Morgunblaðið - 07.06.1992, Blaðsíða 2
2 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1992
GÆTI ekki verið flott að að
hafa veggljós hér, lampa
þar og svo eitt loftljós fyrir
miðju ... ? Þegar verið er
að velta fyrir sér lýsingu á
nýbyggðu eða jafnvel
óbyggðu heimili er það yfirleitt eitt-
hvað á þessa leið. Og oft erum við
fyrst og fremst að spá í útlit Ijós-
anna en gefum ekki svo mikinn
gaum að því hvernig birta kemur
frá þeim, hvar hún fellur, hversu
sterk eða veik hún er, hvort Ijósið
verður hvítt, blátt eða gult og þar
fram eftir götunum. En það eru
hlutir sem við eigum að gaumgæfa,
því rafmagnsljós er jú það Ijós sem
lýsir okkur mestan hluta ársins.
„Lýsing á heimili er í mínum
huga aðalatriði sem ræður þeirri
stemmningu sem þar ríkir," segir
Tryggvi Tryggvason arkitekt og
undir það tekur Helgi Kr. Eiriks-
son, menntaður lýsingarhönnuður
frá Þýskalandi og hefur starfað við
lýsingarhönnun fyrir heimili og fyr-
irtæki hjá Lumex í Síðumúla í 7
ár. Það er reyndar ekki fyrr en
komið er inn á skrifstofu Helga að
sést hversu nátengd lýsingarhönn-
un og arkitektúr eru, því þar úir
og grúir af teikningum sem fyrir
utanaðkomandi líta mikið fremur
út fyrir að vera í ætt við arkitektúr
en lýsingu.
„Lýsingarhönnun fyrir heimili
hefur færst mjög í vöxt hér, sér-
staklega hvað nýbyggingar varð-
ar,“ segir Helgi. „Hins vegar er
allt of algengt að fólk komi og biðji
um lýsingarhönnun eftir að það
er búið að láta teikna rafmagnið í
húsið og jafnvel búið að láta leggja
það. Því vill þetta stundum verða
dálítill tvíverknaður og því miður
fer oft mikill tími í að reyna að laga
lýsingu þar sem fólk hefur látið
teikna raflagnir og leggja án þess
að spá nokkuð í hvort sú teikning
sé í samræmi við þá lýsingu sem
það vill hafa inni hjá sér á endan-
um.“
— Hvernig er best að haga sér
með lýsingarhönnun?
„Það er lang einfaldast að haga
málum þannig að lýsingarhönnun-
in komi snemma inn í myndina, á
meðan húsið er ennþá á teikni-
borðinu og að lýsingarhönnuður
og arkitekt geti þá unnið saman
að því takmarki sem fólk er að
sækjast eftir. Þetta er atriði sem
til að mynda getur fyrirbyggt erfið-
leika ef fólk vill fá innfelld Ijós, sem
eru lang algengustu loftljósin
núna. Inrifellt Ijós kallar á ákveðið
rými fyrir ofan loftklæðningu þann-
ig að Ijósin komist fyrir og hafi
tómarúm til kælingar og þess hátt-
ar.
Eins eru 12 volta Ijós orðin tals-
vert algeng og þau kalla á spennu-
breyta, sem er mikið auðveldara
að staðsetja og koma fyrir strax á
teikniborðinu og það er ýmislegt
fleira sem verður auðveldara. Allar
dósir eru þá á réttum stöðum og
fólk stendur ekki uppi með kostnað
sem fylgir því að breyta raflögn-
um.“
— Hvað um kostnað við lýsingu
almennt?
„Þegar ég hanna lýsingu fyrir
heimili, þá er ég ekki segja að
nákvæmlega svona lampi eigi að
fara þarna og svona tegund af loft-
Ijósi. Lýsingarhönnunin gengur út
á að skapa þá heildarstemmningu
sem fólk vill hafa á heimilinu. Og
þá snýst málið fyrst og fremst um
hvernig lýsingu er komið fyrir, þ.e.
hvernig Ijós lýsa upp á heimilinu,
en ékki hvernig lamparnir líta út.
Aðalatriðin er þá loftljós og vegg-
lampar af hálfu þess sem hannar,
því fólk getur svo bætt við færan-
legum borð- og gólflömpum og
fikrað sig áfram með hvar það vill
staðsetja færanleg Ijós.
En varðandi kostnaðinn þá er
lýsingin hönnuð frá gruripi með
það í huga að fólk geti keypt sjálfa
lampana hvort sem þáð vill á|la í.
einu eða smátt og smátt og þ>ð .
ræður auðvitað sjálft hvernig þeír
líta út og hversu mikið það er að
borga fyrir útlit þeirra. En það er
þá með teikningarnar, veit hvernig
Ijös eiga að koma og hvernig heild-
armyndin verður á endanum, en
getur ef því er að skipta keypt þau
smátt og smátt."
— Hvaða staðir á heimilinu eru
það sem fólk leggur fyrst og fremst
áherslu á að lýsa vel?
„í nýjum húsum er algengt sé
að einskonar „alrými", það er
stofa, sjónvarpsherbergi, borð-
stofa og jafnvel eldhús, séu í ein-
hverskonar opnu rými, oft þannig
að sést á milli lofta. Þar sem slík
rými eru leggur fólk yfirleitt fyrst
ög fremst áhersluna á þau varð-
; andi loft- og vegglýsingu.
En almennt má segja að þeir
staðir sem fyrst og fremst er hugs-
að um að lýsa vel og fallega séu
eldhús og stofa. Þar inni vill fölk
yfirleitt hafa ákveðna stemmningu
og í samræmi við annað þar inni.
Svo má auðvitað gera heilmikið
með því að setja „dimmera" á Ijós
víða í húsinu og geta þannig ráðsk-
ast dálítið með stemmninguna
hverju sinni. Og það hefur færst í
vöxt, ekki síst vegna þess að „dim-
merar" kosta núna aðeins brot af
því sem þeir gerðu áður og sama
er reyndar að segja um halogen-
Ijós, verðið á þeim hefur lækkað
mikið.
Annars er hægt að fara með
kostriað við lýsingu á heimili í báð-
ar áttir, eftir því hvað fólk vill hafa
dýra lampa. Lýsingin getur kostað
vel undir 100 þúsundum og hún
getur lika nálgast hálfa milljón
króna. En það er auðvitað í undan-
tekningartilvikum og almennt séð
kostar ekki mikið að lýsa heimilið,
a.m.k. ekki miðað við annan kostn-
að sem fylgir því að byggja hús
og standsetja.
Á móti kemur að fólk .er yfirleitt
að huga að Ijósakaupum á því stigi
í byggingarframkvæmdunum sem
það er verulega farið að létta á
buddunni. Nákvæmlega þess
vegna er ráðlegra að skipuleggja
lýsinguna í upphafi og kaupa lamp-
ana eftir því sem fjárhagurinn leyf-
ir, því þannig er tryggt að aðeins
séu keypt nákvæmlega þau Ijós
sem koma til með að vera áfram
til langs tíma og engu eytt í bráða-
birgðaljós - sem kosta líka pen-
inga og koma að litlu gagni þegar
búið er að taka þau niður," segir-
Helgi. ve
Hér má sjá dæmi um lýsingarhönnun í hluta af einbýlishúsi. I þessu
tilviku er húsið bjart og mikið af gluggum. Lofthæð er mikil í
miðju hússins og yfir. stiga. Innréttingar í húsinu eru í dekkri
kantinum og gólfefni er dökkt.
Lýsingarhönnun fyrir þetta hús er eftirfarandi:
Ákveðið er að nota innfellda 12 volta halogenlýsingu sem aðal-
lýsingu og láta sem minnst bera á halogen-lömpunum.
Notaðir eru vegglampar til að lýsa upp á loftin og til að fá endurkast
frá gólfum með óbeinni lýsingu.
í miðju hússins þar sem glergluggi nær þvert yfir eru settir sérstakir
pinnakastarar sem lýsa frá veggjum og niður á gólfið.
Yfir borðstofuborð er settur hangandi loftlampi sem lýsir niður, en á
borðstofuvegg er settur vegglampi, í mikilli hæð, sem lýsir upp á loftið
með óbeinni lýsingu.
í eldhúsi er innrétting með innbyggðri lýsingu, þannig að ekki er þörf
á mikilli lýsingu frá loftinu.
Mikil lofthæð er við stigann í húsinu. Þar er komið fyrir Ijósakrónu með
mörgum 12 volta halogenperum og hún látin hanga niður í glerglugga
sem er á milli hæða. Vegglýsingu er einnig komið fyrir við stiga.
Stofan er lýst upp með innfelldum halogen-ljósum (12 volta), sem og
borð- og gólflömpum í samræmi við húsbúnað.
Sjá nánar á teikningunni.
Ljósakrónan sem sett er upp yfir
stiga í mikilli lofthæð.
Lampinn sem lýsir niður á borð-
stofuborðið.
Teikning frá Hetga að lýsingarhönnun í hluta einbýlishúss.
LÝSINGARHÖNNUN: HELGÍ KR.EÍRÍKSSON
LAMPASKRÁ:
A. INNFELLDUR LUMIANCE NQ 2265
B-------------------.-- N0 21 5o
C. —---------PLUG -— NC 1855*172o
D LÍMBURG LOFTKÚPÍLL
E. VEGGLJÓS ER IÝSÍ NlfUR
F. HALOGEN VEGGljÚS LYSI UPP
G ---— " — ljósastrokkur