Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 28
28 ,-(D MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 mmmn Ást er... |«uT" Vi-30 . að láta hjartað ráða. TMReg. U.S. Pat Off.—all rights reserved ° 1991 Los AngelesTímesSyndicate Jt i -—1 % / ) s:I Áhugavert, en hvar eru raf- hlöðurnar settar í samband Með morgTinkaffínu o — ’j dJoc mtr* * Búa til snjókall? — Er’ann ekki í lagi sem ég bjó til í fyrra? HÖGNI HREKKVÍSI Á FÖRNUM VEGI Nýja risahesthúsið á Ytra-Holti á Dalvík. Dalvík; Líf færíst í stærsta hesthús landsins Dalvík. m ÞESSAR mundir eru hesta- eigendur á Dalvík sem óðast að taka í notkun ný hesthús en þeir eiga nú um áramót að vera búnir að rýma gömlu hesthúsin sem voru orðin fyrir í skipulagi bæjarins og sum nánast komin inn í íbúðar- hverfi. Umræður um framtíðarstað- setningu búfjárhalds innan bæjar- marka Dalvíkur hafa staðið til margra ára og leystust ekki fyrr en árið 1990 með kaupum bæjarins á jörðinni Ytra-Holti sem er syðst í landi Dalvíkur. Til þess staðar höfðu menn lengi horft sem ákjós- anlegs svæðis fyrir hestamenn og aðra þá sem yndi hafa af húsdýra- haldi. Síðla þess árs festu hestamenn kaup á stórum refaskála sem á jörð- inni var og hafa þeir til þessa unn- ið að því að breyta honum með til- liti til nýrrar starfsemi. Skálinn mun verða eitthvert stærsta hesthús á landinu, um 4.600 fm að flatarmáli og rúmar 300-350 hross. Honum er deilt niður í nokkur 50-200 fm pláss sem hver og einn hestamaður kaupir og innréttar að eigin vild, en hvert 100 fm pláss rúmar 11-12 Auk þessa mun Hestamannafélagið hross. Þannig verða öll hesthús á Hringur verða með félagsaðstöðu Dalvík undir einu og sama þaki. sína í húsinu og þá er gert ráð fyr- Morgunblaðið/Trausti Þorsteinsson Hestamenn fá sér kaffi, koníak og konfekt I einni kaffistofu nýja hesthússins á Dalvík, f.v. Steinar Steingrímsson og Rafn Arnbjörns- son. Víkverji skrifar að þykir ekki hrós þegar ein- hver er kallaður þorskur. Þó er það svo að það er einmitt þetta fyrirbæri, þorskurinn, og aðr- ir nytjafiskar í íslandsálum, sem gera landið byggilegt. Auðlegð, sem svo að segja hvar- vetna blasir við í byggðum bólum landsins, sem og lífskjör og velferð Iandsmanna, er að langstærstum hluta sótt í sjó. Þorskurinn og aðrir nytjafiskar eru kostnaðarleg undirstaða vel- ferðarinnar í landinu og efnalegs sjálfstæðis þjóðarinnar. Orðið þorskur sem hrakyrði fer því illa í munni mörlandans, að dómi Víkverja þessa dags. xxx egar síldarstofninn hrundi vegna innlendrar og erlendrar ofveiði - í bland við tímabundin óhagstæð lífsskilyrði í sjónum - misstu íslendingar næstbeztu „mjólkurkúna" úr fjósi þjóðarbús- ins. Síldin ein veitti þorskinum ein- hverja samkeppni sem stærsta sjáv- arauðlind landsmanna. Með hruni síldarinnar hrundi at- vinnu- og efnahagsundirstaða nokkurra sjávarplássa, sem byggðu allt sitt á þessum nytjafiski, eins og Siglufjörður. Nú spyr maður mann, ekki að ástæðulausu, hvort eins fari fyrir þorskinum og síldinni. Þar kemur tvennt til. Veiðisókn umfram veiði- þol. Og dyntir náttúrunnar. Valdi- mar Gunnarsson, sjávarútvegs- fræðingur, segir í Sjávarfréttum: „Ástæður fyrir sveiflukenndum afrakstri þorskstofnsins eru marg- ar, t.d. mismunandi hitastig í sjón- um, fæðuframboð og nýliðun á milli tímabila. Orsakir mismunandi nýlið- unar milli ára hafa lítið verið rann- sakaðar en eru taldar margar.“ Höfundur nefnir fernt til. Onógt magn af fæðu af hæfilegri stærð þegar seiðin byija að taka til sín æti. Ástand, stærð og aldur þorsk- stofnsins. Vinda, strauma og sjáv- arhita. Og loks afræningja. Athyglisverðasti þátturinn í grein sjávarútvegsfræðingsins fjallar um framleiðslu þorskseiða og þá reynslu sem náðst hefur í hafbeit á þorski, en tilraunir í þá átt eiga sér áratuga sögu í Noregi. Mál er að fylgjast vel með framvindu þeirra tilrauna. XXX Jóhann Siguijónsson sjávarlíf- fræðingur segir í Sjávarfréttum: „Við höfum hingað til ekki talið tímabært að kynna nákvæmar áætlanir um heildarafrán hvala á öðrum sjávarlífverum á íslenzka hafsvæðinu, en á næstu misserum verður lokið úttekt á þessu máli og mat lagt á helztu óvissuþættina. Við getum hins vegar fullyrt að hvalirnir éti milljónir tonna á ári af æti og fiski og það er í sjálfu sér nægileg ástæða til þess að skoða málið miklu nánar og reyna að meta þátt þessara dýra í lífkeðju hafsins." í sama blaði er fjallað um athug- un Erlings Haukssonar, sjávarlíf- fræðings, á „samkeppni" sela um fiskmetið í sjónum. Hann „komst að þeirri niðurstöðu, að landselir og útselir ætu 36.000 tonn af nytja- físki á ári, þar væri þorskur rúm 11.000 tonn. Jafnframt taldi hann að þorskveiðar mætti auka um 30%, ef selirnir tækju ekki sinn toll“. Fram kemur í grein Erlings, „að samkvæmt erlendum heimildum þurfi landselur að meðatali 673 kg. af sjávarfangi á ári sér til lífsviður- væris og meðal útselur þurfl 1,57 tonn árlega, en þessi munur stafi af því að útselir séu yfirleitt mun þyngri en landselir. Talið er landsel- ir éti daglega 3-4% af líkamsþunga sínum á dag en útselir 4-4,5%“. XXX Vikveiji dagsins gerir sér grein fyrir því að hvalir og selir eiga „hefðbundinn“ rétt til lífs- bjargar, það er til fiskmetis í ísland- sálum. Hann er þó þeirrar skoðunar að fólkið í landinu, sem á lífsafkomu sína að stærstum hluta í nytjastofn- um hafsins, vilji hafa hönd í bagga með því, að jafnvægið í lífríkinu haldist, þann veg, að auðlindir sjáv- ar geri ísland áfram byggilegt - til langrar framtíðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.