Morgunblaðið - 23.02.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.02.1992, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1992 Ekki von- laust að mjölverð hækki á ný - segir fram- kvæmdastjóri Krossaness JÓHANN Pétur Andersen, fram- kvæmdastjóri Krossaness, segfist telja að botninum sé náð hvað varðar verð á mjöli, en það lækk- aði verulega seinni hluta janúar. Hann er ekki vonlaus um að markaðurinn fari að jafna sig og verðið fari upp á við á ný. Súlan EA kom að Krossanesi í vikunni með fullfermi, um 730-740 tonn. Samtals hefur verið landað um 12 þúsund tonnum af loðnu hjá Krossanesi á vertíðini, um 6 þúsund tonnum fyrir áramót og svipuðu magni eftir áramót, einkum þó í febrúar. „Það er allt í fullum gangi hér núna og ekki hefur dottið úr nema sólarhringur frá því að þetta byrj- aði fyrir alvöru,“ sagði Jóhann Pét- ur. Um verðið vildi hann lítið tjá- sig,„Það er of hátt fyrir mig, en of lágt fyrir sjómennina," sagði hann. Nokkur deyfð hefur verið yfir mörkuðum að undanförnu, en verð á mjöli lækkaði umtalsvert síð- ari hluta janúarmánaðar, m.a. að því er Jóhann taldi í kjölfar þess að kvóti var aukinn. „Ég held að botninum sé náð, verðið fari ekki neðar. Kaupendur hafa óformlega tekið sig saman um að lækka verðið, en það eru tak- mörk fyrir því hversu neðarlega þeir geta farið,“ sagði Jóhann og bætti við að hann væri ekki vonlaus um að verðið gæti farið að hækka á ný. „Þetta mun jafna sig eitthvað aftur." Morgunblaðið/PPJ Þessa dagana vinna flugvirkjar Flugleiða við stórskoðun á Fokker F27 Friendship TF- FLM. A innfelldu myndinni sést Baldur Bjarnason flugvirki skoða skrúfublöð „Dagfara" á skrúfuverkstæði Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli. Síðasta stórskoðun Flugleiða á Fokker F27 Friendship-vélunum í FLUGSKÝLI Flugleiða hf. á Reykjavíkurflugvelli vinna flug-' virlg'ar félagsins við síðustu stórskoðun á Fokker F27 Friend- ship, en senn hverfa þessar flugvélar úr þjónustu. Flugvélin „Dagfari“, TF-FLM, var öll sundurtekin og um tíma var erfitt að sjá að raunveruleg flugvél stæði á gólfí flugskýlisins. Skoðun sem þessi er á flug- máli nefnd „D-skoðun“ og er alstærsta skoðun sem fram- kvæmd er á flugvélum. Vinna við skoðun „Dagfara“ hófst 20. janúar sl. og mun væntanlega ljúka í lok mánaðarins. Þegar skoðuninni lýkur munu um 7.000 vinnustundir flugvirkja liggia að baki. Við slíkar skoðanir eru flugvélar nánast sundurtættar og skoðaðar í krók og kima, flug- mælitæki fjarlægð og yfírfarin, innréttingar teknar úr og end- urnýjaðar, en vélamar eru nán- ast sem nýjar eftir. Að skoðun- inni lokinni verður „Dagfara" síðan flogið út til Hollands 1. mars nk. þar sem hún verður afhent nýjum eigendum. Skoðun „Dagfara“ er væntan- lega síðasta stórskoðunin sem Flugleiðir framkvæma á eigin flugvélum í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli. Um áramót stendur til að taka í notkun nýtt og fullkomið viðhaldsflugskýli á Keflavíkurflugvelli. Framvegis verða allar stærri skoðanir flug- véla Flugleiða framkvæmdar þar og hefur félagið hug á því að nýta aðstöðuna þar betur með því að taka að sér skoðanir flug- véla fyrir erlenda aðila. „Dagfari" var smíðaður í verk- smiðjum Fokker árið 1964, en hefur þjónað íslendingum nú í um 20 ár. Það var Flugfélag Islands sem keypti þessa flugvél til landsins frá Japan árið 1972 og fékk hún þá einkennisstafina TF-FIM og nafnið „Glófaxi". Nokkru eftir sameiningu flugfé- laganna var skráningu vélarinn- ar breytt í TF-FLM og vélin síð- an endurskírð „Dagfari" á tíu ára afmælishátlð Flugleiða árið 1983. Aðeins ein flugvél hefur þjónað lengur en „Dagfari“ í áætlunarflugi innanlands. Það var Dakota flugvél Flugfélags íslands, „Gljáfaxi", sem var I notkun frá 1946 til 1973, eða samtals í 27 ár, en „Gljáfaxi“ heitir nú „Páll Sveinsson" og er nú notaður við áburðardreifingu á sumrin á vegum Landgræðsl- unnar. Nú þegar „Dagfari“ kveð- ur hefur hann flogið alls um 45.000 flugstundir, þar af um 30.000 hérlendis og lent um 38.500 sinnum á íslenskum flug- völlum. I I I I I I Deep Jimi and the Zep Creams. Keflvísk hljómsveit gerir útgáfusamn- ing í Bandaríkjunum KEFLVÍSKA rokksveitin Deep Jimi and the Zep Creams gerði nýverið samning við bandaríska stórfyrirtækið Atlantic um út- gáfu á tónlist hþ'ómsveitarinnar. Hljómsveitarmenn eru nú að huga að utanför á næstu vikum til að taka upp fyrri breiðskífuna af tveimur, en fyrirtækið leggur þeim til 10 milljónir króna til að gera plötuna auk þess að greiða ferðir og uppihald. Sólarferð fjölskyldunnar kostar 175-250 þúsund Hljómsveitina Deep Jimi and the Zep Creams skipa Júlíus Freyr Guðmundsson, Þór Sigurðsson, Björn Ámason og Sigurður Ey- berg. í samtali sögðu þeir félagar að þeir væru nú að bíða eftir því að lögmaður þeirra lyki yfírferð á lokagerð samningsins við Atl- antic, en samningurinn er á undir- merkinu East-West/ATCO. Þegar lögmaðurinn hafí gefíð grænt ljós fari þeir síðan utan til að hljóðrita fyrri breiðskífuna, sem koma eigi út í júní/júlí, en smáskífa með sveitinni er væntanleg þegar í apríl. Þeir vildu ekki gera of mik- ið úr fyrirframgreiðslunni, sögðu hana einfaldlega dragast af vænt- anlegum söluhagnaði breiðskíf- unnar, þetta væri engin gjöf'. Til viðbótar við milljónimar tíu greið- ir fyrirtækið flugferðir og uppi- hald, auk þess sem það leggur hljómsveitinni til fé til að fara í -tónleikaferð að fylgja plötunni eftir. Sjá viðtal við Deep Jimi and the Zep Creams á bls. I8C. TVEGGJA vikna solarlandaferð fyrir fjögurra manna fjölskyldu kostar um 175-250 þúsund krón- ur, samkvæmt upplýsingum Ur- vals-útsýnar, Samvinnuferða- Landsýnar, Flugleiða og Ferða- skrifstofu Reykjavíkur. Morgunblaðið kannaði hvað tveggja vikna ferð til Spánar kost- aði fyrir hjón með tvö börn, annað undir 12 ára aldri og hitt 15 ára. Miðað er við að farið verði á háann- atíma í júlí-ágúst. Óskað var eftir að ferðaskrifstofurnar gæfu upp fullt verð, með flugvallarskatti og öðrum gjöldum. Flugvallarskattur hér á landi er 1.250 krónur fyrir fullorðna og 625 fyrir börn, forfalla- trygging 1.200 fyrir fullorðna og 600 fyrir börn, 400 króna innrit- unargjald í Leifsstöð ef farið er með leiguflugi og 600 króna flug- vallarskattur á mann á Spáni. Tveggja vikna ferð fyrir þessa fjölskyldu kostar 185.674 krónur hjá Urval-Útsýn, til Mallorka. Þá er miðað við brottför 15. júlí og að bókað sé í ferðina og fargjald greitt fyrir 24. mars næstkomandi. Hins vegar benti skrifstofan á að þriggja vikna ferðir kostuðu 181.736 fyrir fjölskylduna, ef staðgreitt væri fyr- ir 24. mars. Að öðram kosti bættist við 4.500 króna gjald á mann, eða 18 þúsund fyrir fjölskylduna. Stað- greiðsluafsláttur fyrir 24.3. er 7%, en lækkar í 5% eftir þann tíma, Hjá Samvinnuferðum-Landsýn fékk Morgunblaðið dæmi um ferð fyrir fjölskylduna til Alcudia þann 6. júlí. Bæði börnin njóta barnaaf- sláttar, sem gildir til 16 ára aldurs. Fjölskyldan greiðir 187.175 krónur fyrir ferðina, en sé ferðin staðgreidd er verðið 178.415 krónur. Þá bjóða Samvinnuferðir-Landsýn sérstaka fjölskyldupakka, þar sem sams kon- ar ferð, en þriggja vikna, er boðin’ á sama verði. Tíu slíkar ferðir eru í boði og gildir tilboðið ef ferðin er fullgreidd fyrir 15. mars. Ferðaskrifstofa Reykjavíkur býð- ur ferðir til Benidorm. Tveggja vikna ferð fyrir fjögurra manna fjöl- skylduna í ágúst kostar þar 213.726 krónur staðgreitt. Verðið er hið sama, hvort sem greitt er fyrr eða síðar að sumrinu. Upplýsingar, sem bárust frá Flugleiðum, vora um ferðir til Ítalíu og Grikklands, en ekki Spánar. ítal- Gunnar sagði að á síðastliðnu ári hefðu farþegar á flugleiðinni til og frá Vestmannaeyjaeyjum alls verið 82 þúsund talsins, og væri það veru- leg aukning frá árinu áður. Þeir valkostir sem stæðu þeim til boða sem færu til Vestmanneyja væru auk þess að ferðast með vélum Is- landsflugs- væntanlega- nýjar Fok- íuferð fyrir fjölskylduna með Fritidsrejser I Kaupmannahöfn í júli kostar 174.320. Við það bætist flug frá íslandi til Kaupmannahafn- ar, sem lægst getur orðið 20.900 fyrir fullorðinn. Bamaafsláttur er 4.180, svo fjölskyldan þarf að greiða 79.420 á mann til viðbótar, eða samtals 253.740 fyrir Ítalíu- ferðina. Ferðaskrifstofurnar reiknuðu sjálfar út ofangreint verð. Áfanga- staðir og gistingin sem boðið er upp á er mismunandi. Þannig er til dæmis misjafnt hversu stórum íbúð- um ferðaskrifstofumar reikna með, en þeim var það í sjálfsvald sett. ker vélar Flugleiða í sumar og síðan' ný feija. „Það er ekki einfalt fyrir lítið fyrirtæki eins og okkar að standa í samkeppni við svona stóra og sterka aðila, en við bregðumst við þessari samkeppni á þann hátt að einfalda hlutina og gera þetta aðgengilegra fyrir almenning," sagði hann. íslandsflug hf.: Ný skilmálalaus far- gjöld til Vestmannaejga ÍSLANDSFLUG hf. hefur tekið upp þá nýbreytni að bjóða aðeins eitt ákveðið fargjald án allra skilmála á flugleiðinni milli Vestmanna- eyja og Reykjavíkur. Að sögn Gunnars Þorvaldssonar, framkvæmda- stjóra íslandsflugs, hafa fram til þessa verið í gangi farjöld sem verið hafa allt upp í 7.800 kr. fram og til baka á flugleiðinni, en hjá íslandsflugi er fargjaldið nú 5.000 kr., eða 2.500 kr. hvora leið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.