Morgunblaðið - 23.02.1992, Side 25
_ d /?i fiií
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1992
25
Hjaltí S. Guðmunds-
son — Kveðjuorð
Fæddur 24. maí 1924
Dáinn 28. janúar 1992
Hjalti var sonur hjónanna Guð-
mundar Jónssonar og Láru Guð-
mannsdóttur í Vesturhópshólum.
Guðmundur fæddist 14. júní 1885,
á Stóra-Hvarfi í Víðidal. Faðir hans
var Jón Jónsson, stundum nefndur
Gilsbakka-Jón yngri, eða Grundar-
Jón, hann var orðlagður harðfengis-
maður. Hann var af svonefndri
Tröllatunguætt. Móðir Guðmundar
var Þorbjörg Pétursdóttir, frá Öxna-
tungu í Víðidal. Þau bjuggu seinna
á Grund í Vesturhópi og Vestur-
hópshólum. Lára Guðmannsdóttir
fæddist í Krossanesi á Vatnsnesi,
14. september 1892. Foreldrar
hennar voru Guðmann Ámason og
Ögn Eyjólfsdóttir, sem bjuggu þar.
Þetta eru kunnar ættir fyrir
margra hluta sakir. Hafa ýmsir
þessara ættmenna skarað fram úr
í búskap, t.d. Eyjólfur Guðmundsson
á Illugastöðum, afi Láru, sem var
frumkvöðull og leiðbeinandi um
ræktun æðarvarps, og fleiri hafa
orðið kunnir varðandi sjávarútveg
og fiskveiðar.
Guðmundur og Lára hófu búskap
í Vesturhópshólum árið 1916, en
áður hafði Guðmundur dvalið á bú-
garði í Danmörku í eitt ár, til að
kynna sér búnaðarstörf. Taldi hann
lærdómsríkt að kynnast búskap
Dana.
Guðmundi og Láru búnaðist vel,
og nutu virðingar sveitunga sinna,
enda sérlega greiðvikin og vel að
sér. Þau eignuðust sjö börn, sem
öll eru á lífi, nema Hjalti, sem hér
er minnst. Börn þeirra eru: Þorbjörg
Jónína, var gift Axel Benediktssyni,
fv. skólastjóra, hann er látinn; Unn-
ur, var gift Hjálmtý Hallmundssyni,
trésmið, hann er einnig látinn; Agn-
ar Guðmann, múrarameistari,
kvæntur Guðrúnu Valdimarsdóttur;
næstur var svo Hjalti Sigutjón; Jón
Eyjólfur, bóndi, kvæntur Ölmu Á.
Levy; Gunnlaugur, kaupmaður,
kvæntur Erlu J. Levy; Ásta, skrif-
stofumaður.
Guðmundur Jónsson lést árið
1946. Kom þá í hlut Hjalta að standa
fyrir búinu ásamt móður sinni, til
ársins 1951, er hann kvæntist
Margréti Böbs, frá Lubeck í Þýska-
landi. Þá lét Lára af búskap, en
ungu hjónin tóku við. Lára lést árið
1983.
Hjalti tileinkaði sér snyrti-
mennsku foreldra sinna í búskapn-
um, dyggilega studdur af konu
sinni, sem var ótrúlega fljót að læra
íslenska búskaparhætti. Þau byggðu
upp á jörðinni og stórjuku ræktun.
Segir það nokkuð um umgengnina,
að Hjalta voru veitt verðlaun fyrir
frábæra snyrtimennsku í. búskap.
Hjalti og Margrét eignuðust fimm
börn, þau eru: Lára Brynja, hár-
greiðslumeistari í Bandaríkjunum,
gift Kevin Cooke, kerfisfr., þau eiga
þijú börn, Guðmundur Hinrik, húsa-
smíðameistari í Reykjavík, kvæntur
Elísabetu Kristbergsdóttur, meina-
tækni, þau eiga þijú börn; Margrét
Bára, gift Sigurgeiri Tómassyni,
húsasmíðameistara í Reykjavík, þau
eiga tvö börn; Ásta Emelía, sambýl-
ismaður Halldór Teitsson, deildar-
stjóri, þau eiga eitt bam; yngstur
er Úlfar Bjarki, hann er enn í for-
eldrahúsum.
Vesturhópshólar er kirkjustaður,
þar er bændakirkja, þ.e. að kirkjan
er í eigu bóndans. Mun þetta vera
síðasta bændakirkja í Húnaþingi.
Mér er ekki kunnugt um hvenær
bændakirkja var fyrst reist í Vest-
urhópshólum, en sú, sem nú stend-
ur, mun vera byggð árið 1879.
Guðmundur og Lára létu sér mjög
annt um kirkjuna og héldu henni
vel við. Hjalti tók svo við og hélt
henni við með mestu snyrti-
mennsku, enda vissi hann um óskir
foreldra sinna í því efni.. Kirkjuna
afhenti Hjalti söfnuðinum árið 1959.
Eins og fyrr segir voru hjónin,
Guðmundur og Lára, þekkt fyrir
hjálpfýsi, og ekki er vafi á að börn
þeirra hafa gert sér góða grein fyr-
ir því hugarfari. Móðir mín hefur
sagt mér, að hún gleymi ekki hve
hjálpfús Hjalti var, þá ungur mað-
ur, þegar faðir minn lá lengi mikið
veikur. Hún sagði að Hjalti hafi oft
komið til hjálpar, og oft gert sér
ferð til að fylgjast með hvort ekki
væri hjálpar þörf. Svona nokkuð
lýsir manninum vel.
Hjalti sóttist ekki eftir embætt-
um, kærði sig alls ekki um þau, þó
var hann sóknarnefndarformaður,
en hann hafði gott vit á málum.
Þau hjón, Hjalti og Margrét, voru
einstaklega samhent, gestrisin og
gaman að koma til þeirra. Hjalti var
spaugsamur, var oft gaman að
snöggum athugasemdum hans.
Annars var hann í eðli sínu alvöru-
gefinn og fremur dulur maður.
Hann vann mikið og vel. Verk hans
sjást, og hann hafði mjög sjálfstæð-
ar skoðanir.
Dagsverki hans er nú lokið, en
gott er að minnast afkastamikils
góðs drengs.
Ég færi frú Margréti og bömum
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Sigurður H. Jóhannsson.
WM yrí (SmhOí (D
Hrl Ráðstefna ••
um framtíð flutninga
á Islandi
Hagrœðingarfélagið og Aðgerðarannsóknafélagið
efna nú til sinnar fjórðu ráðstefnu um vörustjórnun.
Innanlandsflutningar eru um þessar mundir í
brennidepli og því áhugavert að skoða þróun
þeirra frá faglegu sjónarhorni.
Dagskrá:
13:00 Inngangsorð
• Snjólfur Ólafsson, formaður ARFÍ
13:10 Setning ráðstefnu
• Halldór Blöndal, samgönguráðherra
13:20 Stefna stjórnvalda í samgöngumálum
• Halldór Blöndal, samgönguráðherra
13:40 Framtíðarsýn
• Trausti Valsson, Háskóla íslands
14:10 Umræður og fyrirspurnir
14:30 Kaffihlé
15:00 Fólksflutningar á íslandi
• Kolbeinn Arinbjamarson, Flugleiðum
15:20 Verkaskipting í flutningum
• Páll Hermannsson, Samskipum
15:40 Staðarval með tilliti til flutninga
• Páll Jensson, Háskóla íslands
16:00 Umræður og fyrirspurnir
16:30 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjóri verður Thomas Möller hjá Eimskip.
Ráðstefiian er haldin í Höfða, Hótel Loftleiðum
miðvikudaginn 26.febrúarkl. 13:00 til 16:30.
Þálttakendur eru beðnir um að skrá sig t síma 621066
hjá Stjórnunaifélaginu. Þátttökugjald er kr. 4000, og er
öllum heimil þátttaka.
Steve Allison
kennari
Margrét Hálfdánardóttlr
skrifstofustjöri
Grimur Grímsson
framkvæmdarstjórl
Carolyn Godfrey
kennari
ALLIR KENNARAR SKÓLANS S'
gWfcAR
MAL
Velkominn í Enskuskólann
Verið velkomin að líta inn í Enskuskólann
í spjall og kaffi.
Við bjóðum upp á 11 námsstig í ensku.
Við metum kunnáttu jþína og í framhaldi
af því ráðleggjum við þér hvaða námskeið
hentar þér og þínum óskum best.
Komdu í heimsókn eða hringdu - þvi fylgja
engar skuldbindingar.
, , ■HINNRITUN STENDUR yFIR
HRINGDUISIMA15330 EÐA 25900 OG FAÐU FREKARIUPPLYSINGAR
KENNSLA HEFST 4. MARS
Fjrrlr fuUorSna:
Almenn enska
(Áhersla lögð á talmál)
Bnskar bökmenntlr
Rituð enska
Viðsklptaenska
Umræðuhópar
TOEFL-G MAT-GRE N&mskeið
Undirbúningsnámskeið fyrlr
pröf sem kráfist er vlð flesta
sköla í enskumælandi löndum
Verslunarmannafélag Reykjavíkur og
flest önnur stéttarfélög taka þátt í
námskostnaði sinna félagsmanna
Ný barnanásmkeið hefjast
x maí og júní
Einkatímar
Hægt að fá einkatíma eftir vali
ÞÚ FINNUR ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI HJÁ OKKUR - VELKOMIN í HÓÞINN...
skólinn
TUNGOTU 5 101 REYKJAVÍK