Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 1
96 SIÐUR B/C 157. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vegirnir geta verið varasamir Nú eru meira en 100 stjómarandstöðu- flokkar í Zaire en forseti landsins, Mob- utu Sese Seko, hefur enn ekki ákveðið hvenær kosningar verði haldnar. Leið- togar stjórnarandstöðunnar hafa meira að segja sakað Mobutu um að styðja marga flokka fjárhagslega til að sjá til þess að enginn þeirra verði of öflugur. Fjölmiðlar kalla ástandið „fjöl-Mobut- isma“. „Það eina sem okkur hefur áskotnast," sagði einn íbúa landsins sár og reiður, „er að nú megum við ganga með bindi.“ Áður bannaði Mobutu mönn- um að ganga með bindi, þeir áttu að hætta að nota evrópsk nöfn, ganga í jökkum með „Maó-sniði“ og kalla hver annan „borgara". Ein sagan af Mobutu segir frá því þegar Juvenal Habyari- mana, forseti Rwanda, bað Mobutu eitt sinn um hjálp vegna þess að uppreisnar- menn voru á leiðinni. Mobutu spurði hvenær þeir væru væntanlegir. „Eftir þrjár til fimm klukkustundir," svaraði Habyarimana. „Koma þeir með þyrlu eða flugvél?" „Akandi," svaraði Habya- rimana. „Þarna sérðu,“ sagði Mobutu, „ég varaði þig alltaf við því að láta leggja vegi.“ New Orleans brátt sjálfstæð? Verið er að gera könnun á því hversu vænlegt það er fyrir borgina New Or- leans að segja sig úr lögum við fylkið Louisiana í Bandaríkjunum. Arthur Morrell, áhugamaður um pólitískar að- gerðir, segir að borgin leggi mun meira til fylkisstjórnarinnar í sköttum og gjöldum en hún fái til baka í aðstoð. Hann segir að könnunin muni jafnvel leiða í Ijós 'að best væri fyrir borgina að segja skilið við Bandaríkin. Þá gætu borgaryfirvöld nefnilega sótt um alþjóð- lega aðstoð. Jörðin svífur í skotsal alheims Meiri líkur eru á að fólk deyi vegna áreksturs smástirnis við jörðina en í flugslysi. Vísindamenn telja að stærri smástirni rekist á jörðina á 50 til 100 milljón ára fresti en minni smástirni á 300 þúsund til milljón ára fresti. „Jörðin svífur í skotsal alheimsins," segir David Morrisson, vísindamaður hjá Geimvís- indastofnun Bandaríkjanna, NASA. „Þessi tíðni þýðir að líkurnar á að ein- staklingur deyi í slíkum árekstri á næstu 50 árum eru einn á móti 6.000 til einn á móti 20.000,“ segir Morrison. Líkurnar eru að hans mati meiri en að sami ein- staklingur deyi af völdum flugelda, felli- bylja, eldgosa, kjarnorkuslysa, hryðju- verka eða flugslysa. Morgunblaðið/KGA MEÐ SUMARBROS Á VÖR \ Forsætisráð Júgóslavíu: Friðaráætlim EB samþykkt Belgrad. Reuter. FORSÆTISRÁÐ Júgóslavíu ákvað á fundi á laugardag að samþykkja friðaráætlun þá sem samkomulag náðist um milli Júgó- slavíusljórnar og Slóveníu og Króatíu fyr- ir tilstilli Evrópubandalagsins (EB) um síðustu helgi. Það samþykkti hins vegar einnig ályktun þess efnis að allar hersveit- ir aðrar en sveitir Júgóslavíuhers skyldu afvopnast. Er þessu beint gegn þjóðvarð- liðssveitum Slóveníu og Króatíu og þeim gefinn frestur til miðnættis á fimmtudag til að verða við þessari kröfu. Var géfið í skyn að ella myndi Sambandsherinn grípa til aðgerða. Einnig er Slóvenum gert að láta lausa þá hermenn Sambands- hersins sem enn eru í haldi og skila her- gögnum sem þeir hafa tekið. I forsætisráðinu sitja fulltrúar hinna átta lýðvelda Júgóslavíu. Slóvenía, sem lýst hef- ur yfir sjálfstæði sínu, situr ekki lengur fundi forsætisráðsins en þing Slóveníu sam- þykkti í vikunni friðaráætlunina. Fundurinn stóð í fjórtán klukkustundir og voru hörðustu deilurnar milli forsætisráð- herra Júgóslavíu og yfirmanna hersins, að sögn /íeuíezs-fréttastofunnar. Evrópu- bandalagið mun nú senda fimmtíu eftirlits- menn til Júgóslavíu til að fylgjast með því að friðarsamkomulagið sé virt. Samkvæmt friðarsamkomulaginu frá síðustu helgi eiga hersveitir Sambandshers- ins að halda til búða sinna og hersveitir Slóvena að leggja niður vopn. Þá sam- þykktu Slóvenía og Króatía að taka ekki frekari skref í átt til sjálfstæðis næstu þtjá mánuðina. I samkomulaginu felst einnig að slóvenskir lögreglumenn hafi eftirlit með landamærastöðvum í Slóveníu þó að stöðv- arnar falli eftir sem áður undir sambands- stjórnina. Tyrkland: Lögregla fellir 11 skæruliða Istanbul. Reuter. TYRKNESKIR lögreglumenn réðust snemma á laugardagsmorgun inn í nokkrar íbúðir í Istanbul þar sem menn úr hinum bönnuðu skæruliðasamtökum Dev-Sol höfðust við. Kom til skotbardaga og féllu ellefu skæruliðar í þeim, að sögn tyrkn- esku fréttastofunnar Anatolian. Þrír skæruliðar voru handteknir, einn þeirra særður. Að sögn fréttastofunnar umkringdu lög- I Tyrklands. Einungis á þessu ári hafa þau reglumennirnir íbúðirnar og hvöttu skæru- lýst yfir ábyrgð á á þijátíu sprengjutilræðum liðana til að gefast upp. Því var hins vegar og fjölmörgum morðum. Einn af helstu for- svarað með skothríð. Stóðu átökin í alls ystumönnum samtakanna, Pasa Guven, var þijár klukkustundir. veginn í París á fimmtudag en ekki er vitað Dev-Sol eru virkustu skæruliðasamtök | hver var þar að verki. KOLDUM KLAKA MIKILVÆGI W 14 Manfred Wörner fram- kvœmdastjóri NATOívið- tali við Morg- unblaðiö EYKST A MIG Um upp- gröftinn ó Stóru-Borg. ÞRJÁR SYSTUR C

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.