Morgunblaðið - 23.09.1990, Side 31

Morgunblaðið - 23.09.1990, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 199.0 31 i STANGAVEIÐI Gekk illa að selja veiðileyfí Þetta hefur verið skiýtið sumar, sagði. Jón G. Baldvinsson for maður Stangaveiðifélags Reykjavíkur er blm. Morgunblaðs- ins ræddi við hann í vikulokin. Vert- íðarlok voru þá í laxveiðinni og Jón prýðilegur talsmaður þeirra þús- unda landsmanna sem hafa yndi og ánægju af stangaveiði. Hvað Jón. átti við með „skrýtið sumar“ útskýr- ir hann nánar. „Skrýtið, jú víst var það skrýtið. Fiskifræðingar höfðu spáð mjög illa fyrir okkur, þeir áttu von á lélegri veiði, en svo byrjaði alveg hreint undarlega vel, sérstaklega er mið var tekið af slæmum aðstæðum. En á miðju sumri gekk spáin eftir, það komu mjög litlar smálaxagöng- ur og veiðin þvarr í ánum, sérstak- iega í Húnavatnssýslunum. Undir lokin virtist mér sem það væri að rætast nokkuð úr víðast hvar. Samt sýnist mér á öllu að þegar það hef- ur verið tekið saman muni standa eftir eitt lélegasta veiðisumar sem ■þessi kynslóð hefur upplifað,“ sagði Jón. Um stöðu stangaveiðimála í dag sagði Jón m.a.: „Þetta var fjárhags- lega erfitt sumar hjá SVFR. Það gekk illa að selja veiðileyfi, við lögð- um til dæmis fram óbreytta verð- skrá fyrir Norðurá frá 1989, en samt seldist minna af leyfum í ána nú en þá og var þó meiri lax í ánni nú og veiðin ívið betri. Þetta segir mér að verðlagið er of hátt miðað við greiðslugetu fólks í landinu. Því er ég kvíðinn þegar gengið verður til samninga um árnar okkar, því hækkanir eru venjan heldur en hitt. Svo er það spurningin með Hvítár- netin, sem nú eru í deiglunni. Semj- ist um upptöku þeirra virðist tryggt að hundruð ef ekki þúsund löxum meira gangi í Norðurá og Gljúfurá. Það ætti að hljóma spennandi fyrir veiðimenn, en þetta er tvíeggjað því netaupptakan kostar sitt og hún verður greidd með meiri álagningu á veiðileyfi í árnar á svæðinu. Það eru því óvissutímar framundan," sagði Jón G. Baldvinsson. Við þetta má bæta, að horfur fyrir laxvéiðina næsta sumar eru á þá lund, að vart er von stórra stór- laxagangna þar sem smálaxagöng- ur reyndust rýrar í sumar. Verði ekki stór skakkaföll í hafinu gæti samt orðið góð smálaxaveiði, því góð holl gönguseiða fóru til sjávar. Seiðabúskapur í ánum er auk þess mjög góður um þessar mundir og gangi allt að óskum ættu næstu sumur að verða nokkuð góð. Auk þess færist í vöxt að miklu magni góðra gönguseiða sé sleppt og ger- ist það æ oftar að góðar heimtur koma til baka og auka veiðina. Jón aðstoðar Davíð borgarstjóra Oddsson við opnun Elliðaanna. sama hvað fólk segi eða haldi um fjölskylduna. Þar séu á sveimi alls konar lygasögur og hálfkveðnar vísur og því sé í sjálfu sér hið besta mál að nú verði spilin lögð á borðið. „Ég er búin að setja þetta allt saman niður, svart á hvítt og ekk- ert fer á milli mála, ég dreg ekkert undan,“ segir LaToya og undirstrik- ar hispursleysi frásagnarinnar. Annars hefur LaToya verið talsvert í fréttum, ekki síst vegna líkamsár- ásar sem hún tilkynnti, er nokkrir menn ruddust inn á hótelherbergi hennar í Róm fyrir nokki-um vikum og börðu á henni með lurkum. Seg- ir LaToya að mennirnir hafí ætlað að ræna sér og ugglaust kreíja hina forríku Jackson-fjölskyldu um svim- andi lausnargjald. Ekki eru allir trúaðir á söguna og segja LaToyu sviðsljóssjúka og hún seldi ömmu sina ef hún kæmist á forsíður blað- anna fyrir vikið. Allt um það — hvorki hefur fundist tangur né tetur af árásarmönnunum. LaToya kom til tónleikahalds á Sri Lanka fyrir skömmu og var tekið á móti henni með þjóðleg- um dönsum. LEIKLIST • • Nafnið „Orfá sæti laus44 virðist eiga vel við Orfá sæti laus, nýr gamanleikur með söngvum og dönsum var frumsýndur á vegum Þjóðleikhúss- ins í húsnæði Óperunnar í Gamlabíói á föstudagskvöld. Virðist nafnið eiga prýðilega við, því þegar er uppselt á helming þeirra tólf sýninga sem áætlaðar voru. Það er Spaugstofan sem á heiðurinn af þessu verki sem er í anda hennar og koma fram ýmsar af þeirra þekktustu persónum, svo sem Ragnar Reykás, Bogi róni og fleiri. í fréttatilkynningu frá Þjóðleik- húsinu kemur fra.m að það sé skoð- un höfunda að „Örfá sæti laus“ sé „hugljúfur hvunndagsþriller með dularfullu, ef ekki beinlínis dulrænu ívafi, að hluta byggður á sönnum heimildum, en að öðru leyti argasta lygi frá rótum“. Og ef við höldum áfram með lýsingu Spaugstofu- manna sjálfra: „Sögusviðið er leik- hús og umhverfi þess. Á meðan á mislukkaðri sýningu á spennuleik- riti stendur gerast ólíklegustu uppá- eftir Steingrím Olofsson komur innan sviðs og utan. Þekktar persónur úr stjórnmálum og ■'hvunndagslífi skjóta upp kollinum eins og sjónvarpsáhorfendur kann- ast við úr fréttaþáttum Stöðvarinn- ar auk leikpersóna á borð við Skugga-Svein, Ketil skræk og Ástu í Dal.“ Einnig segja þeir: „Leikritið er sannkallaður bastarður því um allar gerðir leiklistar gæti verið að ræða aðrar en sorgarleik." Konan mín skilur mig ekki Konan mín skilur mig ekki! Klisja, en á svo vel við mig þessa dagana. Hún skilur ekki af hverju ég þarf að skrifa um óléttu okkar í Morgunblaðið. Auðvitað út- skýrði ég fyrir henni að þetta væri lifsreynsla sem ég gæti ekki byrgt inn i mér. Þetta væri nokk- uð sem ég þyrfti að deila með öðr- um landsmönn- um, enda ekki á hveijum degi sem ég verð ólétt- ur, hvað þá konan mín, svo ég tali nú ekki um að tækifæri til að deila hugsunum mínum, gleði, sorg, kvöl og vellíðan, eru ekki á hverju strái. Ég meina, það getur „ nú ekki hver sem er skilað heim- ilislífi sinu á síður Morgunblaðs- ins. Þetta eru forréttindi sem ég verð að nýta mér, ekki í mína þágu, heldur allra karlmanna sem verða óléttir, ogjú, kannski líka fyrir konur. En nei. Konan mín skilur það ekki. Hún segir að þetta sé farið að hafa alvarlega áhrif á heimilishaldið. Hún sé hætt að þora að segja mér nokk- urn skapaðan hlut, enda lesi hún það yfirleitt nokkrum dögum síðar i Mogganum. „So what?“ sletti ég. Er okkar einkalíf eitt- hvað einkamál? Hún segir það, en ég er svo gersamlega ósam- mála, að engu tali tekur. Ég hef ekkert að fela. nema þá kannski helst fyrir skattinum. Hvað um það. Hvað er svona slæmt við það að ég deili tilfinn- ingum minum og sálarlífi með öðrum áskrifendum Morgun- blaðsins? Þetta er banvæn spurning þegar konan min er annars vegar. Þegar hún á annað borð byrjar að útskýra fyrir mér af hverju ég eigi að þegja, en ekki skrifa í blaðið, þá tekur það hana jafn langan tima að hætta, og það tekur Alþingi að afgreiða lög. Heila eilífð. Hún tók sem dæmi þegar við fórum að borða á Hard Rock um daginn. Við vorum óvenju svöng, svo við ákváðum að athuga hvort við sæjum ekki eitthvað girnilegt á eftiréttamat- seðlinum. Ég kalla á þjönustu- stúlku, eða gengilbeinu, og bið um að fá listann. Þá snýr hún sér að konu minni og segir: „Þú vilt ekki bara fá kirsjuberja- mjólkurhristing?" Konan mín fraus, opnaði munninum og lok- aði honum með reglulegu milli- bili og mátti ekki mæla. Þá sagði stúlkan: „Nei, þetta er barasvona smá grín hjá starfsfólkinu!" Kon- an mín sagðist skyndilega hafa misst alla matarlyst og bað mig um að koma út. Engin eftirréttur það kvöldið. Nokkrum dögum síðar stopp- aði okkur maður í Kringlunni og spurði hvenær Moggabarnið ætti að fæðast!!! Konan min var ekki hrifin af því. Siðan fór hún í heimsókn til Sollu vinkonu sinnar upp á fæðingardeild, (hún átti stelpu. Til hamingju!), ogþar hlógu nokkrar mæður að henni og spurði hvenær þær læsu i Mogganum að hún væri búin að eiga. Eitthvað fréttist líka um að ljósmæðurnar á fæðingardeild- inni væru að fylgjast með ólétt- unni. Það eru svona smáatriði sem konan mín er að tuða yfir. Ég sé ekkert að þessu. Mér finnst þetta hið besta mál. Ólétta er ekkert einkamál. Við hjónin erum ólétt og erum stolt af því. En fyrst þú ert komin svona langt í grein- inni. Ef þú sérð konuna mína á vappi einhvers staðar, gerðu mér þá greiða. Ekki minnast á óléttu við hana. Segðu frekar: „Ekki hef ég lesið um þig í Mogganum!" Heyrumst síðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.