Morgunblaðið - 14.07.1991, Page 10

Morgunblaðið - 14.07.1991, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1991 1 Sjávarútvegsauólindin er fullnýtt, þess vegna batna lífskjör ekki nema íslendingar renni fleiri stoóum undir atvinnulífið. Mo^gunblaðið/Árni Sæberg engsta kyrrstöóutimabil islensks effnahagsliffs i nœrri 60 ár stendur nú yffir og sést ekki ffyrir endann á þvi. ikki eru þó nema nokkrir mánuóir síóan menn töldu aó á næsta ári kæmi betri tió, hagvöxturinn ffæri aó aukast á ný og lifskjörin aó batna. Sú mynd heffur verió aó smá- molna á sióustu vikum og um miója vikuna sem var aó lióa hrundí hún saman: Þjóóhagsstofnun birti drög aó nýrri þjóóhagsspá ffyrir þetta og næsta ár. Sé sú spá raunsæ er Ijóst, aó aigjör kyrrstaóa er i effnahagsliffinu og þaó eina sem er sjáanlegt í kortun- um aó breyti þvi er bygging álvers á Keilisnesi, þó ekki ffyrr en á árinu 1993. I drögum Þjóóhagsstoffn- unar er svo ffátt um upplifgandi atriói, aó nærri lætur aó þaó jákvæóasta vió hana sé, aó ekki er spáó eldgosum eóa öórum náttúruhamförum. Hvers vegna þetta ástand? Hagfræóingum sem hér er rætt vió ber saman um meginskýringuna: Einhæfft atvinnuliff og mislukkuó afskipti stjórnvalda aff at- vinnuliffinu. Texti: Þórhallur Jósepsson Harðæri af ýmsum toga eru þekkt úr íslandssögunni og margar frá- sagnir til af mannfelli og eymd, sárri fátækt og uppflosnun heimila af þeirra sökum. Á síðari tímum hafa harðærum fylgt fólksflutningar úr landi, má nefna tímabilið í lok síðustu aldar og árin um og fyrir 1970. Nú árar illa, kannski ekki harðæri, kyrrstöðu vilja menn kalla það, og ekki er von mannfellis, en hætta á að þrengi að heimilunum. Hvort Iandflótti fylgir á eftir að koma í ljós. Ástandið er þannig, að mikið þarf að gerast til að lífskjör hér hangi í sama horfi, enn meira til að þau batni. Að óbreyttu stendur hér hnípin þjóð „á köldum klaka,“ á meðan nágrannaþjóðirnar sigla hraðbyri fram úr okkur í sókn til betri lífskjara. Væntingarnar í nýjasta hefti vikuritsins The Economist er birt yfirlit yfir stöðu þjóðanna innan OECD. Jafnframt er birt spá um framvinduna á næsta ári. Héðan hafa farið upplýsingar inn í þessa spá, væntanlega einhvem tíma í vetur, um að þjóðarfram- leiðsla muni aukast á árinu 1992 um sem næst 4% frá þessu ári. Sam- kvæmt þeirri spá er Island í næst efsta sæti OECD þjóða á þennan mælikvarða. í apríl síðastliðnum gaf Þjóðhagsstofnun út ritið Þjóðarbú- skapinn og þar er birt sambærileg tala og í spá OECD um vöxtinn á þessu ári, 1,2%. Það dugir í 16. sæti OECD þjóða á þessu ári. í Þjóð- arbúskapnum er landsframleiðslan sögð vaxa um 1% á þessu ári. Fyrir kosningarnar í vor ein- kenndist málflutningur margra stjómmálamanna af því, að nú væri hægt að hækka launin, sérstaklega þau lægstu. Síðan fóm viðskiptakjör batnandi og skiluðu launaauka í launaumslögin. Hrunið Þá dundu reiðarslögin yfir. Fisk- eldið og ullariðnaðurinn gjaldþrota. Fiskverð lækkaði á mörkuðum, Ha- frannsóknastofnun lagði til minni afla á næsta fiskveiðiári, talað hefur verið um að þar tapi þjóðarbúið 9 milljörðum króna og þá er eftir að sjá hvað loðnan gefur af sér, hún er ennþá vonarpeningur. Ofan á þetta bættust ófagrar lýsingar ríkis- stjórnarinnar af erfiðleikum í ríkis- búskapnum upp á tugi milljarða króna. Þjóðhagsstofnun mælir stöðuna eftir nýjar upplýsingar og á þriðju- dag em þar tilbúin drög að þjóð- hagsspá og hefjast á þessum orðum: „Nú bendir ýmislegt til þess að aftur þrengi að íslenskum þjóðarbúskap á næsta ári.“ Svo kemur í ljós hveijar vísbend- ingarnar em: „Þetta stafar einkum af því að nauðsynlegt er talið að draga úr fiskafla í því skyni að styrkja veiðistofna. Fleira leggst þó á sömu sveif. Má meðal annars nefna slæmar horfur í ullariðnaði og fisk- eldi. Þá er líklegt að tekjur af varnar- liði dragist saman. Loks er h'klegt að viðskiptakjör þjóðarbúsins versni vegna lækkunar fiskverðs." Ekki eru þó öll sund lokuð: „Á móti þessu vegn hugsanleg bygging nýs álvers, aukin framleiðsla kísil- járns og tiltölulega góðar horfur í ferðaþjónustu." Áframhaldandi kyrrstaða Niðurstaðan er þessi: „Að öllu samanlögðu virðist þó stefna í nokk- um samdrátt landsframleiðslu milli áranna 1991 og 1992. Þetta felur í sér framhald þeirrar kyrrstöðu sem ríkt hefur í efnahagslífinu frá árinu 1988. Islenskur þjóðarbúskapur hef- ur ekki verið jafn lengi í lægð frá því á fjórða áratugnum. Verði hins vegar ráðist í byggingu nýs álvers í samræmi við áform má reikna með örum hagvexti hér á landi árin 1993 og 1994.“ Af þessu leiðir að kaupmátturinn rýrnar. í Þjóðarbúskapnum er spáð 2% kaupmáttaraukningu á þessu ári, en hin nýja spá segir 1% og á næsta ári rýrni hann um 1,5%. Óhagstæður samanburður Svona er þá staðan, eftir bjartsýn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.