Morgunblaðið - 24.03.1991, Blaðsíða 21
r> os
C 21
nwvíiuMW f
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR
SUNNUDAGUR 24. MARZ 1991
FRANSKUR ORGILL
HEFÐBUNDIN leið ínn a evrópskan markað er jafnan
í gegnum Bretland eða Skandinavíu. Orgill heitir sveit
sem ákvað að ráðast frekar á garðinn þar sem hann
væri hærri og fór til Frakklands til tónleikahalds og
kynningar fyrir stuttu.
Rolbeinn Einarsson gít-
arleikari og primus
inter pares í sveitinni sagði
að Orgill hefði leikið á átta
tónleikum í París og Lyon.
Hann sagði að ferðin hefði
verið sveitinni lærdómsrík,
„við hittum afskaplega
marga sem gott er að
þekkja og lærðum á tónlist-
arbransann franska, sem á
eftir að koma sér vel í fram-
tíðinni. í upphafi fórum við
út með því hugarfari að tón-
list eins og við eru að leika
ætti greiðari leið til Frakka
en fiestra annarra, en kom-
umst að því að það var ekki
rétt. Að vissu leyti er
franskur markaður erfíðari
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Erfiður skóli Kolbeinn, Hanna Steina, Hermann og Ingólfur.
FÖLR
■ STRÍÐIÐ fyrir botni
Persaflóa hefur víða haft
áhrif og rokkið er þar ekki
undanskilið. Hermt er að
bandarískir flugmenn í árás-
arferðum hafí hlustað á Van
Halen á, leið til skotmarka
sinna. Van Halen er greini-
lega vinsæl meðal her-
manna, því í desember stóð
til að hljómsveitin héldi tón-
leika á dekkinu á einu af
flugvélamóðurskipum
Bandaríkjamanna á Persaf-
lóa. Hætta varð við. þá af
öryggisástæðum, en nú kann
að verða af því.
■ í marshefti breska tón-
listartímaritsins Sounds er
m.a. ijallað um evrópskt
rokk annars staðar en á
Bretlandi og er ísland með
í þeirri umfjöllun. Hún er
reyndar fremur innantóm
eins og sést á því að aðeins
ein íslensk hljómsveit er
nefnd til sögunnar, Sykur-
molarnir, sem varla ætti að
þurfa að kynna fyrir Bret-
um. Þar kemur fram að
flestum íslendingum megi
skipta í tvo hópa eftir tónlist-
arsmekk annar hlusti á diskó
en hinn á þungarokk. Afieið-
ingin er sögð sú að í útvarp-
inu hljómi helst tónlist á
borð við þá sem Heart flyt-
ur. íslenskt útvarp fínnst
blaðamanni með bragð-
lausasta móti ef Skúli Helg-
ason er undanskilinn. Lídó
er sagt skásti vettvangur lif-
andi rokktónlistar, en ein-
hvers miskilnings gætir um
stærðina, því kjallarinn er
sagður rúma um 1.000
manns og barinn uppi á svöl-
um um 1.500. Almennt fær
Island ágæta umsögn, nema
hvað tálsvert er gert úr dýr-
tíðinni hér.
inngöngu en t.a.m. breskur
og þetta var því mjög erfitt;
erfiður skóli.“
Kolbeinn sagði að sveitin
hefði leikið á ýmsum stöð-
um, allt frá hálfgerðum
skítabúllum í fína staði.
Hann sagði og að sveitar-
meðlimir væru ákveðnir í
að fara utan aftur og þá
aftur til Frakklands. „Við
viljum ólm fara aftur til
Frakklands að spila, en þá
betur undirbúin og með
meiri fyrirvara. Við fórum
í ferðina með rúmlega mán-
aðar fyrirvara og rákum
okkur á það að við hefðum
þurft að tala við tónleika-
haldara og úmboðsskrifstof-
ur með minnst hálfs árs
fyrirvara. Við verðum líka
að hafa plötu í farteskinu,
því ef marka mátti undir-
tektir tónleikagesta, sem
voru sífellt að biðja um plöt-
ur, hefðum við geta selt
hundruð eintaka."
Við þetta er svo því að
bæta að Orgill treður upp á
tónleikum í Reykjavík 5. og
6. apríl næstkomandi.
Bob Marley liflr
DÆGURTÓNLIST
um.) Fyrir stuttu kom svo
út áðunefnd Talkin’ Blues,
sem á eru óútgefnar upptök-
ur.
Þorri tónlistarinnar á
Talkin’ Blues er útvarpsupp-
taka í San Fransico 1973,
eina sem til er frá fyrstu
tónleikaferð Wailers um
Bandaríkin. Þá var sveitin
enn skipuð Bob Marley og
Peter Tosh, en Joe Higgs
kom í stað Bunny Wailer,
sem vildi ekki með. Einnig
eru óútgefnar útgáfur á titil-
laginu og Bend Down Low,
auk þess sem Am-A-Do,
hljóðversupptaka sem ekki
hefur heyrst á opinberri útg-
áfu, og mögnuð tónleikaútg-
áfu á I Shot the Sheriff
Bob Marley, einn ástsælasti tónlistar-
maður áttunda áratugarins.
skreyta plötuna. Það sem
gerir þessa útgáfu svo bráð-
nauðsynlega eign er að inn
á milli laga er skotið bútum
úr viðtali við Marley þar sem
han ræðir tónlist, Wailers og
fleira.
Tónlistin lifir,
en útgáfa sem
þessi undirstrikar
hvaða missir er
að Bob Marley.
Klúr og kíminn
hryílingur
ROCKY Horror-söngleikurinn er víðfrægasti söng-
leikur rokksögunnar, og hefur hann verið settur upp
í flestum löndum heims, plötur með honum hafa selst
í milljónaupplagi og kvikmynd sem gerð var við hann
gengur enn í fjölda kvikmyndahúsa um heim allan,
sem sum hafa sýnt aðeins þessa einu mynd í ára-
tugi. Það mátti því sjá fyrir að hægt væri að hrífa
áheyrendur hérlendis, þegar Leikfélag MH setti söng-
leikinn upp í vetur, en engan gat grunað æðið sem
greip um sig.
Yrkisefni söngleiksins
jaðrar við velsæmi þó
á afskaplega kíminn hátt sé,
og verður því ekki rakið
hér, en ekki var að merkja
annað en að íslenskir áheyr-
endur kynnu vel að méta
gálgahúmorinn sem gegn-
sýrir verkið, enda slíkt löng-
um átt vel við íslendinga.
Svo vel gekk verkið hér að
ákveðið var að drífa í að
gefa það út á plötu og er
sú plata væntanleg á næst-
unni í útgæáfu p.s. músík.
Stjarna uppfærslunnar á
Rocky Horror hér var Páll
Óskar Hjálmtýsson, sem
leikur helsta hlutverk leiks-
ins, hlutverk klæðskiptings-
ins, og syngur það á plöt-
unni. Páll sagði uppfærsl-
una hafa átt sér langan að-
draganda og undirbúning
hafa hafist fyrir réttu ári.
„Það hafa margir gengið
með það í maganum að setja
þetta á svið, og sumir hafa
haldið því fram að það sé
mikill Rocky Horror-fíðring-
ur í MH-ingum, en það var
fyrst rætt að setja söngleik-
inn upp í MH 1978 og þá
byijað á að þýða það, en
það fengust ekki leyfí sem
þurfti."
Komu undirtektir
ykkur á óvart?
„Við vissum vit-
anlega að það falla
allir fyrir verkinu
eins og skot, þannig
að í upphafí gerðum
við ráð fyrir mikilli
aðsókn, og leigðum
húsið fyrir tuttugu sýning-
ar. Það er mikið af mennta-
skólaleikriti að vera, sem
ganga venjulega ekki nema
fímm sýningar eða svo. Við
reiknuðum með að við fengj-
um um 100 manns á hverja
sýningu, en það var alltaf
uppselt, um 200 manns.
Þessar tuttugu sýningar
vo'ru því ekki nóg, svo við
bættuni við fimm sýningum,
sem seldust upp á örskömm-
um tíma. Það er því ljóst
að það verður að setja verk-
ið upp aftur og við erum að
vinna að því að setja það
upp í vor' þegar allir eru
búnir í prófum.“
Hvað með útgáfuna?
„Engu okkar datt í hug
að nokkur vildi gefa þetta
út.'og síður vegna þess að
íslenska þýðingin, sem er
frábær hjá Veturliða Guðna-
syni, er öllu klúrari en enski
frumtextinn. Þetta verður
því dónaleg plata, en sérlega
vel heppnuð."
Er þetta upphafíð á þín-
um söngferli?
„Ég hef gaman af að
syngja og hef haft í fy'ölda
ára, söng inn á fjölda platna
þegar ég var lítill með háa
englarödd, sem rústaðist í
kringum 1983. Eitt það
skemmtilegasta sem ég geri
er að syngja, en það
er afskaplega óp-
raktískt að vera
söngvari og þó ég
vilji gjaman
syngja, þá er ég
ekkert blindaður
af frægðar-
draumum.”
BOB Marley féll frá í blóma lífsins fyrir tæpum tíu
árum á hátindi vinsælda sinna. Skömmu eftir andlát
hans kom út plata með ófrágengnum upptökum, og
töldu þá flestii- að allt sem til væri með honum hefði
litið dagsins ljós. Það þótti því saga til næsta bæjar
þegar Tuff Gong, fyrirtæki hans á Jamaica, gaf út
plötu, Talkin’ Blues, sem á voru áður óútgefnar út-
varpsupptökur og önnur lög sem ekki höfðu komið út.
Rocky Horror
Það falla allir
fyrir verkinu
eins og skot.
Bob Marley var einn ást-
sælasti tónlistarmað-
ur áttunda áratugarins og
tónlist hans hefur lifað. Nú
þegar tíunda ártíð hans nálg-
ast hefur Tuff Gong-fyrir-
tækið tekið útgáfukipp til að
minnast hennar veglega.
Ekki er langt síðan allar
breiðskífumar sem út komu
á meðan hann lifði voru end-
urútgefnar á geisladisk og
þá lagðar til grundvallar
jamaicskar útgáfur á plötum
hans, sem þóttu öllu beittari
og heitari en þær sem gefnar
vom út af Island um heim
allan. (Þess má og geta að
Trojan-útgáfan hefur gefið
út á disk tvær bestu plötur
Marleys að flestra mati,
African Herbsman og Rasta
Revolution, er þar er Lee
„Scratch" Perry á tökkun-