Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 23

Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 23
X <?23 MORGUNBIiAÐIÐ 'MINNINQAR^IMMfMtaR'S.'JAN'ÚAR 1992 - I i \ Kveðjuorð: Eannveig Vigfúsdóttir Fædd 5. janúar 1898 Dáin 7. október 1991 A fæðingardegi frú Rannveigar Vigfúsdóttur vil ég minnast henn- ar nokkrum orðum, en hún lést í hárri elli á Hrafnistu í Hafnarfirði 7. október sl. Þegar Slysavarnafélag íslands var stofnað árið 1928 gerðust Rannveig og eiginmaður hennar Sigurjón Einarsson skipstjóri stofnfélagar þess og síðan þegar kvennadeildin Hraunprýði var stofnuð í Hafnarfirði 1930 var Rannveig meðal stofnenda og í fyrstu stjórn. Árið 1937 var hún kosin for- maður og gegndi því starfi í 23 ár eða svo lengi sem hún gaf kost á sér. I formennsku hennar og undir hennar handleiðslu óx starfsemi og félagatala deildar- innar ár frá ári og hafði mjög örvandi áhrif á aðrar kvennadeild- ir í félaginu, sem þá voru í mót- un. Það voru mörg verkefni sem ráðist var í í formannstíð Rann- veigar, sem ekki verða talin hér, en hún var ákaflega metnaðarfull fyrir sína deild og uppskar laun erfiðis síns. Hraunprýði er fjöl- mennasta kvennadeild innan Slysavarnafélags íslands og starf- ar af þrótti og framsækni. Rannveig er ógleymanleg öllum sem störfuðu með henni að slysa- varnamálum. Hún var einstök hugsjónakona og fannst enginn vandi svo stór að ekki væri hægt að leysa hann. Hún var mikill stjórnandi, glöð og hvetjandi, gerði kröfur til stjórnarkvenna, en þó fyrst og fremst til sjálfrar sín og unni málefninu af heilum hug. Það var líka styrkur hennar og einn af góðum eðliskostum hversu hún lét í ljós þakklæti til þeirra kvenna, sem leystu verkin af hendi. Hún hafði þannig áhrif á mig, þegar ég ung að árum . gekk til liðs við þennan félags- skap, að ég gerði allt með gleði sem ég var beðin um, því ég vildi ekki valda henni vonbrigðum, þessari konu sem^sjálf var sjó- mannskona og móðir, en báðir synir hennar, Einar og Vigfús, voru sjómenn í mörg ár. Rannveig lagði því allan sinn metnað i að efla og styrkja þetta mikilvæga félag. Frú Rannveig sat í aðalstjórn Slysavarnafélags Islands í 22 ár og sat þing félagsins í öll þau ár. Hún var ákaflega glæsileg kona og vakti athygli hvar sem hún fór, tók oft til máls og þar gafst henni tækifæri til að vera þátttak- andi í að koma góðum málum í höfn. Rannveig hætti sem formaður Hraunprýði þegar þeim hjónum var falin framkvæmdastjórn á Hrafnistu í Reykjavík árið 1957. En hún tók virkan þátt í störfum félagsins meðan heilsan leyfði og allt fram á síðasta dag fylgdist hún með störfum okkar. En þar átti hún styrka stoð, þar sem Hulda dóttir hennar var tengilið- urinn sem aldrei brást. Það var henni ómæld gleði að tvö af börn- um hennar hafa verið í forystu- sveit slysavarnafólks um áraraðir, bæði í Hafnarfirði og í aðalsam- tökunum. Frú Rannveig lifði langan dag. Hún naut virðingar að verðleikum- .og var sæmd þeim heiðri, sem félagið hefur yfir að ráða. Hún sá félagið, sem hún unni og var stofnandi að, verða að því sterka vígi, sem það er í þjóðfélaginu í dag. Félagskonur í Hraunprýði kveðja Rannveigu með virðingu og þökk. Blessuð sé minning mætrar konu. Ester Kláusdóttir, formaður Hraunprýði * Útsalan hefst á morgun 40-70% afsláttur * RITA, Eddufelli. Aiii 0TV^RP?T/fK' SÆo6%DSTÆWstÆÐUR ^%ÖRP ..m A||M vðtf>AR VITLAUST S$iAR c1iKISTUR SAUMavélar ssr* °G. FL ekkert á réffuVe^ KOMDU OG GRÆDDU Á ÖLLUSAMAN Veislunni lýkur 31.1.92 Höfóar til .fólks í öllum starfsgreinum! HEIMILISTÆKJADEILD FALKANS Suðurlandsbraut 8 - Sfmi 814670

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.