Morgunblaðið - 07.06.1992, Blaðsíða 6
i-S-
2GGI I/íOl .V flUOAaUMHUS aiOAJaHUDHOM
~MORGUNBLASIÐ SUNNUDAtlUR 7: ?ÚNÍ U992
MÁLIIN
Ulkoman vellur
á forvinnunni
LITIR ráða miklu um þá
stemmningu sem við kjós-
um að skapa á heimilinu.
Það er heldur ekkert stór-
mál að gefa heimilinu nýjan
blæ með litum, svo framar-
lega sem rétt er að verki staðið
þannig að útkoman standi undir
væntingum. Nákvæmlega réttu lit-
ina finnur fólk yfirleitt núorðið, lita-
kerfin eru orðin þannig að hægt
er að koma með mynd úr blaði,
efnisbút eða hvaðeina og láta lit-
greina og blanda í samræmi við
það. Og fólk notar sér þá þjónustu
óspart, enda tími hinna hvítu
veggja runninn sitt skeið á enda í
bili a.m.k.
Að sögn Guðjóns Oddssonar,
hjá Litnum í Síðumúla, er þessa
dagana mest keypt af mildum lit-
um en minna af mjög sterkum
hreinum litum eins og voru í gangi
fyrir tíma hvítu veggjanna og, ef
marka má spá ýmissa arkitekta,
er ekki langt í að komi aftur.
Litir virðast dekkri
„Annars vill það oft vera að fólki
finnst ákveðinn litur dekkri en það
átti von á þegar á vegginn er kom-
ið og það gerir sér ekki alveg grein
fyrir því að liturinn verður auðvitað
meiri á vegg eða heilu herbergi
en hann virðist á litaprufunni. Ann-
að atriði er líka að þegar verið er
að mála eru gluggatjöld tekin nið-
ur, húsgögn og aðrir hlutir fjar-
lægðir þannig að ekkert deyfir lit-
inn. En svo þegar allt er aftur kom-
ið á sinn stað mildast liturinn á
veggjunum," segir Guðjón.
En áður en hafist er handa við
að mála þarf að gera fleira en að
velja rétta litinn. Það þarf að huga
að atriðum eins og gljástigi. „Vfir-
leitt eru loft máluð með svo gott
sem mattri málningu, gljástigi 3-5,
þannig að ekkert endurkast Ijóss
komi frá þeim," segir Jón Björns-
AUÐSTILLT
MORATEMP blöndunar-
tækin eru með auðveldri
einnar handar stillingu á
hitastigi og vatnsmagni.
MORA sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást í byggingavöruverslunum.
meiri ánægja
son, málarameistari hjá Málning-
arþjónustu Reykjavíkur hf.
„Veggi í stofu er algengt að
hafa með gljástigi 10 og eldhús
með gljástigi á bilinu 20-50. Til
skamms tíma var algengt að fólk
málaði með háglans á baðher-
bergjum, en það hefur minnkað.
Hins vegar er nauðsynlegt að hafa
a.m.k. gljástig 20-30 þar inni,
þannig að hægt sé að þurrka yfir
veggina og þrífa. Önnur og mjög
góð leið til að mála baðherbergi
er að mála t.d. tvær umferðir af
venjulegri plastmálningu og lakka
svo yfir allt með einni umferð af
vatnsþynnanlegu parketlakki.
Auðvitað má líka lakka með olíu-
lakki, en lyktin af því er vægast
sagt hrikaleg. En sé ekki lakkað
yfir má gera ráð fyrir að venjuleg
plastmálning á baðherbergi dugi í
svona hálft ár, áður en hún fer að
flagna.
Tússlitir koma ígegn
Svo er líka æskilegt að hafa
dálítinn glans í málningu á barna-
herbergjum, þannig að hægt sé
að þrífa krass af veggjum," segir
Jón. „Annars eru tússlitir þannig
að það er varla hægt að þrífa þá
almennilega af og sé málað upp á
nýtt koma þeir í gegn. Þess vegna
verður annaðhvort að olíugrunna
blettina eftir tússliti fyrir endurmál-
un, eða þá að nota Tippex leiðrétt-
ingavökva á þá.“
Forvinnan er grund-
valiaratriðið
Að sögn Jóns er minnsta málið
í starfi málara að mála sjálfa vegg-
ina. Mesta verkið liggur í forvinn-
unni og í þeim efnum lendir fólk
býsna oft í vandræðum. „Þetta á
sérstaklega við þegar fólk er að
mála ný hús í fyrsta skipti. Áður
en það er gert er alveg nauðsyn-
legt að ráðfæra sig við fagmenn,
Jón Björnsson Morgunblaflið/Bjami
þótt að fólk ætli að mála sjálft. Það
getur þá annaðhvort hringt í mál-
arameistarafélagið og fengið ráð-
leggingar þar, eða fengið málara-
meistara til að koma á staðinn og
veita ráðgjöf.
Mér finnst fólk almennt gera
allt of lítið af því að leita ráða og
það er illskiljanlegt, því einn líter
af málningu kostar kannski á 7.
hundrað króna og það getur verið
dálítið dýrt að leika sér með máln-
ingu á heila íbúð fyrir kannski
50.000 krónur án þess að vita
hvað maður er að gera."
— Hvaða atriði eru það sem
oftast valda vandræðum?
„Það er viðgerðarvinnan, eins
og þegar fólk er gera við múr og
slípa sprungur, en gerir það ekki
rétt og endar svo með málaðan
vegg sem hægt er að lesa eins
og landakort af því að hann er all-
ur í sprunguförum. Þetta er atriði
sem þarf að vera í lagi, því þótt
fólkið sjálft geti kannski sætt sig
við það, þá kemur að því að íbúðin
fer í endursölu og væntanlegir
kaupendur eru fljótir að gera at-
hugasemdir við sprungna veggi.
Svo er líka til í dæminu að fólk
steinslípi ekki veggina, hvorki til
að byrja með eða á milli umferða
og þá verður endanleg útkoma
aldrei góð.“
Uppskrift að vel
máluðum vegg
— Hvernig er uppskriftin að vel
máluðum vegg í nýju húsi?
„Þá er byrjað á að steinrífa
veggina, síðan grunnað með olíu-
grunni eða semplast-grunni og
þvínæst málaðar 2-3 umferðir með
málningu og slípað yfir á milli
umferða með sandpappír. Stund-
um þarf líka að gera við á milli
umferða. En með þessu móti eru
veggirnir orðnir silkimjúkir fyrir síð-
ustu umferð."
— Hvað um endurmálun?
„Endurmálun í gömlu húsnæði
er annað mál, en fyrst og fremst
felst verkið í viðgerðarvinnu, mál-
unin sjálf er minnsta málið. En fólk
er alltof gjarnt á að byrja að mála
án þess að gera nokkuð annað.
Annað atriði varðandi gömul
hús eru gluggakarmar, sem stund-
um eru mjög illa farnir af bleytu
sem jafnvel liggur í þeim heilu ve-
turna. Það borgar sig fyrir fólk að
láta rakamæla fyrst til að kanna
ástandið á þeim. Annars eru þeir
málaðir á hefðbundinn hátt, tvær
umferðir af olíulakki, annaðhvort
lituðu, eða þá glæru ef viðarliturinn
á að halda sér."
Málarar nota meira efni
— Er einhver grundvallarmunur
á því hvernig málarar mála og svo
fólk yfirleitt?
„Fyrir utan þessi atriði varðandi
forvinnu og viðgerðarvinnuna, þá
er það helst það að málarar nota
yfirleitt meiri málningu við verkið
en fólk almennt. Til dæmis þegar
við notum málningarúllu, þá klár-
um við aldrei efnið í rúllunni, en
fólk málar oft þannig að það setur
rúlluna í bakkann og rúllar svo alla
málninguna úr henni á vegg áður
en það dýfir þurri rúllunni í bakk-
ann aftur. Vegna þess gerist það
að rúlluför koma á vegginn, því
þegar verið er að rúlla allri máln-
ingunni úr og þrýsta á með rúll-
unni safnast málning í hárin á könt-
unum og myndar rendurnar á
veggnum. En það er algengur mis-
skilningur hjá fólki að vinna málara
sé eingöngu að mála, vinnan liggur
fyrst og fremst í forvinnu og við-
gerðarvinnu, sem er grunnurinn
að vel máluðum veggjum."
VE
Endanleg
útkoma velt-
ur á vinnu-
brögðunum
NOKKUR ORÐ UM ÁHÖLD,
AÐFERÐ OG EFNI
ÞEGAR komíð er inn í máln-
ingavöruverslun til að
kaupa efni og áhöld er úr-
valið mikið og oft erfitt að
velja. En nokkur atriði er
ágætt að hafa í huga.
Ódýrir málningapenslar eru
ódýrir af því að þeir eru ekki eins
vandaðir og dýrari gerðir. Nógu
góðir til að mála yfir vinnuborð í
bílskúrnum, en ekki beint fyrir
stofuveggina. Á hinn bóginn er
kannski óþarft að velja sér þá allra
dýrustu, því þeir eru fyrst og
fremst ætlaðir fagmönnum og eiga
að standast notkun í langan tíma.
Ef mála á með málningu sem hef-
ur mikinn gljáa, t.d. á húsgögn, eða
á lítinn flöt, er hentugast að nota
til þess flatan 5 sm breiðan pens-
il. Til málunar á heilan vegg er
betra að nota 10 sm flatan pensil
eða jafnvel enn breiðari. Hann
þekur þá stærri flöt, en verkið
getur orðið dálítið seinlegt því stór
pensill fullur af málningu er þungur
í vöfum.
En það má ekki taka pensil úr
plasti og dýfa beint ofan í dós.
Sérstaklega er þetta áríðandi ef
málað er með miklum gljáa. Nýja
pensla á að þvo fyrir fyrstu notkun
úr volgu sápuvatni og renna fingri
í gegnum nokkrum sinnum. Þetta
er gert til að mýkja endana og
losna við hár sem eru laus fyrir.
Reyndar á þetta ekki bara við um
nýja pensla heldur alla.
Ef menn eru að flýta sér eru
málningarúllur góður kostur og af
þeim eru ýmsar gerðir. Ekki kaupa
svampkennda rúllu úr plasti þótt
hún kunni að vera ódýr, því hún
er einungis til að forma perlu-
kennda áferð og ef reynt er að
mála venjulega með slíkri rúllu írist
málningin út frá henni.
Málningarúllur eru til með
lambahárum, móhair-hárum og
mjúkum gervihárum, bæði mjög
fínar og grófari. Þumalfingurreglan
er að sé flöturinn sem mála á silki-
mjúkur og sléttur á að nota rúllu
með mjög mjúkum hárum, en gróf-
ari eftir því sem flöturinn sjálfur
er grófari viðkomu. Svo verður
auðvitað að hafa pensil til staðar
fyrir horn og jaðra og muna að
uppskriftin að rúlluförum í máln-
ingunni er að rúlla henni allri út á
vegginn. Til að forðast það þarf
að dýfa rúllunni í málningu aftur,
áður en allt er búið í henni.
Hvað varðar málninguna sjálfa,
að lokinni forvinnu, þá þarf að spá
í þegar verið er að mála með Ijós-
um lit yfir dökkan vegg, hvort borgi
sig að fara fyrst eina umferð yfir
með hvítu. Þetta á helst við þegar
mála á með pastellitum, sem þekja
fremur illa og yfirleitt verður að
gera ráð fyrir þremur umferðum
af litnum í stað tveggja sé ekki
grunnað með hvítri málningu. :c
Síðan á aldrei að þynna málnt
ingu meira en stendur á dósinni
frá framleiðendum - nema þegar
verið er að oðra veggi með tveim-
ur litum. Þá er grunnliturinn málað-
ur eins og venjulega, en yfirliturinn
þynntur út til helminga áður en
hann er settur á með svampi eða
burstum og svo lakkað yfir með
glæru.
Áður en málningardós er opnuð
þarf að þurrka af lokinu þannig að
ekkert ryk falli í og passa að aflaga
ekki lokið, þannig að hægt sé að