Morgunblaðið - 23.02.1992, Page 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1992
ERLEINTT
INNLENT
Sakaður um
stríðsglæpi
Simon Wiesenthal-stofnunin í
Jerúsalem lét afhenda Davíð Odds-
syni forsætisráðherra bréf er hann
kom í opinbera heimsókn til ísrael
á mánudag þar sem fram koma
ásakanir um að Eistlendingurinn
Evald Mikson, Eðvald Hinriksson,
sem búið hefur hér á landi frá
1946, hafí verið stríðsglæpamaður
nasista og framið grimmdarverk á
gyðingum í síðari heimsstyijöld-
inni. Eðvald segir þessar ásakanir
ósannar. í bréfi til Morgunblaðsins
lýsa stjórnvöld í Eistlandi því yfir
að Eðvald sé ekki sekur um neina
glæpi, síst af öllu gegn þjóð gyð-
inga. Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra segir að aðferð
sú sem ísraelsk stjómvöld beittu
við að afhenda bréfið jafnist á við
að þau hafi leitt forsætisráðherra
í gildru. Hefur hann afþakkað boð
um opinbera heimsókn til ísrael á
vori næstkomandi.
Mannvirkjasjóður frestar
ákvörðunum
ísland gerði stjóm Mannvirkja-
sjóðs NATO tilboð sem fól í sér
að 90% af verðmætum óumsam-
inna verka á Keflavíkurflugvelli
yrðu boðin út á íslandi í opinni
undirverktöku, og eigi síðar en 1.
janúar 1966 rynni út einkaleyfi
íslenskra aðalverktaka. Stjóm
sjóðsins frestaði samþykkt verk-
áætlunar og fjármögnun hennar
að því er varðar fyrirhugaðar fram-
kvæmdir í þágu vamarliðsins, og
voru einkum Norðmenn og Bretar
neikvæðir í garð tilboðsins, en full-
trúar annarra NATO-ríkja hafa
talið tilboðið ásættanlegt. Utanrík-
isráðherra segir að fulltrúar nokk-
urra aðildarríkja í stjóm sjóðsins
hafi rökstutt frestunina með því
að þeir þurfi að afla sér nánari
upplýsinga um ummæli ráðherra í
ríkisstjóm íslands, þess efnis að
þeir telji tímabært að leysa upp
Aðalverktaka og bjóða verkefni
fyrir vamarliðið út á opnum verk-
takamarkaði.
Tilnefnd til Óskarsverðlauna
Kvikmyndin Börn náttúrunnar
hefur verið tilnefnd til Óskarsverð-
launa í flokki erlendra mynda. Frið-
rik Þór Friðriksson leikstjóri segir
þetta mikinn heiður fyrir sig og
íslenska kvikmyndagerð, og til-
nefningin verði vonandi lyftistöng
fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað.
Atvinnulausum fjölgar
Atvinnuleysi á höfuðborgar-
svæðinu hefur farið vaxandi und-
anfamar vikur, og er gert ráð fyr-
ir að í febrúar hafí atvinnulausum
fjölgað um nálægt 200 miðað við
janúar, en þá voru 1.219 skráðir
atvinnulausir. Könnun Þjóðhags-
stofnunar sýnir að atvinnurekendur
á landinu öllu vilja fækka starfs-
mönnum um 430, sem er 0,5% af
heildarvinnuafli í þeim atvinnu-
greinum sem könnunin náði til.
ERLENT
Israelar
ráðast inn
í Líbanon
Um 1.000 manna herlið frá ísrael
réðist inni í suðurhluta Líbanons
á fimmtudag í þeim yfírlýsta til-
gangi að uppræta eldflaugaskot-
palla Hizbollah-samtakanna,
hreyfingar múhameðstrúarmanna
er fylgir írönum að málum. Fyrr
í vikunni höfðu skæruliðar Hiz-
bollah skotið eldflaugum yfír
landamærin til ísraeis án þess að
valda verulegu tjóni. Skærur þess-
ar hófust um síðustu helgi er
skæruliðar myrtu þijá ísraelska
hermenn er voru í þjálfunarbúð-
um. Á sunnudag felldi ísraelsher
leiðtoga Hizbollah-hreyfingarinn-
ar í þyrluárás sem gerð var á bíla-
lest hans í Suður-Líbanon. Auk
leiðtogans, Sheikh Abbas
Musawi féllu eiginkona hans og
ungur sonur þeirra í árásinni auk
að minnsta kosti fimm lífvarða.
Innrásarliðið var kallað heim frá
Líbanon á föstudag en a.m.k. tveir
hermenn úr friðargæslusveitum
Sameinuðu þjóðanna særðust er
ísraelsher braut sér leið í gegnum
vegatálmanir gæslusveitanna.
Sameinuðu þjóðirnar mótmæltu
þessu og hvöttu ísraela til að
kalla lið sitt á brott og leiðtogar
á Vesturlöndum iýstu yfir áhyggj-
um sínum sökum ofbeldisverk-
anna.
Bush sigrar í New Hampshire
Forseti Bandaríkjanna, Ge-
orge Bush vann sigur í forkosn-
ingum Repúblíkanaflokksins er
fram fóru í New Hampshire á
þriðjudag. Forsetinn hlaut 58%
atkvæða en fylgi íhaldsmannsins,
Pats Buchanans reyndist mun
meira en skoðanakannanir höfðu
gefið til kynna. Buchanan hlaut
Borís Jeltsín. George Bush.
41% atkvæða og töldu stjórnmála-
skýrendur það til marks um allvíð-
tæka óánægju í röðum stuðnings-
manna repúblíkana vegna framm-
istöðu forsetans á vettvangi efna-
hagsmála. Sama dag fóru einnig
fram forkosningar Demókrata-
flokksins. Paul Tsongas, fyrrum
öldungadeildarþingmaður frá
Massachusetts, sigraði líkt og
búist hafði verið við, hlaut 34%
fylgi en Bill Clinton, umdeildur
ríkisstjóri frá Arkansas, fékk 26%
greiddra atkvæða.
Þjóðaratkvæði um umbætur
Forseti Suður-Afríku, F.W. de
Klerk lýsti því óvænt yfír á
fímmtudag að ákveðið hefði verið
að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu
meðal hvítra um umbótastefnu
ríkisstjórnarinnar. Daginn áður
hafði íhaldsflokkurinn, sem and-
vígur er afnámi kynþáttastefn-
unnar, unnið sigur í aukakosning-
um í einu af höfuðvígjum flokks
forsetans, Þjóðarflokksins. Hreyf-
ing blökkumanna, Afríska þjóðar-
ráðið (ANC), fordæmdi þessa
ákvörðun forsetans og kvað hana
til marks um kynþáttamismunun.
Úkraínumenn gagnrýna
Jeltsín
Stjómvöld í Úkraínu lýstu yfír
því á miðvikudag að Borís N.
Jeltsín, forseti Rússlands, hefði
ekki umboð til að ganga til við-
ræðna um fækkun kjarnorku-
vopna á landsvæði því sem áður
heyrði Sovétríkjunum til. Jeltsín
og undirsátar hans hafa ítrekað
rætt um fækkun kjamavopna á
fundum með fulltrúum Bandaríkj-
astjórnar að undanförnu.
Fríðargæsluliðar frá tug-
um þjóða til Júgóslavíu
Nú þegar fram-
kvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna But-
ros-Ghali hefur tekið
ákvörðun um að
senda allt að 14 þús-
und manna friðar-
gæslulið til Júgóslav-
íu innan skamms, þá
vekur furðu hve
margar þjóðir hann
ætlar að biðja um að
leggja til menn í liðið.
Fram undir þetta hef-
ur verið talið að of
miklum erfiðleikum
sé bundið að setja
herlið frá fleirum en
einni eða fáum þjóð-
um undir eina stjórn
á hverjem stað. En
samvinnan í eftirlits-
sveitum Sameinuðu
þjóðanna á mörkum
Iraks og Kuwaits, þar
sem fjölmargar þjóð-
ir koma við sögu, hef-
ur gengið svo vel að
það skiptir sköpum
um þessa ákvörðun
nú. Fótgönguliðið eitt
á að koma frá 12-13
þjóðum, stoðsveitirnar frá 5
þjóðum og eftirlitsmennirnir
frá 29 þjóðum. Svo á að bæta
þarna á lögreglumönnum frá
30 þjóðum. Þetta er mjög
óveiyuleg tilhögun.
ótt framkvæmdastjórinn og
menn hans séu búnir að velja
þær þjóðir, sem beðnar verða að
leggja til iið, þá hafa þær ekki
enn alla.r fallist á að gera það.
Ekki er einfalt mál að velja þá
sem æskilegt er að verði þama,
því þær gmnnreglur gilda hjá
Sameinuðu þjóðunum að her-
mennirnir séu frá hlutlausum ríkj-
um, ekki megi hafa lið af viðkom-
andi svæði og ekki frá þjóðum sem
á einhvem hátt gætu blandast
deilumálum. Þarmeð falla nú t.d.
úr nágrannar Júgóslavíu Austur-
ríkismenn, sem hafa ásamt Finn-
um og öðrum Norðurlandaþjóð-
um, Kanadamönnum og Fitji-
mönnum einna mesta reynslu af
friðargæslu SÞ. Það er heldur
ekki gefið mál að þjóð treysti sér
til að senda hermenn sína á svona
erfítt svæði, auk þess sem það
er dýrt. Hver þjóð ber ábyrgð á
aga og launagreiðslum síns liðs,
þótt öll starfi þau undir yfirstjóm
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna og reksturinn sjálfur sé
kostaður af samtökunum. Her-
mennirnir munu klæðast búning-
um síns heimahers og hafa fána
lands síns á öxlinni, en allir bera
þeir hina kunnu bláu hjálma og
húfur með merki
Sameinuðu þjóð-
anna og bláan
klút um hálsinn.
Einnig starfá
þeir ávallt undir
fána Sameinuðu
þjóðanna. Þeir em venjulega
sendir til starfa í eitt ár í senn.
Önnur grunnregla er sú að ekki
megi senda SÞ-lið nema báðir
deiluaðilar hafi beðið um það eða
að minnsta kosti samþykkt íhlut-
un alþjóðahersins. Og nú hefur
loks tekist að fá bæði Serba og
Króata til að fallast á slíka skil-
mála. Nóg er nú samt, þegar litið
er til þess að þessum alþjóðlegu
hermönnum er ætlað að halda
hættulegum deilum í skefjum í
yfirspenntu ástandi. Ein megin-
reglan enn er að við friðargæslu
mega þessir hermenn ekki beita
valdi eða skotvopnum nema í al-
geru lágmarki. I raun er meira
en helmingur friðarsveita Sþ nú
óvopnaðar eftirlitssveitir. En frið-
argæslulið er vopnað af tveimur
ástæðum. Þegar því er ætlað að
hafa virka stjórn á landsvæði og
halda deiluaðilum í burtu frá því.
Undir það falla friðargæslusveit-
imar á Kýpur, í Gólanhæðum,
Suður-Líbanon og Sinai. Og vopn-
að lið er sent þegar lög og reglur
í landinu eru í kaldakoli og hlut-
verk friðargæslunnar er að koma
á eðlilegu ástandi, sem Júgóslavía
fellur líklega undir. Þá eru friðar-
gæsluliðar vopnaðir, en jafnvel
þá er beiting vopna í lágmarki og
má aðeins skjóta sem síðasta úr-
ræði. Reynir mjög á friðargæslul-
iðana, sem flestir eru ungir menn,
að þurfa í vopnuðum átökum í
raun að bíða þangað til skotið er
á þá. Enda hafa á fjórða hundrað
friðargæslumenn fallið. Nú fyrir
fáum dögum tveir í Líbanon. Og
jafnvel þótt einhver þjóð vilji
stuðla að friði, þá er ekki sjálfgef-
ið að hún skáki sínum ungu mönn-
um í slíkar aðstæður. Nýlega lét
Bandaríkjamaðurinn Stankevic
hershöfðingi, sem nú er í friðar-
sveitinni á landamærum Kuweits
og íraks, hafa eftir sér að hann
skelfíst þá tilhugun að verða
kannski sendur til friðargæslu í
Júgóslavíu. Það kemur sennilega
ekki til, þótt hann tali bæði serb-
ísku og króatísku, því ættmenn
hans komu frá Serbíu, faðir hans
barðist með sjessnikkunum þar í
síðasta stríði. Á Írak-Kuwait-
svæðinu hefur einmitt fengist góð
reynsla af margþjóða friðargæslu.
Allt samstarf hefur gengið vel hjá
eftirlitsveitum S.þ. Kom mönnum
á óvart að Rússamir hafa þar t.d.
orð fyrir að vera
félagslyndir og
Kínveijarnir
vekja aðdáun fyr-
ir menningarlega
kyngi. Þama
kemur fram það
sem yfirhershöfðingi friðargæsl-
uliðsins í Gólanhæðum, Austur-
ríkismaðurinn Adolf Radauer,
sagði í vor við blaðamann
Morgunblaðsins að einn kosturinn
við slíka friðargæslu séu einmitt
kynni hermanna af heijum ann-
arra þjóða, sem skapi skilning og
umburðarlyndi. Hann sagði að
Austurríkismenn hefðu verið
svona fúsir til að leggja með ærn-
um tilkosnaði sína menn til friðar-
gæslu síðan þeir gengu í Samein-
uðu þjóðirnar 1955 af því þeir litu
svo á að með því að koma í veg
fyrir að stríð bijótist út á einum
stað séu þeir að stöðva útbreiðslu
þess um heimsbyggðina og þá að
þeirra eigin landamærum. Þær
þjóðir sem um eru beðnar þurfa
nú að taka aftsöðu til þess hvort
þær senda sína menn til friðar-
gæslunnar í Júgóslav-
íu. Það eru :Argentína,
Brasilía, Danmörk,
Frakkland, Kanada,
Kenýa, Nepal, Nígería,
Pakistan, Rússland,
Tékkóslóvakía, Belgía,
Finnland, Bretland,
Svíþjóð, Kanada og
Holland. Og um 30
þjóðir að auki eru beðn-
ar um hernaðarlega
eftirlitsmenn og lög-
reglumenn. Sumar þær
sömu en líka aðrar, svo
sem Ástralía, Bangla-
desh, Egyptaland,
Frakkland, Ghana,
Holland, írland, Kol-
umbía, Malta, Nepal,
Nígería, Nýja Sjáland,
Portúgal, Pólland,
Rússland, Singapore,
Sviss, Svíþjóð, Venesú-
ela og Lúxemburg. Þær
síðustu aðeins fáa
menn. Gunter Greindl
hershöfðingi, sem hef-
ur að undanförnu haft
á hendi stjórnun frið-
argæslu Sþ í Júgóslavíu
frá vamarskrifstofu SÞ
í Vínarborg, hefur langa og mikla
reynslu. Hann hefur verið yfir-
maður friðargæsluliðs SÞ á Kýp-
ur, í Líbanon og í Gólanhæðum
og nú síðast var hann við að
byggja í skyndi upp eftirlitsliðið
í Irak-Kuweit. Hann hefur sett
fram þá hugmynd að koma upp
háskólanámi á vegum Sameinuðu
þjóðanna fyrir friðargæslurann-
sóknir. Svo mikilvægt sé að kunna
að taka á friðargæslu í heiminum,
sem fer nú ört vaxandi. Nú síðast
bæst við mjög erfiðir og viðkvæm-
ir staðir eins og Júgóslavía og
væntanlega Kambódía, þar sem
reiknað er með að verði 30.000
manna lið frá fjölmörgum þjóðum
eins og nú í Júgóslavíu. í Kambód-
íu búast menn við að vekefnið
verði enn erfiðara en þar vegna
allra þeirra jarðsprengja sem
Rauðu Kmerarnir hafa dreift um
frumstkógastigana. En það svipar
þá til gæslunnar í Gölahæðum,
þar sem Pólveijar verða stöðugt
að sprengjuhreinsa stígana fyrir
gæsluliðið, nærri 20 árum eftir
vopnahléð. Ein af meginreglum
Sameinuðu þjóðanna varðandi
friðargæsluliðin er að íhlutun
gæsluliðs samtakanna á einhveij-
um stað verður að vera samþykkt
samhljóða í Öryggisráðinu, eftir
að báðir eða allir deiluaðilar hafa
fallist á það. Og jafnframt að
þessi ákvörðun er aðeins sam-
þykkt til sex mánaða og verður
að endurnýjast með sex mánaða
millibili. Þannig er málið alltaf
tekið upp til endurskoðunar tvi-
svar sinnum á ári. En eins og
Radauer hershöfðingi sveitanna í
Gólanhæðum sagði í viðtali við
fréttamann Morgunblaðsins um
ástæðuna fyrir því að þar hefði
friðargæslan tekist svona vel á
erfiðu svæði í svo mörg ár:„Það
byggist á því að í upphafi var svo
vel að verki staðið. Samið við tvo
ábyrga aðila og friðargæslu-
sveitinar fengu ítarlegt skriflegt
umboð sem þær geta alltaf vitnað
til. Ovænt blæbrigði koma alltaf
upp og sveigjanleiki skiptir miklu
máli. En umfram allt verða friðar-
gæslumenn að muna að báðir
aðilar hafa ávallt rétt fyrir sér.“
Ekki er þó enn búið að sjá fyrir
því að svona vel verði hægt að
búa um hnútana í Júgóslavíu áður
en liðin koma þar. Ekki er ákveð-
ið hvenær friðargæslusveitir Sam-
einuðu þjóðanna geta verið komn-
ar til Júgóslavíu. En menn eru
vongóðir um að vopnahléð sem
staðið hefur í hálfan annan mánuð
haldi þangað til. Enda verða frið-
argæslumenn ekki sendir þangað
meðan barist er.
BAKSVIÐ
eftir Rlínu Pálmadóttur