Morgunblaðið - 23.02.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.02.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1992 17 að kanna afdrif fólks sem hafði verið sent til Rússlands eða hafði horfið sporlaust undir ógnarstjórn Rauða hersins. Í æviminningum sínum lýsir Eð- vald þessu tímabili svo: „Næstu daga kom í ljós að starf okkar var nú takmarkað við að yfírheyra menn sem lágu undir grun um póli- tíska glæpastarfsemi og síðan skyldum við gera skýrslur um nið- urstöðurnar fyrir deild saksóknara. Rannsóknir og handtökur voru í höndum annarrar stofnunar. Ég var settur yfír svokallaða „leitardeild“ og helsta starf mitt var að rann- saka útrýmingu Sovétmanna á fyrr- verandi vinnufélögum mínum hjá PolPol. Ég var látinn starfa þarna vegna þess að ég var sá eini sem enn var á lífí af þeim sem höfðu starfað hjá PolPol fyrir hernám Rússa. Ég vann þarna alla daga og þurfti meira að segja að sofa á skrifstofunni í tæp- an mánuð. Ég hafði engin völd til að stjórna handtökum. Það var rannsóknastofnunin sem gaf fyrir- mæli um hveija átti að handtaka en við urðum að fylla út skýrslur um þá sem voru handteknir og ég þurfti því að undirrita þær. Ég sá aldrei hverjir þetta voru sem voru handteknir,“ segir hann við Morg- unblaðið. - Þú starfaðir þá aldrei í þýsku öryggislögreglunni? „Nei, aldrei og Þjóðverjar hand- tóku mig svo 25. nóvember 1941 en þýska öryggislögreglan yfirtók ekki stjórnmálalögregiu Eistlands fyrr en 16. desember og þá sat ég í einangrunarklefa,“ segir hann. Eðvald segist aðeins einu sinni hafa stjórnað handtöku á méðan á hernámi Þjóðverja stóð. „Það bárust upplýsingar um KGB-foringja sem hélt uppi sambandi við eistneska kommúnista. Þá fór ég sjáifur vegna þess að það voru nær ein- göngu unglingar og byrjendur sem störfuðu við handtökur. Þetta vai-' talinn hættulegur maður en hann sýndi enga mótspyrnu. Ég vissi aldrei hvað varð um hann. Það voru líka nasistar í Eistlandi sem hófu strax samvinnu við Þjóð- verja eftir hemámið. Nasisminn var sjúkdómur sem breiddist yfír alia Évrópu,“ segir hann. Eðvald segir að deildin sem hann starfaði við hafi ekki verið í neinum beinum samskiptum við þýska hernámsliðið en upplýsingar sem safnað var hafi verið sendar til tjóð- verja. Hann hafi ekki haft nein bein samskipti við þá. Aðspurður segist hann ekki þekkja nöfn þess fólks sem Wies- enthal-stofnunin ásakar hann nú um að hafa látið taka af lífí og vís- ar þessu algerlega frá sér enda hafí hann mátt svara þessum ásök- unum í flestum fjölmiðlum landsins á undanfömum dögum. ^Hann segist aðeins hafa yfír- heyrt einn mann á þessum tíma, eistneska kommúnistaleiðfogann Karl Sare, vegna þess að hann þekkti hann frá fyrri tíð. Áður en Sáre var handtekinn hafði hann starfað í neðanjarðarhreyfingu í Vunnú, sem barðist gegn Ejóðverj- um. Hann var handtekinn af nokkr- um mönnum úr heimavamarliðinu og fluttur til aðalfangelsisins en Þjóðverjar kröfðust þess að fá hann framseldan. Eðvald segir að Sare hafí veitt miklar upplýsingar um kommúnista í Eistlandi en hann heldur því einnig fram að hann hafi sjálfur verið handtekinn af Þjóðveijum fyrir að koma* í veg fyrir að Þjóðverjar fengju að yfir- heyra Sare- béint. „Sare viliti ekki á sér heimildir heldur sagðist vera kommúnisti og að hann vildi vera kommúnisti," segir Eðvald. I ásökunum gegn Eðvald er því haldið fram að hann hafí verið handtekinn fyrir þátttöku í ránum á eignum gyðinga sem handteknir voru á þessum tíma. Hann harðneit- ar þessu þegar þetta er borið undir hann og kveðst auk þess hafa verið hvítþveginn af þessum ásökunum í réttarhöldum í Svíþjóð 1946. Hann segir að Þjóðverjar hafí aldrei fyrir- gefið sér að hafa komið upp um byltingaráform þeirra árið 1935. Handtaka Eðvalds fór fram 25. nóvember og var hann látinn sæta vist í einangrunarklefa í heilt ár. „I fangabúðunum var ég í einangr- un og hafði ekkert að lesa. Beið bara,“ segir hann. Eðvald losnaði úr fangelsi í sept- ember 1943 og starfaði um tíma í gagnnjósnadeildinni í Tallin. „Þegar Rússar komu aftur í september 1944 tókst mér svo að flýja til Sví- þjóðar,“ segir hann. „Hveijum dettur í hug að ég hafi_ haldið mig í felum í öli þessi ár. Ég hef aldrei leynt fortíð minni. Ég hef íslenskt ríkisfang og ber íslenskt nafn samkvæmt lögum og hef látið heyra mikið í mér opinber- lega um atburðina í heimalandi mínu. Hveijum dettur í hug að stríðsglæpamaður í felum fari að skrifa bók um sjálfan sig?“ segir hann. Einar Sanden, rithöfundurinn sem annaðist ævisöguritun Eðvalds, vinnur nú að endurritun bókarinnar í enskri útgáfu með viðbótarköflum þar sem fram kemur mikið af upp- lýsingum um þetta tímabil sem ekki hafa birst áður að sögn Eðvalds. Laxveiði í sjó í Hvalfirði: Kemur verst niður á hafbeit- arstöðvunum og Laxá í Kjós LOKIÐ er aflestri af merkjum þeim sem fundust eða var skilað úr netaafla jarðanna Kirkjubóls og Kúludalsár við mynni Hval- fjarðar á síðasta sumri. Laxveiði í þessar lagnir var ekki teljandi á árum áður, en hefur aukist mjög síðustu árin. Síðasta sumar var aflinn svo mikill að sérstaklega vel var eftir því tekið, ekki síst þar sem laxgengd og veiði i ám og hafbeitarstövum var held- ur i lakari kantinum. Hafbeitarstöðvar og landeig- endur og leigutakar Laxár í Kjós hafa hinsvegar mérkt mikið magn af seiðum og hinir síðarnefndu kostuðu fiskifræðing til þess verk- efnis að safna saman og lesa úr merkjum þeim sem til næðist. Opinberar aflatöiur lagnanna á síðasta sumri voru 3.200 laxar. Sigurður Már Einarsson fiski- fræðingur var fenginn til þessa starfa. Tröllasögur gengu um hlut Laxár í Kjós í hinni miklu sjávar- veiði sem um ræðir. Talað var um að Laxá ætti ef til vill 1.000 laxa úr aflanum, jafnvel meira. í ljós kom, að þótt Laxá eigi dijúgt í veiðinni voru ofangreindar tölur töluvert orðum auknar. En lítum á það helstu úr niðurstöðum Sig- urðar Más. Tíu hafbeitarstöðvar og lax- veiðiár reyndust eiga hlutdeild í aflanum, en mjög mismikla. Um 100% skil á merkjum eru talin hafa verið frá Kirkjubóli, en að- eins um 30% frá Kúludalsá. Af 100% skilum frá Kirkjubóli reynd- ust 68% merkja vera frá Kolla- firði, 11% frá Vogalaxi, 8% úr Hraunsfirði, 5% úr Lárósi og Laxá í Kjós og 1% úr Kiðafellsá, Langá og Miðfjarðará. 30% skilin frá Kúludalsá eru nefnd lágmarks- skil, en af þeim reyndust 66% merkja vera frá Kollafirði, 28,9% frá Laxá í Kjós, 5,3% frá Voga- laxi, 2,6% frá Vatnsdalsá og Dyr- hólaósi. Lítilli sögu má við þetta bæta um einstakling sem var staddur í reykhúsi í vetur og þar voru nokkrir laxar frá Kúludalsá í kassa fyrir innan borðið. Maður þessi fór að róta í laxahrúgunni og hirti á skömmum tíma 7 merki og var lesið sérstaklega úr þeim. 5 voru frá Kollafirði og tvö úr Laxá í Kjós. Hafbeitarstöðvarnar fjórar, Vogalax, Kollafjörður, Lárós og Hraunsfjörður reyndust eiga alls 1.145 laxa sem er ekki lítill hluti af 3.200 laxa heildarveiði. Kirkju- bólslagnirnar skiluðu merkjum af 400 löxum úr Kollafírði, 294 löx- um frá Vogalaxi, 170 löxum úr Lárósi og 77 löxum frá Hrauns- fírði. Enginn merktur lax frá haf- beitarstöðvunum á Snæfellsnesi skilaði sér frá Kúludalsá. 173 merki frá Kollafírði og 31 merki frá Vogalaxi komu þar hins vegar fram. Merktir laxar úr sleppingu tæp- lega 30.000 gönguseiða við ósa Laxár í Kjós sumarið 1990 reynd- ust vera 40 talsins, en minnt er á léleg skii á merkjum frá Kúlu- dalsá sem þó skilaði megninu af merkjunum. Með því að nota þær tölur og staðreyndir sem fyrir voru freistaði Sigurður Már þess að áætla hve hlutur Laxár í Kjós í veiðinni væri stór með því að reikna út hve líklegt væri að margir villtir laxar úr Laxá hefðu veiðst. Niðurstaðan var 167 laxar úr Kúludalsárlögnunum og 24 úr Kirkjubólslögnunum, eða alls 191 lax. Samtals gerir það 231 lax sem er 7% af heildarveiðinni og náðust þó ekki um 70% merkjanna frá Kúludalsá. Þess má geta, að unnið er að því að sjávarlagnir þessar verði keyptar upp og með hliðsjón af því skipta athuganir fiskifræð- ingsins ekki litlu máli, því þær sýna hveijir raunverulegir hags- munaaðilar eru. Síðast er til spurðist var fremur ólíklegt að samkomulag næðist svo tíman- iega að netin yrðu tekin upp fyrir komandi vertíð. Engu að síður er það haft fyrir satt að viðkomandi netamenn séu síður en svo frá- bitnir samkomulagi. Fordæmið og fyrirkomulagið í Borgarfirði hefur komið vel út, laxgengd stóreykst og netamenn fá gott verð fyrir laxinn óveiddan. Jafn vel betra verð heldur en ef þeir hefðu veitt hann og selt. Sjónvarpsmynd eftir sögu Davíðs Oddssonar tilbúin UPPTÖKUM og frágangi á sjónvarpsmyndinni „Allt gott“ eftir Davíð Oddsson lauk í janúar og hefur myndin verið afhent Sjón- varpinu þar sem hún bíður sýningar. Framleiðandi myndarinnar er kvikmyndafyrirtækið FILM og er myndin framleidd fyrir RUV. Frá þessu segir i frétt frá kvikmyndafyrirtækinu. „Allt gott“ gerist á þeim tímum þegar eplalyktin var ilmur jólanna og á íslandi ríktu höft í innflutn- ingi ávaxta og munaðai-vöru frá útlöndum. Sögusviðið er lítið þorp úti á landi. Sagan segir frá tveim 7 ára strákum og ráðabruggi þeirra til að höndla þau verðmæti er þá þóttu toppurinn á tilver- unni.“ Myndin er 34 mín. Með helstu hlutverk fara: Ragn- ar Nikulásson, Guðlaugur Hrafn Ólafsson, Hólmfríður Þórhallsdótt- ir, Már Magnússon, Theódór Kr. Þórðarson, Jón Tryggvason og Þórunn Pálsdóttir. Handrit er eftir Davíð Oddsson, leikstjóri er Hrafn Gunnlaugsson, stjórn kvikmynda- töku Ari Kristinsson, leikmynd og búningar eru eftir Karl Júlíusson og framkvæmdastjóri er Kristján Þórður Hrafnsson. Eðvald Hinriksson um borð í Rositu, skipinu sem flutti hann til ís- iands. Myndin er úr bókinni „Úr eldinum til íslands,“ sem Almenna bókafélagið gaf út 1988. Islenskur staðall fyrir öruggt umhverfi barna greint 18 manns sem hann hafi handtekið í Tartú eftir að sovétmenn höfðu verið reknir burt af svæðinu. „Það er alveg rétt en við tókum hins vegar aldrei neinn af lífí þrátt fyrir að sumir manna okkar væru nokkuð byssuglaðir eins og búast mátti við væri ástandið haft í huga,“ segir Eðvald í bókinni. Hann bar af sér allar ásakanir í viðtali sein birtist í Morgunblaðinu. Opnaði nuddstofu Árið 1949 kvæntist Eðvald Hin- riksson íslenskri konu, Sígríði Bjarnadóttur, sem nú er látin. Eign- uðust þau þijú börn, Önnu Eðvalds- dóttur og knattspyrnumennina víð- kunnu Atla og Jóhannes. Eðvald starfaði um nokkurra ára skeið í fyrirtækinu Föt hf. og 1962 opnaði hann nudd- og gufubaðstofu í Reykjavík. Var hann vel þekktur sem nuddari, sérstaklega meðal íþróttamanna. Hann býr nú í íbúð í húsnæði aldraðra við Hjallabraut 33 í Hafnarfírði. EINN þátturinn í verkefm Slysa- varnafélags Islands, sem gengur undir nafninu „Vörn fyrir börn“, er samstarf við bæjairfélög um nákvæma úttekt á opnum svæðum og stofnunum í þeim tilgangi að fjarlægja slysagildrur. Þannig hafa tekist samningar við Kefla- víkur- og Njarðvíkurbæ um verk- efnið „Gerum bæinn betri fyrir börnin". Frá þessu segir í frétt frá SVFÍ. Þar segir ennfremur: „Meginmarkm- ið þessara samninga er að útbúa íslenskan staðal öðrum bæjar- og sveitarfélögum til afnota við slysa- varnir barna. Einnig að auka öryggi barna með því að fækka slysagild- rum í umhverfinu, heima og heiman, gera foreldra og aðra meðvitaðri og gagnrýnni á umhverfi barna með fræðslu og að sameina faghópa og áhugafólk til þátttöku í verkefninu. Að hluta til er fyrirmyndin að þessu verkefni fengin frá Alþjóða- heilbrigðismálastofnuninni (WHO), en vinnan mótuð í samræmi við ís- lenskar aðstæður. Nú eru að hefja störf vinnuhópar í Keflavík og Njarð- vík, og munu þeir einkum beina at- hygli að skólamannvirkjum, sund- laugum, íþróttahúsum, höfnum, ný- byggingum, leikskólum, opnum leik- svæðum barna, vinnusvæðum, verk- smiðjum, umferðinni og heimilum. Þessir hópar gera fyrst vettvangs- könnun, skrá slysagildrur og gera síðan tillögur til sérstakra fulltrúa „Fundurinn bendir á að fækkun kennslustunda og fjölgun í bekkjar- deildum getur ekki leitt til annars en slakari árangurs nemenda og aukinnar sérkennsluþarfar innan skólanna," segir í ályktuninni og er heitið á foreldra og alla landsmenn til að snúast til varnar fyrir börnin. Þá segir ennfremur að íslenskt þjóðfélag sé nógu ríkt til að halda uppi óskertu skólastarfí frá því sem grunnskólalögin sem samþykkt voru bæjarstjóma um lagfæringar cg endurbætur. Á grundvelli þeirrar reynslu, sem fæst í fyrrnefndum tveimur bæjarfélögum, verður gerð- ur sérstakur íslenskur staðall, sem nota má í öllum bæjar- og sveitarfé- lögum á landinu." síðastliðið vor gera ráð fyrir, skól- atíma sem þó er skemmri en tíðkast meðal menningarþjóða í hinum vest- ræna heimi. „Fundurinn telur að börn og ungl- ingar nútímans þarfnist festu og öryggis í uppeldi og megi alls ekki við neinni óvissu og hringli með lög og reglur um svo mikilvægan þátt sem er starf uppvaxandi kynslóða í 10 ár af lífi einstaklingsins." Stjórnendur grunnskóla N-landi eystra: Fækkun kennslustunda leiðir til verri árangurs FUNDUR sljórnenda í grunnskólum Norðurlandsumdæmis eystra sem haldinn var í síðustu viku hefur mótmælt niðurskurði þeim sem ákveð- inn hefur verið á kennslumagni til grunnskóla. Þetta kemur fram í ályktun frá fundinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.