Morgunblaðið - 05.01.1992, Qupperneq 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR
5. JANUAR 1992
IBIO
Bíóin hafa boðið upp á
úrval teiknimynda
fyrir böm um jólahátíðina
og hafa áhugasamir
krakkar eflaust fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Alls em tíu teiknimynd-
ir í gangi þessa dagana.
Sam-bíóin bjóða upp á
þrjár; Öskubusku frá dög-
um Walt Disneys, Benna
og Birtu í Ástralíu og Leit;
ina að týnda lampanum. í
Háskólabíói er ágætlega
gerð sænsk teiknimynd
sem heitir Perðin til
Melóníu, í Laugarásbíói er
framhaldsteiknimyndin
Fievel í villta vestrinu og
teiknimyndasafn og í
Regnboganum er Hnotu-
brjótsprinsinn, Kötturinn
Felix, Ástríkur og bardag-
inn mikii og loks Fugla-
stíðið í Lumbmskógi með
íslensku tali.
Sú mynd hefur fengið
mjög góða aðsókn út á
íslenskt tal og ætti að vera
hvatning fyrir önnur bíó
að stefna að talsetningu
teiknimynda sinna þótt
dýr sé.
GERÐ UPP Á NÝTT
Robert De Niro;
fleiri endurgerðir.
Arið 1950 gerði leikstjór-
inn Jules Dassin
mvndina „Night and the
City“ með Richard Wid-
mark í hlutverki smák-
rimma í næturklúbbi. Gene
Tierney var einnig í henni.
Nú hefur framleiðandinn
Irwin Winkler lagt út í
endurgerð hennar með Ro-
bert De Niro í Widmark-
hlutverkinu og Jessicu
Lange í Tiemey-rullunni.
Endurgerðir era talsvert
í tísku þessa dagana og De
Niro fer einmitt með aðal-
hlutverkið í þeirra nýjustu,
„Cape Fear“ eftir Martin
Scorsese.
í „Night and the City“
leikur De Niro lögfræðing-
inn Harry Fabian, sem leið-
ist út í vafasama hluti
til að auka lítillega
tekjumar. „Mynd-
in er um fólk sem
grípur til örþrif-
aráða til að
veita sér eitt-
hvað betra í
lífinu," segir
Winkler.
Dassin
gerði myndina
sína í Bretlandi
þangað sem
hann flúði eftir
að hann varð út-
lægur frá Banda-
ríkjunum í ofsókn
unum gegn kommúnist-
um í Hollywood. Hann
flæktist til Frakklands og
loks til Grikklands þar sem
hann kvæntist
Mercouri.
Melinu
7.000 HAFA SEÐ
ADDAMSFJÖLSKYLDUNA
Alls hafa um sjö þúsund
manns séð gaman-
myndina Addamsfjölskyld-
una í Háskólabíói samkvæmt
upplýsingum frá bíóinu.
_ Þá hafa um 4.000 manns
seð gamanmyndina Allt sem
ég óska mér í jólagjöf, sami
íjöldi hefur komið til að sjá
verðlaunamyndina Tvöfalt líf
Veróniku eftir Pólveijann
Krzysztof Kieslowski, um
hálft þriðja þúsund hefur séð
sænsku teiknimyndina Ferð-
ina til Melóníu og um 15.500
manns hafa séð tónlistar-
Pfeiffer og Pacino
„Frankie og Johnny“.
mynd Alan Parkers, „The
Commitments".
Fyrstu myndir bíósins á
nýju ári verða m.a. „FX 2“
með Brian Brown og Brian
Dennehy, „Regarding
Henry“ með Harrison Ford,
„A Rage in Harlem" og
„Mistery Date“ en í febrúar
verða að líkindum glæpa-
myndin „Dead Again“ eftir
og með Kenneth Branagh
(Hinrik V) og „Frankie og
Johnny" með A1 Pacino og
Michelle Pfeiffer.
ASTAR-
SAGA
HANDA
OLIN
Sænska leikkonan Lena
Olin hefur komið sér
kyrfilega fyrir í Hollywood
eftir stórmyndir eins og
Óbærilegur léttleiki tilver-
unnar, Ovinir, ástarsaga og
Havana. Hún var ein af
fáum sem komu til greina
hlutverk Kattarkonunnar i
framhaldsmyndinni Batman
snýr aftur en Michelle Pfeif-
fer hreppti það á endanum.
Nýjasta mynd Olin vestra
heitir „Mr. Jones“ og er leik-
stýrt af Mike Figgis, sem
gerði þrillerinn Siðanefnd
lögreglunnar, en mótleikari
Olin er Richard Gere. Olin
hefur ekki leikið í öðra en
ástarsögum vestra og þessi
er ein af þeim.
í myndinni leikur hún
geðlækni, sem fær Gere til
meðferðar. Hann er þung-
lyndissjúklingur sem rang-
lega hefur verið greindur
sem geðklofi og sendur á
geðsjúkrahús. Sem betur fer
fyrir hann tekur Olin þar á
móti honum en hún flytur
hann á annan spítala þar
sem hann gengst undir lyfj-
ameðferð og kynnist miklu
nánar nýja lækninum sínum.
WFramhaldsmynd Leitar-
innar að Rauðum október
eftir Tom Clancy heitir
„Patriot Game“. Alec
Baldwin fór með aðalhlut-
verkið í fyrri myndinni en
missti hlutverkið vegna
óhóflegra krafna til Harri-
sons Fords. Mótleikarar
Fords verða m.a. Samuel
L. Jackson, ógleymanlegur
sem dópisti í Frumskógar-
hita Spike Lees, og Anne
Archer úr Hættulegum
kynnum. Leikstjóri er Ástr-
alinn Phillip Noyce.
Hvada myndir voru bestar 1991f
Stildaö á stóru
ÞEGAR valdar eru tiu bestu bíómyndirnar á síðasta ári
eins og veiyan er sækir ein á mann eins og vinur sem
maður ætlar að hafa í kvöldverð að hætti Hannibals
Lecters. Lömbin þagna gaf geðsýki botnlausrar illsku
andlit og rödd sem, þótt furðulegt sé, heillaði ekkert
síður en hræddi í dæmalausum leik Anthony Hopkins.
Þar fór spennumynd spennumyndanna. f samanburði var
Arnold Schwarzenegger aumasta leikskólalögga í Tor-
tímandanum 2 en brellurnar og gæði hasarsins gera
hana að bestu hasarmynd ársins.
Nokkrar myndir Kvik-
myndahátíðar Listahá-
tíðar vora sýndar á almenn-
um sýningum (eingöngu
myndir á almennum sýning-
mmmmmmmmm^m um komast
á listann)
en ein af
þeim var
Vegur von-
ar. Það er
svissnesk
óskarsverð-
launamynd
um hroll-
tyrkneskrar
Álpana til
eftir Arnald
Indriðason
vekjandi
fjölskyldu
ferð
yfir
Sviss í leit að betra lífi. Jakob
í Stiga Jakobs leitaði einfald-
lega að lífi í mynd sem alltof
fáir sáu en var ein af bestu
myndum ársins og illa van-
metin. Leitin að tilgangi hefði
getað verið yfirskrift „The
Doors" eftir Oliver Stone um
ævi Jim Morrisons. Stundum
var eins og myndin ætlaði
að drepast af ofskammti en
fór aldrei yfir móðuna miklu
heldur varð dúndurkraftmikil
og áhrifarík.
Kevin Costner var mjög
áberandi á árinu og átti
reyndar tvær metsölumyndir,
Dansar við úlfa og Hróa hött.
„Dansar" var hans persónu-
lega stórvirki, mynd sem
hann Ieikstýrði og Iék í og
hreppti fyrir fjölda óskars-
verðlauna. Gagnrýnandinn
Pauline Kael sagði að hann
hefði fjaðrir á hausnum og
fiður í kollinum en það hafði
engin áhrif.
Eddi klippikrumla var í
ætt fallegu ævintýranna í
frásögn af utanveltustrák
með skæri í handa stað. Tim
Burton skreytti ævintýrið
með frábærum sviðsbúnaði
og töfrum sem gera hann að
einstökum leikstjóra í Holly-
wood. Annar töframaður, ís-
lenskur reyndar, er Friðrik
Þór Friðriksson sem gerði
Börn náttúrunnar, eina af
bestu myndum íslenskrar
kvikmyndagerðar. Það var í
henni ljúfsár söknuður eftir
einfaldari, saklausari tímum
og ef maður tekur hana á
hennar eigin skilmálum eru
fáar íslenskar myndir jafn
gefandi. Hvíti víkingurinn
hafði lítil áhrif í sunduriausri
bíóútgáfu en eftir á að fram-
sýna verkið óstytt í sjónvarpi.
Coen-bræður komu enn á
óvart með Barton Fink, svart
kómískri hryllingsmynd sem
10
BESTU
1991
Lömbin þagna (The Si-
lence of the Lambs, Jon-
athan Demme).
Vegur vonar (Xavier
Koller).
Eddi klippikrumla (Edw-
ard Scissorhands, Tim
Burton).
Börn náttúrunnar (Frið-
rik Þór Friðriksson).
Tortímandinn 2
(Terminator 2: Judge-
ment Day, James Cam-
eron).
Stigi Jakobs (Jacob’s
Ladder, Adrian Lyne).
The Doors (Oliver
Stone).
Barton Fink (Joel og Ethan Coen).
Kokkurinn, þjófurinn, kona hans og etskhugi henn-
ar (The Cook, the Thief, His Wife and Her Lover,
Peter Greenaway).
Frumskógarhiti (Jungle Fever, Spike Lee).
Arnaldur Indriðason
Vinur í matinn; Anthony
Hopkins sem Hannibal Lecter
í Lömbin þagna
10
BESTU
1991
Dansar við úlfa (Dances
With Wolves, Kevin
Costner).
Cyrano De Bergerac
(Jean-Paul Rappeneau).
Lömbin þagna (The Si-
lence of the Lambs, Jon-
athan Demme).
Barton Fink (Joel og
Ethan Coen).
Bilun í beinni útsend-
ingu (The Fisher King,
Terry Gilliam).
Kokkurinn, þjófurinn,
kona hans og elskhugi
hennar (The Cook, the
Thief, His Wife and Her
Lover, Peter Gre-
enaway).
Vegur vonar (Xavier Koller).
Frumskógarhiti (Jungle Fever, Spike Lee).
The Commitments (Alan Parker).
Börn náttúrunnar (Friðrik Þór Friðrikoson).
Sæbjörn Valdimarsson
gerir heilmikið grín að Holly-
woodvaldinu og lýsir því
myrkri og þeirri innilokunar-
kennd sem einkenna veröld
rithöfundar á niðumíddu hót-
eli og samskiptum hans við
dularfullann nágranna. Ver-
öldin var orðin svo snúin und-
ir lokin að minnti á Tví-
dranga.
Stóra viðburðimir á ný-
liðnu bíóári voru Kvikmynda-
hátíð Listahátíðar, frumsýn-
ing tveggja íslenskra bíó-
mynda, opnun nýs kvik-
myndahúss í eigu Áma
Samúelssonar og loks Felix-
inn í höndum Hilmars Þórs
Hilmarssonar tónlistar-
manns. Einnig voru ýmiss
konar kvikmyndadagar mjög
áberandi allt árið. Sjaldan
eða aldrei hefur jafnmikil
gróska verið í kynningu á
bíómyndum sem gerðar era
utan Bandaríkjanna en einna
eftirminnilegustu kvik-
myndadagamir voru þeir
svissnesku, frönsku og
dönsku. Árið 1991 bauð upp
á gott úrval evrópskra mynda
(m.a. í tengslum við Kvik-
myndahátíð) eins og Cyrano
de Bergerac, Homo Faber og
Tvöfalt líf Veróniku.
Meðfýlgjandi era listar
kvikmyndagagnrýnenda
Morgunblaðsins yfir bestu
myndir nýliðins árs. Myndun-
um er raðað af handahófí.