Morgunblaðið - 23.02.1992, Page 19

Morgunblaðið - 23.02.1992, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1992 19 framsóknarmaðurinn Pálmi Lofts- son, kvað það velkomið, en spurði hvort þetta væru þau einkamál, sem nefndarmenn mættu ekki hlusta á. Einar kvað nefndarmönnum velkom- ið að vera á þessum fundi frystihúsa- eigendanna. Einar hafði því næst framsögu af hálfu þeirra félaganna og lýsti fyrir fundarmönnum hugmyndum þeirra Ólafs um félagsstofnun. Hann benti fundarmönnum á þær hættur og það öryggisleysi, sem þeir gætu átt framundan, ef þeir tækju ekki sjálfir sölu afurða sinna í eigin hend- ur. í þeirri ræðu hefur hann eflaust bent á, að þótt menn hefðu hingað til ekki kunnað illa þeirri opinberu forsjá, sem menn hefðu mátt hlíta undir leiðsögn Fiskimálanefndar, væri nú allt óljóst um framtíð nefnd- arinnar. Ríkisstjómin hefði einmitt nýverið skipað nefnd til að gera til- lögur í því efni. Þá gæti svo farið að þeim yrði ráðstafað, hver vissi hvert, jafnvel til annarrar opinberrar stofnunar, ef þeir hefðu ekki eigin félagsskap um afurðasöluna. í annan stað gæti hann hafa bent á að frystihús á vegum SÍS höfðu slitið samstarfi við Fiskimálanefnd um áramótin 1940-41 og síðan feng- ið löggildingu atvinnumálaráðherra sem fiskútflytjandi samkvæmt lög- unum um Fiskimálanefnd frá 1934. Ef frystihús í einkaeigu ættu áfram að heyra undir opinbera stofnun, gætu samkeppnisaðilar notfært sér þá möguleika sem því fylgdu til að fylgjast með öllu sem sú opinbera stofnun gerði í markaðsleit og sölu- málum, án þess að þurfa sjálfir að gera opinbera grein fyrir sinni starf- semi. Sjálfsagt hefur hann einnig hvatt menn til að horfa fram á við og undirbúa sig undir aðrar aðstæð- ur að ófriðnum loknum. Nú gæti verið lag til að koma á laggirnar eigin sölustofnun, sem væri tilbúin til að takast á við erfiðleikana í markaðs- og sölumálum þegar af- skiptum ríkisstjóma af þessum mál- um sleppti eða úr þeim drægi til stórra muna. Pálma Loftssyni fannst það ein- mitt koma úr hörðustu átt, ef menn nú ætluðu að nota þennan fund til að vega aftan að nefndinni eftir allt sem á undan væri gengið með SÍS, sem farið hefði frá nefndinni með s'ín frystihús. Pálmi spurði hvort menn væru óánægðir með störf nefndarinnar? Einar Sigurðsson kvað það síður en svo. Frystihúsaeigendur vissu sig standa í þakkarskuld við nefndina fyrir störf hennar og þá uppbygg- ingu, sem átt hefði sér stað í þessum iðnaði fyrir hennar forgöngu. En nú fyndu menn þroskann hjá sjálfum sér og treystust til að standa á eig- in fótum. Sjálfsagt hafa einhveijir fleiri tek- ið til máls, en menn voru ekkert að orðlengja um þessa hluti og sam- þykktu með öllum greiddum atkvæð- um ályktun um að frystihúsin tækju sölu afurða sinna og innkaup til reksturs síns í eigin hendur. Síðan var kosin bráðabirgðastjórn svo skipuð: Einar Sigurðsson, Vest- mannaeyjum, Ólafur Þórðarson, Siglufírði, Jón Auðunn Jónsson, ísafirði, Elías Þorsteinsson, Kefla- vík, Jóhann Fr. Guðmundsson, Seyð- isfírði. Þessi ákvörðun um félagsstofnun birtist í Morgunblaðinu þegar daginn eftir. Svo einkennilega vill hins veg- ar til, að þegar kom að félagsstofn- uninni sjálfri hinn 25. febrúar var hennar að engu getið í blöðum bæj- arins, hvort sem þar hefur um ráðið hógværð frystihúsaeigenda eða löngun til að starfa í friði að fyrstu uppbyggingu félagsins. Nú voru hvergi nærri allir frysti- húseigendur á þessum fundi og þurfti strax að kynna hinum málið og fá þá til að vera með í félaginu. Bráðabirgðastjórnin fól Ólafi Þórð- arsyni allar framkvæmdir í þessum málum og hófst hann handa um að skrifa frystihúseigendum og ræða við þá sem til bæjarins komu. Ekki Brautryðjendur í fyrstu stjórninni voru meðal annarra þeir Einar Sigurðsson, Ólafur Þórðarson og Elías Þorsteinsson, sem var fyrsti formaðurinn, og allir áttu þeir eftir að koma mikið við sögu Sölumiðstöðvarinnar. er vitað til að umrædd bréf hafí varðveist. Félagsformið Eins og áður er sagt fór sjálfur stofnfundur Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna fram hinn 25. febrúar 1942. Á þessum liðlega tveimur undirbúningsmánuðum hefur verið í ýmis hom að líta fyrir bráðabirgða- stjórnina eða framkvæmdastjóra hennar, Ólaf Þörðarson frá Lauga- bóli. Hvers konar félagsskapur átti þetta að verða: Hlutafélag, einhvers konar samvinnufélag, eða kom til greina að gerast aðili að 10' ára gömlum samtökum saltfískframleið- enda, SÍF, sem bjó yfir mikilli við- skiptareynslu og viðskiptasambönd- um, en hafði takmörkuð verkefni um þessar mundir, þar sem að mestu hafði tekið fyrir saltfísksölu til Mið- jarðarhafslanda sökum ófriðarins? Einar „ríki“ Sigurðsson er einn til frásagnar um þær skiptu skoðan- ir, sem uppi kunna að hafa verið um þetta efni. Gera má ráð fyrir því að þá þegar hafí hann látið uppi þá skoðun, sem hann átti eftir að endur- taka á fjölda aðalfunda SH: „Ég barðist fyrir því árum saman í Sölumiðstöðinni, á meðan ég var og hét, að breytt yrði um rekstrar- form og hún gerð að sterku hlutafé- lagi, sem er félagsform okkar einka- rekstrarmanna, þannig að Sölumið- stöðin yrði megnug þess að vera skjaldborg einkarekstrarins og þá sérstaklega frystihúsanna, eins og Sambandið er kaupfélögum sínum og frystihúsum. En þetta sjónarmið mitt bergmálaði ekki í hugskotstómi trúbræðra minna í einkarekstrin- um.“ Samband íslenskra samvinnufé- laga er eins og snjóbolti, sem hleður stöðugt utan á sig. Því liggur ekk- ert á. Það er eins og kaþólska kirkj- an. Því var það, að Vilhjálmur Þór sagði einhveiju sinni við Ólaf Þórðar- son frá Laugarbóli, þegar þeir ræddu um Jöklana: „Það er sama hvernig þið bröltið. Við eignumst þetta allt fyrr eða síðar." Við vorum þá að taka á móti nýju skipi." En þrátt fyrir það rekstrarform, sem fyrir valinu varð — eða kannski vegna þess — hefur þvi farið fjarri að hrakspár Vilhjálms Þórs hafi ræst. Sölumiðstöðin hefur haldið sínu striki í hálfa öld og þrátt fyrir smávægilegar breytingar á upphaf- legum lögum og samþykktum í átt að hlutafélagsforminu, hefur þó eng- inn meirihlutavilji verið fyrir stökk- breytingum í þá átt. Einar Sigurðsson gerir líka grein fyrir öðru sjónarmiði: „Aðrir vildu fara yfír til SÍF. Það voru sölusam- tök saltfiskframleiðenda, sem höfðu nú lítið við að vera, því að saltfisk- verkun lagðist niður á stríðsárunum. Meðal þeirra, sem þetta vildu, var Jón Auðunn Jónsson frá ísafirði. Hann var þá í stjóm SÍF. Stjómend- ur SÍF bentu á að þeir hefðu 1,8 milljón króna yfírdrátt í Landsbank- anum. Það var ekki lítið fé á þeim tíma.“ Þetta orðalag Einars bendir til þess að það hafí verið íhugað í al- vöru að fela SÍF á hendur afurða- sölu frystihúsanna, enda ekki óeðli- legt, þar sem langflestir frystihúss- eigendur höfðu jafnframt með hönd- um saltfískverkun og vora þegar félagsmenn í SÍF. Ef til vill hafa menn gert sér grein fyrir því að freð- fískur og saltfiskur voru gerólíkar vörategundir, sem seldar vora á ólík- um mörkuðum og kröfðust mjög ólíkrar markaðssetningar og sölu- starfsemi. Þá er það þriðji kosturinn og sá sem fyrir valinu varð. Á það hefur verið bent að í lögunum frá 1934 um Fiskimálanefnd, þar sem fjallað er um éinkasölu á fiski séu ákvæði um að ríkisstjómin skuli gefa fisk- framleiðendum kost á því að taka hana í sínar hendur þegar stofnað verður félag fiskframleiðenda sem fullnægi öðrum ákvæðum laganna, sem kveða býsna itarlega á um form slíkra samtaka. Að bregða frá því formi hefði því mögulega krafíst lagabreytinga og jafnvel pólitískra átaka um málið á Alþingi. Fyrir menn, sem enn voru minnugir þeirra pólitísku átaka sem stóðu um setn- ingu laganna um Fiskimálanefnd á sínum tíma, hefur ekkert verið fjær lagi en fara að efna að nýju til átaka í þessum efnum úr því að friðsam- legri leiðir vora til. Hér var því hið gullna tækifæri gripið og íslendingar höfðu ákveðið forskot fram yfir keppinautana í stríðslok með sterku söluskipulagi; forskot, sem til dæmis Norðmenn sáröfunduðu okkur af. Þríeykið Eins og áður sagði fór því fjarri að stofnun SH færi fram með lúðra- þyt og söng. Það er ekki aðeins, að ekki fínnist f dagblöðum borgarinnar frétt um stofnfundinn. Ég hef hvergi getað fundið að hann væri auglýst- ur. Eftirgrennslan leiðir í ljós, að dagana 20.- 22. febrúar fer fram aðalfundur SÍF og þar gefur Elías Þorsteinsson frá Jökli hf. ekki lengur kost á sér til stjómarsetu, en hann var þá og lengi síðar nánast óum- deildur forystumaður athafnamanna á Suðurnesjum. Daginn eftir hefst Fiskiþing. Báða þessa fundi sótti þorri athafnamanna við sjávarsíð- una, frystihússeigendur þar á með- al. Má álykta, að Ólafur Þórðarson hafi nýtt sér þetta til að kynna mönnum undirbúning málsins, stofnsamning og frumvarp að lög- um, og síðan hóað mönnum saman til fundar á Hótel íslandi að kvöldi miðvikudagsins 25. febrúar. Að minnsta kosti vekur athygli að ein- ungis 14 eigendur frystihúsa sitja sjálfan stofnfundinn, en 8 bætast strax í hópinn einhvern næstu daga. Eftir fundargerð stofnfundarins að dæma hafa þessir 14 verið orðnir þaulkunnugir því um hvað málið snerist, engar deilur koma upp og stofnun samtakanna, stofnsamning- ur og lög eru samþykkt ágreinings- iaust. Það er sérstaklega athygli- svert að ákveðið er að hvert frysti- hús skuli aðeins hafa eitt atkvæði án tillits til þess hvort það er stórt eða lítið, og atkvæðamagnið er ekki miðað við fjármagn eða útflutnings- verðmæti, eins og raunin var til dæmis á með SÍF. Bráðabirgðastjórnin frá í desemb- er var líka endurkjörin en henni kosnir varamenn. Eftir stutt fund- arhlé tilkynnti stjórnin að hún hefði skipt með sér störfum þannig að Elías væri formaður og Einar Sig- urðsson ritari stjórnar. Athygli vek- ur, að ekki verður séð af fundargerð- inni að Elías hafí setið fundinn, held- ur er stofnfundargerðin undirrituð af meðeiganda hans í hf. Jökli, Þor- grími St. Eyjólfssyni. Bendir það til þess, að fyrir fundinn hafí menn verið búnir að þaulhugsa hvernig forystu þessara samtaka og fyrir- tækis yrði best fyrir komið. Og þar var ekki tjaldað til einnar nætur: Þríeykið Elías, Einar og Ólafur átti eftir að sitja í stjórn SH nær óslitið næstu áratugi og vera Sölumiðstöð- inni sú kjölfesta, sem ekki haggaðist í stórsjóum byijunarörðugleika og sviptivindum breytilegra, alþjóðlegra viðskiptahátta. Starfað í kyrrþey Það var ekkert óðagot á stjórn SH eftir stofnfundinn. Þegar hinn 15. janúar 1942, mánuði eftir undir- búningsfundinn í Oddfellow, sam- þykkir Fiskimálanefnd að leita heim- ildar ráðherra til að lækka umboðs- laun af frosnum físki, er hún selur fyrir frystihúsin, í 1%. Að þessu fengnu var í rauninni ekkert því til fyrirstöðu að semja við Fiskimála- nefnd um að hún sæi áfram um sölu og útflutning á framleiðsluvör- um frystihúsanna og seldi þeim umbúðir og aðrar nauðsynjar árið 1942 eins og áður. Stjórnin gat því einbeitt sér að öðrum verkefnum. Á miðju sumri 1942 hafði verið gerður nýr viðskiptasamningur fyrir 1943. Um haustið var þessi samningur orðinn mjög óhagstæður fyrir frysti- húsin, því að dýrtíðin hafði aukist mjög á þeim tíma sem liðinn var frá því hann var gerður. Það helsta, sem á vannst í þessu efni var, að það tókst að ná samkomulagi við bresk og bandarísk stjórnvöld um að þunn- ildin mættu fylgja þorskflökunum. Af þessu leiddi að framleiðslurýrn- unin lækkaði úr 65% í um 58 %, eða um 7-8 %. Fram að þessu höfðu ytri umbúðir verið trékassar, en nú samdist um að nota mætti pappa- kassa í staðinn, en þeir voru að ajálf- sögðu miklu ódýrari. Þetta hvort tveggja var til mikilla hagsbóta fyr- ir frystihúsin og réð úrslitum um að þau gátu starfað að framleiðsl- unni. Það er svo ekki fyrr en 27. sept- ember um haustið að fyrir fískimála- nefnd liggur bréf Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna þess efnis, að SH hafí ákveðið að taka í sínar hendur um næstu áramót alla verslun með umbúðir og aðrar nauðsynjar frysti- húsa sinna og einnig alla afgreiðslu í sambandi við útflutningsfram- leiðslu þeirra. Jafnframt er þess far- ið á leit að SH fái að yfirtaka allar fiskumbúðir og aðrar frystivörur, er nefndin á nú fyrirliggjandi eða kann að eiga um áramót. Hinn 26. nóvem- ber 1942 mæta á fundi Fiskimála- nefndar fulltrúar SH; Huxley Ólafs- son, Björn G. Björnsson, Kristján Árnason, Einar Guðfinnsson og Ey- steinn Bjarnason með þá málaleitan að nefndin taki að sér skrifstofuhald og daglegan rekstur Sölumiðstöðv- arinnar. Er tekið jákvætt í það og formanni falið að gera uppkast að samningi, sem svo enn er lagður fyrir Fiskimálanefnd 10. desember „ og formanni heimilað að undirrita samkomulagið. í tvíbýli með Fiskimálanefnd Hinn 1. janúar 1943 hefst svo fyrsta starfsár SH í tvíbýli við Fiski- málanefnd í húsi Björns Kristjáns- sonar á Vesturgötu 5. Til bráða- birgða samdist svo um að starfsfólk nefndarinnar gegndi jafnframt skrif- stofustörfum fyrir SH og skrifstofu- stjóra nefndarinnar, Guðmundi Al- bertssyni, var jafnframt falið starf framkvæmdastjóra fyrir SH þessi skipan hélst fram eftir árinu, en 31. ágúst fer fram fullnaðar fjárhags- uppgjör milli þessara tveggja aðila skrifstofunnar. Hinn 15. september 1943 er svo tilbúið nýtt skrifstofu- húsnæði SH í Slipphúsinu við Mýrar- götu, þar sem SH var til húsa til ársins 1956, að flutt var á tvær hæðir í Morgunblaðshúsinu við Austurstræti þar sem Sölumiðstöðin hefur haft aðalbækistöðvar síðan. Um þennan aðskilnað ríkisforsjár- innar og samtaka einkaframtaksins segir Amór Siguijónsson: „Þessi skilnaður varð í fullri sátt og því lík- astur, er barn fer að heiman að reisa nýtt bú. Auk þess sem Sölumiðstöð- in fékk skrifstofustjóra nefndarinnar til að vera æðstu forsjón sína, fékk hún allmargt af því öðra starfsfólki nefndarinnar, sem einkum hafði unnið að verslunarstörfunum, auk mestallra vörabirgða sem til voru og þegar höfðu komið pantanir í.“ Með því að blaða í fundagerðabók Fiskimálanefndar má sjá, að það að aðskilnaðurinn hafi verið því líkastur er barn fer að heiman að reisa nýtt bú, er ekki bara líking heldur blá- kaldur raunveraleikinn, Eins og þegar barn fer að heiman Hinn 20 september er „lagt fram bréf frá Sölumiðstöðinni þar sem farið er fram á, hvort nefndin sjái sér fært að selja eða lána SH. Eitt- hvað af skrifstofuvélum og að láta eftir annan símann?“ Nefndin tekur sér fjóra daga til umhugsunar en lætur síðan bóka hinn 24. septem- ber: „Út af bréfí Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem lagt var fram á síðasta fundi samþykkir nefndin að lána fyrst um sinn Sölu- miðstöðinni ritvél með löngum valsi, handknúna samlagningarvél og eina handknúna margföldunarvél svo og að eftirláta henni síma 2850.“ Með þetta að veganesti og ómælda bjartsýni í farteskinu lögðu liðlega tveir tugir heimaríkra og heimaalinna frystihúsakarla til at- lögu við heimsmarkaðinn. Þeir fengu góða menn í lið með sér, vel mennt- aða, veraldarvana heimsborgara. En það er önnur saga, sem ef til vill verður rakin síðar. Um árangurinn verður varla deilt hálfri öld síðar. Menn geta þar kinn- roðalaust borið sig saman við helstu keppinautana í nálægum löndum. Og þótt nú blási eilítið á móti í bili, þola lífskjör almennings samanburð við það sem best gerist í þessum heimshluta. Því fór fjarri að svo væri þegar lagt var upp í þessa för með lánsritvél með löngum valsi, liandknúna samlagningarvél og aðra handknúna margföldunarvél. Saga Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna er samofin íslenska ævin- týrinu um karlssoninn úr kotinu, sem hófst úr fátækt til bjargálna og vel- megunar. Enn eigum við alla mögu- leika á því að láta það ævintýri enda vel. Heimildir: Fundargerð stofnfundar SH; Fiskimálanefnd, skýrsla 10 ára, eftir Arnór Sigurjónsson; Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna 10 ára, eftir Richard Björgvinsson; Fundargerðabók Fiski- málanefndar; Agnar Klemens Jónsson: Stjórnarráð Isiands 1904-1964; Tómas Þór Tómasson: Heimsstyrjaldarárin á íslandi 1939-1945; Þórbergur Þórðar- son, Einar Sigurðsson: Ævisaga II, III; Gunnar Benediktsson: Saga þin er saga vor.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.