Morgunblaðið - 05.01.1992, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.01.1992, Qupperneq 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 Gertað galdralæknum Rætt við Friðbjörn Sigurðsson lækni á Haiti reyndar mjög undarlegt, vegna þess að þjóðin á að vera bólusett fyrir mislingum. Þar hefur eitthvað farið úrskeiðis. Lítið sást af vestrænum sjúkdóm- um, til dæmis þekkjast kransæða- sjúkdómar varla, erida mjög sjald- gæft að Haitibúar reyki. Afengis- neysla er lítt tíðkuð, sérstaklega úti á landsbyggðinni. Haiti hefur fengið slæmt orð á sig vegna eyðni, sem breiðist mjög hratt úr í landjnu. Talið er að eyðni hafi uppaflega borist frá Afríku til Haiti og síðan breiðst þaðan til Norður- Ameríku. Ferðamannaþjónusta hafði aukist mikið, en hún hrundi þegar eyðni gerði vart við sig. Eyðni er ámóta algeng hjá konum og körlum á Haiti. Enginn veit hversu margir eru smitaðir, en vís- indamenn telja að 700.000 manns, þ.e.a.s. tíundi hluti þjóðarinnar sé sýktur. í melluhverfum í Port-au- Prince eru um 60 prósent smituð af eyðni. Útbreðsla sjúkdómsins eykst líklega á næstu árum, vegna þess að forvamastarf er lítið. Við höfðum afskaplega takmarkaða möguleika á því að meðhöndla eyðnisjúklinga. Lyfjameðferð til þess að fresta ein- Galdralæknirinn var með berkla. kennum eyðni eru mjög dýr og nær enginn Haitibúi hefur efni á henni. Margir telja einu von landsmanna að bóluefni finnist, svo að hægt sé að stöðva útbreiðslu sjúkdómsins." — Nú segir Aristíde forseti í nýlegri grein í New York Times að það sé einn hermaður á hverja 200 íbúa, en einn læknir á hverja 3.000. Var ekki mikið álag á ykk- ur? „Ég hef nú trú á því að læknar séu mun færri, en kemur fram í þess- ari tölu. I héraðinu sem ég vann í var einn læknir á hverja 15.000 íbúa og okkar hérað er þó tiltölulega vel sett. Jú, vissulega er álagið mikið og flestir sjúklingar komu ekki á sjúkrahúsið fyrr en þeir voru orðnir hundveikir. Það slæma er að það er háskóli með ágæta læknadeild á Haiti, en þrír fjórðu af þeim sem útskrifast þaðan yfirgefa landið og setjast að í Bandaríkjunum." — Hvernig stóð á því að þú fórst til Haiti? „Ég var þama á vegum Yale há- skóla, sem hefur lengi átt samstarf við Albert Schweitzer sjúkrahúsið. Frá Yale er jafnan einn unglæknir að störfum þarna, nokkrar vikur í senn. I vissum skilningi var þetta huggu- legt líf. Manni er séð fyrir vinnukonu og matráðskonu, sem eldar morgun- mat áður en maður mætir til vinnu klukkan sjö að morgni. í hádeginu er gert klukkutíma matarhlé og þá er maturinn tilbúinn á borðinu heima. Svo er unnið til sex eða sjö á kvöld- in — og reyndar oftast lengur. Lífið er rólegt utan vinnu, menn skreppa í sundlaugina, en hún lok- aðist vegna klórskorts eftir að bylt- ingin var gerð. Mikið er um það að fólk komi saman í kvöldverðarboð- um, svo var hægt að skreppa í göngutúr til nærliggjandi þorpa, eða fara á næstu markaði, í fjallgöngu eða niður á strönd.“ — Hvernig fólk eru Haitibúar? „Þetta er ágætis fólk og auðvelt eftir Jón Ásgeir Sigurðsson Myndir: Friðbjörn Sigurðsson Á HAITI er tíundi hver maður með eyðni. Landið er eitt af fátækustu löndum heims, en íbúamir virðast hamingjusamir þrátt fyrir örbirgðina. Frið- björn Sigurðsson, læknir, sem stundar framhaldsnám í ly- flækningum í Bandaríkjunum, var við störf á Haiti þegar bylt- ing var gerð þar í haust. Morg- unblaðið ræddi við Friðbjöm um dvöl hans í þessu fátæka landi og var hann fyrst spurður hvernig menn hefðu brugðist við byltingunni. USpreisnin var gerð klukkan þrjú að næt- urlagi, aðfaranótt mánudags, 30. sept- ember. Fréttin flaug eins og eldur í sinu um allt land, þannig að þegar fólk kom til vinnu á mánudags- morgun var þetta eina umræðuefnið. Menn voru mjög æstir yfir bylting- unni, sérstaklega á landsbyggðinni, vegna þess að þar er Aristide forseti gríðarlega vinsæll. Það ríkti mikið fát og fum strax eftir byltinguna. Herinn bannaði fólki að safnast saman, setti á útgöngu- bann, stöðvaði almenningssamgöng- ur, setti upp vegatálma og eyðilagði útvarpsstöðvar, þannig að það var engar fréttir að fá nema þær sem bárust milli manna. Einu fréttimar sem við fengum vom frá bandarísku stöðinni Voice of America. Fyrst kvisaðist að Aristide hefði komist undan og því héldu allir að hemum tækist ekki að ná undirtök- unum og forsetinn tæki við völdum á nýjan leik. En svo kom í ljós að hann hafði verið handsamaður og rekinn úr landi. Það olli miklum von- brigðum og mér fannst menn verða bæði þegjandalegir og þunglyndir. Landsmenn héldu reyndar í von- ina, og þráfellt flaug orðrómur um það, að Aristide væri á leiðinni til baka. Á hverjum einasta degi kom einhver til mín og sagði: „Veistu hvað! Aristide forseti er á leiðinni til landsins og nú kemst allt í samt lag aftur!““ — Eru Haiti-búar svona ein- faldir? „Nei, það held ég ekki. Almenn- ingur er langþreyttur á pólitískum upphlaupum og eftir kjör Aristide var fólk mjög vongott um framtíð- ina. Lýðræði er mjög ungt á Haiti og framfarir engar ennþá, en samt hélt fólk í vonina. Ég kynntist mörg- um sem fannst þeir vera að taka þátt í uppbyggingu landsins. Haiti er annað land í Ameríku sem öðlast sjálfstæði og það fyrsta í heim- inum þar sem svertingjaþjóð ræður ríkjum. Rétt eftir aldamótin 1800 ráku svartir þrælar frönsku nýlendu- herrana úr landi. Landið var sjálf- stætt til 1915, þegar Bandaríkin gerðu innrás og héldu landinu í 19 ár. Trúðarnir eftir Graham Greene er skemmtileg saga og mjög góð lýsing á lífemi Haiti-búa um miðja öldina. Greene bjó um tíma á Haiti og kynntist þjóðfélaginu mjög vel. Bókin var skrifuð á meðan einræði var enn við lýði í landinu, og illræmd- ar sveitir Tontons Macoute kúguðu alla í skjóli hryðjuverka og ofbeldis. Greene segir frá hóteleiganda sem lendir í því að veita andófsmönnum Þinghúsið á Haiti var eitt sinn einkahöll einræðisherranna Papa Doc og Baby Doc. á Haiti aðstoð. Bókin féll ekki stjóm- völdum í geð og var bönnuð. En ástandið hefur gjörbreyst eftir að lýðræði komst á, menn em óhultir og ekki lengur hræddir við yfirvöld. Venjulega ber lítið á hemum, enda ekki nema um 10.000 manns í hon- um, en íbúar Haiti em um 7 milljónir. En það er því miður staðreynd að sjötíu prósent þjóðarinnar em ólæs. Það fást engin dagblöð á landsbyggð- inni og sjónvarp nær ekki út fyrir höfuðborgina Port-au-Prince, þannig að upplýsingar em af skornum skammti í landinu.2 — Voruð þið á spítalanum ekki dauðhrædd um að það yrði gerð árás á ykkur? „Nei, það hefur aldrei verið nein óvild í landinu gagnvart vestrænu fólki. Albert Schweitzer-sjúkrahúsið sem ég starfaði við er 35 ára gam- alt og á Haiti hefur ýmislegt gerst síðustu áratugi, en það hefur aldrei verið ráðist á sjúkrahúsið eða starfs- menn orðið fyrir aðkasti.“ — Segðu frá sjúkrahúsinu. „Það er í Artebónítdal um það bil 140 kílómetrum fyrir norðan höfuð- borgina. Artebónít er stærsti dalur í landinu, hann er mjög fijósamur og þar búa 170.000 manns. Sjúkra- húsið stofnaði Bandaríkjamaður sem hét Mellon og var læknir. Hann dó háaldraður fyrir tveimur ámm en ekkja hans býr þarna ennþá. Mellon- ættin í Bandaríkjunum var ámóta efnuð og Rockefeller-ættin. Dr. Mell- on var bóndi á stórbýli í Arizona fram á miðjan aldur. En 37 ára gamall las hann grein um Albert Schweitzer sem vann mikið líknarstarf í Afríku og hafði stofnað þar sjúkrahús. Mellon skrifaði Schweitzer og ákvað síðan að fara í læknaskóla í Louisiana í þeim tilgangi að stofna sjúkrahús í þriðja heiminum. í skól- anum var honum gert að skrifa grein um hitabeltissjúkdóma og hann ákvað að rannsaka þá á Haiti. Mellon uppgötvaði að það var mikil þörf fyrir sjúkrahús í Artebónítdalnum og hann samdi við stjórnvöld um að fá að stofnsetja þar sjúkrahús. Það var byggt og fyrst í stað rek- ið á reikning Mellons, en hann lét sjúklinga alltaf borga smágjald, einn eða tvo dollara fyrir hveija komu. Auk þess þurftu menn að borga 3-6 dollara fyrir hvern dag á spítalanum. landi.2 — Hvað um heilsufar lands- manna? „Vanheilsa er aðallega vegna fá- tæktar. Fólk hefur varla til hnífs og skeiðar og vannæring er algeng, sér- staklega hjá bömum. Raunar er van- næring algengasta innlagnarástæða á bamadeild Albert Schweitzer sjúkrahússins. Ungbamadauði er tíð- ur og á hveijum degi dóu nokkur börn á spítalanum. Haiti er meðal þéttbýlustu landa í heimi og fólk býr mjög þröngt. Meirihluti íbúanna hef- ur ekki aðgang að hreinu vatni og margir sjúkdómar tengjast því, eins og til dæmist taugaveiki. Berklar eru mjög algengir og vax- andi vandamál, meðal annars vegna þess að eyðnisjúklingar hafa litla vörn gegn berklum. Við sáum mikið af malaríu, en sem betur fer er mal- aríu-stofninn á Haiti næmur fyrir einfaldri lyíjameðferð. Þegar ég var á Haiti gekk þar mislingafaraldur sem leiddi fólk til dauða. Það er Óhugnanlegt síð- usár af völdum berkla sem eru útbreiddir á Haiti. Fimm daga lega á spítalanum kost- aði það sama og útför í þá daga. Enda sagði Mellon við fólk að úr því að það vildi borga svo mikið fyrir útför, gæti það borgað sömu upphæð fyrir að láta bjarga lífí sínu! En síðan tók sérstakur sjóður við rekstri spítalans og mikið af fénu sem rennur í hann er gjafafé frá Bandaríkjunum og víðar. Ríkið í Haiti styrkir spítalann ekkert og í landinu eru engar almannatrygging- ar til heilsugæslu eða annarra vel- ferðarmála. Mellon vann aðeins fyrstu árin sem læknir við spítalann, en sneri síðan að öðrum verkefnúm í Artebónít dal, eins og uppbyggingu vatnsveitu. Hjá spítalanum starfa að staðaldri tólf læknar — fjórir lyflæknar, fjórir bamalæknar og fjórir skurðlæknar. Sex þeirra eru innfæddir, þar á með- al yfírlæknir sjúkrahússins. Hann sótti menntun til Bandaríkjanna, en sneri til baka til Haiti þegar Duvali- er einræðisherra var rekinn úr

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.