Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 29

Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 29
ietíi uui. .þí H MORGUNBLAÐIÐ í/íija á*1*-iiitt:túrf. iL bh w l jr-4 GIGAJBUUO ATVINNA/RAÐ/SMA SÚNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1991 2S AUGL YSINGAR Glerskurður Óskum eftir að ráða mann, vanan glerskurði og slípun. í boði eru góð laun fyrir réttan mann. Upplýsingar í símum 680327 og 11386. BLBBTBJ Framtíðarstörf Húsasmiðjan vill ráða starfsfólk í eftirtaldar stöður: • Smið, eða vanan afgreiðslumann, til starfa í smávöru- og verkfæradeild. • Við leitum að góðum starfskrafti til að vinna við afgreiðslukassa hálfan eða all- an daginn. • Ræsting hálfan daginn í verslun okkar í Skútuvogi. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist rekstrarstjóra Skútuvogsversl- unar fyrir 20. júlí. Farið verður með allar umsóknir sem . . trúnaðarmál og öllum svarað. T»n HÚSASMIPJAN HV= Skútuvogi, sími 687700 Ý Smiðir Smiðir, vanir mótauppslætti, óskast í vinnu við Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Einnig vantar kranamann á byggingarkrana svo og verkamenn. Upplýsingar gefur Páll á staðnum í síma 611657. ilfe SH VERKTAKAR Atvinnutækifæri Viðskiptafræðingur, með langa reynslu á sviði útflutnings- og innfiutningsverslunar og rekstri iðnaðarframleiðslu, óskar eftir að komast í samband við aðila, sem halda sig geta nýtt slíka reynslu. Til greina kemur þátt- taka í atvinnurekstri eða launað starf. Með öll tilboð verður farið sem algjört trún- aðarmál. Svar sendist til auglýsingadeildar Mbl. merkt: „Atvinnutækifæri - 1318“. Auglýsingastofa Við leitum að starfskrafti til skrifstofustarfa frá 1. ágúst nk. Starfið fellst m.a. í móttöku, símavörslu, gerð auglýsingapantana, rit- vinnslu, vélritun, útskrift reikninga o.fl. Umsóknir, ásamt uppjýsingum um aldur, menntun og fyrri störí, óskast sendar á aug- lýsingadeild Mbl. fyrir 23. júlí nk. merktar: „A - 7268“. Auglýsingastjóri Fróði hf. vill ráða auglýsingastjóra að tímarit- inu NÝTT LÍF, sem er eitt útbreiddasta tíma- ritið á íslandi. Áhugavert starf, sem krefst frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða. Af- kastahvetjandi launakerfi sem býður upp á góð laun fyrir dugmikinn og hugmyndaríkan starfskraft. Upplýsingar hjá Birni Jónssyni, markaðs- stjóra, sími 685380. Umsóknir berist fyrir 21. júlí 1991. Fróðihf. ÞJONUSTA Rafvirkjameistari Löggiltur rafverktaki getur bætt við sig verk- um, stórum og smáum. Upplýsingar í símum 41773 og 985-35565. TILKYNNINGAR Fósturforeldrar Hin árlega útilega verður um verslunar- mannahelgina á Jónasarvöllum sunnan við Hafralækjarskóla í Aðaldal. Upplýsingar í símum 97-71721 og 97-71887. Tilkynning til gjaldenda skipulagsgjalds í Reykjavík Gjaldendum vangoldins skipulagsgjalds er bent á að skipulagsgjaldskröfum fylgir lög- veðréttur í viðkomandi fasteign, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga nr. 19/1964. Verði vangoldin skipulagsgjöld álögð 1990 og 1991 eigi greidd fyrir 1. september nk. mun, skv. 1. gr. laga nr. 49/1951, fyrirvara- laust verða krafist nauðungaruppboðs á fast- eignum þeim, er lögrétturinn næryfir, til lúkn- ingar vangoldnum kröfum auk dráttarvaxta og kostnaðar. Tollstjórirm í Reykjavík. Krabbameinsrannsóknir Krabbameinsfélag íslands auglýsir styrki úr rannsóknastjóðum Krabbameinsfélagsins vísindaverkefna, sem tengjast krabbameini. Umsóknir skulu berast á sérstökum eyðu- blöðum, sem fást á skrifstofu félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík. Umsóknum skal skilað fyrir 1. september. Stefnt er að úthlutun styrkja í desember. Krabbameinsfélagið. % RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR í tilefni sjötugsafmælis Rafmagnsveitunnar stendur yfir sérstök afmælissýning í Minja- safni RR. Þar er m.a. virkjunarsaga Sogsins rakin í máli og myndum. Sýningarsalur safnsins er opinn almenningi á sunnudögum frá kl. 14.00-16.00. Skólanemendur, hópar og annað áhugafólk geta pantað tíma til að fá leiðsögn um safn- ið á öðrum tímum. Safnið er staðsett á ann- arri hæð Aðveitustöðvar andspænis Raf- stöðinni við Elliðaár. Sími Minjasafns er 679009. Hjólhýsi Af gefnu tilefni vill embætti skipulagsstjóra ríkisins koma því á framfæri að hámarks- breidd á hjólhýsi er 2,50 metrar samkvæmt vegalögum. Ætli eigandi að láta hjólhýsi ^standa lengur en einn mánuð utan skipu- lagðra svæða, þarf hann að sækja um leyfi byggingarnefndar viðkomandi sveitarfélags. Á undanförnum árum hafa verið flutt inn og seld sem hjólhýsi eða færanlegir sumarbústað- ir timbur- og málmgrindarhús, sem eru um 3 metrar á breidd og allt að 10 metra löng. Slík hús teljast ekki hjólhýsi heldur innflutt verk- smiðjuframleidd hús, sem þarf að fara með samkvæmt 13. gr. byggingarlaga nr. 54/1978 og gr. 3.4.9. í byggingarreglugerð. Skipulag ríkisins, Laugavegi 166, Reykjavík. TIL SÖLU Til sölu umboðs- og heildverslun Fyrirtækið þjónar aðallega matvöruverslun- um og söluturnum. Framlegð fyrirtækisins á árinu 1990 var kr. 22 milljónir. Áhugasamir aðilar skili nafni og nauðsynleg- um upplýsingum til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 25. júlí nk. merktum: „A - 151“. Landmælingartæki Sambyggður horna- og fjarlægðamælir, ásamt speglum, talstöð o.fl. til sölu. Svör leggist inn á auglýsingadeild Mbl., merkt: „GÓ - 3976“. Til sölu bókalager Lagerinn er 10.000 bindi í vönduðu bandi. Um er að ræða fjölbreytt bókaval. Einkar til- valið fyrir sölumenn, sem eru að fara um landsbyggðina, eða bókamarkaði. Nánari upplýsingar í síma 681001 á daginn, 40850 á kvöldin. Tilsölu Til sölu eru eftirfarandi tæki til verslunar- reksturs: 1. Omron RS-3010 sjóðvélar. 2. Avery búðarvigtar með prentara. Nýyfir- farnar. 3. Innkaupavagnar, 60 lítra. 5. Kassaborð, ýmist með einu eða tveimur færiböndum. Upplýsingar veitir Finnur Ingimarsson milli kl. 13.00 til 17.00, sími 689459, Faxafeni 10 (kjallara). HAGKAUP ÝMISLEGT WÓÐLEIKHÚSIÐ Auglýsingar á leikhúsmiða Þjóðleikhúsið óskar eftir tilboðum í auglýs- ingar sem prentaðar yrðu á bakhlið aðgöngu- miða næsta leikár. Til greina kemur að gera samning fyrir allt leikárið eða hluta þess. Tilboð óskast send Þjóðleikhúsinu, fyrir 1. ágúst nk., merkt: „Auglýsingar". Þjóðleikhúsið, pósthólf 280, 121 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.