænt-
anlega ætlað að skapa spennu og
eftirvæntingu um nýja félagið.
Meðfylgjandi tafla sýnir umfang
líftryggingafélaganna á markaðin-
um fyrir sameininguna, og með því
að leggja saman tölur Andvöku og
BÍ-líftryggingu má sjá stærð þess
miðað við þau sem eftir standa.