Morgunblaðið - 08.03.1991, Side 35

Morgunblaðið - 08.03.1991, Side 35
Éb,ÉGÚWÉÍÁÐlÐlPÖSirÚDÍÍÖlfflr8!' ÍíÁR^ Ú98ÍÍ b 35 ári,“ sagði Daníel. Heilsudagar eru verkefni sem sérstök nefnd á vegum heilbrigðis- ráðuneytisins óskaði eftir að nokkr- ir skólar tækju að sér, þar á meðal Ölduselsskóli. Hlutverk þessarar nefndar er að efla heilbrigða lífshætti æskufólks. Daníel segir að verkefninu tengist einkum heim- ilisfræði- og íþróttakennslan, en einnig hefur stærðfræði komið við sögu. Kennsla í 4. og 9. bekk, það er hjá 9 ára og 14 ára nemendum, er brotin upp og meðal annars byija nemendur daginn fyrr en venjulega, klukkan hálf átta á morgnana, með því að skokka. Síðan er skipt í hópa og farið í sund, morgunmat, þrek- æfingar, gönguferðir, skoðaðar fræðslumyndir um holla lífshætti og farið var í heimsókn í heilsurækt- arstöðina Mátt. Áður en kom að Heilsudögum höfðu nemendurnir unnið samþætt verkefni stærðfræði og næringar- fræði, þar sem meðal annars var reiknað út næringargildi fæðunnar, fundið hve mikinn sykur fólk inn- byrðir á einu ári með því að drekka eina gosflösku á dag og borða með eitt súkkulaðikex eins og Prins póló og fleira í þeim dúr. Niðurstöðurnar voru sýndar á plakötum og stórt fat þurfti undir sykurinn, til að sýna hann. Höfðu sumir krakkarnir á orði að foreldrum þeirra veitti ekki af að sjá þetta einnig svart á hvítu. Yngri nemendurnir hafa meðal annars fengið það verkefni að útbúa nesti fyrir sig í skólann alla þessa daga. Síðasta daginn var nestið tekið með í rútuferð upp í Heið- mörk og farið þar í útileiki. í framhaldi af heilsudögum mun á vegum nefndar heiibrigðisráðu- neytisins verða gerð úttekt á því hvernig til hefur tekist og hvort verkefnið hefur haft einhver áhrif á viðhorf nemendanna til heilbrigðs lífernis. w | ís 3 / ' 1 í|jljj| Morgunblaðið/KGA 100 áraafmæli Margrét Guðrún Gísladóttir ljósmóðir, varð 100 ára, 6. mars síðastliðinn. Af því til- efni komu 35 afkomendur hennar og frændfólk saman og gerðu sér glaðan dag með afmælisbarninu. Margrét eignaðist sex börn sem öll eru á lífi. Sitjandi frá vinstri, er Ingibjörg Lilja Þorkelsdóttir, þá Margrét og síðan Guðbjörg Fjóla Þor- kelsdóttir. í aftari röð talið frá vinstri er Páll Þorkelsson, Sigurbjörg Hulda Þorkels- dóttir, Runólfur Þorkelsson og Gísli Þor- kelsson. Mííl3»ítl> í Kaupmannahöfn FÆST í BLAOASÖLUNNI AJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.