Morgunblaðið - 08.03.1991, Side 2
8
2
teer sham .8 HUOAQUTgöH aiaAjaviuoflOM
HORGUMBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 8. MÁRZ 1991
Buið að frysta 600 tonn
af loðnuhrognum í Eyjum
Eftir að veiða um 18 þúsund tonn af loðnukvótanum
Vestmannaeyjum.
í EYJUM hafa verið fryst um 600 tonn af loðnuhrognum á þess-
ari vertíð. Frystihús í Eyjum ætla að vinna um 1.100 tonn af loðnu-
hrognum í vetur. Þau hafa verið með um 50% af framleiðslunni
en Japanir vilja kaupa allt að 4 þúsund tonn af íslenskum loðnu-
hrognum á þessari vertíð. Loðna hefur veiðst við Vestfirði og
Snæfellsnes undanfarið og einungis er eftir að veiða um 18 þús-
und tonn af 175 þúsund tonna loðnukvóta. Ekki er von til þess
að kvótinn verði aukinn.
Bátar frá Vestmannaeyjum
fengu 47 þúsund tonna loðnukvóta
en eiga einungis eftir að veiða um
5 þúsund tonn af kvótanum. Fiski-
mjölsverksmiðjan (FIVE) hefur
tekið á móti um 21 þúsund tonnum
af loðnu í ár en Fiskimjölsverk-
smiðja Einars Sigurðssonar (FES)
18 þúsund tonnum. FIVE hefur
fryst um 270 tonn af loðnuhrogn-
um og þar verður í mesta lagi
hægt að frysta 420 tonn, að sögn
Bernharðs Ingimundarsonar verk-
smiðjustjóra. FES hefur hreinsað
um 340 tonn og búið er að frysta
310 tonn af því en FES ætlar að
frysta 700 tonn af hrognum á
þessari vertíð.
Greiddar eru 50-60 krónur fyrir
kílóið af loðnuhrognum upp úr sjó
en 2.000-2.500 krónur fyrir tonnið
af úrganginum, sem fer í bræðslu,
að sögn Jóns Svanssonar yfírverk-
stjóra hjá Hraðfrystistöð Vest-
mannaeyja. Ágæt nýting hefur
verið á loðnuhrognunum, eða
5-8%.
Tekið hefur verið á móti um 24
þúsund tonnum af loðnu á Eski-
fírði á þessu ári, 22 þúsund tonn-
um á Neskaupstað, 14 þúsund
tonnum á Siglufirði, 12 þúsund
tonnum
tonnum
tonnum
tonnum
Vinnubrögðin eru
óvirðing við Alþingi
- segir Sólveig Pétursdóttir um aug-
lýsingar menntamálaráðherra
„ÞESSI vinnubrögð Svavars Gestssonar menntamálaráðherra eru
fyrir neðan allar hellur og óvirðing við Alþingi,“ segir Sólveig
Pétursdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgun-
blaðið um auglýsingar menntamálaráðuneytisins i Morgunblaðinu
og Pressunni í gær.
í auglýsingunni í Morgunblað-
inu segir að mörgum foreldrum
fínnist þeir hafa of lítið að segja
um menntun bama sinna en stór-
aukið hlutverk foreldranna í skóla-
starfí sé meðal þess, sem boðað
sé með nýju frumvarpi til laga um
grunnskóla, sem lagt hafi verið
fram á Alþingi.
I auglýsingunni í Pressunni seg-
ir að í nýju frumvarpi til laga um
grunnskóla séu boðaðar miklar
breytingar á næstu tíu árum. Skól-
amir verði einsetnir, skóladagur-
inn lengist, færri nemendur verði
í hveijum bekk og hlutur foreldra
í stjómun skóla verði aukinn.
Sóttur út á sjó til
að tala á landsfundi
Vestmajinaeyjum.
SVEINN Rúnar Valgeirsson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Eyjum og stýrimað-
ur á Breka VE, var á miðviku-
dag sóttur um borð í Breka
VE á miðunum djúpt suður af
Eyjum til þess að komast á
landsfund Sjálfstæðisflokks-
ins.
Sveinn hafði áætlað að vera í
fríi þennan túr en skyndileg for-
föll í áhöfninni skömmu fyrir
brottför á sunnudaginn urðu þess
valdandi að hann varð að fara
með í túrinn. Eyjamenn voru ekki
alveg sáttir við að þeirra maður
kæmist ekki á landsfundinn enda
átti hann að hafa framsögu um
sjávarútvegsmál á fundinum í
gærkvöldi. Því var brugðið á það
ráð, í samráði við Svein, að fínna
afleysingamann, sem félagar í
Björgunarféiagi Vestmannaeyja
fluttu svo á bát sínum, Kristni
Sigurðssyni, um borð í Breka, sem
var á veiðum um 30 sjómílur suð-
ur af Eyjum og fluttu Svein í land.
Grímur
Morgunblaðiö/Sigurgeir Jónasson
Með pokann sinn í land. Sveinn
Rúnar Valgeirsson kastar pok-
anum sínum frá borði á Breka
en björgunarsveitarmenn sóttu
Svein á miðin til að hann gæti
talað á landsfundinum.
tonnum á Akranesi og Þórshöfn,
.10 þúsund tonnum í Bolungarvík
og Grindavík, 9 þúsund tonnum í
Reykjavík, 7 þúsund tonnum hjá
Hafsild á Seyðisfirði, 6 þúsund
á Reyðaríirði, 5 þúsund
á Vopnafírði, 4 þúsúnd
í Njarðvík, þrjú þúsund
í Sandgerði, á Akureyri
og hjá Síldarverksmiðjum ríkisins
(SR) á Seyðisfirði, 2.400 tonnum
á Raufarhöfn og eitt þúsund tonn-
um á Höfn í Homafirði.
Á Óíafsfírði hefur ekki verið
tekið á móti loðnu á þessari vertíð
vegna þess að verksmiðjumar hafa
greitt of hátt verð fyrir hráefnið,
miðað við afurðaverð, að sögn
Magnúsar Lorenzsonar verk-
smiðjustjóra fiskimjölsverksmiðju
Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf.
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri SR, segir að SR
hafi orðið að greiða hátt verð fyr-
ir loðnuna á þessari vertíð til að
géta keppt við aðrar verksmiðjur
urn hráefnið. Hráefnisverðið hafí
verið of hátt hlutfall af skilaverð-
inu en SR hafi samt sem áður
ákveðið að kaupa loðnu til bræðslu
í vetur til að halda uppi atvinnu.
Loðnuverksmiðjur SR eru á Siglu-
firði, Raufarhöfn, Seyðisfirði og
Reyðarfírði. _ ,
Gnmur
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Hluti hreinsunarliðsins, þeir Magnús Ó. Hansson og Guðmundur
Jakobsson.
Fuglar drepast
vegna fítumengunar
Bolungarvík.
FIMMTÍU til sextíu fuglar hafa drepist undanfarna daga vegna
fitumengunar í Bolungarvíkurhöfn. Talsvert af hvítri fitu sem
myndast við hrognatöku rann í höfnina við ioðnulöndun. Að
sögn verkstjóra loðnuverksmiðjunnar hefur löndunarbúnaður-
inn varið lagaður þannig að mengunarslys sem þetta á ekki að
geta komið fyrir aftur.
Nokkrir einstaklingar hafa
unnið að björgun æðarfugls. Hafa
þeir náð fuglum sem voru illa
komnir vegna fitunnar og eru að
hreinsa þá þessa dagana.
í og við Bolungarvíkurhöfn er
eins og víða við hafnir landsins
allnokkuð af æðarfugli, stokkönd-
um og ritu, að ógleymdum varg-
fugli, eins og mávi og hrafni. Um
líkt leyti á síðasta ári varð umtals-
verður fugladauði hér. Á honum
fékkst ekki fullnægjandi skýring.
Ekki var verið að landa loðnu þá.
Gunnar
Sólveig Pétursdóttir segir að
Alþingi eigi einungis eftir að starfa
í nokkra daga í vetur og því sé
mjög ólíklegt að hægt verði að
afgreiða þetta frumvarp mennta-
málaráðherra. Frumvarpið hafi
einnig verið gagnrýnt mjög á þing-
inu, meðal annars vegna skorts á
kostnaðaráætiunum, sem ráðherra
beri þó skylda til að leggja fram,
samkvæmt lögum. „Þrátt fýrir
þessa gagnrýni þykir ráðherranum
sæma að eyða stórfé í hönnun og
birtingu á þessum auglýsingum.
Þetta er ekkert annað en kosn-
ingaáróður, sem þjóðin á að
greiða," segir Sólveig Pétursdóttir.
Stj órnai-tillaga lögð
fram um álversmál
SAMKOMULAG hefur tekist með stjórnarflokkunum um framhald ál-
málsins og var stjómartillaga um málið lögð fram á þingi í gær. Stefnt
er að því að ljúka afgreiðslu málsins á þessu þingi og hefur Jón Sig-
urðsson iðnaðarráðherra lagt fram breytingartillögu um lánsfjárlög
og farið fram á það við fjárhags- og viðskiptanefnd að Landsvirkjun
verði veitt heimild til lántöku vegna undirbúnings virkjana.
Samkvæmt tillögunni verður aflað
sérstakra heimilda í lánsfjárlögum
til að taka allt að 580 milljóna kr.
Ián 1991 til þess að undirbúa þær
virkjanaframkvæmdir sem sjá eiga
álverinu fyrir orku þegar áætlað er
að starfsemi þess hefjist áramótin
1994-1995. Þessi upphæð kemur til
viðbótar 220 milljónum kr. sem iðn-
aðarráðuneytið lagði fram beiðni um
í desember á sl. ári. Þá verður aflað
sérstakra heimilda í lánsfjárlögum
þessa árs til að gera Vatnsleysu-
strandarhreppi fært að kaupa jarð-
næði fyrir álver við Keilisnes og höfn
vegna þess. I stjómartillögunni er
kveðið á um að þegar samkomulag
hefur tekist um orkuverð og mengun-
arvamir skulu niðurstöðvar lagðar
fyrir Alþingi.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
segir að með samþykkt þessara
heimilda í lánsfjárlögum verði unnt
að tryggja að gangsetning álversins
frestist aðeins um fímm mánuði þótt
útvegun fjármagns taki 6-10 mánuð-
um lengri tíma en upphaflega var
gert ráð fyrir.
Iðnaðarráðherra lagði einnig fram
á þingi skýrslu um álverið á Keilis-
nesi þar sem farið er yfir stöðu samn-
ingamála og helstu ákvæði aðal-
samningsins.
Samstaða hafði náðst um álmálið
meðal stjómarflokkanna annarra en
Alþýðubandalagsins, en í gær lagði
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra fram tillögu Alþýðubanda-
lagsins um framhald málsins. Sam-
staða náðist síðan um þingsályktun-
artillögu sem lögð var fram á þingi
í gær með þeirri breytingu að láns-
fjárheimild til Landsvirkjunar var
felld út og samþykkt að afla sérs-
takra heimilda I lánsfjárlögum. Iðn-
aðarráðherra hafði áður sagt að í
þingsályktunartillögu sem hann
hugðist leggja fram ef samþykki
Alþýðubandalagsins fengist ekki yrði
gert ráð fyrir lánsfjárheimild handa
Landsvirkjun upp á 800 milljónir kr.
Smygl í Helgafelli:
Tíu skipverjar játa
TÍU skipverjar á ms. Helgafelli
hafa játað að eiga 270 kíló af
skinku, 45 kassa af bjór, 93 flösk-
ur af sterku áfengi, 19 kíló af
ýmiss konar hráu kjöti, 32 lengj-
ur af vindlingum og 2 flöskur
af léttu víni, sem tollverðir fundu
falið um borð í skipinu er það
kom til hafnar í Reykjavík í
fyrradag.
Skipið kom til landsins frá Hull
en hafði áður komið við í Dan-
mörku, Hollandi og Þýskalandi.
Smyglvarninginn höfðu mennim-
ir falið í loftblásara framan við brú
skipsins.
Gripdeild úr Freyjubúð upplýst:
18 ára stal 110-120 þús.
kr. úr þremur verslunum
TÆPLEGA 19 ára piltur hefur
gengist við því við yfirheyrslur
hjá RLR að hafa stolið 45 þúsund
krónum úr Freyjubúðinni við
Freyjugötu í síðustu viku. Hann
játaði einnig að hafa stolið 60-70
þúsund krónum úr versluninni
Árbæjarkjöri og um 5 þúsund
krónum úr kaupfélaginu á Eyr-
arbakka með sama hætti.
Pilturinn framdi gripdeildir sínar
á afgreiðslutíma, allar með svipuð-
um hætti. Á Freyjugötu kom hann
inn í verslunina að morgni, komst
bak við í skrifstofuherbergi og náði
þar peningunum. Hann fór síðan
út áður en afgreiðslufólk hafði áttað
sig á hvað gerst hafði. Hins vegar
náðist skráningamúmer á bíl, sem
hann var talinn hafa ekið á brott.