Morgunblaðið - 17.02.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.02.1991, Blaðsíða 35
35 £iivíttalV s*n»y» Roo»a» % PSSX^-1 I.VWU.AB pgjSÓNUlí0**' smw°° ANDlXGUM|,,i0S MORGUNBLAÐIÐ; folk i FFmwimmuMjm Í7. FEBRUAR 1991 .öókak IúIdIdiuif uim ajnoieg ma /’H £ • malc íim Nýaldarbækur hf. er nýtt bókaútgáfufyrirtæki, sem ætlað er að koma á framfæri lesefni um andleg málefni á íslensku og opna um leið aðgang að þessu efni fyrir þá íslendinga, sem ekki geta nýtt sér lesefni á erlendumtungumálum. MARKMIÐ Markmið útgáfunnar er að koma á framfæri sem fjölbreytilegustu efni til lesenda um þau málefni, sem gjarnan eru kennd við nýöld, svo sem sjálfsleit, sjálfsrækt, sálarrannsóknir, guðspeki, fræðslu frá æðri sviðum, yoga, stjörnuspeki, heilsufræði, líkamsrækt, heilun, náttúru lækningar, samband manns og náttúru og sögulegar frásagnir af andlegri reynslu. Boðnar verða þýddar, erlendar bækur, sem hæst ber hveiju sinni, frumsamdar íslenskar bækur, frumsamið og þýtt efni á segulbandsspólum, handbækur og bæklingar um sérhæfð efni. STARFSEMIBÓKAKLÚBBSIN S Félagsmenn fá sent heim fréttabréf, þar sem kynnt verður ein ný bók hveiju sinni. Auk þessarar bókar verða boðnar valbækur, bæklingar og minni rit, segulbandsspólur og myndbönd. í hveiju fréttabréfi verður síðan komið á framfæri upplýsingum um fundi, fyrirlestra og námskeið, er varða nýaldarmálefni hveiju sinni. Meðal efnis af öðru tagi, sem boðið verður upp á á næstunni, eru myndbönd af sjónvarpsþáttum Stöðvar 2, Nýja öldin og „Hvað er Ný- öld“ handbók um málefni nýöld. Einnig verður boðið upp á minni rit um margvísleg efni, hljóðsnældur o.fl. Hægt er að fá bækurnar í áskrift með því að gerast félagi í bókaklúbbi nýaldar. Gerist þú félagi nú, bjóðast þér bækurnar heimsendar með 30% afslætti frá búðarverði. HAFIR ÞU AHUGAÁ ÞÁTTTÖKUí BÓKAKLÚBBNUM, ÞÁERU SKRÁNINGARSÍMARNIR 689278 OG 689268 OG ÞAR FÆRÐU ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ STARFSFÓLKI OKKAR. NYALDARBÆKUR Bolholti 6, símar 689278 og 689268 jgaóttit VóWtCu>r Það fór vel á með mönnum og málleysingjum. FRÆÐSLA Skólafólk heilsar upp á málleysingja Nemendur úr Ármúlaskóla, rúm- lega fjörtíu talsins, heimsóttu Húsdýragarðinn í Laugardal fyrir skömmu og mun ekki algengt að nemendaráð finni upp á slíku hjá sjálfu sér. Að sögn Ragnars Inga Ragnarssonar, höfundar myndanna sem hér birtast, var mönnum boðið upp á að að skreppa í matarhlé um miðjan dag, nemendaráðii borgaði rútuna. „Þetta heppnaðis mjög vel og menn komust þarna einhvers konar snertingu við nátt úruna,“ sagði Ragnar. Eins og sjí má af myndunum, voru uppákom urnar af ýmsum toga... Rebbi t.v. tekur gestinum vel, en álitamál er hvað vakir fyrir hinum refnum.... Jeppinn nýfarinn á kaf... - * * TORFAN Er að berjast fyrir lífi mínu Það hafa margir tekið eftir því, að Torfan er nú aftur orðin Torf- an. Eða öllu heldur, matsölustaðurinn Punktur og Pasta á Bernhöfts- torfunni, sem áður hét Torfan og var feykivinsæll veitingastaður, heitir nú Torfan á ný. Þessi breyting fylgdi nýjum eiganda, Agli Egilssyni sem snéri sér frá hótelhaldi úti á landi til að freista gæfunn- ar í höfuðstaðnum. Morgunblaðið ræddi aðeins við Egil og spurði hann hvers vegna hann kaus að breyta aftur til fyrra nafns. Punktur og pasta hreinlega gekk ekki, hér kom töluverður fjöldi kvenna til að borða pöstur, en karl- arnir fylgdu gjarnan ekki með því fólk hélt samkvæmt nafninu að hér væri ekkert að hafa nema pöstumat. Torfan var á sínum tíma vel þekkt. Það vissu allir hvar hún var að það var alltaf fullt hús. Munurinn síðan að ég breytti nafninu er alveg svaka- legur. Aðsóknin er miklu meiri og margir óska mér til hamingju, jafn- vel bláókunnugt fólk, og segist vera komið aftur af því að staðurinn heiti Torfan á ný. Með breyttu nafni kom breyttur matseðill, fjölbreyttur, en með einhveijum albesta físki sem völ er á. Sérstakur velunnari staðarins, Oskar Guðmundsson í Sæbjörgu vel- ur sérstaklega besta fiskinn handa okkur og lítur alltaf við á laugardög- um til að fylgjast með,“ segir Egill. En breytti Egill staðnum svo orð sé á gerandi? „Nei, slíkt kostar óheyrilega peninga, sérstaklega í svona gömlu og viðkvæmu húsnæði. Hitt er svo annað mál að við höfuð bryddað upp á nýjung sem ég er ekki viss um að sé til staðar á öðrum veitingahúsum. Við höfum hengt upp myndverk eftir myndlista- konuna*1**- Björgu Atla í öllum sex sölum húss- ins. Þetta eru góð verk og setja mik- inn svip á húsið, enda hefur sýningin mælst vel fyrir og við munum halda áfram á sömu braut er sýningu Bjargar lýkur,“ svarar Egill. Veitingarekstur virðist vera með erfiðari greinum þessa þjóðfélags ef marka má endalaus gjaldþrot og eig- endaskipti veitingahúsa. Egill er spurður hvort hann sé ekki óhóflegur bjartsýniskarl. Hann svarar því,„Ég tók mikla áhættu er ég kom til Reykjavíkur, fór úr góðri vinnu og .seldi allt sem ég átti og berst því fyrir lífi mínu. Og ekki var allt sem sýndist. En ég er sjálfur í bókhaldinu og uppvaskinu og reyni að reka þetta eins vel og ég get. Og ég er farinn að sjá glætu, það er engin spuming um það...“ Egill fremstur og starfsfólk hans eins og gæsir í oddaflugi á tröppum Torfunnar... Morgunbiaðið/KGA lengja, að tveimur sólarhringum seinna vorum við loksins búnir að losa jeppann og þá höfðum við sótt til byggða gröfu og 12 hjóla trukk og dugði ekki minna. Jeppinn var m.a. grindarbrotinn eftir hremm- ingarnar,“ sagði ijúpnaskyttan og tók fram að veiðin hefði verið lítil að þessu sinni og raunar hafi þeir allir félagarnir verið með ógeð á skytteríi fyrstu daganna eftir ævin- týrið. Svona lagað verður kannski til þess að menn gæti betur að sér á fjöllum á vetrum. Festurnar verða oft slæmar og það getur kostað ómælda fyrirhöfn og fjármuni að losa farartæki sín á ný,“ sagði okk- ar nafnlausi maður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.