Morgunblaðið - 23.09.1990, Side 1
MANNSMYND
112 SIÐUR B/C
216. tbl. 78. árg.
SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1990
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Fékk bættar
þjáningar á
skurðarborði
London. Reuter.
BRESKRI konu voru á föstudag dæmd-
ar 16.500 punda bætur, jafnvirði 1,7
milljóna ísl.kr., þar sem sannað þykir
nú að hún hafí verið vakandi er barn
hennar var tekið með keisaraskurði
fyrir fimm árum. Var hún ekki deyfð
nægilega og kvaldist mjög á skurðar-
borðinu en hafði samt ekki næga rænu
til að Iáta skurðstofufólkið vita af sér.
Það var ekki fyrr en að aðgerð lokinni
sem hún gat sagt læknum og ljósmæðr-
um frá raunum sínum, en þau héldu
því fram að um uppgerð eða draum
hlyti að hafa verið að ræða.
Stórskjálfta
senn að vænta
í New York?
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morg-
unblaðsins.
KALIFORNÍA er ekki eini staðurinn í
Bandaríkjunum sem jarðskjálftar geta
skekið. Ibúar og
mannvirki á aust-
urströndinni eru
einnig í hættu, seg-
ir í grein í vísinda-
ritinu Science. Þar
segir að skjálftar í
mið- og austurríkj-
um verði mun al-
varlegri og nái til stærri svæða en
Kaliforníuskjálftar. Séu 29% líkur á
stórskjálfta á þeim slóðum fyrir alda-
mót og 97% líkur á næstu öld.
Þjófur storkar
forlögunum
Sydney. Reuter.
DÆMDUR innbrotsþjófur, er flúði úr
áströlsku fangelsi í september sl. með
því að leynast í þvottahúsbíl, náðist
aftur í fyrradag er hann ætlaði að
heimsækja klefafélaga sinn í fangels-
inu. Þjófurinn fyllti samviskusamlega
út eyðublöð sem gestir fanganna fá í
hendur en notaði falskt nafn. Hafði
hann litað hárið rautt en fangaverðir
báru þegar í stað kennsl á hann. „Þetta
var bara ekki happadagurinn hans,“
sagði talsmaður lögreglu.
UNDIR STORHOFÐAILIFRARFJOLL UM
Morgunblaðið/RAX
Saudi-Arabar stöðva olíu-
útflutning til Jórdaníu
Amman. Reuter. ^ ^
SAUDI-Arabía hefur stöðvað útflutning
olíu til Jórdaníu. Thabet al-Taher, orku-
málaráðherra Jórdaníu, segir að þetta
hafí verið gert með sex klukkustunda
fyrirvara aðfaranótt föstudags. Talið er
að rekja megi þessa ákvörðun til þess
að Saudi-Aröbum hefur gramist stuðn-
ingur Jórdana við íraka. Búist er við að
Jórdanir bregðist við með því að auka
olíuinnflutning sinn frá írak í trássi við
viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna.
Einnig hafa Saudi-Arabar rekið tuttugu
jórdanska sljórnarerindreka úr landi og
þrjátíu jemenska.
Saudi-Arabar hafa séð Jórdönum fyrir
helmingi þeirrar olíu sem þeir þurfa eða
35.000 fötum á dag. Taher viðurkennir að
Jórdanir hafi einnig flutt inn olíu frá írak
af illrí nauðsyn. Fyrir innrás íraka í Kúvæt
keyptu Jórdanir 83% olíu sinnar frá írak
en nú er það hlutfall komið niður í 40%.
Taher segir að stjórnvöld í Saudi-Arabíu
hafi skrifað stjórn Jórdaníu bréf á fimmtu-
dag þar sem því sé haldið fram að Jórdanía
skuldi Saudi-Arabíu 46 milljónir dala fyrir
olíuna. Krafist var tafarlausrar greiðslu og
sex stundum síðar var skrúfað fyrir olíuna.
Aðgerðir Saudi-Araba undanfarna daga
gagnvart Jórdaníu og Jemen eru skýrðar
svo að nú eigi að beita þau ríki auknum
þrýstingi sem veitt hafa írökum stuðning.
Vestrænir stjórnarerindrekar í Jórdaníu
sögðust í gær óttast að aðgerðir Saudi-
Araba færðu Jórdani nær írökum ef eitt-
hvað væri.
Le Pen lofar íraksforseta
JEAN-Marie Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar frönsku, samtaka hægri öfga-
manna, hefur lýst sig andvígan afskiptum Frakka af Persaflóadeilunni og farið
lofsamlegum orðum um Saddam Hussein, forseta íraks.
Dagblaðið International Herald Tribune
greindi frá þessu fyrr í vikunni og vitnaði
til ummæla Le Pens þess efnis að við-
brögð frönsku ríkisstjórnarinnar við því
er íraskir hefmenn ruddust inn í sendiráð-
ið í Kúvæt hafi verið óhófleg og öfugsnú-
in. Franskir stjórnmálaskýrendur telja að
aðdáun Le Pens á herskáum og sterkum
leiðtogum ráði mestu um þessa afstöðu
hans. Aðrir telja skýringuna gyðingahat-
ur, sem Le Pen hefur stundum látið í ljós.
Yfirlýsingar Le Pens frá því Persaflóa-
deilan blossaði upp hafa jafnvel komið
stuðningsmönnum hans á óvart enda hef-
ur hann fram til þessa verið talinn til þjóð-
ernissinna. Hann lýsti sig strax andvígan
þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
senda franska hermenn til Persaflóa og
vildi lengi vel ekki viðurkenna að frönskum
ríkisborgurum væri haldið í gíslingu í ír-
ak. Þá hefur Le Pen sagt að með innrás-
inni í Kúvæt sé Saddam Hussein íraksfor-
seti að uppfylla sögulegt hlutverk sem
honum hafi verið ætlað.
Ásgeir Elíasson
knattspyrnuþjálfari
0 lerirmaðir í o
Nleó kveðju
fró krítíkker C