Morgunblaðið - 24.03.1991, Side 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARZ ið91
Brids
Arnór
Ragnarsson
Bridsdeild Rangæinga
Þorsteinn Kristjánsson og Rafn
Kristjánsson gerðu glæsiskor síðasta
kvöldið í barometer-keppni félagsins,
fengu 116 stig og sigruðu.
Lokastaðan:
ÞorsteinnogRafn 182
Daníel Halldórsson - Ragnar Bjömsson 156
Bragi Halldórsson - Hreinn Halldórsson 141
ÁmiGuðmundsson-BragiJonsson 141
Aðalbjöm Benediktss. - Jon. V. Jonmundss. 127
Nk. miðvikudaga 27. mars verður
spilaður eins kvöld tvímenningur og
verður keppt um páskaegg. Eftir
páska er fyrirhugaður 3ja kvölda
tvímenningur. Upplýsingar hjá Lofti
s. 36120.
Bridgefélag Barðstrendinga
Síðastliðinn mánudag lauk tveggja
kvölda firmakeppni deildarinnar með
þátttöku 33 fyrirtækja., Úrslit urðu:
Múrarafélag Reykjavíkur
Þórarinn Ámason - Gísli Víglundsson 672
B.M. Vallá
Friðbjöm Guðmundss. - Johann Lútersson 644
Bræðumir Ormsson
Heigi Sæmundsson - Gunnar Sigurbjömss. 605
Stofnlánadeaild landbúnaðarins
Leifur Kr. Jóhanness. - Haraidur Sverrisson 604
Smurstöðin Hafnarstræti
Þorleifur Þórarinss. - Hörður Daviðsson 600
Meðalskor 540
Á mánudaginn hefst 4-5 kvölda
barómeter-tvímenningur. Þeir sem
ekki hafa þegar skráð sig geta hringt
í Ólaf í sima 71374 eða mætt mjög
tímanlega á mánudaginn, ekki síðar
en 19.20.
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Lokið er 17 umferðum af 35 í baro-
metertvímenningnum og er staða
efstu para þessi:
Guðlaugur Nielsen - Birgir Sigurðsson 219
TryggviGíslason-GísliTryggvason 205
Skúii Hartmannsson - Eirikur Jóhannesson 189
Jón Stefánsson - Þorsteinn Laufdal 180
BragiBjarnason-HreinnHjartarson 169
BjömÁmason-EggertEinarsson 163
Sigurður Ámundason - Hannes Guðnason 110
Ragnar Bjömsson - Skarohéðinn Lvðsson 110
Næst verður spilað 3. apríl nk.
Spilamennska hefst að venju kl. 19.30.
Spilað er í Húnabúð.
Bridsfélag Kópavogs
Þá er lokið Mitchel-tvímenningn-
um. Hæðsta skor síðasta kvöld:
A-V:
Guðrún Hinriksdóttir - Haukur Hannesson 245
Ragnar Jónsson - Þröstur Ingimarsson 235
N-S:
Sigurður Gunnlaugss. - Hermann Láruss. 251
Helgi Viborg - Oddur Jakobsson 232
Úrslit:
HelgiViborg-OddurJakobsson 772
Grímur Thorarensen - Vilhj. Sigurðss. 724
Gunnar Sigurbjömss. — Þorst. Gunnarss. 715
Guðrún Hinriksd. - Haukur Hannesson 712
Gunnar B. Kjartanss. - Valdimar Sveinss. 709
SævinBjamason-BjamiPétursson 689
Fimmtudaginn 4. apríl verður spil-
aður eins kvölds tvímenningur. Föstu-
daginn 5. apríl koma spilarar úr Breið-
holti í heimsókn í Kópavoginn og spila
sveitakeppni. 11. apríl hefst þriggja
kvölda Butler-tvímenningur og vetrin-
um lýkur með þriggja kvölda vor-
tvímenningi.
Bridsfélag Reyðarfjarðar
og Eskifjarðar
Síðastliðinn þriðjudag lauk tveggja
kvölda firmakeppni hjá félaginu. Úr-
slit urðu eftirfarandi:
Sproti hf. (Friðjón Vigfússon -
Ásgeir Metúsalemsson)
Afréttari hf. (Auðbergur Jónsson -
Hafsteinn Larssen)
Friðþjófur hf. (Sigurður Freysson -
ísak Ólafsson)
Skipaklettur hf. (Jónas Jónsson -
Ámi Guðmundsson)
Slökkvitaekjaþj. Austurlands (Þorbergur
Hauksson - Andrés Gunnlaugsson)
Aðalsveitakeppni 1991
Úrslit 7. umferðar:
Jóhann Þórarinss. - Magnea Mapúsd. 11:19
Eskfirðingur - Haukur Bjömsson 23: 7
AðalsteinnJónsson-BjömJónsson 25: 2
Trésíld-EinarÞorvarðarson 25: 0
Lokastaða:
Trésíld 159
Eskfírðingur 145
AðaisteinnJónsson 131
HaukurBjörnsson 106
Óskar Júlíus-
son — Mhming
Fæddur 19. apríl 1909
Dáinn 4. desember 1990
Horfinn er jarðneskum sjónum
einn af traustustu og ágætustu vin-
um og samferðamönnum okkar
hjóna yfir á dýrðlegt lífsins land
sem öllum góðum mönnum er fyrir-
búið að lokinni þessari jarðvist.
Óskar Júlíusson fæddist í Fálk-
húsum í Hvalsneshverfi. Foreldrar
hans voru þau hjónin Agnes Ingi-
mundardóttir frá Hlöðunesi á
Vatnsleysuströnd, fædd 1874, dáin
1945, og Júlíus Helgason frá Birt-
ingaholti í Ytrihreppi, fæddur 1874,
dáinn 22. júlí 1948.
Óskar ólst upp hjá foreldrum
sínum í Bursthúsum í Hvalsnes-
hverfí, í stórum hópi systkina. Þau
voru alls átta sem komust til fullorð-
insára.
Óskar vandist allri algengri vinnu
til lands og sjávar, eftir því sem
honum óx aldur og þroski, en faðir
hans stundaði mjög sjósókn ásamt
búskapnum. Voru róðrar úr heima-
vör erfiðir og þar oft brimasamt,
en á þeim árum vöndust menn harð-
ræði og létu sér ekki allt fyrir bijósti
brenna.
Snemma kom í ljós að Óskar var
hagur vel og fékkst löngum við
smíðar á húsum og einnig fékkst
hann nokkuð við smíðar og viðgerð-
ir á bátum.
Síðar stundaði hann akstur um
mörg ár, bæði á fiskflutningabílum
og mjólkurbílum og í um það bil
25 ár eftir það stundaði hann vinnu
á Keflavíkurflugvelli hjá íslenskum
aðalverktökum, ýmist við bygging-
ar eða við akstur stórra bifreiða.
Alla ævi var hann tón- og söng-
elskur og var alllengi í kór Hvals-
BILALAKK
Við eigum litinn á
bílinn á úðabrúsa.
mwrfcfl
FAXAFEN 12 (SKEIFAN).
LIKLEGASTA LÆRIÐ!
SUNNLENSKA
LETTREYKTA
neskirkju. Ungur eignaðist hann
harmóniku og lék á hana sér og
öðrum til ánægju og yndisauka, en
síðar tók hann einnig að leika á sög
með fiðluboga, og tókst svo vel að
hrifningu vakti.
Eigið íbúðarhús byggði Óskar í
Sandgerði, og átti þar heima síðan.
Fyrri kona hans var Magnea
Magnúsdóttir. Hún var ættuð úr
Súgandafirði á Vestfjörðum. Ekki
áttu þau börn saman og missti hann
hana eftir fremur stutta sambúð.
Þau giftu sig á jóladag 1941 en hún
lést 1945.
Árið 1946 giftist Óskar síðari
konu sinni, Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur frá Hátúni á Kálfshamars-
nesi á Skaga, fædd 17. ágúst 1925.
Hún hafði komið til hans sem ráðs-
kona ásamt Margréti Ferdínands-
dóttur, aldinni fóstru sinni, og var
hún hjá þeim uns hún andaðist 18.
febrúar 1955 og var þá orðin 95
ára gömul.
Þau Ingibjörg og Óskar eignuð-
ust tvö börn: Magneu Ósk, fædd
8. maí 1949, og Jóhann Grétar,
fæddur 19. október 1947. Síðar ól-
ust upp hjá þeim tvö af barriabörn-
um þeirra, þeir bræðurnir Óskar
Guðjón Einarsson, fæddur 3. júní
1966, og Gissur Hans Þórðarson,
fæddur 3. desember 1971.
Ingibjörg var mjög listhneigð að
eðlisfari og hefur sá eiginleiki eink-
um fengið útrás í gerð ljóða og
skáldsagna. Eftir hana .hafa komið
út ein ljóðabók og 28 skáldsögur —
sú fyrsta árið 1958 — og orðið
ákaflega vinsælar meðal lesenda
um allt land.
Langt er nú orðið síðan við Aðal-
heiður Tómasdóttir, kona mín, átt-
um því láni að fagna að kynnast
þessum góðu hjónum, Óskari og
Ingibjörgu í Sandgerði. Byijuðu þau
kynni fyrst með því, að góður kunn-
ingi okkar einn, f Keflavík, sem til
okkar kom, leit á slæma skemmd,
sem orðið hafði á húsi okkar.
Bauðst hann til að minnast á þetta
við vin sinn í Sandgerði, sem hagur
væri á járn og tré, og væri hann
um þessar mundir einmitt að gera
við hús eins kunningja síns í
Keflavík. Er ekki að orðlengja
þetta, en maðurinn kom að nokkr-
um dögum liðnum með áhaldatösku
sína, og gerði við skemmdina á
húsinu fljótt og vel og hefur sú
aðgerð dugað síðan. Þessi maður
var Óskar Júlíusson.
Af þessu spruttu þau einlægu
kynni, sem komust á milli þessara
góðu hjóna og okkar Aðalheiðar.
Margar eru þær ferðir orðnar,
sem við komum í heimsóknir til
þeirra í Sandgerði og nutum gest-
risni þeirra og hlýs viðmóts og
stundum fóru þau með okkur á
ýmsa staði á nágrenni sínu, sem
bæði voru fagrir frá náttúrunnar
hendi eða stórbrotnir, en aðrir stað-
ir höfðu sögulegt gildi vegna ýmissa
merkra atburða, er þar höfðu gerst,
eða geymdu sögu liðinna kynslóða,
en Oskar var fróður mjög um allt
slíkt og kunni vel frá að segja, svo
áhugavert var á að hlýða.
Óskar var maður glaðlyndur og
ræðinn og hafði lag á að skemmta
gestum sínum. Stundum lék hann
á sögina sína og þótti okkur unun
á að hlýða. Fyrir kom líka að þau
komu á heimili okkar og áttum við
þá með þeim góðar gleðistundir.
Minnist ég þess, að þau hjónin
komu í afmælið mitt, er ég var 70
ára. Þá lék hann á þetta sérstæða
hljóðfæri sitt og gerðu gestir góðan
róm að og lofuðu leik hans.
Alla ævi að heita má mun Óskar
hafa verið heilsuhraustur og ávallt
starfandi að hinum ýmsu viðfangs-
efnum, 'sem fyrir lágu á hveijum
tíma. Síðustu fimm árin var hann
þó mjög farinn að heilsu, enda var
hár aldur þá farinn að láta til sín
taka. Ávallt var hann þó heima og
naut góðrar umönnunar konu
sinnar, sem hjúkraði honum allt til
síðustu stundar af fórnfýsi og nær-
færni, eins og henni var lagið.
Nú hefur Oskar kvatt þetta jarð-
arlíf eftir erfiðan starfsdag um
langa ævi. Að slíkum manni er
mikil eftirsjá, því vandfyllt er það
skarð, sem nú stendur autt eftir.
Við hjónin vottum eftirlifandi
konu hans og nánum ættingjum
samkennd okkar við fráfall hans.
En jafnframt samfögnum við með
honum þeim gleðilegu umskiptum,
sem nú eru orðin á högum hans,
því vissulega hefur beðið hans ljóm-
andi samastaður að lokinni vegferð,
meðal fyrrum farinna og náinna
ættmenna, sem hafa fagnað honum
heilshugar við komuna þangað.
Við hjónin þökkum honum af
alhug öll hin góðu kynni á langri
samieið. ,
mgvar Agnarsson
NOTUÐ S NÝ
I HÚSGÖGN I
I
I
Vib bjóðum upp á margskonar húsgögn
s.s. sófasett, borðstofusett, skrifborð, stóla,
barnarúm, hillur, skápa og margt fleira.
Seljum á góðum kjörum.
Kaupum gegn staögreiðslu.
yra
GA>4LA
KRONAN
BOLHOLTIB
WinryKinnrarinrc
wwwwwf
I
BOLHOLTI 6, 105 REYKJAVIK, SIMI 679860