Morgunblaðið - 24.03.1991, Blaðsíða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARZ 1991
eftir Árna Matthíasson,
teikning Andréj JWagnússon
GEISLADISKURINN hefur unnið
sér sess í tónlistariðnaðinum og á
næstu árum má búast við að vínyl-
plötur hverfi nánast. Diskurinn
hleypti nýju lífi í plötusölu og -út-
gáfu og hagnaður jókst, því disk-
urinn var mun dýrari en vínyl-
plata. Undanfarin misseri hefur
framleiðslukostnaður á disk lækk-
að til muna en ekki virðist það
ætla að skila sér í lægra verði því
diskar eru afskaplega dýrir; sér-
lega hér á landi.
Iupphafi skýrðist hátt verð
á geisladiskum meðal
annars af því að fram-
leiðslukostnaður var mjög
hár (úrkast vegna fram-
leiðslugalla gat komist
uppí helming af fram-
leiðslu) og sala eðlilega
ekki mjög mikil. Það var, og er, einn-
ig dýrt að gefa hvem titil út í þrem-
ur útgáfum; á vínylplötu, kassettu
og geisladisk og ekki þótti annað
verjandi en að allur sá aukakostnað-
ur legðist á geisladiskinn. Síðan hef-
ur framleiðslukostnaður þó lækkað
svo mjög að hann er komin niður
fyrir framleiðslukostnað á vínylplötu
(um 30—40 krónur kostar að fram-
leiða geisladisk) og að auki hefur
diskurinn nánast útrýmt hljómplöt-
um í vinsældapoppinu víða. Plötuút-
gefendur hafa þó verið tregir við að
lækka Verð á diskunum og bera fyr-
ir sig ýmsum rökum.
Eins og tónlistarunnendur hér á
landi hafa fengið að kynnast hafa
plötur jafnan verið lúxusvamingur.
Geisladiskar hafa ekki verið þar nein
undantekning og þó verðlagning á
þeim hafi breyst víða em þeir hvergi
eins dýrir og hér. Tvö fyrirtæki,
Steinar og Skífan, hafa skipt með
sér innflutningnum og milli þessara
fyrirtækja hefur verið þegjandi sam-
komulag um samasem enga sam-
keppni og diskar frá þeim verið á
nánast sama verði. Fyrir stuttu varð
breyting á, því Japís, sem fram að
því hafði eingöngu flutt inn hljóm-
og myndtæki, opnaði hljómplötu-
deild, þar sem geisladiskar em jafnan
ódýrari en í öðram verslunum. Disk-
ar með nýlegri dægurtónlist og klass-
ískri tónlist em um 3—400 krónum
ódýrari að jafnaði og einnig er mikið
úrval af klassík og eldra poppi á allt
frá 690 kr. Verslunarstjóri hljóm-
plötudeildar Japís, Ásmundur Jóns-
son, sagði stjómendur fyrirtækisins
hafa fundið fyrir því að lítið úrval
og hátt verð á geisladiskum hér á
landi drægi úr sölu á geislaspilumm.
„Gpisladiskar hafa verið allt of dýrir
á íslandi, sem hefur haft þau áhrif
að sala hefur minnkað á seinni ámm,
en hljómplötusala hefur minnkað um
30% á síðustu tíu ámm m.a. vegna
rangrar verðlagningar og lélegs
framboðs."
Jónatan Garðarsson hjá Steinum
hf., segir að geisladiskar séu fráleitt
of dýrir hér landi og að flutnings-
kostnaði megi kenna um stærstan
hluta verðsins. Jónatan sagði flutn-
ingsgjöld með flugi hafa hækkað síð-
ustu sex mánuði um 100% „og marg-
ir spá því að þau eigi eftir að hækka
enn. Flugleiðir hafa hækkað frakt
mikið, m.a. með því að fella að miklu
leyti niður afslátt sem stórir við-
skiptavinir nutu og þannig hækka
farmgjöld, þó það komi ekki fram í
verðskrá.“
Jónatan sagði að Steinar hf. flytti
nánast allar plötur inn með flugi,
að diskurinn sigli framúr plötunni á
þessu ári.“
Áttu von á verðstríði?
„Eg held að það eigi sennilega
eftir að fara eitthvað verðstríð í
gang, en það kemur sér vel fyrir
viðskiptavininn."
Jónatan Garðarsson sagðist ekkert
frekar eiga von á verðstríði. „Verð-
lagning á diskum á kannski eftir að
breytast, en það er þá í samræmi
við þá stefnu okkar og annarra að
flytja inn vörur á annan hátt. Vin-
sældapoppið munum við taka inn
með flugi áfram en svokallað „lista-
efni“, sem er þá eldra efni og ýmsar
safnplötur, hyggjumst við taka með
skipi, sem skilar sér þá í lægra verði.
Einnig höfum við orðið okkur út um
sambönd við góð fyrirtæki ytra sem
gefa út ódýra diska.
Salan hefur breyst undanfarin
misseri og beinst meira í listaef-
nið, þ.e. að fólk er að kaupa
mikið af eldra efni sem verið
er að gefa út á geisladisk-
um og það á eftir að
lækka í verði vegna
hagstæðari
flutnings.
Vissu-
lega eru
vissir
enda
væri ekki
hægt að
bjóða plötu-
kaupendum upp á
eins til tveggja mánaða
gamlar plötur. „Verðlagn
ing á hljómplötum hefur
ekki fylgt verðlagsþróun í
heiminum og fyrir stuttu reikn-
uðu plötusalar í Bretlandi út að
miðað við margt annað ætti hljóm-
platan að kosta 23 sterlingspund (um
2.300 ísl.kr.) í stað þess að hún kost-
ar um 7 pund (um 700 ísl.kr.).“ Jón-
atan sagði einnig að Steinar skipti
sem heildsala við fjölda aðila um land
allt og þeir gerðu kröfur um vissa
þjónustu og vissan lager sem væri
dýrt að standa undir. Hann sagði
einnig að það væri vilji Steinars-
manna að verð væri það sama á
hljómplötum um land allt.
Óskar Þórisson hjá Skífunni tók
undir að flutningskostnaður væri
snar þáttur í verði
diskanna og að
þjónustan kostaði
sitt, en sagði að
fieira kæmi til.
„Geisladiskar eru
vissulega of dýrir á
íslandi, en þar er
ekki bara flutn-
ingskostnaður sem
ræður því. Benda
má á t.,a.m. að virð-
isaukaskattur er
hærri hér á landi
en í flestum ná-
grannalöndum
okkar.“
Ásmundur Jóns-
son sagði aftur á móti að flutnings-
kostnaður riði ekki baggamuninn,
Japís tæki diskana ýmist með skipi
eða flugi, það sem liggur mest á er
tekið með flugi, en endurútgáfur og
tilheyrandi gjaman með skipi. „Menn
mega ekki láta sér vaxa flugfraktin
í augum, þar sem plötur eru ekki
ýkja dýrar í frakt miðað við margt
annað. Ef tekin eru með í reikning-
inn þau gjöld sem leggjast á geisla-
diska hér á Iandi, virðisaukaskattur
sem er 10% hærri hér en ytra, 5%
jöfnunargjald og eilítið hærri frakt,
væri eðlilegt ef diskar væm um
15—20% dýrari hér á landi en í öðr-
um Evrópulöndum, svo framarlega
sem verið er að tala um innflutning
frá EB-löndum. Raunin er hinsvegar
að verðmunur er yfirleitt um 60%.
Undanfarin ár hefur verið sterk sam-
trygging hér á landi milli stærstu
innflytjendanna og því ekki verið
Geisladiskar
eru að útrýma
vínylplötunni,
þó þeir séu mun
dýrari og hvergi
eins dýrir og
hér ó landi
nein verðsamkeppni. Ef við værum
með bein sambönd og samninga við
útgáfufyrirtækin sjálf, eins og Stein-
ar eða Skífan, myndi diskaverðið hjá
okkur lækka um 10—15% til viðbót-
ar.“
Verðstríð gott fyrir neytendur
Eins og áður sagði býður Japís
diska á allmiklu lægra verði en tíðk-
ast almennt, en
stóm fyrirtækin
tvö hafa einnig
verið með tilburði
í þá átt að lækka
verð á plötum, og
undanfarið hefur
Steinar hf. boðið
15% prósent af-
slátt af ýmsum
vinsælum plötum
og Skífan hefur
boðið vinsæla
diska á lægra
verði. Óskar Þór-
isson sagði að
Skífan hefði tekið
upp þá stefnu að lækka verð á sölu-
háum diskum og einnig að fyrirtæk-
ið hyggist fara að selja ódýrari diska.
„Eftir því sem markaðurinn hefur
stækkað höfum við fengið betra
svigrúm til að lækka verðið með því
m.a. að leggja minna á diska sem
eru dýrir í innkaupi og einnig að
lækka verð á söluháum diskum. Til
að mynda bjóðum við Sting-diskinn
nýja, Pavarotti-disk og Wild at He-
art á 1.599 kr. hvem í stað 1.899.
Þessu hyggjumst við halda áfram og
auka eftir því sem salan gefur tilefni
til.“
Bendir þessi mikla lækkun ekki
til þess að álagning hafi verið allt
of há?
„Þetta er ekki mögulegt nema á
söluháum diskum þar sem við þurf-
um ekki að liggja með lager. Diskar
eiga eftir að lækka enn meira eftir
því sem vínylinnflutningur dregst
saman og það em ýmis merki þess
ar
ódýrari
í innkaup-
um, s.k. „top
40-plötur, sem
eru nánast þær sömu
hvar sem er í heiminum.
Fyrirtæki em hinsvegar að fara
mikið út í það að eiga gamalt efni
á lager á diskum og hagnaðurinn
af top 40-diskunum, ef einhver er,
borgar tapið vegna allra þeirra diska
sem ekki seljast_ nóg til að borga
gmnnkostnað. Ymsir útgefendur
hafa því fylgt þeirri stefnu að halda
verði á diskum háu á meðan verið
er að koma öllu gamla efninu út á
diskum.“
Má þá búast við verðlækkun þegar
því verki er lokið?
„Því hefur verið spáð aftur og
aftur að verð á diskum muni hrynja
og merki um það hafa sést í nokkur
ár, en það eru yfirleitt diskar með
efni sem búið er að borga sig, klas-
sík fyrst og fremst.“
Ásmundur Jónsson sagðist ekki
geta spáð um hvort verðstríð færi
af stað, en reikna með því að verð
á geisladiskum lækki á næstunni.
„Yið höfum fengið mjög góð viðbrögð
og hlýjar viðtökur viðskiptavina sem
eru ánægðir með að geta keypt plöt-
ur hér á landi í stað þess kaupa fulla
tösku í næstu utanlandsferð."
Því hefur verið haldið fram að
Japís sé ekki marktæk plötuverslun,
þar sem stofn- og rekstrarkostnaður
sé ekki í samræmi við venjulega
plötuverslun. Einnig hafa sumir hald-
ið því fram að þið seljið plötur á
lægra verði á kostnað þjónustu.
„Við höfum vissulega beitt öðmm
söluaðferðum og ef þær aðferðir
hafa komið sér betur fyrir neytend-
ur, þá hlýtur það að vera jákvætt.
Ef menn þurfa að halda slíkri yfir-
byggingu að fólk hefur ekki efni á
að kaupa þá vöm sem þeir eru að
selja, hlýtur eitthvað að vera að.
Hljómtæki sem Japís er að selja eru
t.a.m. á hliðstæðu verði og í Evrópu
að frátöldum tolli og það má hik-
laust bera þetta saman. Við emm
að ganga inn í nýja tíma í verslun
og menn verða að átta sig á því að
við erum ekki Iengur þessi litla eyja
norður í hafi þar sem menn geta
leyft sér það sem þeim sýnist.“
MIKILL
EINS OG fram kemur í grein-
inni hér til hliðar eru skipta
skoðanir um verð geisladiskar
hér á landi. í óvísindalegri
könnun kom í Ijós nokkur
verðmunur iunanlands og að
diskar eru mun dýrari hér en
í nágrannalöndum.
$ú skýring að nýjar plötur séu
á háu verði til að borga
útgáfu á eldri plötum er ekki
ýkja trúverðug, né heldur að
verð sé lækkað þegar um er að
ræða tónlist sem löngu er búin
að borga sig. Hér má nefna að
tónlist Bítlanna er búin að borga
sig margfalt, er samt sem áður
em geisladiskar með Bítlunum
seldir á kr. 1.899 hér á landi.
Það hlýtur að koma öllum til
góða að lækka verð á geisladisk-
um; kaupendur gleðjast og selj-
endur selja fleiri diska. Enn eitt
dæmið um það sem gerist þegar
menn bregða fæti fyrir frjálsa
samkeppni.
Hringt var í verslanir Skífunn-
ar og Steinars hf. og hljómplötu-
deild Japís, og samanburðar var
hringt í Virgin Megastore í Lund-
únum og Pladesmedjen í Kaup-
mannahöfn. Athygli skal vakin
á því að í stórverslunum eins og
Virgin er plötuverð oft sérlega
lágt á einum eða tveimur titlum,
vegna kynningarátaks útgef-
anda, sem þá jafnvel gefa versl-
uninni hundraðireintaka. Allar
upphæðireru í íslenskum krón-
um og miðað er við gengið 107
á sterlingspundi og 9,50 á
danskri krónu;
STEINAR
Queen — Innuendo 1.899
Sting — The Soul Cage 1.899
Madonna — The Immaculate
Collection 2.699
Pavarotti/Domingo/Carrer-
as/Metha — Concert 1.899
The Essencial Pavarotti 1.899
SKÍFAN
Queen — Innuendo 1.899
Sting — The Soul Cage
1.599 (tilboð)
Madonna — The Immaculate
Collection 2.199
Pavarotti/Domingo/Carrer-
as/Metha — Concert 1.899
The Essenciai Pavarotti
1.799 (tilboð)
JAPÍS
Queen — Innuendo 1.690
Sting — The Soul Cage
1.280 (tilboð)
Madonna — The Immaculate
Collection 1.790
Pavarotti/Domingo/Carrer-
as/Metha — Concert 1.490
The Essencial Pavarotti
1.280 (tilboð)
VIRGIN MEGASTORE
Queen — Innuendo 1.229
Sting — The Soul Cage 1.282
Madonna — The Immaculate
Collection 1.389
Pavarotti/Domingo/Carrer-
as/Metha — Concert 1.336
The Essencial Pavarotti 1.389
PLADESMEDJEN
Queen — Innuendo 1.700
Sting — The Soul Cage 1.425
Madonna — The Immaculate
Collection 1.510
Pavarotti/Domingo/Carrer-
as/Metha — Concert 1.425
The Essencial Pavarotti 1.425
Til gamans má svo gefa hér
upp verð á þessum plötum í Tow-
er Records-versluninni í New
York, en Tower er stærsta plötu-
verslanakeðja í heimi, eins konar
tónlistarhagkaup. The Essencial
Pavarotti var þó ekki til þar,
enda eingöngu ætluð fyrir Evr-
ópumarkað. Verð í krónum,
gengi dollars er 54,50.
TOWER RECORDS
Queen — Innuendo 654
Sting — The Soul Cage 654
Madonna — The Immaculate
Collection 872 (tilboð)
Pavarotti/Domingo/Carrer-
as/Metha — Concert 762 (tilboð)