Morgunblaðið - 08.03.1991, Qupperneq 25
1~
táÖIÍGWÖÍAЮ! FÖST t'ÖAÖ u'á' Á/ ti'kM'
jÉá
Rætt um kon-
ur og Evrópu-
bandalagið
SAMTOK kvenna á vinnumark-
aði efna laugardaginn 9. mars
til fundar á Hótel Borg kl. 14.
Fundurinn er haldinn í tilefni af
8. mars, alþjóðlegnm baráttudegi
verkakvenna, og er helgaður
konum og Evrópubandalaginu
og/eða evrópska efnahagssvæð-
inu. I því skyni hafa samtökin
boðið hingað til lands gesti frá
Noregi.
Myrthel Grödem ræðir á fundin-
um stöðu kvenna innan Evrópu-
bandalagsins og innan evrópsks
efnahagssvæðis. Ennfremur bar-
áttu gegn Evrópubandalaginu í
Noregi. Myrthel er formaður
kvennadeildar norsku samtakanna
Nei til EF og varaformaður Sam-
taka norskra bændakvenna. Þýð-
ingu annast Ingibjörg Hafstað. Sig-
ríður Kristinsdóttir, formaður
Starfsmannafélags ríkisstofnana,
ræðir stöðu íslenskra kvenna á
vinnumarkaði gagnvart evrópskum
efnahagssamruna. Frumflutt verð-
ur ljóð og lag Stellu Hauksdóttur:
Palestína. Kynnir: Birna Þórðar-
dóttir.
-----M-»------
173
174
Líkamsárásir og rán í Reykjavík 1989 og 1990
Á árunum 1989 og 1990 voru kærðar 850 líkamsárásir í Reykjavík, 400 árið 1989 og 450 á árinu1990.
Á sama tímabili voru kærð 33 rán, 21 árið 1989 og 12 árið 1990.
Leiðrétting
í frétt í gær um skýrslu Landssam-
taka heimavinnandi fólks er sagt
að fólk með þrjú börn í óvígðri sam-
búð hafí 50% meira fé til ráðstöfun-
ar en hjón með þrjú börn. Þarna
átti að standa fólk í óskráðri sam-
búð en ekki óvígðri sambúð.
Ofbeldisverk í Reykjavlk:
♦ ♦ ♦
■ KVENLEG vistfræði, eco-
feminismi. Sigrún Helgadóttir
vistfræðingur er gestur í Laugar-
dagskaffi Kvennalistans, laugar-
daginn 3. mars kl. 11.00 að Lauga-
vegi 17, 2. hæð. Kvenleg vistfræði
er samþætting á sjónarmiðum vist-
fræði eða umhverfisfræði annars
vegar og kvenfrelsis hins vegar,
segir í fréttatiíkynningu.
Langflestar árásir framd-
ar að næturlagi um helgar
LANGFLESTAR líkamsárásir
sem kærðar eru í Reykjavík eru
framdar að næturlagi um helgar.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
7. marz
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verS verft verft (lestir) verð (kr.)
Þorskur (ósl.) 105,00 71,00 96,65 28,192 2.724.836
Þorskur (sl.) 99,00 73,00 96,10 8,115 779.850
Ýsa (ósl.) 112,00 78,00 98,93 1,405 138.992
Ýsa (sl.) 137,00 92,00 100,05 9,818 982.279
Blandað 86,00 5,00 32,71 0,281 9.224
Gellur 325,00 305,00 310,45 0,074 23.252
Hrogn 260,00 50,00 54,19 2,589 140.285
Karfi 44,00 39,00 40,78 80,464 3.281.498
Keila 40,00 31,00 39,42 0,594 23.418
Kinnar 160,00 160,00 160,00 0,020 3.280
Langa 67,00 54,00 64,35 1,998 128.625
Lúða 560,00 325,00 401,36 0,217 87.095
Skarkoli 53,00 53,00 53,00 0,321 17.013
Skötuselur 200,00 200,00 200,00 0,004 800
Steinbítur 39,00 32,00 34,80 3,670 127.706
Ufsi 51,00 43,00 48,18 54,301 2.616.250
Ufsi (ósl.) 45,00 45,00 43,00 1,354 60.930
Undirmál 75,00 59,00 70,42 1,904 134.073
Samtals 57,75 195,325 11.279.410
lætur nærri að 8 af hverjum 10
kærðum árásum eigi sér stað á
þeim tímum. Flestar árásir eiga
sér stað inni á heimilum eða á
skemmtistöðum, og að sögn lög-
reglu er oftar en ekki um að það
að ræða að orðahnippingar og
deilur manna á milli magnast
stig af stigi uns hendur eru látn-
ar skipta. Sem dæmi um hve al-
gengt er að ásásir tengist
skenuntistöðum nefndi Ómar að
í Mulahverfi í Reykjavík, þar sem
íbúar eru mjög fáir en skemmti-
og vínveitingastaðir margir,
væru að jafnaði framdar fleiri
árásir en í nokkru öðru hverfi
borgarinnar ef miðborgin er
undanskilin. Kortið sýnir hvern-
ig kærðar árásir skiptast á hverfi
borgarinnar og þeirra nágranna-
byggðarlaga, sem tilheyra lög-
sagnarumdæmi lögreglunnar í
Reykjavík.
Ekki liggur fyrir nákvæm flokk-
un hve margar hinna kærðu árása
eiga sér stað á götum úti, með þeim
hætti að fyrirvaralaust er ráðist að
ókununu fólki enda miðast flokkun-
in við það gegn hvaða ákvæði hegn-
ingarlaganna er brotið en ekki við
afleiðingar eða aðdraganda verkn-
aðarins. Þó virðist sem að jafnaði
séu 3-4 árásir famdar í hveijum
mánuði þar sem umtalsvert heilsu-
tjón hlýst af.
Fjögur rán hafa verið kærð í
Reykjavík það sem af er árinu, allt
árið 1990 voru þau 12 en 21 kæra
vegna ráns barst 1989. Að sögn
Ómars Smára Ármannssonar virð-
ist sem mjög geti slegið á fjölda
ránstilfella við það eitt að ákveðnir
síbrotamenn séu að afplána refsi-
dóma sína.
Olíuverö á Rotterdam-markaöi, síðustu tíu vikur,
26. des. - 6. mars, doilarar hvert tonn
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
1. mars 1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 11.819
'h hjónalífeyrir 10.637
Full tekjutrygging 21.746
Heimilisuppbót 7.392
Sérstök heimilisuppbót 5.084
Barnalífeyrir v/1 barns 7.239
Meðlag v/1 barns 7.239
Mæðralaun/feðralaun v/ 1 barns 4.536
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna 11.886
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri 21.081
Ekkjubætur/ekkilsbætur6mánaða 14.809
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða 11.104
Fullur ekkjulífeyrir 11.819
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa) 14.809
Fæðingarstyrkur 24.053
Vasapeningarvistmanna 7.287
Vasapeningarv/sjúkratrygginga 6.124 Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar 1,008,00
Sjúkradagpeningareinstaklings 504,40
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri .. 136,90
Slysadagpeningareinstaklings 638,20
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ... 136,90
Áttræður
maður á
gangi í f imm
tíma á Skeið-
arársandi
RÚMLEGA áttræður maður,
Jón Bjarnason frá Hörgsdal á
Síðu, þurfti að ganga um 25-30
kílómetra leið á Skeiðarárs-
andi á miðvikudagskvöldið
þegar bíll hans bilaði. Jóni varð
ekki meint af þessari miklu
göngu enda alvanur göngu-
garpur.
Að sögn Einars Andréssonar,
bónda að Hruna á Brunasandi,
en Jón dvelur hjá honum, ætlaði
Jón að skjótast niður á Skeiðarár-
sand, í og með til að athuga hvort
Skeiðará hefði breytt sér mikið
að undanförnu. Þegar hann kom
að skýlinu á Skeiðarársandi
blotnaði rafkerfið í bíl hans og
kom hann honum ekki í gang.
Jón brá þá á það ráð að ganga
til byggða en þangað eru um
25-30 kílómetrar. Hið besta veður
var þegar þetta gerðist og gekk
Jón, sem er 84 ára gamall, í fimm
klukkustundir. Björgunarsveitin
á Kirkjubæjarklaustri mætti hon-
um um miðnætti þar sem hann
var á leið til síns heima. Bílinn
höfðu menn fundið mannlausan
nokkru áður.
Einar sagði að Jón væri alvan-
ur að fara í dagsferðir á jeppan-
um sínum. Þetta væni svona eins
og bíóferðir hjá öðrum. „Hann fer
oft í stuttar ferðir og því hafði
ég ekki áhyggjur fyrr en undir
myrkur. Jóni varð ekkert meint
af þessari göngu og er hinn hress-
asti og hann er að sækja bílinn
núna,“ sagði Einar í gær.