Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990
Sjávarútvegssýning
Aukin tækni legg-
ur aukna ábyrgð
áherðarokkur
- sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra við opnun sýningarinnar
ÍSLENZKA sjávarútvegssýning
var formlega opnuð í gær af
Halldóri Asgrímssyni sjávarút-
vegsráðherra að viðstöddum for-
seta íslands, Vigdísi Finnboga-
dóttur og ýmsum háttsettum er-
lendum og innlendum gestum.
„Við ættum af hafa það í huga,
að það er ekki fyrst og fremst
magn, sem er eftirsóknarvert,
heldur fremur hæfni og gæði í
veiðum og vinnslu. Ég hygg að
það verði boðskapur Islenzku sjáv-
arútvegssýningarinnar 1990,“
sagði Halldór Asgrímsson í setn-
ingarræðu sinni.
Það var John Legate, aðalfostjóri
Evrópudeildar Reed sýningarsam-
steypunnar, sem bauð gesti vel-
komna við upphaf sýningarinnar, en
síðan setti Halldór sýninguna. Við-
stödd sýninguna var Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, Walter
Carter, sjávarútvegsráðherra Ný-
fundnalands og Labrador, Karl
Funke, ráðherra sjávárútvegs- og
landbúnaðarmála í Neðra Saxlandi,
Albrecht Harten, borgarstjóri Cux-
haven og ýmsir aðrir gestir innlendir
og erlendir. Að lokinni setningu skoð-
uðu gestimir sýninguna undir leið-
sögn Patriciu Foster, framkvæmda-
stjóra sýningarinnar, og stöldruðu
sérstaklega við hjá Jósafat Hinriks-
syni, sem nú heldur upp á sex-
tugustu aljþóðlegu sjávarútvegssýn-
inguna sína. Jósafat sýndi fyrst á
erlendri grund 1968.
Morgunblaðið/Sverrir
OPNUNIN — Einn þeirra, sem settu svip sinn á sýninguna, þegar í upphafi var Sigurður M. Helga-
son. Hvort það var hæðin eða klæðnaðurinn frá Sjóklæðagerðinni, sem olli því skal ósagt látið, en Halldór
Ásgrímsson, Vigdís Finnbogadóttir og John Legate hafa greinilega gaman af því að spjalla við Sigurð.
Sýningin er mjög svipuð að um-
fangi og síðasta sýning og telja
stjórnendur hennar góðan árangur
líklegan. Sömu sögu er að segja af
sýnendum, en sýninguna nota marg-
ir til að endurnýja gömul viðskipta-
sambönd og móta ný, þó þau skili
ekki beinum viðskiptum strax.
I ræðu sinni bauð Halldór Ás-
grímsson velkomna erlenda og inn-
lenda boðsgesti og sérstaklega for-
seta íslands. Þá þakkaði hann stjóm-
endum sýningarinnar John Legate
og Patriciu Foster fyrir þann áhuga
þeirra og dugnað, sem gert hefði
þessa sýningu að alþjóðlegum þætti
í heima fiskveiða og vinnslu. Þá sagði
hann: „Ég hef orðið þeirrar ánægju
aðnjótandi að opna allar þijár sjávar-
útvegssýningamar, sem hér hafa
verið haldnar, þá fyrstu í september
1984. Þau 6 ár, sem síðan hafa lið-
ið, era langur tími í hinni tækni-
væddu og þróðuð veröld okkar. Þó
sjávarútvegsráðherrann sé enn sá
sami, hafa þessi ár verið tími breyt-
inga og framfara á íslandi. Að mínu
mati er mikilvægasta breytingin sú,
að stjómun fiskveiða með aflakvót-
um er nú orðin staðreynd og viðtek-
in sem slík. íslenzka kvótakerfið
hefur þegar aukið hagkvæmni jafn
framt því, að enn er hægt að ná
lengra með því að flytja aflaheimild-
ir saman með fækkun skipa. Innan
fiskvinnslunnar hefur einnig verið
tilhneiging til samvinnu og samrana
fyrirtækja í stærri einingar. Þessi
breyting er að hluta til vegna breyt-
inga í vinnslu og markaðssetningu
og ekki sízt vegna aukingar á útflut-
ingi ísaðs fisks og sjófrystingar. Við
markaðssetninguna er nú lög meiri
áherzla á neytendapakkningar og
tilbúnar máltíðir."
Halldór ræddi síðan um tækni og
möguleika hennar og sagði: „Um
leið og tæknin leysir ákveðin vanda-
mál, leggur hún á herðar okkar
aukna ábyrgð varðandi skynsamlega
nýtingu auðlinda náttúrunnar. Þess
vegna verðum við að auaka alþjóð-
lega samvinnu til að tryggja varan-
lega nýtingu auðlinda heirhshaf-
anna.“
íslenzka sjávarútvegssýningin
stendur til sunnudags.
AMS
AMSTERDAM
HAM
HAMBORG
INNFLUTNINGUR ÚTFLUTNINGUR
Sími: Sími:
690101 672824
Fax: Fax:
690464 672355
ÞÚ HEFUR HEIMINN í HENDIÞÉR MEÐ
Hveragerði
Nýr framkvæmdastjóri
Kjöríss í Hveragerði
Hveragerði.
FYRIRTÆKIÐ Kjörís hf. í
Hveragerði hefur ráðið nýjan
framkvæmdasljóra, er hann við-
skiptafræðingur að mennt og
heitir Ólafur Hilmar Sverrisson,
liðlega þrítugur að aldri. Hann
starfaði áður sem sveitarstjóri í
Grundarfirði.
Af þessu tilefni lagði fréttaritari
leið sína í Kjörís og spurði Hafstein
Kristinsson forstjóra frétta af starf-
semi fyrirtækisins.
„Ástæðan fyrir því að við erum
nú að ráða framkvæmdastjóra,“
sagði Hafsteinn, „er sú að nú teljum
við að brautryðjendastarfinu sé að
ljúka og að þörf sé á nýju afli í
sambandi við ijármál og markaðs-
setningu fyrirtækisins.“
Hafsteinn kvaðst ætla sér að hlúa
betur að framtíðarstefnumótun í
vöru- og markaðsþróun. Reksturinn
hafí gengið vel á þessu ári og eng-
in ástæða sé til að ætla annað en
að framtíðin verði sæmilega greið-
fær. En þar sem hér ætti í hlut
matvælafyrirtæki þá mætti aldrei
slá af kröfunum um gæði og stöðug-
leika framleiðslunnar.
„Við höfum verið mjög heppnir
með starfsfólk á öllum okkar svið-
um. Það er kannski lykillinn að
velgengni okkar. Það hefur verið
mjög farsælt að vera hér í Hvera-
gerði með fyrirtækið og þessi stutta
fjarlægð (40 km) frá aðal markaðs-
svæði okkar hefur enga teljandi
vankanta í för með sér, nema síður
sé.“
Um þessar mundir eru um 30
manns starfandi hjá fyrirtækinu. Á
sl. ári var tekin í notkun rúmgóð
dreifingarmiðstöð fyrir vörur fyrir-
tækisins í Reykjavík, þar sem er
góð aðstaða fyrir fjóra frystibíla og
söluskrifstofur. Kjörís hefur vélvætt
framleiðsluna jafnt og þétt á liðnum
árum og sagði Hafsteinn að um
þessar mundir stæði fyrirtækið vel
að vígi með góðan vélakost.
Að lokum sagði Hafsteinn: „Það
sem helst ergir okkur er hve heima-
markaðurinn er lítill. Öll vöruþróun
er dýr, umbúðahönnun og markaðs-
setning nýrra vörutegunda er mjög
kostnaðarsöm og framleiðsla ein-
stakra vörategunda ekki nægilega
mikil til að bera eðlilegan kostnað
vegna þessa. En þetta er auðvitað
eilífa vandamálið varðandi alla
framleiðslu og þjónustu hér í okkar
fámenna en stóra landi.“
Fréttaritari spurði hinn nýráðna
framkvæmdastjóra hvemig honum
litist á að starfa í Hveragerði. Ólaf-
ur Hilmar lét vel yfir því og sagði:
„Þetta leggst ágætlega í mig, fyrir-
tækið er traust og hefur gott orð
á sér og mér líst vel á starfsfólkið.
Þetta er ólíkt því sem ég hef feng-
ist við áður, en ég var síðasta
kjörtímabil sveitarstjóri í Grandar-
firði."
Ólafur Hilmar er sonur Sverris
heitins Júlíussonar útgerðarmanns
og eiginkonu hans Ingibjargar Þor-
valdsdóttur. Ólafur er kvæntur
Ragnheiði Gunnarsdóttur hjúkr-
unarfræðingi.
- Sigrún