Morgunblaðið - 08.03.1991, Side 22

Morgunblaðið - 08.03.1991, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1991 fltffrgmiftliifeffe Útgefandi Framkváemdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 100 kr. eintakið. Ohugur vegna ofbeldís Ohugur hefur gripið um sig með- al margra vegna þess að of: sverkum fjölgar í Reykjavík. í Morgunblaðinu síðastliðinn þriðjudag mátti lesa þijár fyrirsagnir í sama dálkinum: Hús við Stigahlíð skemmd- ist í eldi: Ikveikja líkleg; Ráðist var á mann og hann rændur veski; Hettu- klæddir rændu 10 þúsund kr. úrsölu- tumi. Á baksíðu blaðsins er síðan sagt frá því að maður hafi fundist látinn í miðbæ Reykjavíkur og óljóst sé hvort um slys eða manndráp hafi venð að ræða. í sjónvarpi var nýlega rætt við fíkniefnalögreglumann sem lýsti of- beldinu sem tengdist fíkniefnaneyslu hér. Er greinilegt af þeirri Iýsingu, að við þurfum ekki að lesa gögn frá lögreglu erlendis til að kynnast grimmd og óhugnaði. Almennt má segja, að íslendingar hafi verið tregir til að horfast í augu við þá staðreynd, að þeir verða eins og aðrir að grípa til róttækra ráðstaf- ana gegn ofbeldi. Þar skiptir mestu að finna undirrótina, skilgreina vand- ann rétt og ráðast síðan gegn honum. Frá Bandaríkjunum berast oft mik- il ótíðindi um morð, rán og hvers kyns voðaverk. Fyrir utan herta lög- gæslu hafa stjórnvöld beitt sér fyrir miklu átaki gegn fíkniefnaneyslu. Virðist það hafa borið góðan árang- ur. Tölur sýna ekki aðeins samdrátt í neyslu þeirra fíkniefna, sem al- mennt eru tengd ofbeldisverkum í huga okkar, heldur einnig áfengis og tóbaks. Við sjáum það af fréttum frá ná- grönnum okkar í Grænlandi hvílíka ógæfu áfengisbölið hefur fært þeim og brýst hún meðal annars fram í auknu ofbeldi. í fyrra voru 23 morð framin í Grænlandi, tíu fleiri en árið 1989, þá voru gerðar 36 tilraunir til manndráps þar miðað við 27 árið 1989. íslenska þjóðfélagið hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og er enn í örri þróun. Sumir horfa með söknuði til liðinna daga en þeir þurfa að átta sig á því eins og allir aðrir, að þeir koma ekki aft- ur. Við leysum ekki vanda líðandi stundar með því að líta einungis með söknuði til baka. Rétt er að minnast þess, að hér eru það ekki aðeins fíkni- efni heldur einnig áfengið sem leiðir til þjófnaðar, rána og annarra voða- og skemmdarverka. Er ástæða til að velta því fyrir sér hvort ríkið hefur meiri tekjur eða útgjöld af sölu áfeng- is. Ef litið er á mannlega þáttinn og áhrifín á samfélagið allt, þarf enginn skynsamur maður að efast um skað- semi áfengis. Á baksíðu Morgunblaðsins í gær er skýrt frá því, að kærum til lögregl- unnar vegna líkamsárása ljölgi jafnt og þétt. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í forvarna- deild lögreglunnar í Reykjavík, segir í blaðinu, að lögreglan hafí bent á hættu á að ofbeldisverkum færi fjölg- andi eftir því sem vínveitingahúsum fjölgaði, auk þess sem áður hafi ver- ið rætt um aukna ofbeldishneigð í þjóðfélaginu og leitt getum að tengsl- um milli hennar og ofbeldis í kvik- myndum og sjónvarpi. Loks hafí of- beldisglæpum farið fjölgandi víðast hvar á Vesturlöndum. Þessar tilgátur eiga fullan rétt á sér. Fullyrðingin um fjölgun ofbeldis- glæpa á Vesturlöndum er ekki einhlít, því að hvergi hefur slíkum glæpum líklega fjölgað meira undanfarið en í þeim löndum sem eru að losna úr fjötrum marxismans eða eru ekki alveg laus úr þeim eins og Sovétrík- in. Glæpagengi vaða til dæmis uppi í sovéskum borgum. Hinn almenni borgari staldrar ekki aðeins við undir- rótina heldur spyr hann einnig, hvort fé skattgreiðenda til löggæslu og eft- irlits á þeim stöðum, þar sem mestar líkur eru á ofbeldi sé rétt varið. Felst ekki forvörnin einnig því að löggæsla sé góð? Davíð Oddsson borgarstjóri hefur í umræðum um þessi mál varp- að fram hugmyndum um að borgar- stjórn tæki aftur að sér yfírstjórn Iögreglumála í höfuðborginni. Um alla þessa þætti er nauðsyn- legt að ræða í mikilli alvöru vilji menn í raun leita leiða til að stemma stigu við ofbeldisverkum. Afnám kvótakerfis A fstaða Sjálfstæðisflokksins til fiskveiðistjómunar verður væntanlega eitt helzta umræðuefni á landsfundi flokksins, sem hófst í gær. í stórum dráttum má segja, að uppi séu þijár meginhugmyndir um þetta efni. I fyrsta lagi kvótakerfíð í sinni núverandi mynd. í öðru lagi hugmyndir um að endurgjald komi fyrir réttinn til þess að nýta fiskimið- in og hefur Morgunblaðið tekið undir þau sjónarmið. í þriðja lagi hugmynd- ir um sóknarstýringu, sem fram koma í þingsályktunartillögu fimmtán al- þingismanna. Talsmenn þessara þriggja megin- hugmynda er að finna á vettvangi Sjálfstæðisflokksins. í drögum þeim að ályktun um sjávarútvegsmál, sem lögð hafa verið fyrir landsfundinn er að finna vísbendingu um, að talsmenn kvótakerfís vilji koma til móts við gagnrýnendur þess. Þar segir: „Fijáls verzlun með veiðiheimildir verði tak- mörkuð þannig, að einungis opin hlutafélög geti aflað sér veiðiheimilda umfram ákveðið hlutfall af heildar- afla landsmanna." Þetta verður ekki skilið á annan veg en þann, að höf- undar þessara draga að ályktun telji nauðsynlegt að koma til móts við þá, sem telja óhæfu, að fískimiðin verði afhent fámennum hópi útgerðar- manna til eignar. Þetta er lítið skref en alla vega fyrsta skref. Morgunblaðið hefur hvatt and- stæðinga kvótakerfísins, sem skiptast í áðurnefnda tvo hópa, til þess að ná samstöðu og efla þannig baráttu gegn kvótakerfinu. Undir það sjónar- mið er tekið af einum þingmanna Sjálfstæðisflokksins í grein í Morgun- blaðinu í gær. Nú er það landsfundarins að taka af skarið, undirstrika eignarrétt þjóð- arinnar allrar að fiskimiðunum og leita á þeim grundvelli samkomulags um raunhæft endurgjald útgerðar- innar fyrir afnot af auðlindinni. Slegið á létta strengi við upphaf landsfundar Sjálfstæðisflokksins. Frá vinstri eru Davíð Oddsson, Ástrí son, Ingibjörg Rafnar, Ragnhildur Helgadóttir og Friðrik Sophusson. Málefnasigrar okkai nýjar aðstæður í stjt - sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflc HÉR fer á eftir kafli úr ræðu þeirri, sem Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisfiokksins, flutti við setningu landsfundar flokksins í gær: Ég hygg að við höfum enn á ný sýnt í undirbúningi þessa fundar að Sjálfstæðisflokkurinn er sá vettvang- ur sem getur sameinað ólíka hags- muni. Hugsjón okkar byggist ekki á uppskriftum að einföldum lausnum. Hún felur í sér umburðarlyndi er leiðir menn í sameiginlegri niður- stöðu fram á veginn. Hvarvetna blasa við heillandi við- fangsefni og möguleikarnir eru óþijótandi. Ungt fólk hefur á margan hátt aðra lífssýn en viðgengist hefur í íslensku þjóðfélagi og þessa sjást víða merki. Góð menntun þykir sjálf- sögð, karlar og konur starfa hlið við hlið á heimilunum ekki síður en á vinnumarkaðinum. Stundimar með fjölskyldunni era dýrmætar, frí- stundir vel nýttar og fast er gengið eftir framlagi samfélagsins, ekki síst góðum dagheimilum og skólum. Nýj- ar áherslur eru settar á oddinn. Ábyrgð á eigin lífí, andleg verðmæti og virðing fyrir umhverfinu. Og orð- ið lífsgæði er að fá nýja merkingu. Gæði lífsins eru fjölskyldulíf, mennt- un, menning, ferðalög og hreint umhverfi og góð heilsa. Þessar áherslur er hægt að setja á oddinn af því við erum orðin bjarg- álna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur að mestu lagt grunn að þeirri skipan mála sem er í íslensku þjóðfélagi í dag. Leiðarljós flokksins hefur jafnan verið velferð og heill þjóðarinnar allr- ar og vegna eðlis hans og sögu mun hann einnig marka dýpst spor á þeirri leið sem framundan er. En ný lífssýn og ný tækifæri eru nú ekki lengur forréttindi æskufólks. Lengri lífaldur og betri heilsa eldra fólks gerir það að verkum að þetta fólk lætur í vaxandi mæli áð sér kveða og það mun aukast mjög á næstu áram. Það er mjög dýrmætt fyrir samfélagið að njóta krafta þessa fólks sem býr að reynslu langr- ar ævi. Stöndum um margt á vegamótum Mér finnst því sem við sjálfstæðis- menn stöndum um margt á vegamót- um um þessar mundir. Við þurfum að taka tillit til mikilla breytinga og umskipta. Þetta á við hvort sem við lítum okkur nær eða fjær. Við höfum náð nýjum áfanga í flokksstarfi. Við skynjum umbrot í íslensku atvinn- ulífí og þjóðlífi og fylgjumst með straumhvörfum í samskiptum þjóða. Þau umskipti eru mest um verð sem leitt hafa til falls sósíalismans. Mér þykir sjálfum vænt um lítið brot sem ég á úr Berlínarmúmum. Það minnir á sigur frelsis, lýðræðis og mannréttinda yfir ógnarstjóm og al- ræði sósíalískrar hugsjónar. Þannig hafa jafnvel múrbrotin fengið nýtt gildi. Þjóðir Mið-Evrópu sem áður voru austan Járntjaldsins hafa öðlast frelsi og stíga nú fyrstu skrefin á braut lýðræðis. Og forystumenn þeirra eru staðráðnir í að byggja upp efnahags- og atvinnulíf að vestræn- um hætti. Enn aðrar þjóðir knýja á um að endurheimta frelsi sitt. Við íslend- ingar getum verið stoltir af því að hafa stutt við bakið á Eystrasalts- þjóðunum og gengið þar feti framar en ýmsir aðrir, og getum nú þegar merkt að staðfesta okkar og ákveðni er að skila árangri. Við getum verið hreyknir af því, sjálfstæðismenn, að hafa átt frumkvæðið að því að leiða íslensku þjóðina til samstöðu um þær aðgerðir. Það er eðli breiðfylkingar af því tagi sem Sjálfstæðisflokkurinn er að þar takast á ólík öfl. í slíkum átökum er fólgið afl framfaranna. En þar á ofan höfum við um of langan tíma glímt við margvíslegan innri vanda, sem við þekkjum öll, og ég ætla ekki að rekja hér. Það hef ég gert áður og nú heyrir sá kafli sögunni til. En einmitt þessi umskipti í innra starfi flokksins gefa okkur tækifæri til þess að takast á við ný viðfangs- efni með styrk og samstöðu þar sem stefnan og hugsjónin er bakhjarlinn. Vissulega stöndum við hér á tíma- mótum. En úrlausnir okkar á nýjum verkefnum og nýjum viðfangsefnum byggjast enn á sömu traustu og ein- földu grundvallarhugmyndunum. Sjálfstæðisstefnunni var í upphafi Iýst sem þjóðlegri umbótastefnu er byggðist á athafnafrelsi og einstakl- ingsfrelsi þar sem stétt stæði með stétt. Við heyrum andstæðingana stund- um segja í niðrandi merkingu að Sjálfstæðisflokkurinn sé bara samtök ólíkra hagsmuna. En við vitum að hann hefur frá upphafí verið annað og meira. Þjóðernið og menningin eru samofin sjálfstæðisstefnunni eins og viljínn til þess að tryggja velferð allra og strengja öryggisnet í þágu þeirra sem höllum fæti standa hvetju sinni. Varðstaðan um þjóðleg réttindi og öryggi landsins hefur verið sjálf- stæðismönnum í blóð borin. Fyrir þá sök byggist stefnan og framkvæmd hennar á víðsýni en ekki þröngsýni. Hún krefst umburðarlyndis, ekki valdbeitingar. Það felst í sjálfstæðisstefnunni að við viljum leggja rækt við orðheldni og trúnað. Lýðræðisþjóðfélag bygg- ist ekki á einhliða tilskipunum þeirra sem til forystu hafa verið valdir. Það byggist á gagnkvæmu trúnaðarsam- bandi milli stjómmálamanna og fólksins í landinu. Það er að því leyti háð sömu lögmálum og sjáift hjóna- bandið. Án gagnkvæmrar tillitssemi er enginn trúnaður. Þetta er undirstaðan sem nýir tímar breyta ekki og engar nýjar aðstæður kollvarpa. Og þessi undir- staða má ekki gleymast á vegamót- um. Okkur ber því öllu fremur nú en fyrr að gæta að sjálfri sálinni í sjálfstæðisstefnunni. 60 ára saga - mikilvægir áfangasigrar Rúmlega 60 ára saga er vörðuð mikilvægum áfangasigrum. í önd- verðu stóðu hörð átök um eignarrétt- inn og atvinnufrelsið. í raun réttri var það varnarbarátta gegn hug- myndum um ríkisrekstur og afnám einstaklingseignarréttar. Og vörnin brást ekki. Auðna Sjálfstæðisflokksins var sú að forystumenn hans báru gæfu til að fylgja eftir hugsjóninni um sam- vinnu stéttanna með aðild að vinnu- löggjöf og uppbyggingu almanna- trygginga í landinu. Samtímis treystu sjálfstæðismenn stöðu sína og áhrif í verkalýðshreyfíngunni. Þegar lýðveldi hafði verið stofnað blöstu við ný viðfangsefni um mótun utanríkisstefnu og varðstöðu um réttindi landsins. Áratuga landhelg- isbaráttu lauk á endanum með fullum sigri. Þetta var hörð barátta sem kallaði á sannTæringarkraft bæði á heimavettvangi og erlendis. Rík þjóð- ernisvitund og staðfesta tryggði okk- ur að lokum fullnaðarsigur. Um svipað leyti og þessi réttinda- barátta hófst mótuðum við þá stefnu að skipa íslandi í sveit með lýðræðis- þjóðum í vesturálfu. Þannig vildum við tryggja eigið öryggi og varnir og leggja okkar skerf að mörkum í baráttu fijálsra þjóða gegn ofríki alræðisins. Baráttan reynir oft á þolinmæði og þrautseigju. Það fæst ekki allt fram um leið og þess er óskað. í fulla þijá áratugi börðust forystu- menn þessa flokks, hins fijálsa fram- taks, fyrir afnámi verslunarhafta...

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.