Morgunblaðið - 23.02.1992, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA/VEÐUR SÚNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1992
9
Tvö andlit kirkjunnar
Kirkjan er í nokkrum
vanda stödd. Hvers
vegna? Jú, hún er ekki
aðeins einhver stofnun
sem hver önnur í þjóðfélaginu.
Hún er samfélag allra þeirra sem
játa þá trú að Guð hafi gerst
maður í Jesú Kristi. í daglegu
tali erum við vön að ræða um
kirkjuna í merkingunni prestarnir
og starfsmenn kirkjunnar aðrir.
En sá hópur er ekki kirkjan, þó
að hann tilheyri henni. „Kirkjan“
er allt það fólk, í öllum kirkjudeild-
um, sem i bráðum 2000 ár hefur
lotið Jesú Kristi, sem hefur geng-
ið honum á hönd í skírninni. Fólk-
ið og Jesús í sameiningu og sam-
vinnu er kirkjan. í Nýja testa-
mentinu kallar Páll postuli kirkj-
una hvorki meira eða minna en
„líkama Krists" því Kristur grund-
vallaði kirkjuna og gefur henni
líf. Án hans
væri hún ekki
til. Henni er
sem sé ætlað að
starfa sem eihs-
konar lífræn
heild, samhent sem frumur líkam-
ans, undir stjórn guðssonarins.
Trúartjátningin okkar, sem við
höfum verið að skoða saman frá
ýmsum sjónarhornum undanfarna
sunnudaga, kallar hann „heilaga"
sem aftur merkir að hún sé frátek-
in fyrir Guð. Kirkjan og þau sem
henni tilheyra ættu því að láta sig
samfélagið við Guð og hvort ann-
að öllu skipta, því ef kirkjan er
„líkami Krists" hlýtur hún að eiga
að endurspegla kærleika Guðs til
sköpunarinnar eins og Jesús
Kristur gerir. Þetta er eitt „and-
lit“ kirkjunnar, það sem Guð ætl-
ar henni að vera. Gallinn er sá
að hún hefur oft og tíðum borið
annað andlit, aðra grímu í aldanna
rás. Þó Guð ætli kirkjunni göfugt
hlutverk, þá hafa ógöfugir menn
í gegnum söguna, vitandi eða
óvitandi, gert sitt til þess að spilla
fyrir því hlutverki. Togstreita,
samkeppni og illmælgi hafa
sundrað kirkjunni. Kirkjan er
margklofínn í kirkjudeildir er leg-
ið hafa í blóðugum eijum sín í
milli, þó nú sé tekið að rofa eitt-
hvað til fyrir tilstuðlan fjölkirkju-
legra samtaka síðustu áratugina.
Lengi vel á fyrri tímum var kirkj-
an helsta valdamiðstöð þjóðfé-
lagsins. Það þýddi ekki að fólkið
í kirkjunni færi með völdin, heldur
embættismenn hennar er tóku sér
guðlegt vald. Á fyrstu öldunum
eftir upprisu Jesú leit kirkjunnar
fólk reyndar svo á að nú væru
loforð Guðs sem endurhljóma í
öllu Gamla testamentinu að ræt-
ast. Þar getur að lesa hvernig Guð
og ísraelsþjóðin gamla gerðu með
sér samning, sáttmála. Sá samn-
ingur gekk út á það að Guð hét
því að sú stund kæmi þegar hann
tæki endanlega við stjórn verald-
arinnar. Þá myndi renna upp nýr
tími, ný öld. Þá yrði samfélag
Guðs og sköpunarinnar heilt og
ekkert kæmi þar í milli. Höfundar
Nýja testamentisins héldu því
fram að nú væri þessi nýja öld
runnin, Guð væri kominn til lýðs
sín, nú hefði hann gert nýjan
samning við fólkið, nýjan sátt-
mála. Að sögn þeirra grundvallast
sá sáttmáli á lífi, dauða og upp-
risu Jesú Krists. Með því að fæð-
ast sem maður, deyja á krossinum
og sigra dauðann hafi Guð tekið
sér stöðu við hliðina á hijáðu,
sundruðu og deyjandi mannkyni.
Frá krossinum leiðir hann fólkið
undan þjáning-
unni og eymd-
inni og til nýrra
tíma þegar ver-
öldin endanlega
mun hreinsast
af öllu illu. Þangað stefnir heimur-
inn fyrir upprisu Jesú Krists, til
þeirrar framtíðar þegar Guð verð-
ur allt í öllu. Þangað ætti kirkjan
öðru fremur að stefna ef hún vill
vera samfélag þeirra sem hafa
Guð að leiðarljósi. Á fyrstu öldum
kristninnar leit kirkjan á sig sem
hóp manna og kvenna á himni og
jörð, lifandi og látinna er væri á
leiðinni til framtíðarinnar þegar
Guð yrði allt í öllu. Þegar tímar
liðu gleymdist þessi framtíðarsýn.
Kirkjan hætti að vera fijálst sam-
félag en breyttist í stað þess í
ríkiskirkju. Hún þróaðist þannig
yfir í að verða embættismanna-
stofnun er í raun hélt um völdin
í þjóðfélaginu. Embættismennirn-
ir tóku völdin í kirkjunni, þar með
breyttust áherslurnar. Embættis-
mennirnir töldu sig hafa vald yfir
aðgangi samboragar ainna að ei-
lífðinni og í krafti þeirra valda
kúguðu þeir háa sem lága. Smátt
og smátt fóru menn að líta s^vo á
að lífið væri einskis virði í sjálfu
sér, að það væri aðeins biðsalur
eilífðarinnar. Lífið nýttist þá til
þess eins að vinna sér inn punkta
fyrir eilífðardvölina, punkta sem
meðal annars fengust með því að
lúta embættismönnum kirkjunn-
ar. Þessi tvö andlit kirkjunnar,
andlitið sem Guð ætlar henni að
bera og gríman er menn svo oft
hafa bundið á hana, hafa síðan
tekist á í ýmsum myndum í gegn-
um aldirnar og yrði allt of langt
mál að telja upp alla þá baráttu-
sögu hér. Enda óþarfi í sjálfu sér.
Hins er nær að spyija í ljósi alls
þessa: Hvernig getur kirkjan brú-
að bilið milli þess sem Guð ætlar
henni að vera og þess sem menn-
irnir af klaufaskap sínum gera
úr henni? Ætli svarið sé ekki fólg-
ið í loforði Jesú Krists, í samn-
ingnum, sáttmálanum, sem hann
gerði við kirkjuna sína forðum.
Hann lofaði því að vera nálægur,
sameinast fólki sínu sérstaklega
þegar það kemur saman til þess
að framkvæma vilja hans. Þannig
verður kirkjan sönn kirkja Krists
þegar hún reynir að vera til stað-
ar þar sem hann segist ætla að
mæta henni. Hvar var nú það?
Jú, kirkjan er sannarlega kirkja
Jesú Krists þegar hún tilbiður
hann. Þegar þau sem tilheyra
samfélaginu lúta honum í bæn,
þá er hann mitt á meðal þeirra
og leiðir þau. Þegar kirkjan þann-
ig leggur til hliðar deilur og mann-
alæti, þá er Jesús Kristur nærri.
En hvergi komnumst við nær Jesú
Kristi en í þjónustunni við náunga
okkar. Jesús hefur ekki aðeins
heitið að vera nálægur honum,
sérstaklega þegar illa stendur á.
í hinum þjáða ER Jesús Kristur,
þar mætum við honum auglitis til
auglitis. í þjónustunni við hinn
þjáða hetur kirkjan endanlegar
kastað grímunni er menn hafa
smíðað henni og leyft guðssynin-
um að stjórna sér milliliðalaust.
Takmark alls starfs kirkjunnar
er sú stund í framtíðinni þegar
Guð verður allt í öllu og afmáir
myrkrið í veröldinni. Til þeirrar
stundar stefnir kirkjan. Það gerir
hún best með því að bera hina
daglegu atburði hvers tíma saman
við hið komandi ríki Guðs og
benda samtímamönnum sínum á
það sem miður fer í ljósi þess.
Þannig verður kirkjan stöðug
áminning þeirra er með völdin
fara í þjóðfélaginu hverju sinni.
Hún á að benda á óréttinn þegar
svipa hans dynur. Hún á að kreij-
ast réttarins, frelsisins, náunga-
kærleikans og jafnaðarins. Hún á
að bera hönd fyrir höfuð lítil-
magnans, þó að það kosti hana
óvinsældir stjórnvalda, jafnvel of-
sóknir, eins og oft hefur viljað
brenna við. Hún á að vera eins
og herfylki Guðs í heiminum er
berst fyrir betri og bættari fram-
tíð veraldarinnar. Sú barátta mun
enda með sigri kirkjunnar, því lið-
ið er á nóttina og dagurinn er í
nánd þegar Guð endanlega afmá-
ir hið illa.
IlöCundur er fræðslufulltrúi
Þjóðkirkjunnar á Austurlandi.
KRISTNIÁ
KROSSCÖTUM
eftir Þórhall Heimisson
VEÐURHORFUR í DAG, 23. FEBRÚAR
YFIRLIT í GÆR: Um 800 km austan af Langanesi er 960 mb lægð á
leið norðaustur en á vestanverðu Grænlandshafi er nærri kyrrstæð
975 mb lægð.
HORFUR í DAG: Sunnan og suðvestan kaldi eða stinningskaldi. Él um
sunnan- og vestanvert landið, en þurrt norðaustan lands. Vægt frost
víðast hvar.
HORFUR Á MÁNUDAG:
Fremur hæg suðvestan átt um mest allt land. Éljagangur um allt sunn-
an og vestanvert landið en lengst af léttskýjað norðaustan til. Frost
á bilinu 2 til 8 stig.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG:
Vaxandi austan og suðaustan átt. Snjókoma eða slydda um mest allt
land, einkum suðaustan til. Hlýnandi veður.
Svarsími Veðurstofu íslands — veðurfregnir: 990600.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 6.00 í gær að ísl. tíma
Staöur hiti veður Staður hiti vedur
Akureyri -s-1 alskýjað Glasgow 7 rigning
Reykjavík h-2 snjóél/síð.klst. Hamþorg 3 þokumóða
Bergen 5 rigning London 2 alskýjað
Helsinki -Í1 snjókoma Los Angeles 15 skýjað
Kaupmannahöfn 1 þokumóða Lúxemborg 5-1 þokumóða
Narssarssuaq -í-15 heiðskírt Madríd 54 heiðskírt
Nuuk h-25 þokumóða Malaga 11 skýjað
Osló 5-2 skýjað Mallorca 5-2 léttskýjað
Stokkhólmur 5-4 þoka Montreal 5-12 skýjað
Þórshöfn 7 skúr á síð.klst. NewYork Oriando París Madeira Róm Vin Washington Winnipeg 2 19 5-2 12 2 5-2 5 517 skýjað alskýjað léttskýjað skúr heiðskírt snjókoma heiðskirt alskýjað
Algarve Amsterdam Barcelona Berlin Chicago Feneyjar Frankfurt 10 hálfskýjað 5-2 þoka á sið.klst. 0 þokumóða 3 alskýjað 1 alskýjað 0 þokumóða 4 skýjað
o Heiðskírt / / / ' ' ' ' Rigning / / / V Skúrír
4 Lóttskýjað * / * V. #
Hálfskýjcð ' * r * Slydda y * / V Slydduól
m Skýjað # # * * * * * Snjókoma * * # V Él
H Alskýjað 5 , 5 Súld oo Mistur
r
Noröan, 4 vindttig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er tvö vindstig.
Vindstefna
10° Hhastig:
10 gréður á Celsíus
= Þoka
= Þokumóða
Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apótekanna í Reykjavik dagana 21. lebrúar til
27. febrúar, að báðum dögum meötöldum, er i Borgar Apóteki, Álftamýri 1-5. Auk
þess er Reykjavikur Apótek, Austuratræti, opið til kl. 22 alla daga vaktvikunnar
nema sunnudag.
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamames og Kópavog i Heilsuverndarstöð Reykjavik-
ur við Barónsstig fré kl. 17 til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og
helgidaga. Nánari uppl. i s. 21230.
Lögreglan í Reykjavík: Neyðarsimar 11166 og 000.
Læknavakt Þorfinnsgötu 14: Skyndimóttaka rúmhelga daga 10-16, s. 620064.
Tannlæknavakt - neyðarvakt um helgar og stórhátiðir. Símsvari 681041.
Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær
ekki til hans s. 696600). Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami sími. Uppl.
um lyfjabúðir og læknaþjón. í simsvara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fulloröna gegn mænusótt fara fram i Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskirteini.
Alnæmi: Læknir eða hjúkrunarfræðingur veitir upplýsingar ó miövikud. kl. 18-19 i
s. 91-622280. Ekki þarf að gefa upp nafn. Samtök áhugafólks um alnæmisvandann
styðja smitaöa og sjúka og aðstandendur þeirra i s. 28586. Mótefnamælingar vegna
HIV smits fást að kostnaðarlausu i Húð- og kynsjúkdómadeild, Þverholti 18 kl.
9-11.30, á rannsóknarstofu Borgarspitalans, virka daga kl. 8-10, á göngudeild Lands-
pitalans kl. 8-15 virka daga, á heilsugæslustöðvum og hjá heimilislæknum. Þag-
mælsku gætt.
Samtökin '78: Upplýsingar og róðgjöf í s. 91-28539 mónudags- og fimmtudagskvöld
kl. 20-23.
Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabbamein, hafa viðtalstima á
þriðjudögum kl. 13-17 í húsi Krabbameinsfólagsins Skógarhliö 8, s.621414.
Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718.
Mosfells Apótek: Opið virka daga 9-18.30. Laugard. 9-12.
Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12.
Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12.
Garðabæn Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apótekið: Virka daga kl. 9-18.30.
Laugardaga kl. 11-14.
Hafnarfjarðarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardögum kl. 10-14. Apótek Norður-
bæjar: Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum 10
til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14. Uppl. vaktþjónustu i s. 51600.
Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100.
Keflavík: Apótekið er opiö kl. 9-19 mánudag til föstudag. Laugardaga, helgidaga og
almenna frídaga kl. 10-12. Heilsugæslustöð, simþjónusta 4000.
Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum
kl. 10-12. Uppl. um læknavakt fást í símsvara 1300 eftir kl. 17.
Akranes: Uppf. um læknavakt 2358. - Apótekið opið virka daga til kl. 18.30. Laugardaga
kl. 10-13. Sunnudagakl. 13-14. Heimsóknartimi Sjúkrahússins kl. 15.30-16ogkl. 19-19.30.
Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Neyðarathvarf opið allan sólarhringinn, ætlað börn-
um og unglingum að 18 ára aldri sem ekki eiga í önnur hús að venda. Opið allan
sólarhringinn. S. 91-622266. Grænt númer 99-6622.
Sfmaþjónusta Rauðakrosshússins. Ráðgjafar- og upplýsingarsimi ætlaður börnum
og unglingum að 20 ára aldri. Ekki þarf að gefa upp nafn. Opiö allan sólarhringinn.
S: 91-622266, Grænt númer: 99-6622.
LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki, Ármúla 5, opió kl. 12-15 þriöjudaga
og laugardaga kl. 11-16. S. 812833.
G-samtökin, landssamb. fólks um greiðsluerfiðleika og gjaldþrot, Vesturvör 27, Kópa-
vogi, opið 10-14 virka daga, s. 642984, (simsvari).
Foreldrasamtökin Vimulaus æska Borgartúni 28, s. 622217, veitir ioreldrum og
foreldrafél. upplýsingar: Mánud. 13-16, þriðjud., miðvikud. og föstud. 9-12. Áfengis-
og fikniefnaneytendur. Göngudeild Landspítalans, s. 601770. Viðtalstími hjá hjúkrun-
arfræðingi fyrir aðstandendur þriðjudaga 9—10.
Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s. 611205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem
beittar hafa veriö ofbeldi i heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun.
Stígamót, Vesturg. 3, s. 626868/626878. Miðstöð fyrir konur og börn, sem oröið
hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Virka daga kl. 9-19.
MS-félag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s. 688620.
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Pósth. 8687 128 Rvik. Simsvari allan sólar-
hringinn. S. 676020.
Lifsvon - landssamtök til verndar ófæddum börnum. S. 15111.
Kvennaráðgjöfin: Sími 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22. Fimmtud. 13.30 og 20-22.
Vinnuhópur gegn sifjaspellum. Tólf spora fundir fyrir þolendur sifjaspella miðviku-
dagskvöld kl. 20-21. Skrif st. Vesturgötu 3. Opið kl. 9-19. Simi 626868 eða 626878.
SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, Síðumúla 3-5, s. 82399 kl. 9-17.
AL-ANON, aðstandendur alkohólista, Hafnarstr. 5 (Tryggvagötumegin). Mánud.-
föstud. kl. 9-12. Laugardaga kl. 10-12, s. 19282.
AA-samtökin, s. 16373, kl. 17-20 daglega.
FBA-samtökin. Fullorðin börn alkohólista. Fundir Tjarnargötu 20 á fimmtud. kl. 20.
i Bústaðakirkju sunnud. kl. 11.
Unglingaheimili rikisins, aðstoð við unglinga og foreldra þeirra, s. 689270 / 31700.
Vinalína Rauða krossins, s. 616464 og grænt númer 99-6464, er ætluð fullorönum,
sem telja sig þurfa að tjá sig. Svarað kl. 20-23 öll kvöld.
Skautar/skiði. Uppl. um opnunartima skautasvellsins Laugardag, um skiðabrekku i
Breiöholti og troðnar göngubrautir i Rvik s. 685533. Uppl. um skiöalyftur Bláfjöll-
um/Skálafelli s. 801111.
Upplý8ingamiðstöð ferðamála Bankastr. 2: Opin vetrarmán. mán./föst. kl. 10.00-
16.00, laugard. kl. 10.00-14.00.
Fréttasendingar Rikisútvarpsins til útlanda daglega á stuttbylgju: Útvarpað er
óstefnuvirkt allan sólarhringinn á 3295,6100 og 9265 kHz. Hádegisfréttum er útvarp-
að til Noröurlanda, Bretlands og meginlands Evrópu: Daglega kl. 12.15-12.45 á
15790 og 13830 kHz. og kvöldfréttum. Daglega kl. 18.55-19.30 á 11402 og 13855
kHz. Til Kanada og Bandarikjanna: Daglega: kl. 14.10-14,40 á 15770 og 13855 kHz.
Hádegisfréttir. Daglega kl. 19.35-20.10 á 15770 og 13855 kHz. kvöldfróttir. Daglega
kl. 23.00- 23.35 á 15770 og 13855 kHz. Að loknum lestri hádegisfrétta á laugardög-
um og sunnudögum er lesið f réttayfirlit liöinnar viku. Ísl. tfmi, sem er sami og GMT.
SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar
Landspitalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin. kl. 19-20..
Sængurkvennadeild. Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartimi fyrir feður kl.
19.30-20.30. Fæðingardeildin Eiriksgötu: Heimsóknartimar: Almennur kl. 15-16.
Feðra- og systkinatimi kl. 20-21. Aðrir eftir samkomulagi.Bamaspitali Hringsins:
Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspítalans Hótúni 10B: Kl. 14-20
og eftir samkomulagi. - Geðdeild Vifilstaðadeild: Sunnudaga kl. 15.30-17. Landa-
kotsspítali: Alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: Heimsóknartími annarra en
foreldra er kl. 16-17. - Ðorgarspítalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30
til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnar-
búðir. Alla daga kl. 14-17. - Hvitabandið, hjúkrunardeild og Skjóf hjúkrunarheimili.
Heimsóknartimi frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30
- Laugardaga og sunnudag3 kl. 14-19.30. - Heilsuverndarstöðin: Heimsóknartimi
frjáls alla daga. Fæðingarheimili Reykjavíkun Alla daga kkl. 15.30-16.00. - Klepps-
spítali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga
kl. 15.30 til kl. 17. - Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum.
- Vifilsstaðaspitali: Heimsóknartími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St. Jósefs-
sprtali Hafn.: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlíð hjúkrunarheimili i Kópa-
vogi: Heimsóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavíkuriæknishér-
aðs og heilsugæslustöðvar: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð
Suðurnesja. S. 14000. Keflavík - sjúkrahúsið: Heimsóknartimi virka daga kl. 18.30-
19.30. Um helgar og á hátiðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30. Akureyrf - sjúkra-
húsið: Heimsóknartimi alla daga kl. 15.30 -16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild og
hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysavarðstofusimi frá kl. 22.00-8.00,
s. 22209.
BILANAVAKT
Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hitaveitu, s. 27311, kl. 17 til kl.
8. Sami simi á helgidögum. Rafmagnsveitan bilanavakt 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar bilanavakt 652936
SÖFN
Landsbókasafn íslands: Aðallestrarsalur opinn mánud. - föstud. kl. 9-19 og laugar-
daga kl. 9-12. Handritasalur mánud.-fimmtud. kl. 9-19 og föstud. kl. 9-17. Útlánssal-
ur (vegna heimlóna) mánud.-föstud. kl. 9-16.
Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Opið mánudaga til föstudaga kl.
9-19. Upplýsingar um útibú veittar i aðalsafni, s. 694326.
Borgarbókasafn Reykjavikur Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbóka-
safnið i Gerðubergi 3-5, s. 79122 Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheima-
safn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: ménud. -
fimmtud. kl. 9-21, föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn - Lestrarsalur, s.
27029. Opinn mánud. - laugard. kl. 13-19. Grandasafn, Grandavegi 47, s. 27640.
Opið mánud. kl. 11-19, þriöjud. - föstud. kl. 15-19. Bókabílar, s. 36270. Viðkomu-
staðir viðsvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15.
Borgarbókasafnið i Gerðubergi fimmtud. kl. 14c15. Bústaðasafn miðvikud. kl. 10-11.
Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12.
Þjóðminjasafnið: Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnudag kl. 12-16. Leiðsögn
um safnið laugardaga kl. 14.
Árbæjarsafn: Opið um helgar kl. 10-18.
Árnagarðun Handritasýning til 1. sept., alla virka daga kl. 14-16.
Ásmundarsafn i Sigtúni: Opið alla daga 10-16.
Akureyri: Amtsbókasafnið: Mánud.-föstud. kl. 13-19. Nonnahús alladaga 14-16.30.
Náttúrugripasafnið á Akureyri: Opið sunnudaga kl. 13-15.
Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. Sýningarsalir: 14-19 alla daga.
Listasafn íslands, Frikirkjuvegi. Opið alla daga 12-18 nema mánudaga. Sumarsýning
á islenskum verkum i eigu safnsins.
Minjasafn Rafmagnsveitu Reykjavikur við rafstöðina við Elliðaár. Opið sunnud. 14-16.
Safn Ásgrims Jónssonar, Bergstaðastræti: Opið alla daga nema mánudaga kl.
13.30-16.
Húsdýragarðurinn: Opinn virka daga, þó ekki miðvikudaga, kl. 13-17. Opinn um
helgar kl. 10-18.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Högg-
myndagarðurinn opinn daglega kl. 11-16.
Kjarvalsstaðin Opið alla daga vikunnar kl. 11-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið laugardaga og sunnudaga kl.
14-17.
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið sunnudaga miili kl. 14 og
16. S. 699964.
Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir sunnud. þriðjud. fimmtud.
og laugard. 13.30-16.
Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opin sunnudaga kl. 13.30-16. Á öðrum timum eftir
samkomulagi.
Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.-fimmtud. kl. 10-21. Föstud. 10-19.
Lesstofan opin frá mánud.-föstud. kl. 13-19.
Byggðasafn Hafnarfjarðan Opið laugard. og sunnud. kt. 14-18 og eftir samkomu-
lagi. S. 54700.
Sjóminjasafn íslands, Hafnarfirði: Opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 14-18.
Bókasafn Keflavíkur: Opið mánud.-miðvikud. kl. 15-22, þriðjud. og fimmtud. kl. 15-19
og föstud. kl. 15-20.
ORÐ DAGSINS Reytjavik simi 10000.
Akureyri s. 96-21840.
SUNDSTAÐIR
Sundstaðir í Reykjavik: Þessir sundstaðir: Laugardalslaug, Vesturbæjarlaug og Breið-
holtslaug eru opnir sem hér segir: Mánud. - föstud. 7.00-20.30, laugard. 7.30-
17.30, sunnud. 8.00—17.30. Sundhöll Reykjavikur: Mánud. - föstud. kl. 7.00—19.00.
Lokað i laug kl. 13.30-16.10. Opið i böð og potta fyrir fullorðna. Opið fyrir börn frá
kl. 16.50—19.00. Stóra brettið opið frá kl. 17.00-1 >.30. Laugard. kl. 7.30-17.30,
sunnud. kl. 8.00—17.30.
Garðabær. Sundlaugin opin mánud.-föstud.: 7.00-20.30. Laugard. 8.00-17 og sunnud.
8-17.
Hafnarfjörður. Suðurbæjarlaug: Mánudaga - föstudaga: 7.00-21.00. Laugardaga:
8.00-18.00. Sunnudaga: 8.00-17.00. Sundlaug Hafnarfjarðar: Mánudaga - föstudaga:
7-21. Laugardaga. 8-16. Sunnudaga: 9-11.30.
Sundlaug Hveragerðis: Mánudaga - fimmtudaga: 7-20.30. Föstudaga: 7-19.30. Helg-
ar: 9-15.30.
Varmáriaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga - fimmtud. kl. 6.30-8 og 16—21.45,
(mánud. og miðvikud. lokað 17.45-19.45). Föstudaga kl. 6.30-8 og 16-18.45. Laugar-
daga kl. 10-17.30. Sunnudaga kl. 10-15.30.
Sundmiðstöð Keflavikur: Opin mánudaga - föstudaga 7-21, Laugardaga 8-18. Sunnu-
daga 9-16.
Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga - föstudaga kl. 7-20.30. Laugardaga og sunnu-
daga kl. 8-16.30. Siminn er 41299.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga - föstudaga kl. 7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnu-
daga 8-16. Simi 23260.
Sundlaug Seltjamamess: Opin mánud. - föstud. kl. 7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10-
17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.