Morgunblaðið - 17.02.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.02.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ét5íl5ÆjÍÍXGt/á 17. FEBRÚAR 1991 23 ur, í Borgarnes, þar sem Árni lézt 13. ágúst 1967 en kona hans tæpu ári seinna eða 4. apríl 1968. Þessa fallegu lýsingu á Áma létu mér í té Sveinn Aðalsteinsson, verzlunar- maður í Kópavogi, og Bjami Bach- mann, kennari í Borgarnesi, og nem- andi Árna í glímu í hádegishléum. Sveinn var mðrg sumur hjá þeim í sveit pg er bróðursonur Sigríðar, konu Áma. 7. Rannveig, f. 15. marz 1898. Rannveig ólst upp á æskuheimili sínu, Hreimsstöðum, fram að ferm- ingu. Hennar starf á heimilinu var að gæta yngri barnanna og snemma lærði hún til verka og að veita hjálp á heimilinu. Hún naut engrar skóla- göngu, en það kom ekki að sök, því hún var bæði bókhneigð og stál- minnug og hafði hið mesta yndi af ljóðum og rímum. Hún menntaði sig sjálf, eftir því sem hún gat og var á ýmiss konar hagnýtum námskeið- um, s.s. í matreiðslu og hannyrðum. Eftir fermingu hóf hún þegar störf hjá vandalausum á ýmsum bæjum í Borgarfirði, s.s. Hamri í Borgar- hreppi og Ferjukoti, sem bæði voru hin mestu myndarheimili. Einkennd- ust störf hennar af trúmennsku og vandvirkni. Var það góður undirbún- ingur fyrir húsfreyjustörfin seinna. Þá var Rannveig vor- og sumartíma hjá foreldrum Guðmundar Jónsson- ar, skólastjóra, á Torfulæk í A- Húnavatnssýslu. Varð þetta mikið vinafólk hennar og endurnýjuðust kynnin við það er Guðmundur flutt- ist að Hvanneyri og varð nágranni hennar. Frá Ferjukoti réðst Rann- veig til Daniels Fjeldsted Teitssonar, f. 10. október 1892, d. 20. júlí 1974, árið 1923, en hann hafði þá hafið búskap það ár að Bárustöðum í Andakíl. Felldu þau hugi saman og giftust 29. júní 1924. Þau eignuðust 2 dætur og 3 syni. Af þeirra bömum er Helgi sonur þeirra látinn. Eftir 19 ára búsetu á Bárustöðum flutti fjölskyldan að Grímarsstöðum í sömu sveit eða árið 1942. Rannveig var ákaflega myndarleg húsmóðir, gestrisin og greiðug og flínk að rækta grænmeti. Hún var hjartahlý og mátti ekkert aumt sjá og dýravin- ur hinn mesti. Hún var skyggn, ber- dreymin og forspá, svo sem hún átti ætt til, en þrátt fyrir, að hún færi fjarskalega dult með slíkt, leit- uðu margir til hennar í þeim efnum. Hjá þeim hjónum lézt Helga móðir hennar þ. 13. febrúar 1956, sem var annáluð þrek- og dugnaðarkona. Rannveig hafði ekki síður sömu eðl- iskosti. Bjuggu þau hjón ein til árs- ins 1947, en þá hóf Teitur sonur þeirra búskap með þeim, en árið 1954 tók hann við jörðinni allri. Rannveig hélt upp á síðasta afmælis- dag sinn með rausn og með þeim ummælum, að þeir yrðu ekki fleiri. Tveimur dögum síðar var hún látin eða 17. mars 1966. 8. Guðbjami, f. 7. maí 1899. Var ráðsmaður í Feijukoti í 9 ár hjá Sig- urði Fjelsted en kaupir Laxholt í Borgarhreppi 1929 að áeggjan Sig- urðar. Hann býr í fyrstu með Helgu systur sinni, en kvænist 8. maí 1933 Sigurlínu Hjálmarsdóttur, f. 21. september 1899, ættaðri úr Aðalvík, frá Glúmsstöðum í Sléttuhreppi. Byijuðu þau búskap á Stað í Borgar- hreppi, sem er nýbýli úr Laxholtsl- andi, en í apríl 1939 fluttu þau á eignaijörð sína, Straumfjörð á Mýr- um. Þau eignuðust son og dóttur. Sonurinn býr í Straumfirði en dóttir- in í Borgarnesi. Sigurlína lézt langt fyrir aldur fram á Kyndilmessu 2. febrúar 1940. Guðbjami bjó áfram í Straumfirði með fjölskyldu sinni að undanteknu árinu 1949/50. Þá dvelur hann á Langárfossi með fjöl- skyldu sinni með Árna bróður sínum og konu hans. Guðbjarni var mjög verkhagur og það sópaði að honum. Hann var hið mesta glæsimenni. Hann bjó með Magnúsi syni sínum í Straumfirði til ársins 1979, en eft- ir þann tíma var hann til lækninga á Ákranesi og deyr þar 22. júní 1980. 9. Helga, f. 3. nóvember 1900. Hún er tekin ung í fóstur að Dals- mynni í Norðurárdal af Vigfúsi bónda Bjarnasyni og konu hans, Þorbjörgu. Fer til Reykjavíkur 1923 að læra hjúkran, sem hún lærir í einn vetur en kemst ekki í fram- haldsnám á Vífílsstöðum, þar sem hún hafði ekki tekið berklasmit. Þá ræðst hún til Ellingsen fjölskyldunn- ar í Reykjavík og starfar þar í 5 ár, og þótti öllum þar mjög vænt um hana. Helga var lítil, dökkhærð og hnellin. Þessar upplýsingar lét mér í té frú Erna Ellingsen hér í borg. Síðan er hún ráðskona hjá Guð- bjarna bróður sínum, er hann kaypir Laxholtið, en árið 1932 er hún mat- ráðskona á Bessastöðum hjá Björg- úlfi Ólafssyni, lækni, og konu hans. Helga var mjög flínk í matreiðslu og bakstri. Þá starfar hún í nokkur ár við Hótel Borgarnes. Síðan fer hún til Keflavíkur og vinnur við mötuneyti. Þar kynnist hún eigin- manni sínum, Haraldi Jónssyni, f. 18. september 1904, d. 24. ágúst 1964, sem ættaður var frá Litla-Bæ í Keflavík, þar sem hann var fædd- ur. Foreldrar hans voru ættuð undan Eyjafjöllum og úr Rangárvallasýslu og áttu þau 9 böm, en Haraldur var 7. í röðinni. Hann var sjómaður alla tíð. Ragnar Guðleifsson í Keflavík lýsir honum svo í minningargrein 1964: „Haraldur var heldur hlé- drægur og barst lítið á, en í vina- hópi var hann hrókur alls fagnaðar og öllum hugljúfur. Betri vinnufé- laga varð ekki á kosið. Fóra þar saman atorka hans og skyldurækni í störfum, svo og einstök prúð- mennska." Þau giftu sig 4. maí 1938 og eignuðust dóttur, sem aðeins lifði í 9 mánuði og son, sem nú býr í Reykjavík, en dóttur hafði Helga eignast áður með Sigurði Sigurðs- syni úr Reykjavík, sem ólst upp hjá þeim hjónum og býr hún í Keflavík. Helga lézt í Keflavík 31. marz 1966. 10. Guðlaugur, f. 16. desember 1901. Dáinn tveggja ára á Hreims- stöðum. (Rangt er nafn hans í Borg- firzkum æviskrám, þar sem hann er nefndur Gunnlaugur.) 11. Þorvaldur, f. 23. maí 1903. Bóndi á Beigalda í Borgarhreppi, kvæntur Margréti Hallgrímsdóttur, f. 15. janúar 1882, (rangt er í dánar- skýrslum frá Hagstofu ísl., að hún sé fædd 15. júní) ættaðri frá Hvammi í Vatnsdal. Seinna bjuggu þau hjón í Reykjavík eða frá 1933. Þau giftu sig 21. maí 1926 og ólu upp son Ingibjargar, systur Þorvald- ar, og Guðrúnu, dóttur Sigurðar, bróður Þorvaldar, frá 10 ára aldri, en vora sjálf barnlaus. Þorvaldur vann að múrverki, lengst af hjá Steinstólpum, eftir að hann flutti til Reykjavíkur, en síðustu árin við benzínafgreiðslu hjá Þrótti á Rauð- arárstíg. Þorvaldur varð bráðkvadd- ur á nýársdag 1962. Margrét lifði bónda sinn og lézt 21. október 1967. Þau voru mjög raungóð og máttu ekkert aumt sjá og vel látin af öll- um, sem þau þekktu. 12. Ingibjörg, fædd 28. október 1904. Ólst að mestu upp á Hofsstöð- um í Hálsasveit hjá frænku sinni, Valgerði Bjarnadóttur, sem var dótt- ur afa hennar af 1. hjónabandi, og eiginmanni hennar, Eyjólfi Gísla- syni, bónda, sem þar bjuggu. Síðar var hún á Beigalda hjá Þorvaldi bróður sínum og konu hans, en 1930 flytzt hún til Reykjavíkur. Hún var mikil skartkona og átti jafnan falleg föt. Þann 10. júní 1938 giftist hún Valdimar Bjömssyni, sjómanni í Reykjavík, f. 5. ágúst 1907, ættuð- um frá Gafli í Villingaholtshreppi í Árnessýslu. Þau eignuðust dóttur, sem býr í Keflavík. Aður hafði Ingi- björg eignast son, sem býr í Reykjavík. Ingibjörg lézt í Reykjavík langt fyrir aldur fram 29. marz 1944. 13. Emil, fæddur 14. júní 1906. Árið 1911 fer hann í fóstur til hjón- anna Elínar Ólafsdóttur og Hallgríms Sigurðssonar, sem þá búa á Hreðavatni, en árið 1914 bregða þau búi og flytja sig yfir að Svartag- ili í sömu sveit. Þá fer Emil að Svein- atungu í sömu sveit til Brynjólfs, móðurbróður síns, sem þar bjó fyrstu 4 árin. Síðan fer hann að Hvammi í Norðurárdal til Sverris Gíslasonar og konu hans, þar sem hann dvelur í 9 ár. Síðan liggur leiðin til Reykjavíkur, þar sem hann vann á búi Thors Jensen í ár. Þá að Mýrar- húsum á Seltjarnarnesi og síðan sem starfsmaður KRON 1940-48. Vann síðan við múrverk. Emil kvæntist 17. maí 1940 Ólafíu Guðrúnu Magn- úsdóttur, f. 10. apríl 1907, skáld- konu, ættaðri frá Skallhóli í Miðdöl- um. Hún lézt 1. nóvember 1948. Þann 14. júní 1965 kvænist Emil systur Ólafar, Guðfinnu Magnús- dóttur, f. 18. september 1904, en hún lézt 18. maí 1971. Bæði hjóna- böndin voru barnlaus, en Emil og Guðfinna ólu upp Ingibjörgu, dóttur Sigurðar, bróður hans. Hjá henni og fjölskyldu hennar hefur Emil dvalizt hin síðari ár, en flutti árið 1988, um haustið, á Hrafnistu að eigin ósk. 14. María, f. 25. júní 1908. Alin . upp í Klettstíu í Norðurárdal frá fjögurra ára aldri. Fyrst af hjónun- um Sigurborgu Sigurðardóttur og Jóhannesi Jónssyni, bónda, er þá bjuggu þar. Seinna af Jóni, syni þeirra hjóna, og konu hans, Sæunni Klemenzdóttur, en hún var systir húsfreyjunnar í Króki, Arndísar Klemenzdóttur. Hjá þessu góða fólki átti María athvarf í tæplega 30 ár, en þá flytur hún til Reykjavíkur, skömmu eftir 1940, og vinnur við hússtörf og þrif á opinberum stofn- unum. Fékk hún hvarvetna gott orð fyrir trúmennsku og vandvirkni í störfum sínum. Þann 1. desember 1956 giftist María Magnúsi Þorláks- syni, símaverði, f. 7. nóvember 1895, ættuðum frá Brokey á Breiðafirði, sem lengi starfaði hjá Landssíma íslands. Bjuggu þau hjón í Meðal- holti 2 hér í borg. Mann sinn missti María 4. júní 1965. Þau voru barn- laus. Nokkurn tíma bjó hún áfram í íbúð sinni, unz hún flutti á Dvalar- heimili aldraðra í Borgarnesi, þar sem hún lézt 6. ágúst 1988. Klem- enz Jónsson, leikari, frá Klettstíu, ritaði fallega minningargrein um Maríu í Morgunblaðið 8. september 1988. 15. Leifur, f. 2. júní 1909. Ungur fór hann í fóstur til Einars, móður- bróður síns, að Skarðshömrum og Oddnýjar, konu hans. Þar ólst hann upp og átti heimili sitt alla tíð síðan. Áslaug Eiríksdóttir, nágranni hans frá Glitsstöðum í Norðurárdal, sem er næsti bær við Skarðshamra, skríf- aði fallega minningargrein um Leif í Morgunblaðið 7. nóvember 1984, en Leifur lézt 20. september 1984 á Akranesi, þar sem hún lýsir Leifi á eftirfarandi hátt: „Hollur granni er gulli betri. Hann (Leifur) var sami aufúsugesturinn, hvort heldur hann kom til þess að rétta fram vinnufúsa hjálparhönd eða til að lífga upp á tilverana með spjalli. Hann var traustur, góðviljaður og hógvær drengskaparmaður. Hann kom sér vel og eignaðist vini, hvar sem hann kom. En lífið var stundum erfitt. Heilsan ekki sterk. Oft þurfti hann að fara á sjúkrahús til aðgerða. Síðustu árin vora þó erfiðust allra, og hann var áreiðanlega hvíldinni feginn, þegar kallið kom.“ Eftir lát móðurbróður síns og konu hans átti Leifur heimili sitt með börnum þeirra, þeim Árna og Laufeyju, sem nú era látin og Jóhannesi, sem dvel- ur nú á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Hann var ókvæntur og barnlaus. 16. Sigurður, fæddur 29. apríl 1913. Hann var alinn upp á Bekans- stöðum í Skilmannahreppi. Var lengi starfsmaður JL hér í borg. Hann kvæntist Ágústu Sumarliðadóttur, ættaðri frá Stykkishólmi, þ. 29. nóv- ember 1939, en þau skildu seinna. Þau eignuðust 2 syni og 4 dætur. Sigurður dvelur nú á Valshamri í Álftaneshreppi hjá dóttur sinni, Sveinfríði, og eiginmanni hennar, Helga Hálfdánarsyni, bónda. Það, sem hér er skráð, er í sumum atriðum ósamhljóða Borgfirzkum æviskrám, og telst það, sem frá- brugðið er, leiðrétting á því, sem þar hefur verið skráð um þessa fjöl- skyldu. Börn hennar voru öll meira og minna dulræn og a.m.k. 3-4 þeirra vissu lengra en nef þeirra náði, ef svo má að orði komast. Það sýnir, að enn lifa forspáir með þjóð vorri. Hitt er ekki síður merkilegt, að börn hennar verða öll nýtir þegn- ar þjóðfélagsins vegna eigin dugnað- ar og vinnusemi. Ég þakka öllum niðjum barna þessara sem aðstoð- uðu, svo og öllum öðrum, skyldum sem óskyldum, kærlega fyrir upplýs- ingar þeirra, sem komu að góðu gagni. Elín Karitas Thorarensen skór NYKOMNIR Teg. 9463/4 Litur: Svart leður Stærðir: 36-47 Verð kr. 4.995,- Ecco-skðr gæðanna vegna Laugavegi41, sími 13570 C-Moll messa með Berlinar Filharmonian, stjórnandi Herbert von Karajan. Mozart samdi messuna 1782 ári áður en hann giftist Constanze Weber. Faáir hans réðst á móti giftingunni á óvissutímum á ferli Mozarts. Mozart lofaái sjálfum sér ef hann fengi Constanze myndi hann semja stórmessu sem frumflutt yrbi í Salzburg er hann kynnti frúnna fyrir fjölskyldunni og Constanze ætti a& syngja í Messunni. "Fegurð og innileiki Karajans útgáfunnar á C-Moll messunni miklu er einstök." *** Penguin Guide to Compact Discs *M U S I K Sígild vers/un - Vaxandi úrvai! ~hT]Tai Tiöluv e r sl'un Laugavegi 24 sími 18670 Skálholt — Kirkjur er gullfalleg bók, kjörgripur um sögu og glæsileik Skálholtsstaðar, hins forna höfuðstaðar. Þessa bók má enginn unnandi listar og menningar láta fram hjá sér fara. Hún er í stóru broti, 302 bls., prýdd 300 myndum og teikningum sem einstæðar þykja. Höfúndurinn, Hörður Ágústsson, hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin 1990*, sem forseti Islands afhenti 10. janúar 1991. Hörður er meðal helstu listmálara okkar og landsþekktur fræðimaður um íslenska byggingarsögu. 'í flokki fræðirita. HIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉLAG SÍÐUMÚLA 21 SÍMI 67 90 60 Sendum ípóstkröfu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.