Morgunblaðið - 14.07.1991, Qupperneq 19
MORGUNESLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1991
19
-rri
Gröf í kirkjugaróinum á Stóruborg. Bein voru illa farin og víóa voru grafir
teknar hver ofan í aðra. Yfirleitt voru grafir syðst í garóinum kistulausar, en
norðar voru kistur. Enginn þeirra sem upp voru grafnir 1978 hafói hand-
leggi niður með síðum. Gæti þaó bent til þess að garðurinn hafi ekki verið
gerður mjög snemma.
Mjöll Snæsdóffir
fornleifafræóingur:
„Þaó hefur jafnmikla þýðingu
að finna hluti sem fólk hefur
týnt eða hent því þeir fræða
okkur um hversdagslífið."
skiptin, er dáin fyrir 1571, og
bjuggu afkomendur hennar á Stóru-
borg allt fram til 1700. Anna gift-
ist um síðir Hjalta Magnússyni, en
hvort hann var 15 árum yngri en
hún eins og Jón Trausti hefur það
í sögu sinni er ómögulegt að segja,
því fæðingarártöl þeirra beggja eru
ókunn. En vel getur verið að sonur
þeirra tii dæmis hafi átt stúlku sem
hét Anna. Auk þess voru „Önnurn-
ar“ fjölmargar og gat því hver sem
er átt snældusnúðinn.
Ég bendi hins vegar oft á Önnu
frá Stóruborg í sambandi við þessa
sýningu því margir hafa lesið sög-
una og fólki finnst gaman að tengja
hluti við atburði.“
Mjólkursía og fisknet
Brot úr sótugum pottum, brot
af franskri flösku og ieirkeri fínu
frá Suður-Þýskalandi fundust í eld-
húsum húsfreyja, en Mjöll viður-
kennir þó að mjólkursía úr melrót,
afar heilleg, og bútur úr fiskneti
séu hennar uppáhaldshlutir, „því
það þarf heppni til að detta um þá“.
Varðveisluskilyrði á svæðinu eru
mjög góð og því fannst margt óVenj-
ulegt eins og vefnaðarleifar og hlut-
ir úr tré og leðri. Þarna er þessi
fíni flókahattur, að vísu aðeins göt-
óttur, og einhveijir höfðu tapað
öðrum spariskónum sínum á mið-
öldum og örugglega þótt miður því
þéir voru í besta lagi.
Naglar og brýni, þeir hlutir sem
oftast fmnast á íslenskum bæjar-
stæðum, voru á sínum stað, en
stærsti hluturinn sem fannst er
steinker úr móbergi. Það fannst
grafíð í búrgólfi, sennilega notað
til að geyma í matvæli. Sem sagt
ísskápurinn.
Aðeins eru hér nokkrir munir
nefndir af þeim fímm þúsund sem
fundust, en öll mannleg umsvif
enda þó á sama staðnum. Brimið
fletti af kirkjugarðinum á Stóru-
borg árið 1969 og má ætla að graf-
ir þar hafi vart verið færri en 150.
Vitað er að kirkja var á Stóruborg,
líklega fyrir árið 1200, en hún var
aflögð um 1700.
Bein í kirkjugarðinum voru afar
illa á sig komin og ekki voru minj-
ar um minnismerki á gröfum, leg-
steina eða krossa. Grafir voru
grunnar á miðöldum, oft ekki nema
rúmur hálfur metri að dýpt. í mjög
fáum gröfum sem grafnar voru upp
árið 1978 voru ummerki um kistur
og voru víða merki um að grafir
hefðu verið teknar hver ofan í aðra.
Það tók þrettán sumur að grafa
upp úr bæjarhólnum og hafá rúm-
lega þijátíu manns unnið við gröft-
inn þegar allt er talið. Oftast var
unnið í átta vikur í senn, stundum
lengur. Framundan er tími úr-
vinnslu og mun hann ekki vera
skemmri en uppgröfturinn sjálfur.
Mjöll er spurð hvaða þýðingu
fundurinn hafi fyrir þjóðina og seg-
ir hún, að fyrir þá sem vilji þekkja
fortíð sína sé hann afar mikilvæg-
ur. „Ég veit hins vegar ekki hvaða
gildi hann hefur fyrir þá sem láta
sig hana engu skipta. Én hér koma
fram heimildir fyrir framtíð okkar
og sögu.“
íslensk samtímalist á sýningu í Köln
NÝLEGA var opnuð sýning á
íslenskri samtímalist í Kölnischer
Kunstverein í Köln. Sýningin er
hluti stærra verkefnis á vegum
63 þýskra sýningarsala, þar sem
ætlunin er að sýna samtímalist
frá 20 Evrópulöndum. Yfirskrift
þessa verkefnis er Kunst Europa.
Val listamanna er í höndum for-
stöðumanns Kölnischers Kunstver-
eind, dr. Marianne Stockebrand. A
sýningunni verða verk eftir Kristján
Guðmundsson, Hrein Friðfinnsson,
Ingólf Arnarsson, Önnu Guðjóns-
dóttur, Tuma Magnússon, Finnboga
Pétursson og Rögnu Róbertsdóttur.
Þjóðveijar munu borga þetta
verkefni að hluta, en íslenska
menntamálaráðuneytið, Eimskipa-
félag Íslands og Vátryggingarfélag
íslands hafa veitt þessu verkefni
fjárhagslegan stuðning.
Apple-umboðið
Skipholti 21, Rvk. Sfmi: 91-624800
Þar sem útgáfa 7 af Macintosh-kerfishugbúnaði er
væntanleg í byrjun næsta mánaðar bjóðum við
eigendum Macintosh Plus-tölva sérstakt tilboð, sem
gerir þeim kleift að nýta sér allar þær frábæru nýjung-
ar sem Kerfi 7 býður.
Tilboðið felst í minnisstækkun, harðdiski og Kerfi 7
á mun sérlega hagstæðu verði og góðum kjörum.
Minnisstækkun eykur innra minni Plus-tölvanna
úr 1 Mb í 2.5 Mb, sem er nægjanlegt fyrir Kerfi 7.
Harðdiskurinn er hraðvirkur 40 Mb diskur frá hinu
viðurkennda fyrirtæki Microtech. Einnig eru til
Microtech-harðdiskar allt að 1.350 Mb.
Hafðu samband við okkur sem allra fyrst til að
færa Macintosh-tölvuna þína fram um eina kyn-
slóð og gera hana enn skemmtilegri og fjölhæfari en
áður. Tilboðið gildir aðeins á meðan birgðir endast.
'17' erðið á Kerfi 7, minnisstækkun og 40 Mb harð-
Vdiski er 59.100,- kr. en við bjóðum þetta allt á
49.600 kr. en staðgreiðsluverðið er aðeins
47.280,-kr
7
MUÞ jll -o _ÁN
greiöslukjör til allt aö 1 2. mán.