Morgunblaðið - 24.03.1991, Síða 30
30 C
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAEMBkwitmR 24 MARZ 1991
ÆSKUMYNDIN...
ERAFÞÓRUNNISIGURÐARDÓTTUR LEIKSTJÓRA
Sýndi leikrít
háaloftinu
„ÉG HELD að leiklistarbakterían hafi alltaf blun-
dað í mér. Þegar ég var tveggja og þriggja ára
var ég til dæmis látin troða upp í boðum hjá
ömmu minni á Snæfellsnési og fara með þulur
sem ég kunni í löngum bunum.“ Þórunn Sigurðar-
dóttir leikstjóri og leikritahöfundur er 46 ára og
næstelst sex systkyna. Hún leikstýrir söngleiknum
„Kysstu mig Kata“, sem Leikfélag Akureyrar
sýnir um þessar mundir og með haustinu fer hún
til Danmerkur þar sem hún hefur verið beðin um
að setja upp leikrit á Svalegangen í Arósum.
Þórunn er gift Stefáni Baldurssyni Þjóðleikhús-
stjóra og eiga þau tvö börn, Baldur, sem verður
stúdent frá MR í vor, og Unni Ösp, 14 ára. Unnur
Ösp leikur einmitt í „Litbrigðum jarðar“ sem sjón-
varpið byijar að sýna í kvöld.
„Eiginleikar Tótu voru mjög áber-
andi strax í bamæsku. Hún samdi
og setti upp leikrit í herberginu
sínu uppá háalofti í Lönguhlíðinni,
þar sem hún ólst upp, og sýndi
leikritin fyrir áhorfendur, sem yfir-
leitt voru börn úr hverfinu. Ég
held hún hafí aldrei verið feimin,“
segir Kristín Guðmundsdóttir
frænka Þórunnar og æskuvin-
kona. „Foreldrar Tótu áttu sumar-
bústað við hliðina á bænum sem
ég bjó á í Kollafirði, svo samgang-
urinn var mikill á sumrin. Tóta
teiknaði mikið sem bam og oft
voru myndimar tengdar leikhús-
inu, ég man að hún teiknaði til
dæmis mjög skemmtilegar myndir
af ballettdönsurum."
Kristín segir að sjálfstæði Þór-
unnar hafí strax verið áberandi.
„Hún var líka mjög skapandi og
ofboðslega hugmyndarík. Hún lifði
sig inní eigin hugarheim og við
bjuggum til margar sögur út frá
hinum ótrúlegustu hlutum. Við
dunduðum okkur stundum við að
horfa uppí loft í herberginu mínu
sem var viðarklætt. Við sáum
margar myndir í viðnum og ímyn-
duðum okkur allt mögulegt út frá
þeim. Við vorum báðar hjátrúar-
fullar og hoppuðum til dæmis allt-
af yfir eina
tröppu í húsinu,
því við vorum
sannfærðar um
að annars kæmi
eitthvað slæmt
fyrir okkur. Mig
minnir að Tóta
hafí átt frum-
kvæðið að
þessu, eins og
reyndar mörgu
öðru sem við
gerðum saman.“
Þórunn og
Kristín fóru oft
á hestbak sam-
an í sveitinni og
um fermingu
fóru þær á
landsmót hesta-
manna á þing-
völlum. „Það var afar skemmtileg
ferð sem við höfðum báðar gaman
af. Þórunn hafði alltaf mikinn
áhuga á hestum og við fórum oft
í reiðtúra saman á sumarkvöldum.
Hún er skapgóð og glaðlynd og
hefur alla tíð verið mjög hressileg
í framkomu. Ég man aldrei eftir
að hafa séð hana í fýlu. Tóta hef-
ur alltaf verið dugleg að skrifa og
ég á fullan kassa af bréfum frá
Þegar Þórunn
vartveggjaog
þriggja ára var
hún vinsæl í
boðum hjá
ömmu sinni á
Snæfellsnesi
þar sem hún fór
með Iangar þul-
ur fyrir gest-
ina.
henni sem hún skrifaði þegar hún
var í sveit á Kvískeijum, í skóla
á Eiðum og í útlöndum."
ÚR MYNDASAFNINU
ÓLAFURK. MAGNÚSSON
Fréttahaukar að störfum
Danski forsætisráðherrann, H.C. Hansen, lengst til vinstri, þá dansk-
ur blaðamaður og síðan Ólafur Gunnarsson, Vísi, Haraldur Hamar,
Morgunblaðinu, Axel Thorsteinsson, Vísi, fyrir aftan hann Sverrir
Fastur liður í starfí blaðamanns-
ins er að sækja svokallaða
blaðamannafundi, sem efnt er til
af hinum margvísle-
gustu tilefnum. Stund-
um er hóað í blaðamenn
þegar ný verslun er
opnuð og þykja slíkir
fundir að jafnaði ekki
merkilegir. Öðru máli
gegnir þegar stjómmál-
amenn boða til blaða-
mannafundar, ekki síst þegar á ferð
eru erlendir stjómmálamenn. Með-
fylgjandi myndir úr myndasafninu
eru frá einum slíkum fundi, sem
haldinn var í sendiráði Dana við
Hverfísgötu laust fyrir 1960 þegar
H.C. Hansen, þáverandi forsætis-
ráðherra Dana, var hér á ferð. Þeg-
ar um slíka fundi er að ræða bein-
ist athygli ljósmyndar-
ans einkum að þeim
sem boðar til fundarins
enda ekki venjan að
birta myndir af blaða-
mönnum við störf. Ein-
hverra hluta vegna hef-
ur athygli Ólafs K. þó
beinst að kollegunum
að þessu sinni enda einvala lið á
ferð og sjálfsagt ijóminn af þeim
blaðamönnum sem þá störfuðu hér
á landi. Sumir þessara manna eru
enn í blaðamennsku og láta engan
bilbug á sér fínna.
SUNNUDAGSSPORTIÐ
Hestamennska
LÍKLEGA eru hvergi í heiminum til jafnmargir hestar og á íslandi,
ef tekið er mið af hinni frægu höfðatölu sem okkur Islendingum
þykir oft svo gaman að taka mið af. Þegar úlpuklæddir hestamenn
með hross í taumi fara að sjást síðveturs vita menn að vorið nálg-
ast, rétt eins og þegar lóan kemur til landsins.
Hestamennska er miklu meira en
íþrótt. Þetta er spuming um
samskipti manna og dýra auk þess
að vera heilsusamlegt sport,“ segir
Bima Lárusdóttir, 14 ára Reykjavík-
urmær, sem hefur hina svokölluðu
hestadellu.
Bima á fimm
vetra klár
sem hún hef-
ur í hesthús-
um Fáks í
Víðidal. „Ég
fer uppí hest-
hús að með-
altali fímm
sinnum í viku
og mér líður
illa ef langt
líður á milli
þess sem ég
fer uppeftir,“
segir hún.
Birna seg-
ist hafa haft
áhuga á
hestum frá því hún man eftir sér.
„Ég kynntist þeim þó ekki fyrir al-
vöru fyrr en ég fór í sveit fyrir fjór-
um árum. Þá fór ég alltaf á bak
þegar færi gafst.“ Hún hefur farið
á nokkur reiðnámskeið og hyggst
fara fljótlega á annað námskeið með
Árvakur, hestinn sinn. „I Reiðhöll-
inni eru reglulega haldin námskeið,
bæði fyrir byijendur og lengra
komna og þeir sem eiga hesta geta
farið með eigin hesta og lært betur
að vinna með þá. Það er mikilvægt
í hesta-
mennsku að
vera ákveð-
inn. Hestur-
inn verður að
vita hver
ræður!“ segir
hún og af
raddblænum
má ráða að
Árvakur
þurfi ekki að
kvíða þvi að
vera í vafa
um hver ræð-
ur þegar
Birna er ná-
lægt.
Bima seg-
ir að sam-
skipti hesta og manna séu afar
mögnuð og heillandi. „Þetta er hárn-
ákvæmt samspil og það er stórkost-
legt þegar maður hefur náð ákveðnu
valdi á hestinum og finnur samt
hversu góður vinur hann er.“
BÓIUN
Á NÁTTBORÐINU
Auk íslandsklukkunnar sem ég
hef lesið oftar en aðrar bæk-
ur, hef ég nýlokið lestri á Jerúsalem
eftir séra Rögnvald Finnbogason.
Þar að auki hef ég verið að lesa
yfír handrit af óútkominni skáld-
sögu.
*
Eg hef verið að lesa Seið og
hélog eftir Ólaf Jóhann Sig
urðsson og finnst hún að mörgu
leyti góð. Ég hef lesið töluvert af
bókum hans, meðal annars Gang-
virkið sem er fyrri bókin í sama
flokki og Seiður og hélog. Ég er í
íslenskunámi og les mikið, aðallega
íslenskar skáldsögur og ljóð.
PLATAN
Á FÓNINUM
Síðasta platan sem ég hlustaði á
var platan sem gefin var út til
styrktar rannsóknum á eyðni. Þetta
eru margir flytjendur og sum lögin
eru leiðinleg en önnur skemmtileg.
Ég hlusta frekar mikið á tónlist og
allt nema þungarokk. Sérstaklega
fínnst mér gaman að gömlum lög-
um, til dæmis með Glenn Miller.
*
Eg hlustaði nýlega á Hvítlaukinn
með Ladda. Laddi getur oft
verið mjög fyndinn og þessi plata
finnst mér skemmtileg. Annars
hlusta ég ekki mikið á plötur og
finnst yfirleitt skemmtilegra að
lesa.
MYNDIN
í TÆKINU
*
Eg horfði síðast á upptöku úr
sjónvarpinu af Spaugstofunni
sem mér finnst með fyndnasta sjón-
varpsefni sem sést hefur. Höfundar
og leikarar þessara þátta eru óborg-
anlegir, þeir eru svo fyndnir. Ég tek
aldrei myndbönd á leigu, en horfi
stundum á sjónvarpsefni sem ég
hef tekið upp, sérstaklega gaman-
myndir eða grínþætti.
Kristján
Friðriksson
auglýsinga-
leikstjóri
Síðasta myndband sem ég sá var
Spielberg-myndin Always. Mér
fannst þetta ekki gott skref hjá
Spielberg og þótti myndin bæði
langdregin og væmin.
I