Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANUAR 1992
C 15
Friðbjörn Sig-
urðsson í aðgerð.
Ungmennið kom
inn með vökva-
söfnun í goll-
laugshúsi, senni-
lega af völdum berkla, og var blóðflæði til
hjarta um það bil að stöðvast.
Biðröð eftir læknisskoðun.
að eignast vini þarna. Haitibúar virð-
ast hamingjusamir, þrátt fyrir gríð-
arlega fátækt. Þeir eru glaðir í sinni,
alltaf brosandi, enda þótt viðmótið
breyttist um skeið eftir uppreisnina.
Sumir segja að landsmenn skorti all-
an metnað og kannski er það skýr-
ingin á því hversu hægar framfarir
hafa verið.
Haitibúar eru almennt trúaðir, ég
held að þeir telji sig kristna, en áhrif
frá vúdú-trúnni eru mjög sterk og
virðist hún hafa aðlagast kaþólskum
sið. Mörg kvöld heyrði maður í
fjarska trumbuslátt frá einhverri
vúdú-hátíð. Það var gjaman haldið
áfram alla nóttina, en síðan var far-
ið úr vúdú-dýrkun beint í kirkju!"
— Þið keppið við aðra lækna,
það er að segja galdralækna?
„Fólk leitar mikið til galdralækna.
Ég sá mjög oft för eftir „Bókor“ —
galdralækni — á fólki sem kom á
spítalann. Þeir gátu verið mjög hjálp-
legir, eins og við meðferð geðsjúk-
dóma sem við gátum lítið sinnt. Rétt
fyrir byltingu kom á stofuna til mín
galdralæknir, sem mér þótti gaman
að tala við. Hann hafði lært af föður
sínum og var að kenna syni sínum
galdralækningar. Hann hafði reynt
að lækna sig sjálfur, en ekki gengið
nógu vel þannig að hann kom á spít-
alann. Reyndar er víst algengt að
galdralæknar leiti eftir aðstoð á spít-
alanum.
Þessi galdralæknir var með
lungnaberkla á nokkuð alvarlegu
stigi, svo að ég lagði hann inn á
berkladeild og hitti hann nokkrum
sinnum á meðan hann var að hjarna
við.
Viðhorf margra sjúklinga á Haiti
er mótað af viðskiptum við galdra-
lækna. Menn halda að ef þeir fái
kvilla, þá sé það vegna þess að ein-
hver óvinur hafi sent kvillann í mann.
Þá er farið til galdralæknis svo að
hann geti rekið þennan illa anda á
brott. Þegar ég sagði sjúklingi að
hann væri með eyðni, þá svaraði
hann: Ég veit af hverju ég er með
eyðni, það er af því að þessi og þessi
sendi hana í mig. Og þegar ég svar-
aði að þetta væri kynsjúkdómur,
skildi sjúklingurinn ekki hvað það
þýddi."
— Hvernig heldurðu að Haiti
reiði af?
„Mér virðist að ástandið hljóti að
versna á næstu árum. í yfírstétt er
vel menntað fólk, sem talar frönsku
sín á milli og er vestrænt í fasi. En
líklega eru 60-70 prósent þjóðarinnar
ólæs og allur þorri talar kreólsku,
sem nýlega varð ritmál. Það gerist
lítið í menntamálum, böm eru ekki
send í skóla vegna þess að fátækt
er gríðarleg. Enda þótt skólakostnað-
ur sé aðeins 30-40 dollarar á ári,
ræður fólk með 6-7 böm ekki við
hann. Eftir byltingu lagðist allt skól-
astarf af.
Innviðir Haiti era í molum, vega-
kerfíð mjög slæmt og lítið um einka-
bíla, almenningssamgöngur eru
strjálar og lélegar, símakerfíð nær
aðeins til stærstu borga, fæstir hafa
aðgang að síma, rafmagn nær sömu-
leiðis ekki víða og rafkerfíð bilar
mjög oft. Fyrir byltingu skrapp ég
eitt sinn dagstund til Port-au-Prince,
rafmagnið fór þrisvar af allri borg-
inni það kvöldið!
Á Haiti búa rúmlega 7 milljónir
manna á pínulitlum landskika. Þetta
var eitt sinn grænt og fijósamt land,
en vegna offjölgunar hafa skógarnir
verið að hverfa. Uppblástur er mik-
ill. Það era engar auðlindir í jörðu á
Haiti. Efnahagsleg uppbygging er
hverfandi, ekkert bætist við iðnað
og fískveiðar eru á algjöra frum-
stigi. Haiti er því sem næst algjör-
lega háð innfluttri olíu til orkufram-
leiðslu.
Viðskiptabannið var farið að
sverfa að þegar ég fór frá Haiti, það
hafði áhrif á almenning en einnig
var orðið vart við skort á lyfjum og
hjúkranargögnum. Margir litlir spít-
alar þurftu að loka vegna skorts á
rekstrarvöram. Reyndar er það svo
að alla fullkomnari læknismeðferð
þurfa fjölskyldur sjúklinga að kosta
sjálfar, til dæmis þarf að sækja lyf
fyrir krabbameins- eða eyðnisjúkl-
inga til Bandaríkjanna, og eins og
gefur að skilja hefur nær enginn
efni á því.“
— Þú komst úr landi heilu og
höldnu?
„Þegar kom að því að ég héldi
heim á leið, ríkti ennþá hættuástand.
Ungir apótekarar. Á útimörkuð-
um voru ólögleg lyf til sölu, þess-
ir drengir falbuðu helstu sýkla-
lyf-
Eyðnisjúklingar eru tíundi hluti
þjóðarinnar.
Fólk hélt sig mest innandyra í Port-
au-Prince og það sáust fáir bílar á
götum. Reyndar sáust líka fáir her-
menn og það bar ekkert á þeim á
alþjóðaflugvellinum. Allskyns kvittir
gengu um það að erlend flugfélög
væru að byrja að fljúga en þau frest-
uðu ákvörðun dag frá degi. Flugfélag
Haiti byijaði svo að fljúga einu sinni
á dag til Miami. Mikill fjöldi fólks
beið þess að komast úr landi, en það
var ekki tekið við pöntunum. Maður
varð að bíða í biðröð frá fjögur að
morgni í allt að hálfan sólarhring.
Þeir sem vora svo heppnir að kom-
ast að afgreiðsluborðinu þurftu að
múta starfsmönnum með um það bil
100 dolluram hver, til þess að selja
sér farseðil. Besta ráðið var að
þekkja nafn á einhveijum flugvallar-
starfsmanni. Vinkona mín fékk nafn-
spjald frá einum, hún var tekin fram
fyrir í biðröðinni og komst úr landi
samdægurs. Ég fékk sama nafn-
spjaldið, en hann var þá í fríi!
En svo komst ég á snoðir um það
að litlar leiguflugvélar væru að fljúga
frá litlum flugvelli í höfuðborginni.
Ég var svo heppinn að komast dag-
inn eftir með lítilli rellu til Dómin-
ikanska lýðveldisins sem er austan
megin á eyjunni Hispaníólu. Það var
Norðmaður, Kaj Sörensen frá Þránd-
heimi, sem flaug með mig yfír. Hann
sagðist engann áhuga hafa á að fara
aftur til Noregs, þar væri allt svo
leiðinlegt — engar uppreisnir.
Enda þótt ég hefði mjög góða
reynslú af Haiti-búum, var það samt
sem áður góð tilfinning að fara i
loftið frá Port-au-Prince.“
■Wfe
lceland-Florida Connections
I
Ferðaþjónusta í Orlando í Flórída.
íslenskt starfsfólk.
Hótel, íbúðir, hús, bíialeigubílar,
skemmtisiglingar af öllum tegundum,
farseðlaþjónusta, aðstoð við komu á
Orlando-flugvöll og margt fleira.
Golf kennsla og golfpakkar.
Iceland-Florida Connections er sérs-
taklegur ráðgjafi fyrir Coca-Cola á ís-
landi varðandi Flórída ferðir.
Iceland-Florida Connections fagnar
því að geta nú boðið viðskiptavinum
sínum upp á bílaleigubíla frá Hertz
hvar sem er í Bandaríkjunum.
Pantanirmeð
faxi (407) 381 5610.
Sími (407) 381-5323.
Herbz
,yORÆTTi hÁS'F
Síðasti söludagur
í H-flokki
á morgun.
Milljónir dregnar út
þriðjudagskvöld.
SPENNANW!
- ef þú átt miða!
Meina en þú geturímyndað þér!