Morgunblaðið - 08.03.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1991
19
Orðaþing haldið á morgun
ÍSLENSK málnefnd og menntamálaráðuneytið hafa ákveðið að halda
málþing laugardaginn 9. mars nk. með orðanefndum og öðrum sem
hafa áhuga á íðorðastarfsemi. Markmið málþingsins er að koma á
framfæri upplýsingum um það sem menntamálaráðuneytið og ís-
lensk málnefnd hafa gert og hyggjast gera til þess að efla íðorða-
starfsemi í landinu. Einnig gefst fólki kostur á að skiptast á skoðun-
um og skýra frá reynslu sinni af íðorðastarfi. Málþingið verður
haldið í Borgartúni 6, kl. 10-16.
Fundarstjóri, Kristján Árnason
formaður Islenskrar málnefndar,
setur þingið. Síðan ávarpar mennta-
málaráðherra, Svavar Gestsson,
fundarmenn. Baldur Jónsson pró-
fessor kynnir síðan Islenska mál-
nefnd og starfsemi íslenskrar mál-
stöðvar. Einar B. Pálsson prófessor
greinir frá íðorðastarfsemi í Há-
skóla íslands. Síðan verða kynntar
tillögur menntamálaráðuneytis og
Islenskrar málnefndar um tilhögun
íðorðastarfsemi í landinu. í hádegis-
hléi verður boðinn léttur málsverður
og fá gestir þá tækifæri til þess
að ræða saman.
Að loknu hádegishléi fjallar Jón
Hilmar Jónsson orðabókarritstjóri
um íðorð, nýyrði og orðabækur.
Síðan verður sagt frá leiðbeininga-
riti íslenskrar málnefndar fyrir
orðanefndir. Leiðbeiningarnar
skiptast í þijá þætti: íðorðafræði,
orðmyndun og lýsingu á tölvukerfi
fyrir úrvinnslu orðasafna. Þá verður
starf nokkurra orðanefnda kynnt.
Jónína M. Guðnadóttir greinir frá
vinnu við Flugorðasafn, Snjólfur
Olafsson talar um undirbúning
Orðasafns úr tölfræði og Finnbogi
Eyjólfsson segir frá störfum
Bílorðanefndar.
Síðan setja þýðendur fram sjón-
armið sín. Sigríður Harðardóttir og
Dóra Hafsteinsdóttir, ritstjórar ís-
lensku alfræðiorðabókarinnar,
greina frá vinnu við hana með til-
liti til notkunar íðorða. Jóhanna
Þráinsdóttir sjónvarpsþýðandi talar
um það að koma íðorðum á markað
og Aldís Guðmundsdóttir, þýðandi
við EB-verkefni Orðabókar Háskól-
ans, ræðir um samræmingu orða-
forða í risavöxnu þýðingarverkefni.
Að lokum verða umræður.
Menntamálaráðherra býður léttar
veitingar í lok ráðstefnunnar stuttu
fyrir kl. 16.
(Fréttatilkynning)
Yeðrið:
Hlýtt, hvasst og vot-
viðrasamt í febrúar
HLYTT, hvasst og votviðrasamt var í febrúarmánuði. Meðalhitinn
í Reykjavík var 1,8 gráðu yfir meðallagi og mánuðurinn var sá
hlýjasti frá árinu 1975. Urkoma var 170 millimetrar og hefur
ekki mælst meiri síðan 1953. Hvassviðri voru tíð og fárviðri gekk
yfir landið í byrjun febrúar.
Edda Jónsdóttir
Sýningu Eddu Jóns-
dóttur lýkur um hclgina
SÝNINGU Eddu Jónsdóttur í verkum höfundar ásamt skrá um
Norræna húsinu lýkur nú um sýningarferil. Ljóð eftir Njörð P.
helgina. Njarðvík er í formála. Sýningin
Sýningin ber heitið Þagnarmál er opin daglega frá kl. 14-19 til
og samanstendur af 47 vatnslita- 10. mars.
verkum. Sýningunni fylgir vönduð (Fréttatiikynning)
sýningarskrá með litmyndum af
Opið hús á 75 ára afmæli ASÍ
ALÞÝÐUSAMBAND Islands verður 75 ára þriðjudaginn 12. mars. I
tilefni þess verður opið hús hjá ASI sunnudaginn 10. mars og gefst
þá gestum og gangandi tækifæri til að kynna sér starfsemi stærstu
samtaka launafólks.
í Reykjavík var meðalhitinn í
febrúar 2,2 gráður sem er 1,8
gráðu yfir meðallagi og hefur
ekki mælst meiri síðan árið 1975
en þá var hann 2,9 gráður. Úr-
koma í Reykjavík var 170 milli-
metrar og er það meira en tvöföld
meðalúrkoma og það mesta frá
árinu 1953, en þá var úrkoman í
febrúar 174 millimetrar.
Meðalhitinn á Akureyri var um
frostmark sem er 1,5 gráðu hlýrra
en í meðalári. Hlýrra var á Akur-
eyri árin 1982 til 1984. Úrkoma
á Akureyri mældist 50 millimetrar
sem er heldur meira en í meðalári.
Á Hveravöllum var að meðatali
3,9 gráðu frost og úrkoma þar
mældist 85 millimetrar.
Sólin skein í 61 klukkustund í
Reykjavík í febrúar, eða níu
stundum skemur en í meðalári. Á
Akureyri voru sólskinsstundir 50
og 77 á Hveravöllum.
Fyrri hluta febrúar voru mikil
hlýindi og mikil úrkoma sunnan-
lands. Hvassvirði voru tíð og fár-
viðri gekk yfir landið sunnudaginn
3.. febrúar. Síðari hluti mánaðar-
ins var kaldari en sá fyrri.
Lúðrasveit verkalýðsins tekur á
móti fólki á Grensásvegi. Síðan er
hægt að skoða skrifstofu ASI,
Menningar- og fræðslusambands
alþýðu og Listasafn ASI. Húsið
verður öllum opið milli klukkan 14
og 18.
í húsakynnum ASÍ verður komið
fyrir margs konar fróðleik um sögu
og starfsemi verkalýðshreyfingar-
innar í landinu í formi bæklinga og
skýringarmynda og afmælisblað
Vinnunnar verður afhent. Hjá
Menningar- og fræðslusambandi
alþýðu gefst fólki kostur á að skoða
gömul gögn sem tengjast sögu
verkalýðshreyfingarinnar og stofn-
un ASÍ. í Listasafninu verður boðið
upp á kaffi og meðlæti en þar stend-
ur nú yfir farandsýning á grafík-
verkum eftir íslenska listamenn og
verður sýningin síðan send út á
land undir kjörorðunum List um
landið. Mörg verkalýðsfélög innan
ASI munu einnig hafa opið hús í
tilefni afmælisins.
ÞJODLEIKHUSIÐ
GAUTUR
eftir Henrik Ibsen.
Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson.
Leikgerð: Þórhildur Þorleifsdóttir og Sigurjón Jóhannsson.
Þýðing: Einar Benediktsson.
Leikstjórn: Þórhildur Þorleifsdóttir.
Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson.
Lýsing: Páll Ragnarsson.
Sýningarstjórn: Kristín Hauksdóttir.
Aðstoðarleikstjóri: Sigríður Margrét Guðmundsdóttir.
Leikarar: Arnar Jónsson (Pétur Gautur), Ingvar E.
Sigurðsson (PéturGautur), Kristbjörg Kjeld (Ása), Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir (Sólveig).
Árni Tryggvason, Baltasar Kormákur, Bríet Héðinsdóttir,
Bryndís Pétursdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Edda
Björgvinsdóttir, Herdís Þorvaldsdóttir, Hilmar Jónsson,
Jóhann Sigurðarson, Jón Símon Gunnarsson, Lilja Guðrún
Þorvaldsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson,
Randver Þorláksson, Rúrik Haraldsson, Sigríður
Þorvaldsdóttir, SigurðurSigurjónsson, Sigurþór A.
Heimisson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Valdimar Lárusson og
Örn Árnason.
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, Frosti Friðriksson, Guðrún
Ingimarsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Hany Hadaya,
Ingunn Sigurðardóttir, Páll Ásgeir Davíðsson, Sigurjón
Gunnsteinsson, ÞorleifurM. Magnússon.
Elín Þorsteinsdóttir, Katrín Þórarinsdóttir, Oddný
Arnarsdóttir, Ólafur Egilsson, Ragnar Arnarsson, Þorleifur
Órn Arnarsson.
Sýningar á stóra sviðinu kl. 20.00:
Lau. 23. mars frumsýning, su. 24.3., fi. 28.3. (skírdagur),
má. 1.4. (annarí páskum), lau. 6.4., su. 7.4., su. 14.4., fö.
4 9.4., su. 21.4., fö. 26.4., su. 28.4.
Miðasala opin í miðasölu Þjóðleikhússins við Hverfisgötu alla daga
nema mánudaga kl. 13-18 og sýningardaga fram að sýningu.
Miðapantanir einnig í sima alla virka daga frá kl. 10-12.
Miðasölusími: 11200.