Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 15

Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 15
M ógnun að halda rétt eins og við höfum enga og þurfum enga óvinaímynd. Hins vegar er enn nauðsynlegt að viðhalda NATO, einnig hernaðarlega, þó að það verði í minna umfangi en áður, sem varnarbandalagi. Af hverju? í fyrsta lagi vegna þess að í Sovétríkjunum ríkir nú mikil stjómmálaleg óvissa en á sama tíma búa þau eftir sem áður yfir gífurlegum hernaðarmætti. Það er brýn þörf á hernaðarlegu mótvægi við þessu til að halda aftur af þeirri freistingu að beita herafli. Við erum ekki lengur að vernda okkur gegn beinni ógn heldur erum við aðyiðhaldajafnvæginu. í öðru lagi geta nýjar hættur komið upp á yfirborðið frá svæðum utan bandalagsins, eins og við sáum dæmi um í Persaflóastríðinu, s.s. frá Balkanskaga eða Norður-Afríku. Það má segja að bandalagið verði því hernaðarlega séð eins konar tryggingarfélag gegn hættuástandi." Hættuleg samsetning í Sovétríkjunum — Hversu alvarleg er sú hætta sem enn stafar af Sovétríkjunum. „Ég myndi ekki tala um hættu og ekki heldur ógnun í þessu sambandi. Aftur á móti töluverða óvissu. Hveiju stöndum við frammi fyrir í Sovétríkjunum? Algjörri stjórnmálalegri óvissu þar sem enginn veit hver staðan verður á morgun. Valdabaráttu. Baráttu um að viðhalda Sovétríkjunum. Efnahagsástandi sem sífellt heldur áfram að versna. Sem sagt, óvissu og ójafnvægi. Á hinn bóginn er í Sovétríkjunum eftir sem áður að finna mesta hernaðarmátt á hinu evrasíska meginlandi. Þetta er hættuleg samsetning og í ljósi hennar verðum við að halda þannig á málum að ekki sé hætta á að hernaði verði beitt gegn okkur sama hvað verður uppi á teningnum í Sovétríkjunum.“ — Sum hinna nýju lýðræðisríkja í Austur-Evrópu hafa Iýstyfir áhuga á aðild aðNATO. Þessu hefur hins vegar verið hafnað af hálfu bandalagsins. Sjáið þér fyrir yður einhverja þá stöðu í framtíðinni þarsem aðild ríkja á borð við Ungveijaland og Tékkóslóvakíu kæmi til álita? „Við erum að vinna að því að tryggja öryggi þessara ríkja á annan hátt en með aðild að NATO. Við erum í fyrsta lagi að efla hin tvíhliða samskipti og færa þau inn á ný svið s.s. hið hernaðarlega, í öðru lagi að efla samstarfíð innan Ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) og í þriðja lagi höldum við áfram að vinna að afvopnun. Við erum að útbúa nýjan evrópskan varnararkítektúr þar sem NATO myndar þá stoð sem veitir styrk og stöðugleika. Við viljum byggja þessa nýju Evrópu í samvinnu við jafnt Sovétríkin sem ríki Austur- og Mið-Evrópu. Ef við ætluðum nú að fara að færa ytri mörk Atlantshafsbandalagsins upp að landamærum Sovétríkjanna væri þessi sögulega tilraun dæmd til að mistakast. Það er hins vegar forsenda þess að tilraunin takist að Sovétríkin haldi áfram á braut umbóta og taki einnig tillit til öiyggishagsmuna nágrannaríkja sinna. Ef þau gera það er spurningin um NATO-aðild óþörf, ef þau gera það ekki verðum við að hugsa málið upp á nýtt.“ Aukið evrópskt varnarfrumkvæði viðbót við NATO — Nú er mikið rætt um að auka verði ábyrgð Evrópu í varnarmálum. Hver er skoðun yðar á þvíhvernigskipuleggja eigi hið nýja varnarfyrirkomulag Evrópuríkja?Á það að vera beinn hluti af Evrópubandalaginu eða heyra frekar undir Vestur-Evrópusambandið, WEU? „Þetta er ákvörðun sem Evrópubúar verða að taka en ekki bandalagið. Að mínu mati náðist mjög skynsamleg málamiðiun á Kaupmannahafnarfundinum. Við skilgreindum þar þau lykilhlutverk Atlantshafsbandalagsins sem verða að liggjatil grundvallar. Þetta gerðu öll aðildarríkin sextán samhljóða. Meðal þess sem samþykkt var, og ég tel vera mjög mikilvægt, er að bandalagið er og verði áfram sá vettvangur þar sem samráð verður haft og ákvarðanir verða teknar um evrópskar varnir. Einnig voru menn sammála um að hið nýja varnarfrumkvæði Evrópu verði eitthvað sem bætist við en kemur ekki í staðinn fyrir starfsemi NATO. Við gerðum sem sagt skýra grein fyrir hlutverki bandalagsins og tókum einnig afdráttarlausa afstöðu með auknu evrópsku öryggis- og varnarhlutverki. Hvernigþetta varnarhlutverk kemur til með að líta út er mál Evrópuríkja en ekki framkvæmdastjóra NATO. Mjög líklega munu þau þó velja Vestur-Evrópusambandið sem grundvöll þessa samstarfs. Hver tengslin við EB verða á enn eftir að koma í ljós. Við eigum hins vegar ekki í neinum erfiðleikum með að sætta okkur við Vestur-Evrópusambandið enda er í stofnsáttmála þess gert ráð fyrir mjög nánum tengslum við NATO.“ — Gæti þetta samstarf innan Vestur-Evrópusambandsinsjafnvel orðið framlenging bandalagsins, t.d. hvað varðar aðgerðir utan varnarsvæðis NA TO? „J á, það getur og á að verða framlenging á starfsemi NATO, þ.e. láta til sín taka þegar NATO getur ekki eða vill ekki láta til sín taka. Á hinn bóginn getur WEU séð um að samræma afstöðu Evrópuríkja innan bandalagsins. I því sambandi verður samt að finna leiðir til þess að tryggja að ríki á borð við ísland, Noreg, Tyrkland, Danmörk og Grikkland, sem ekki eiga aðild að Vestur-Evrópusambandinu, hafi sömu möguleikaá að taka þátt í skoðanamyndun innan bandalagsins.“ — Værijafnvel æskilegt að þessi ríkigerðust aðilar að WEU? „Það er alfarið þessara ríkja og Vestur-Evrópusambandsins að ákveða það. Eg væri að fara út fyrir verksvið mitt ef ég tæki afstöðu til þess.“ Ekkert getur komið í staðinn fyrir NATO — Það heyrast oft raddir, ekki síst íFrakklandi, sem halda því fram að framtíðar „Evrópuher“ gætigert veru bandarískra hermanna íEvrópu óþarfa. Sjáið þér einhvetjar hættur fyrir varnarsamstarf Evrópu og Bandaríkjanna leynast íauknu varnarfrumkvæði Evrópuríkja? „Nei, alls ekki. Ekki eins og búið hefur verið um hnútana. Og hvað ætti svo sem að taka við af Atlantshafsbandalaginu? Það er ekkert til í heiminum sem gæti gert það. Atlantshafsbandalagið er eina öryggisbandalagið í heimi sem virkar. Þetta er öflugasta bandalag í heimi, bandalag sem hefur sannað sig. Það felst svo mikil reynsla, kraftur og árangur í þessu bandalagi að enginn í veröldinni gæti byggt upp annað eins nema á mörgum áratugum og með ótrúlegum tilkostnaði. Hvorki RÖSE, EB né WEU geta komið í staðinn fyrir NATO. Þau geta hins vegar orðið að æskilegri viðbót við bandalagið." — Hvaða lærdóma er hægt að draga af Persaflóastríðinu? „Marga. Að mínu mati er sá mikilvægasti að ekkert getur komið í staðinn fyrir samstarfíð milli Evrópu og Bandaríkjanna. Evrópa þarf á Bandaríkjamönnum að halda rétt eins og þeir þurfa á Evrópu að halda. Við erum háð hvert öðru. Þá hafa þær aðferðir sem við viðhöfum í samstarfi okkar og innri uppbygging bandalagsins sannað sig. An NATO hefði þessi aðgerð ekki verið framkvæmanleg. Það hefur sýnt sig að fjölþjóðasamstarf Viö erum aö vinna af fullum krafti viö aö gera gruudvallarbreytingar á bandalaginu ukkar. Þessi vinua er mjög langt á veg kumin ug viö munum Ijúka henni á leiðtagafundinum sem baldinn verður í Rúm 7.-8. núvember nk. Viö stöndum ekki lengur frammi fyrir neinni bráöri yfirvnfandi hættu. Guöi sé lof. Við burfum ekki heldur á neinni slíkri úgnun að halda létt eins og við Evrúpa barf á Bandarfkjamönnum aö halda rétt eins og beir burfa á Evrúpu að halda. Við erum háð hvort öðru. innan samræmds ramma er rétt leið og að við eigum að halda áfram á henni. Þetta er dæmi um þann lærdóm sem við getum dregið af Persaflóastríðinu.“ — Meðan á Persaflóastríðinu stóð varðþað að umræðuefni innan bandalagsins, aðallega í Þýskalandi, hvort árás íraka á Tyrkland hefði átt að túlka sem árás á öll bandalagsríkin eins og stofnsáttmálinn kveðurá um. Veikti þessi umræða bandalagið að yðar mati? „Það varð tímabundin umræða um þetta atriði í Þýskalandi sem óneitanlega angraði bandalagið. Þetta tímabil er liðið. Þjóðveijar hafa lagt sitt af mörkum. Þeir létu einnig mikið til sín taka í Tyrklandi og sýndu þar með í verki að þeir standa við skuldbindingar sínar innan bandalagsins. Ég held að við getum litið svo á að þessum kafla sélokið.“ — Þessa dagana er verið að draga verulega úrherafla á megin- landi.Evrópu. Kemursúþróun einnig til með að hafa einhver áhrif á varnir hér á íslandi? „Við munum líklega fækka virkum hersveitum bandalagsins um allt að því helming. Lögð verður meiri áhersla á fjölþjóðasveitir, hreyfanleika og liðsaukaflutninga. Ég get ekki útilokað að það verði einnig einhveijar breytingar á íslandi en ég sé hins vegar ekki fram á verulega fækkun í herafla hér einfaldlega vegna þess að í framtíðinni verðum við mun háðari liðsaukaflutningum en nú. Það þýðir að eftirlit á Atlantshafi verður mikilvægara sem og að tryggja flutningaleiðir okkar milli Evrópu og Bandaríkjanna. í þessu felst að ekki mun draga úr mikilvægi íslands. Ef eitthvað er eykst það.“ PAVAROTTI Hlustið á meistarann Ferðamiðstöðin Veröld efnir til hópferðar á stórkostlega 30 ára söngafmælistónleika fremsta söngvara nútímans, Luciano Pavarotti, í Hyde Park í London 30. júlí nk. Okkur tókst að útvega 40 miða á þessa stórkostlegu tónleika og verður farið til London 29. júlí og til baka 1. ágúst. Dvalið verður á hinu ágæta hóteli, Cropthome Tara, og hópurinn verður undir fararstjórn Hans Kristjáns Ámasonar, sem þekkir borgina mjög vel, auk þess að vera mikill listunnandi. Fyrir tónleikana er farþegum okkar boðið í móttöku á Hilton hótelinu við Hyde Park, en þaðan verður rölt út í Hyde Park, þar sem hlýtt verður á meistarann í tvær klukkustundir við undirleik Philharmoníusveitar Lundúnaborgar. Verðið fyrir þessa frábæm ferð er aðeins 48,900 kr.* Auk tónleikana verður boðið upp á kynnisferð um London, heimsfræg söfn borgarinnar heimsótt og margt fleira. Þá mun hópurinn snæða saman góðan kvöldverð að tónleikunum loknum. 0 fl IN . AUSTURSTRÆTI 17(SÍMI: (91)622011 & 622200 *Innifalið í verði er flug, gisting, flutningur til og frá flugvelli ög aðgöngumiðar á tónleikana. 1 ERflAMIDST ,-r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.